Morgunblaðið - 22.05.1984, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 22.05.1984, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 1984 27 Morgunblaðið/Friftþjófur. Forsvarsmenn fyrirtækja sem sótt hafa um innflutningsleyfí á fundi hjá Verslunarráði íslands í gær. F.v.: Kristinn Guðjónsson (Bananar hf.), Haukur Hjaltason (Dreifíng sf.), Arnar Ingólfsson (Bananasalan sf.), Gísli V. Einarsson (Eggert Kristjánsson og co. sf.), Kjartan Stefánsson (Verslunarráði íslands) og Sigurður Gísli Pálmason (Hagkaup hf.). Sex af sjö umsækjendum um innflutningsleyfi á kartöflum: Ekki reiðubúnir til þátttöku í „hálfgildings einokunar- kerfi við hlið þess gamla“ SEX af þeim sjö aðilum sem sótt hafa um innflutningsleyfí á kartöfl- um, þ.e. allir nema Mikligarður, skrifuðu landbúnaðarráðherra bréf í gær þar sem þeir lýsa sig ekki reiðu- búna til þátttöku í því „hálfgildings einokunarkerfí við hlið þess gamla“ sem þeir telja það fyrirkomulag sem landbúnaðarráðherra hefur boðið þeim uppá sé og leggja til að inn- flutningur á kartöflum verði gefínn frjáls. Fulltrúar þessara aðila, Gísli V. Einarsson, fyrir hönd Eggerts Kristjánssonar og co hf.; Sigurður Gísli Pálmason, fyrir hönd Hag- kaups hf.,; Haukur Hjaltason, fyrir hönd Dreifingar sf.; Kristinn Guðjónsson, fyrir hönd Banana hf.; Arnar Ingólfsson, fyrir hönd Bananasölunnar sf. og Magnús Erlendsson, fyrir hönd Björgvins Schram umboðs- og heildverslun- ar, boðuðu til blaðamannafundar að loknum fundi sínum hjá Versl- unarráði fslands í gær og kynntu bréf sitt til ráðherra og sjónarmið sín í málinu. í bréfinu segja þeir að fullur skilningur sé hjá um- sækjendum á því að innlendir kartöflubændur eigi möguleika á að selja framleiðslu sína, að svo miklu leyti sem hún uppfylli kröf- ur neytenda. Á hinn bóginn sé um það að ræða á hvern hátt þörfum neytenda verði fullnægt á þeim tíma sem innlend framleiðsla er ekki á boðstólum. Telja þeir tillög- ur landbúnaðarráðherra ekki framkvæmanlegar án kvótaskipt- ingar, en slíkt haftafyrirkomulag stríði algjörlega gegn heilbrigðum viðskiptaháttum og sé vanvirðing við neytendur með hliðsjón af þeirri áskorun, sem rúmlega 20 þúsund neytendur hafa skrifað undir. Segjast þeir ekki vera til- búnir til þátttöku í hálfgildings einokunarfyrirkomulagi við hlið þess gamla. Þetta sé fyrst og fremst hagsmunamál neytenda og telji þeir að neytendum sé best þjónað í frjálsri samkeppni. Leggja þeir til að innflutningur með kartöflur verði gefinn frjáls, en ráðuneytið hafi á hendi að stöðva hann með eðlilegum fyrir- vara, þegar innlend framleiðsla kemur á markaðinn. Þá lýsa fyrir- tækin sig ekki síður reiðubúin til að dreifa innlendri framleiðslu en innfluttri og stuðla þannig að því að auka kartöfluneyslu lands- manna, sem kæmi innlendum framleiðendum til góða. Telja þeir fulla þörf á því eftir þá lægð sem þeir segja kartöflusöluna nú komna í við núverandi einokun- arfyrirkomulag. Þessi ákvörðun forsvarsmanna fyrirtækjanna sex er tekin í fram- haldi af svari landbúnaðarráðu- neytisins við fyrirspurn Verslun- arráðs íslands um nánari útfærslu á fyrirkomulagi sameiginlegs inn- strönduðu hvíldartíma sem sýnir jú að þessi vottorð eru beinlínis út í hött.