Morgunblaðið - 26.05.1984, Side 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
119. tbl. 71. árg.
LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1984
íraskar þotur ráðast á
skipalest á Persaflóa
Reykjarmökkur stígur upp fri saudi-arabísku olíuflutningaskipi á Persaflóa.
Bagdad, 25. maí. AP.
ÍRAKAR tilkynntu í dag að þeir
hefðu ráðizt á skipalest á Persaflóa
og orrustuþotur þeirra og herskip
hefðu eytt sex skipum nálægt ír-
önsku hafnarborginni Bandar
Khomeini. Á sama tíma hefðu tund-
urdufl laskað tvö önnur skip á Khor
Moussa-skurði.
f ranska fréttastofan sagði að 35
íraskir hermenn hefðu verið felld-
ir á norðurvígstöðvunum og 117
neðanjarðarbyrgi eyðilögð á suð-
urvígstöðvunum. Búizt er við
hefndarárásum íranskra herflug-
véla í grennd við landhelgi Saudi-
Arabíu og Kuwait.
Hundruð þúsunda islamskra
byltingarvarða og sjálfboðaliða
gengu um götur Teheran og fleiri
borga i íran til að sýna áhuga á að
taka þátt í bardögunum. Þeir báru
spjöld sem á stóð: „Við munum
gera Persaflóa að grafreit árásar-
mannanna ef Bandaríkjamenn
gera árás“ og „Við munum verja
Islam til síðasta blóðdropa."
Síðustu árásirnar voru gerðar í
þann mund sem öryggisráð SÞ kom
saman , til skyndifundar um
ástandið. Fundurinn hófst með
þeirri viðvörun utanríkisráðherra
Kuwaits að frekari stigmögnun
gæti leitt til árekstra risaveld-
anna á Persaflóa.
Talsmaður Ronald Reagans var
minntur á loforð forsetans um að
halda Hormuz-sundi opnu, en
neitaði að svara þegar hann var að
því spurður hvort Bandaríkja-
stjórn teldi að Persaflói væri enn-
þá opinn alþjóðlegum siglingum.
Hann sagði að stjórnin gerði allt
sem hún gæti og teldi nauðsyn-
legt.
Caspar Weinberger landvarna-
ráðherra sagði þá hættu „mjög al-
varlega" að franir gripu til ein-
hverra vanhugsaðra aðgerða, sem
gætu leitt til árekstra milli þeirra
og Persaflóaríkjanna og Banda-
ríkjanna. Spurningin væri hvort
ríki eins og Saudi-Arabía gætu
varizt árásum frá íran eða hvort
þau vildu einhverja aðstoð.
New York Times hefur eftir sér-
fræðingum að íranir undirbúi
árásir á olíulindir Saudi-Araba og
árásir sjálfsmorðsflugvéla á olíu-
flutningaskip. Vitnað var í slíkar
fréttir til að styðja þá ákvörðun
Bandaríkjastjórnar að senda 200
Stinger-loftvarnaflaugar til
Saudi-Arabíu og 1.000 eldflaugar
síðar að sögn blaðsins.
Starfsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins sagði að íranir
kynnu að hefja meiriháttar árás á
íraka í föstumánuðinum Rama-
dan, sem hefst 1. júní.
Tryggingagjöld olíuskipa, sem
sigla til Persaflóa, hækkuðu um
150% í dag. Olíuráðherra Saudi-
Arabíu kvaðst óttast að Persaflói
lokaðist vegna þess að trygginga-
gjöld yrðu of há.
The Economist áætlaði í dag að
vegna Persaflóastríðsins væri
olíuverð í heiminum 15—25%
hærra en eðlilegt gæti talizt.
Fundur Geirs og Shultz um varnarliðsflutningana í Washington í gær:
„Bandaríkjamenn bera enn
fyrir sig lögin frá 1904“
— segir utanríkisráðherra — hittir Weinberger varnarmálaráðherra á þriðjudaginn
„Bandaríkjamenn bera enn fyrir
sig þau vandkvæði, sem þeir sjá á
því að komast hjí lögunum frá
1904 um forréttindi bandarískra
skipa til að annast vöruflutninga
fyrir Bandaríkjaher. Ég geri mér
þó vonir um að þeir séu farnir að
sjá kosti þess að þessir flutningar
séu á jafnréttisgrundvelli," sagði
Geir Hallgrímsson, utanríkisráð-
herra, í samtali við blaðamann
Mbl. í gærkvöldi. Þá var nýlokið í
Washington fundi Geirs og George
Shultz, utanríkisráðherra Banda-
rfkjanna. Ráðherrarnir ræddust
við í hartnær tvær klukkustundir.
Á þriðjudaginn mun Geir Hall-
grfmsson eiga fund með Caspar
Weinberger, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna. Þá um hádegið
hefst vorfundur utanrfkisráðherra
Atlantshafsbandalagsins, sem
haldinn er í Washington í tilefni 35
ára afmælis bandalagsins.
