Morgunblaðið - 22.05.1984, Side 22

Morgunblaðið - 22.05.1984, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984 IMtoYgisiiMafeifr Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. f lausasölu 20 kr. eintakiö. V erzlunarsamkeppni metin sem kjarabót að hefur vakið athygli að einn af forystumönnum Alþýðubandalags, Hjörleifur Guttormsson fyrrverandi ráð- herra, telur verzlunar- samkeppni mikilvægt kjaraat- riði fyrir alþýðu manna. í þingræðu, sem hann flutti 10. maí sl., gerir hann m.a. sam- anburð á mismunandi stöðu fólks í þéttbýli og strjálbýli, félagslegri og kjaralegri, og sagði m.a.: „Nú þegar samkeppni vex í sambandi við smásölu hér á Reykjavíkursvæðinu verður enn augljósari sú mismunun sem fólk býr við um kaup á lífsnauðsynjum ... Ég held að þarna sé verulegt umhugsun- arefni fyrir kaupfélögin, sem víða um land eru aðalverzlan- ir, sums staðar einu verzlan- irnar í heilum byggðarlögum. Ég veit að víða er komin krafa um það og hreyfing hjá alþýðu manna að stofna sérstök verzl- unarfélög til þess að geta fengið skapleg viðskipti fram hjá kaupfélaginu ... Þetta er einn verulegur þáttur þess þegar stórmarkaðir hér í Reykjavík keppast um við- skiptavinina og hafa með sam- keppni sinni, a.m.k. um skeið, fært niður verð á lífsnauðsynj- um þannig að umtalsvert er u Hér er það viðurkennt, sem raunar er á almannavitorði, að verzlunarsamkeppni tryggir neytendum betra vöruúrval og hagstæðara verð en verzlunar- einokun, hvort hún væri ríkis- rekin, sem er viðtekin regla í ríkjum sósíalisma, eða í hönd- um kaupfélaga, eins og víða er í strjálli byggð hér á landi. Það var einkaverzlunin sem braut ís um þá verzlunarþjón- ustu og samkeppni, sem Hjör- leifur metur íbúum höfuðstað- arsvæðisins til tekna umfram strjálbýlisfólk. Þar sem kaup- félögin eru ein um hituna er „hreyfing hjá alþýðu manna“, svo notuð séu orð Hjörleifs Guttormssonar, „að stofna sérstök verzlunarfélög fram- hjá kaupfélaginu til þess að geta fengið skapleg viðskipti". Á stöku stað hérlendis ber enn fyrir augu forneskju verzlunarófrelsisins, svo sem einokun Grænmetisverzlunar landbúnaðarins á innflutningi kartaflna. Ekki þarf að hafa mörg orð um þá þjónustu. Gegnir raunar furðu hvert langlundargeð almenningur hefur sýnt þeirri úreldingu. Alþýðubandalagið er í eðli sínu ríkisrekstrarflokkur, sem stefnir að hliðstæðum verzlun- arháttum og tíðkast í þjóðfé- lagsgerð sósíalisma og hag- kerfi marxisma, þ.e. að öll verzlunarstarfsemi lúti mið- stýrðri ríkiseinokun. Einkenni slíkra verzlunarhátta er tak- markað vöruúrval, vöntun ým- issa vörutegunda, skömmtun lífsnauðsynja og pólitísk verðstýring. Biðraðir við verzlanir er algeng sjón í þess- um ríkjum. Þess vegna stang- ast orð Hjörleifs Guttorms- sonar á við verzlunarstefnu Alþýðubandalagsins. Þau koma hins vegar heim og sam- an við sjálfan raunveruleik- ann. Lækkun rík- issjóðstekna Tekjutap ríkissjóðs á rætur í minni þjóðarframleiðslu, minni veltu í þjóðarbúskapn- um og lækkun ýmissar skatt- heimtu. Lækkun skattheimtu kemur fram í lægra hlutfalli heildartekna ríkissjóðs af þjóðartekjum. Skattalækkanir á ferli núverandi