“ „Hvfldartíminn eitt af grundvallaratriðum í öryggisreglum okkar“ „Samningarnir voru komnir á lokastig þegar slitnaði uppúr í nótt, Vegna þessa ákvæðis um hvíldar- tímaregluna, sem við vorum ekki reiðubúnir að breyta," sagði Björn Guðmundsson, formaður samninga- nefndar flugmanna í flugmanna- deilunni við Flugleiðir, í gær. ’„Við gátum ekki fallist á breyt- ingartillögur Flugleiða um hvíld- artímareglur okkar," sagði Björn, og bætti hann því við að flugmenn litu á hvíldartímann sem eitt af grundvallaratriðunum í öryggis- reglum sínum, og þeir gætu ekki fallist á neinar breytingar þar á. Björn sagði að ekkert hefði verið ákveðið af hálfu flugmanna hver yrðu næstu skrefin í þeirra baráttu, tíminn yrði bara að leiða það í Ijós. Er hann var spurður hvort hann ætti von á því að flugmenn veiktust á nýjan leik sagði hann: „Ég er ekki læknir, og ég get engu spáð um heilsu flugmanna." Björn var spurður álits á þeim ummælum Erlings Aspelund, að einn flugmannanna hefði skilað inn læknisvottorði, þar sem hann væri sagður ófær um að sinna störfum vegna sjúkleika, þann 18. 19. og 20. maí, en læknirinn sem hefði gefið út vottorðið hefði sagt í samtali við trúnaðarlækni Flugleiða að hann hefði aldrei séð viðkomandi sjúkl- ing: „Mér finnst nú svona ásakanir svo fáránlegar, að þær eiga ekki að vera sæmandi heilbrigðum mönnum. Hann er að ásaka lækn- inn þarna fyrir alvarlegt agabrot í stéttinni, og ég tel alveg víst að það mætti lögsækja mann fyrir að gefa út læknisvottorð, án þess að hafa hugmynd um, upp á hvað hann er að skrifa," sagði Björn. flutningsleyfis. I bréfi ráðuneytis- ins kemur fram að innfiutnings- leyfið gildi um skamman tíma, það er þar til nefnd sú sem starf- andi er á vegum ráðuneytisins hefur lokið verkefni sínu og ríkis- stjórnin fjallað um málið. Þó geti innflutningur aðeins farið fram, að hann skerði ekki sölumöguleika innlendrar framleiðslu sem ætla megi að komi á markað um mán- aðamótin júlí/ágúst. Ráðuneytið svarar ekki spurningu Verslunar- ráðsins um magn innflutnings. Segir í bréfinu að beiðni um inn- flutningsmagn þurfi að koma frá innflytjendum og að ekki sé hægt að segja fyrir um stærð leyfisveit- ingar fyrr en séð verður um hvað verður beðið og hvaða magn inn- lendur markaður hefur þörf fyrir. Til að byrja með verði tekin ákvörðun um vikulegan innflutn- ing til júníloka, sem innflytjendur skipti með sér. Þá kemur fram að allir nýir aðilar sem óska eftir að- ild að innflutningi þurfi að eiga aðgang að hinu sameiginlega inn- flutningsleyfi, að því tilskyldu að þeir uppfylli nauðsynlegar kröfur um aðstöðu fyrir vöruna. í gær var haldinn stjórnarfund- ur í Grænmetisverslun landbún- aðarins þar sem rætt var um stöðu fyrirtækisins í framhaldi af síð- ustu atburðum í kartöflumálinu svokallaða, m.a. innflutningi einkafyrirtækja og vilyrði land- búnaðarráðherra um sameiginlegt innflutningsleyfi til umsækjenda. Ingi Tryggvason, formaður stjórn- arinnar, sagði í samtali við blm, Morgunblaðsins að engar ákvarð- anir hefðu verið teknar, en málin rædd. Sagði hann að Grænmetis- verslunin starfaði áfram eins og ekkert hefði í skorist og að síðustu atburðir í málinu kölluðu ekki á nein sérstök viðbrögð af hálfu fyrirtækisins, enda teldi hann ekki ástæðu til annars en að hún gæti þrifist áfram. Listvinafélag Hallgrímskirkju: Matthíasarkvöld Matthíasarkvöld Jochumssonar verður haldió í Hallgrímskirkju á morgun, miövikudag, kl. 20.30. Aö kvöldinu stendur Listvinafélag Hallgrímskirkju, en Guórún Ás- mundsdóttir, leikari, hefur umsjón meó dagskránni. „Listvinafélag Hallgrímskirkju hafói fvrir nokkru komið aö máli við mig um aó taka saman dagskrá," sagói Guórún í samtali viö blm. Mbl. „Síöan vor- um við hér sex leikarar sem höfö- um áhuga á að glíma viö góöan texta og því var tilvalið aó taka saman dagskrá um líf og verk Matthfasar Jochumssonar og flytja á vegum Listvinafélagsins." Auk Guðrúnar koma fimm leikarar fram á