Vöruflutningarnir til varnar-
liðsins á Keflavíkurflugvelli
voru helsta umræðuefnið á fundi
ráðherranna. Flutningarnir, sem
hafa verið á hendi fslensku
skipafélaganna í hartnær tvo
áratugi, eru nú að færast að
verulegu leyti til nýstofnaðs
bandarísks skipafélags, Rainbow
Navigation, Inc. Fyrsta skip fé-
lagsins kemur með vörur til
varnarliðsins hingað til lands á
mánudagsmorgun. Af hálfu fs-
lensku skipafélaganna, Eimskips
og Hafskips, hefur því verið
mótmælt að bandarfskt skipafé-
lag geti yfirtekið flutningana í
skjóli 80 ára gamalla einokunar-
laga. Geir Hallgrímsson,
utanríkisráðherra, ritaði banda-
ríska utanrfkisráðherranum
bréf vegna þessa máls fyrir
nokkrum vikum og óskaði eftir
fundi þeim, er haldinn var í gær.
Georíe Geir
Hallgrímsson
„Við Hans G. Andersen, sendi-
herra íslands f Washington,
lögðum á það áherslu á fundin-
um með Shultz utanríkisráð-
herra og Richard Burt, aðstoðar-
utanríkisráðherra um Evrópu-
málefni, að í þessu máli bæri að
tryggja jafnrétti og þátttöku Is-
lendinga í flutningunum," sagði
utanríkisráðherra. „Við ræddum
einnig um samvinnu og samstarf
ríkjanna almennt. Radarstöðva-
máííð var láusléga minnst á en um
aijornstööina á Keflavíkurflug-
velli, sem ég heyri frá íslandi að
sé talsvert talað um, var ekkert
rætt,“ sagði Geir.
„Við fórum yfir vöruflutn-
ingamálið i einstökum atriðum
og lögðum fyrir þá greinargerð,
sem þeir kváðust myndu taka til
áframhaldandi athugunar. í
framhaldi af þessum fundi geri
ég ráð fyrir að eiga fund með
Caspar Weinberger, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
kl. 10:30 á þriðjudagsmorgun. Ég
taldi rétt að eiga fund með
Weinberger varnarmálaráð-
herra til að ræða flutningamálið
frekar og eins munum við að
sjálfsögðu ræða um tvíhliða
samskipti landanna á sviði varn-
armála. Hvort beinn árangur í
flutningamálinu fæst á þessum
fundum er of snemmt að segja á
þessari stundu," sagði Geir Hall-
grímsson, utanríkisráðherra.
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Gary Hart
Hart vann
Boise, Idabo, 25. maí. AP.
GARY Hart öldungadeildarmaður
sigraði keppinauta sína á kjörfund-
um demókrata í Idaho í vesturhluta
Bandaríkjanna og fær 57 % atkvæða.
Úrslit eru ekki að fullu kunn, en
svo virðist sem Hart fái 11 af full-
trúum demókrata í Idaho á lands-
fundi demókrata, Walter Mondale
sjö og Jesse Jackson engan. Demó-
kratar í Idaho senda auk þess
fjóra óháða fulltrúa á landsfund-
inn.
Þar með hefur Mondale tryggt
sér 1656 fulltrúa á landsfundinn,
Hart 988 og Jackson 307.
Ókyrrð á
peninga-
markaði
Washington, 25. maí. AP.
RONALD Reagan forseti fékk í dag
skýrslu um ókyrrð á fjármálamark-
aði, en var sagt að sögusagnir um
vanda stórbanka hefðu ekki við
neitt að styðjast
Þær herma að fyrirtækið Manu-
facturers Hanover í New York
standi höllum fæti. Fjórði stærsti
viðskiptabanki Bandaríkjanna er
dótturfyrirtæki þess.
Bankinn Continental Illinois í
Chicago hefur staðið tæpt og aðrir
bankar lánuðu honum einn og
hálfan milljarð dala.
Verð í kauphöllum færðist í
eðlilegt horf í dag, en dollarinn
lækkaði. Gullið hækkaði.
Svíar auka
herútgjöld
Frá Erik Lidén ÍSlokkhólmi.
SÆNSKA þingið samþykkti í gær
herútgjöld að upphæð 20 milljarðar
s. króna.
Einhugur ríkti nema hvað
kommúnistar féllu frá stuðningi
við rúml. tveggja milljarða króna
hækkun útgjalda til 1987.
Sósíaldemókratar héldu opnum
möguleika á að Svíar smíði nýja
herflugvélartegund í stað JAS,
sem þeir höfðu sagt að yrði síðasta
herflugvélartegund, sem Svíar
smíðuðu sjálfir.
1 varnarmálafrumvarpinu er
lögð mikil áherzla á varnir gegn
kafbátum. Umræðurnar báru vott
um mikla samstöðu.
Olof Palme forsætisráðherra og
Ulf Adelsohn, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar, sættu gagnrýni
fyrir stóryrði í kafbátamálinu.