ríkisstjórnar felast m.a. í hækkun persónu- afsjáttar og barnabóta (lög nr. 56/1983), lækkun innflutn- ingsgjalds af bifreiðum, af- námi 10% álags á ferða- mannagjaldeyri, lækkun tolla og vörugjalds af ýmsum nauð- synjum (lög nr. 60/1983), niðurfellingu söluskatts af ýmsum vélum og tækjum til landbúnaðar, skattbreytingum til að stýra innlendum sparn- aði til atvinnuuppbyggingar o.fl. Talið er að þessar skatta- lækkanir rýri tekjur ríkissjóðs 1984 um allt að 600 m.kr. Á árabilinu 1981—1983 var vaxandi viðskiptahalli við út- lönd, innflutningur umfram útflutning, sem fjármagnaður var með erlendum skuldum, nýttur sem tekjustofn fyrir ríkissjóð í formi tolla, vöru- gjalds og söluskatts á þessa umframeyðslu þjóðarinnar. Tólf prósent rýrnun þjóðar- tekna 1982—1984, lækkun við- skiptahalla og stöðvun er- lendrar skuldasöfnunar hefur sagt til sín í minni veltu. Veltuskattar, sem gefa ríkis- sjóði rúmlega 80% tekna hans, hafa lækkað samsvarandi að raunverði. Ef þjóðartekjur væru jafn háar að raunvirði 1984 og 1982, sem mikið skortir á, og skattheimtan tæki jafn hátt hlutfall þeirra til ríkisbúskap- arins og þá var gert, yrðu rík- issjóðstekjur 3.500 m.kr. hærri 1984. Ólafs Jóhannesson- ar minnst á Alþingi Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti Sameinaðs þings, minntist Olafs heitins Jóhannessonar, fyrr- verandi forsætisráðherra og fyrr- verandi formanns Framsóknar- flokksins, með eftirfarandi orðum á Alþingi í gær: „Sú harmafregn barst í gær- morgun að Ólafur Jóhannesson, alþingismaður og fyrrverandi forsætisráðherra, hefði andast nóttina áður, aðfaranótt sunnu- dagsins 20. maí. Fyrir tæpum mánuði fór hann af Alþingi til sjúkrahúsdvalar en átti ekki aft- urkvæmt hingað. Hann var ald- ursforseti Alþingis, sjötíu og eins árs að aldri. ólafur Jóhannesson fæddist 1. mars 1913 í Stórholti í Fljótum. Foreldrar hans voru Jóhannes Friðbjarnarson bóndi þar og kennari og síðar bóndi á Lamba- nesreykjum í Fljótum og Krist- rún Jónsdóttir kona hans. Hann brautskráðist úr Menntaskól- anum á Akureyri vorið 1935 og lauk lögfræðiprófi í Háskóla ís- lands vorið 1939 að loknum glæsi- legum námsferli. Hann varð hér- aðsdómslögmaður 1942 og stund- aði framhaldsnám í Stokkhólmi og Kaupmannahöfn 1945—1946. Hann var lögfræðingur og endur- skoðandi hjá Sambandi íslenskra samvinnufélaga 1939—1943, var yfirmaður endurskoðunarskrif- stofu Sambandsins 1942—1943 og rak jafnframt með öðrum lög- manni málflutningsskrifstofu í Reykjavík 1940—1943. I Við- skiptaráð var hann skipaður í júní 1943 og starfaði þar rúmt ár. Haustið 1944 varð hann fram- kvæmdastjóri félagsmáladeildar Sambands íslenskra samvinnufé- laga og lögfræðilegur ráðunautur þess og kaupfélaganna. Hann var stundakennari við Samvinnuskól- ann 1937—1943 og við Kvenna- skólann 1942—1944. í febrúar 1947 varð hann prófessor í laga- deild Háskóla íslands og kenndi þar þangað til hann varð for- sætisráðherra sumarið 1971. Starfi sínu við Háskólann sagði hann lausu 1978. Við inngöngu íslendinga í Sam- einuðu þjóðirnar 1946 var Ólafur Jóhannesson einn af fulltrúunum á þingi þeirra. Hann var í út- varpsráði 