kvöldinu, þau Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Eyvindur Erlingsson, Hrönn Steingrímsdóttir, Sigrún Edda Björnsdótttir og Valgeir Skag- fjörð. Þá tekur Hörður Áskels- son, píanóleikari einnig þátt í dagskránni. Aðspurð um dagskrána, sagði Guðrún að hún byggði á smá- atriðum úr lífi Matthíasar og inn í þau fléttuðust ýmis ljóð hans, auk þess sem flutt yrði leikatriði úr Skugga-Sveini, sem skáldið skrifaði 1898. „Við kynn- um Matthías og segjum frá ýms- um æviatriðum hans, lesum upp úr ævisögunni og tengjum við Matthías Jochumsson frásögnina ljóð hans. Þá verður leikritið Skugga-Sveinn kynnt áður en leikatriðið verður flutt og jafnvel lesnir upp leikdómar um það,“ sagði Guðrún Ás- mundsdóttir. Þess má geta að Matthías- arkvöldið er ekki fyrsta dagskrá- in sem Guðrún hefur séð um á vegum Listvinafélagsins. Hún vinnur nú að gerð leikrits um Kaj Munch, sem ráðgert er að verði frumsýnt næsta haust og stendur til að það verði flutt í sem flestum kirkjum a.m.k. á höfuðborgarsvæðinu. Andreas Schmidt barítónsöngvari og Hörður Áskelsson stjórnandi Mót- ettukórs Hallgrímskirkju. Tónleikar Mótettu- kórsins endurteknir ÁKV'EÐIÐ hefur verið aó endurtaka tónleika Mótettukórs llallgríms- kirkju í kvöld vegna góörar aðsóknar, en kórinn hélt tónleika á sunnudag- inn í Kristskirkju, þar sem meðal annars var flutt mótettan Jesu, meine Frcude eftir J.S. Bach og var það í fyrsta skipti sem hún cr flutt á íslensku, en Sigurbjörn Einarsson, fyrrverandi biskup, hefur þýtt-verkiö í samvinnu viö Heimi Pálsson, cand. mag. Annað sem er á verkefnaskrá kórsins er Festival Te Deum eftir Benjamin Britten fyrir kór og orgel, auk mótetta eftir Hassler, Kuhnau, Poulenc og raddsetn- ingar eftir Jón Nordal, Þorkel Sigurbjörnsson og Jón Hlöðver Áskelsson við texta Hallgríms Péturssonar. Þýski barítónsöngvarinn And- reas Schmidt er sérstakur gestur tónleikanna og mun á tónleikun- um syngja Biblíuljóð eftir Dvorak við undirleik Marteins H. Frið- rikssonar. Andreas Schmidt er aðeins 23 að aldri og hefur hlotið skjótan frama í heimalandi sínu. Hann er nemandi Fischer-Diskau og er nú kominn á fastan samning við óperuna í Berlín auk þess sem hann hefur unnið til fjölda verð- launa. Schmidt hefur tvívegis áð- ur komið til íslands og sungið í Hallgrímskirkju og í sjónvarps- sal. Tónleikarnir verða í Krists- kirkju og hefjast klukkan 21.00. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn. Stjórnandi Mótettu- kórs Hallgrímskirkju er Hörður Áskelsson. Ný höfundalög sam- þykkt frá Alþingi NÝ HÖFUNDALÖG voru afgreidd frá neöri deild Alþingis í gær. Gera lögin m.a. ráó fyrir, aó höfundar verka, sem útvarpaó hefur verið eða gefín hafa verið út á hljóðriti eöa myndriti, eigi rétt á sérstöku endur- gjaldi vegna upptöku verka þeirra til einkanota. Þá skal greióa gjald af tækjum til upptöku verka á hljóö- og myndböndum til einkanota, svo og af auðum hljóð- og myndböndum og öórum böndum sem telja má ætluó til slíkra nota. Þá varö frumvarp til laga um málnefnd einnig að lögum frá Alþingi í gær. J hinum nýju höfundalögum segir um hið nýja gjald: „Gjaldið skal greitt af tækjum og böndum sem flutt eru til landsins eða framleidd eru hér á landi og hvílir skylda til að svara gjaldi þessu á innflytjendum og framleiðendum. Gjald af tækjum nemi 4% af inn- flutningsverði eða framleiðslu- verði ef um innlenda framleiðslu er að ræða. Gjald af auðum hljóðböndum nemi kr. 10.00, en kr. 30.00 ef um auð myndbönd er að ræða. Menntamálaráðherra setur nánari reglur um gjald þetta þ.ám. um verðtryggingu gjalds- ins.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.