Morgunblaðið - 26.05.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1984
5
Sjálfstæðisflokkurinn 55 ára:
Félög sjálfstæð-
ismanna víða um
land hafa opið hús
Næstkomandi þriðjudag, 29. maí, eru liðin 55 ár frá stofnun Sjálfstæðis-
flokksins. í tilefni þess gangast félög sjálfstæðismanna víða um land fyrir
fagnaði og hafa opið hús. Boðið verður upp á kaffi og meðlæti og eru
stuðningsmenn og fjölskyldur þeirra velkomin.
Sjálfstæðisflokkurinn á Sel-
tjarnarnesi heldur upp á afmælið í
dag, laugardag, í nýjum húsa-
kynnum við Austurströnd kl.
15.00—18.00. Á Höfn í Hornafirði
verður opið hús kl. 15.00—18.00 á
sunnudag í Sjálfstæðishúsinu.
Önnur félög minnast afmælisins á
þriðjudag, sem hér segir:
Reykjavík, Valhöll, Háaleitisbraut
1, kl. 16.00—18.00. Þar verður
einnig barnagæsla.
Akranes í Sjálfstæðishúsinu kl.
16.00-19.00.
Borgarnes í Sjálfstæðishúsinu kl.
20.00-22.00.
Sauðárkrókur í Sæborg kl.
20.30- 22.00.
Siglufjörður á Hótel Höfn kl.
20.00-22.00.
Akureyri í Kaupangi við Mýrarveg
kl. 16.00-19.00.
Vestmannaeyjum í Hallarlundi kl.
20.30- 23.00.
Keflavík i Sjálfstæðishúsinu kl.
20.00-23.00.
Njarðvík í Sjálfstæðishúsífiu kl.
16.00-19.00.
Vonast er til að sem flestir sjái
sér fært að koma og ræða málefni
flokksins yfir kaffibolla.
Ályktanir Félags áhugamanna um jafnan kosningarétt;
Lýsa vanþóknun sinni
á samþykkt Alþingis
MORGUNBLAÐINU hafa borizt tvær athugasemdir frá Félagi áhugamanna
um jafnan kosningarétt og eru báðar undirritaðar af formanni félagsins,
Valdimar Kristinssyni. Önnur athugasemdin er um samþykkt Alþingis, en
hin um skoðanakönnun Hagvangs. Athugasemdirnar fara hér á eftir:
„Félag áhugamanna um jafnan
kosningarétt lýsir vanþóknun
sinni á samþykkt Alþingis um
stjórnarskrárbreytingu og fjölgun
alþingismanna. Félagið telur, að
samþykktin muni verða til þess
eins að tefja endanlega jöfnun at-
kvæðisréttar, sem sé nauðsynleg-
ur grundvöllur lýðræðis. Einnig
telur félagið ámælisvert, að þetta
litla skref, sem stigið er í réttlæt-
isátt, skuli framkvæmt með þeim
hætti að fjölga þingmönnum, al-
gjörlega í trássi við þjóðarvilja.
Félag áhugamanna um jafnan
kosningarétt telur einsýnt, að bar-
áttunni fyrir jöfnum kosninga-
rétti verði haldið áfram og ítrekar
þá kröfu, að þjóðaratkvæða-
greiðslan verði látin ráða í þessu
mikilvæga máli.“
„f tilefni af skoðanakönnun
Hagvangs, sem kynnt var í dag-
blöðum um helgina, vill félagið
Afmælishappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
Opið um
helgina
Afmælishappdrætti Sjálfstæð-
isflokksins er nú í fullum gangi.
Mióar hafa verið sendir stuðn-
ingsmönnum hér í Reykjavík og
út um land. Er fólk hvatt til að
auðvelda innheimtustarfið og
gera skil sem fyrst, en dregið
verður 9. júní næstkomandi.
Hægt er að láta sækja andvirði
miða heim, ef þess er óskað.
Skrifstofa happdrættisins er
í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og
verður hún opin i dag kl.
10—18 og á morgun kl. 14—18,
og síminn er 82900.
(Frétutilk/nniag)
......I ■ I I
gera þá athugasemd, að niður-
staða könnunarinnar virðist vera í
ósamræmi við niðurstöður fyrri
kannanna um sama efni. f því
sambandi kann að skipta máli, að
spurning Hagvangs er sett fram á
hlutdrægan hátt. í fyrsta lagi er
smáorðinu „aðeins" skotið inn á
stað, þar sem það getur haft leið-
andi merkingu. f öðru lagi er full-
yrt að samkvæmt gildandi lögum
þurfi hlutfallslega séð 4 atkvæði
til að fá mann kjörinn í Reykjavík
á móti 1 atkvæði á Vestfjörðum.
Þetta er rangt, því að hlutfallið
fer mjög eftir því, hve margir
flokkar bjóða fram. Miðað við
niðurstöður síðustu alþingiskosn-
inga er ávinningurinn af nýsam-
þykktri stjórnarskrárbreytingu
miklu minni en spurning Hag-
vangs gefur í skyn. Ástæða er til
að spyrja, hver hafi átt frum-
kvæðið að þessari könnun Hag-
vangs og ráðið orðalagi spurn-
ingarinnar. Félag áhugamanna
um jafnan kosningarétt telur ein-
sýnt, að skoðanakönnun af þessu
tagi þurfi að vera skrifleg, þannig
að fólki gefist tækifæri til að lesa
spurninguna vandlega og ihuga
svarið. Með því móti er jafnframt
hægt að útiloka að framsetning og
áherslur spyrjanda geti haft áhrif
á svörin.“
fERTUB0INNs\
AÐ SK0ÐA
fAUÐWAÐ, £Ar>
HEFUR ÞO KEW
k HANN? J
W,
írairLhjóladiiflnn FIAT gœöingur
aana RESflTfl ER RÉTTA
hann er
— aíburöa sparneytinn
— rúmgóöur meö „risaskott"
— frábcer í akstri
— á mjög góöuveröi
Sex ára ryövarnarábyrgö
KYNNINGARVERÐ - OG KJÖR
Á þessari fyrstu sendingu bjóðum við sérstakt kynningarverð og reynum
að haía hátíðaryfirbragð á kjörunum Útborun í REGATA getur verið allt
oían í ÍOO.OOO,- krónur og verðið er hreint ótrúlegt fyrir rúmgóðan,
framhjóladrifinn glœsivagn.
kr. 329.000.-
(gengi 2/5 '84)
vuÍálmssonhrJF/7/AJt
Smidjuvegi 4 Kópavogi. Simar 77200 - 77202.
Vörumarkaðurinnhf.
Armúla 1A Eióistorgi 11