1946—1953, formaður þess frá 1949, endurskoðandi Sambands ísl. samvinnufélaga 1948— 1960, í stjórn Háskólabíós 1949— 1971, í stjórn Seðlabanka íslands 1957—1961 og í bankaráði hans 1961 — 1964, í stjórn hugvís- indadeildar Vísindasjóðs 1958— 1962, stjórnarformað.ur Lífeyr- issjóðs togarasjómanna, síðar Lífeyrissjóðs sjómanna 1959— 1971, stjórnarformaður prent- smiðjunnar Eddu 1962—1979, fulltrúi í Norðurlandaráði 1963— 1969 og tók síðar þátt í störfum ráðsins sem ráðherra, og í Þing- vallanefnd var hann 1974—1980. Ólafur Jóhannesson átti sér langan og merkan starfsferil. Að námi loknu tóku við lögfræðistörf og lögfræðikennsla. Var hann vel til þeirra starfa búinn, samdi kennslubækur og önnur rit og fjölda ritgerða um lögfræðileg efni og var oft kvaddur til dóm- arastarfa í hæstarétti í fjarveru aðaldómaranna. Á árinu 1954 varð hann félagi í Vísindafélagi íslendinga. I stjórnmálum skip- aði hann sér ungur í flokk fram- sóknarmanna. Hann varð for- maður Félags ungra framsóknar- manna 1941, formaður Fram- sóknarfélags Reykjavíkur 1944, tók sæti í miðstjórn Framsóknar- flokksins 1946, var varaformaður hans 1960—1968, formaður 1968—1979, og formaður þing- flokksins 1969—1971. Við alþing- iskosningarnar 1956 var hann í framboði fyrir flokkinn í æsku- héraði sínu, Skagafjarðarsýslu, var kjörinn varaþingmaður og tók fyrsta sinn sæti á Alþingi vorið 1957. I vorkosningunum 1959 var hann kjörinn þingmaður Skagfirðinga. Eftir kjördæma- breytinguna það ár varð hann þingmaður Norðurlandskjör- dæmis vestra og var þingmaður þess kjördæmis tvo áratugi. Hann hvarf þó ekki af Alþingi árið 1979, því að hann varð þá við áskorun um framboð í Reykjavík og var upp frá því þingmaður Reykvíkinga. Hann sat á 29 þing- um alls. Á 14 þingum átti hann sæti í ráðherrastól. í júlí 1971 myndaði hann ríkisstjórn og var forsætisráðherra fram í ágúst 1974 og jafnframt dóms- og kirkjumálaráðherra. Við stjórn- arskiptin 1974 varð hann dóms- og kirkjumálaráðherra og við- skiptaráðherra. Að því stjórn- artímabili loknu, um mánaða- mótin ágúst—september 1978, myndaði hann ríkisstjórn öðru sinni og var forsætisráðherra fram í miðjan október 1979. Að lokum varð hann utanríkisráð- herra frá því í febrúar 1980 fram í maí 1983. Af starfsferli Ólafs Jóhannes- sonar, sem hér hefur verið rak- inn, má ljóst vera, að við fráfall hans er á bak að sjá mikilhæfum fræðimanni og stjórnmálaleið- toga, sem lokið hefur miklu ævistarfi. Honum var falið for- ustuhlutverk þjóðar sinnar innanlands og í samskiptum við aðrar þjóðir. Hann gegndi mikil- vægum störfum í ríkisstjórn á þeim árum, sem síðustu áfang- arnir náðust í stækkun fiskveiði- landhelgi íslands að 200 mílum. Sýndi hann í þeim málum sem oftar staðfestu og stjórnvisku. Öll störf sín rækti hann með vand- virkni og látleysi, var gjörhugull og glöggsýnn. Ekki fór hjá því um slíkan forustumann, að skoðanir manna væru skiptar um einstak- ar ákvarðanir og einstök verk. Ekki er þó að efa, að hann vann af heilindum og í samræmi við lífsskoðun sína og þjóðmála- stefnu og það sem hann taldi þjóðinni fyrir þestu. Á Alþingi hafði hann mest afskipti af stjórnsýslumálum, dóms- og utanríkismálum, auk umræðna um stjórnmál almennt. Hann var stefnufastur, talaði skipulega í ræðustól og varði málstað sinn með festu þegar á reyndi. Hann var þeim mannkostum búinn að hann naut mikils trausts og virð- ingar samþingismanna sinna, og nú er hann kvaddur með söknuði og samúð með þeim, sem næst honum stóðu og mest hafa misst. Ég vil biðja háttvirta alþing- ismenn að minnast ólafs Jóhann- essonar með því að rísa úr sæt- um.“ Flugmannasamning á endurskoðun uu Samningaviðræður flugmanna og Flugleiða sigldu í strand í fyrrinótt, eftir svo til linnulausa fundi alla helg- ina, og þegar slitnaði uppúr voru samningar á næsta leiti, eftir því sem báðir aðilar segja í samtölum við Morgunblaðið, en atriði það sem strandaði á, var að Flugleiðir vildu fá ákvæðum í kjarasamningum um hvfldartíma hreytt, þannig að tíma- setning yrði rýmkuð, en því höfnuðu flugmenn alfarið og sleit þá Guðlaug- ur Þorvaldsson ríkissáttasemjari fundinum og sagði deiluna nú úr sín- um höndum. „Á tímabili í gærkveldi leit út fyrir að samningar væru alveg að nást,“ sagði Erling Aspelund fram- kvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Flugleiða, í samtali við blm. Mbl. í gær. „Það var eitt atriði sem menn greindi á um, en það var hagræð- ingaratriði sem við vildum fá inn. Næturhvíldartími flugmanna skal vera 9 klukkustundir hjá flug- mönnum í millilandaflugi, en 8 klukkustundir hjá flugmönnum í innanlandsflugi. Við vorum reiðu- búnir að samþykkja að hann væri 9 klukkustundir hjá öllum flug- mönnum, en fórum fram á að hann hæfist kl. 20 en ekki 21 og honum lyki kl. 10 að morgni, en ekki kl. 9 eins og nú er. Þetta atriði hefur mikla hagræðingu í för með sér fyrir Flugleiðir, varðandi alla áætl- anagerð og skráningu. Til þess að flugmenn gengju að þessu atriði buðum við þeim verulegar kjara- bætur, en þeir mátu stöðuna þannig að það væri hagstæðara fyrir þá að halda næturhvíldartalningunni eins og hún er í núgildandi samn- ingum og þar með slitnaði upp úr.“ „Treysti því að flug- menn noti skynsemina“ Erling var spurður hvort hann ætti von á áframhaldandi skærum frá flugmönnum, fyrst samningarn- ir fóru út um þúfur, og svaraði hann þá: „Ég treysti því að svo verði ekki og að flugmenn noti skynsemina og sjái til þess að rekstur félagsins verði með eðli- legum hætti." Erling sagði að aðeins 5 læknis- vottorð hefðu borist frá flugmönn- unum 28 sem boðuðu veikindi nú fyrir helgi, og stöðvuðu þar með allt flug félagsins. I dag yrði svo gengið eftir því með ítrekun að þeir $em ekki hefðu skilað læknisvottorði, gerðu það. Erling sagði að eitt þeirra 5 vottorða sem borist hefðu, hefði hljóðað upp á það, að flug- maðurinn væri óvinnufær vegna sjúkdóms 18. 19. og 20. maí. „Það er afskaplega einkennileg tilviljun," sagði Erling, „að þetta eru ná- kvæmlega sömu dagar og flugmenn höfðu boðað verkfall á. Viðkomandi læknir viðurkennir í samtali við trúnaðarlækni félagsins að hann hafi ekki séð manninn. Annað læknisvottorðið er upp á það, að maðurinn sé óvinnufær vegna sjúkdóms 18. maí, að eigin sögn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.