Morgunblaðið - 26.05.1984, Side 14

Morgunblaðið - 26.05.1984, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1984 Hvað er á seyði í Réttarholti? — eftir Markús Örn Antonsson Fræðsluráð samþykkti á fundi sínum sl. mánudag, að starfsemi f Réttarholtsskóla yrði óbreytt næsta vetur. Á fundi ráðsins hinn 30. apríl sl. var lagt fram bréf menntamálaráðherra, þar sem þess var óskað að kannaðir yrðu möguleikar á því að menntamála- ráðuneytið fengi til afnota aukið húsnæði vegna sérskóla, svo sem Myndlista- og handíðaskóla ís- lands og Leiklistarskóla íslands. „Er hér sérstaklega haft f huga húsnæði Réttarholtsskóla," segir f bréfi ráðherra. og ennfremur: „Ráðuneytið fer þess á leit að hluti þess húsnæðis a.m.k. verði til ráðstöfunar á hausti komanda." Athugun nauðsynleg Þessu bréfi ráðuneytisins taldi fræðsluráð ekki unnt að svara án undangenginnar athugunar á nemendafjölda í Réttarholtsskóla, Breiðagerðisskóla og Fossvogs- skóla og aðstæðum þeirra að öðru leyti. Svo háttar til í umræddu skólahverfi, að Breiðagerðisskóli og Fossvogsskóli hafa nemendur upp f 6. bekk en sfðan hafa þeir stundað nám í 7., 8. og 9. bekk í Réttarholtsskóla og lokið þaðan grunnskólaprófi. Auk þess tekur Réttarholtsskóli nemendur í svon- efnt fornám, — nemendur, sem ekki hafa náð tilskildum árangri til að fara f framhaldsskóla. Er hér um að ræða nemendur sem koma vfða að úr borginni og mætti leysa þeirra mál í öðrum skóla, ef henta þætti. Vissulega geta slfkar athuganir, sem unnar hafa verið á stöðu Réttarholtsskóla síðustu vikurnar, verið starfsfólki skólans til ein- hvers ama. En eins og málið bar að var fræðsluráði ekki stætt á öðru en að gefa svar af eða á að undangenginni einhverri umfjöll- un. Svarið hefur verið gefið og verður fornám f Réttarholtsskóla næsta vetur og einnig 7., 8. og 9. bekkur. Sem sagt óbreytt ástand. Ekki spurt um afstöðu fræðsluráðs Skólastjóri Réttarholtsskóla hefur að undanförnu haft sig nokkuð í frammi í blöðum og gert mál þetta allt hið tortryggi- legasta, m.a. látið f veðri vaka að formaður fræðsluráðs lægi á ein- hverjum mikilsverðum upplýsing- um. í skólanum hefur verið boðað til foreldrafundar til að ræða stöðu mála og að honum loknum var spurt hvort Réttarholtsskól- inn hefði virkilega verið lagður niður. Enginn hefur haft fyrir því að krefja formann fræðsluráðs skýringa á hvað væri að gerast, hver sjónarmið meirihluta fræðsluráðs eða allra fræðslu- ráðsmanna væru í þessu máli. Svo virðist sem starfslið Réttar- holtsskóla hafi talað sig upp í ein- hverja geðshræringu, sem hafi jafnframt truflað ró foreldra og nemenda án þess að nokkur gerði tilraun til að fá skýr svör við þvf, hvað raunverulega væri á seyði. Þegar ég tók sæti f fræðsluráði sumarið 1982 hafði sérstök nefnd unnið að athugunum á skólaskip- an í suðausturhluta borgarinnar, þar sem Réttarholtsskóli, Breiða- gerðisskóli og Fossvogsskóli komu til sérstakrar athugunar og var að því hugað, hvort fækka mætti skólunum. Þetta var á sfðasta kjörtímabili. Ekki var ráðizt f neinar breytingar. Raddir fólksins í hverfinu Meðal fyrstu verka fræðsluráðs eftir að ég tók þar við formennsku var umræða um erindi frá for- eldrafélagi Breiðagerðisskóla og einnig skólastjóra Fossvogsskóla. Á fundi fræðsluráðs 14. júnf 1982 voru mættir tveir fulltrúar for- eldrafélags Breiðagerðisskóla ásamt skólastjóranum. 1 fram- lögðu bréfi þeirra sagði orðrétt: „Með þessu erindi vill Foreldra- félag Breiðagerðisskóla beina þeirri eindregnu tillögu til Fræðsluráðs að hafin verði við skólann kennsla 7. bekkjar grunnskóla næsta haust. í mai síðastliðnum gekkst for- eldrafélagið fyrir skoðanakönnun á afstöðu foreldra til kennslu 7., 8. og 9. bekkjar grunnskólastigs við Breiðagerðisskóla. Var könnun Markús Öm Antonsson „Málefni Réttarholts- skóla verða til áfram- haldandi meðferðar hjá fræðsluyfirvöldum. Erf- itt er að sjá það fyrir nú, hvort nokkur grundvöll- ur verður fyrir því í næstu framtíð að af- henda hann í heilu lagi undir rekstur sérskóla.“ þessi gerð að beiðni nokkurra for- eldra 12 ára barna f skólanum. Eins og eftirfarandi niðurstöður sýna er það ótvíræður vilji meiri- hluta foreldra að hafin verði kennsla í 7. bekk strax næsta haust. Margir létu þá ósk f ljós að Réttarholtsskóli verði gerður að fjölbrautaskóla fyrir unglinga í Suðausturbæ." í bréfi þessu kemur eftirfarandi ennfremur fram: „Síðastliðinn vetur sendu skóla- stjóri og kennarar Breiðagerðis- skóla fræðsluráði greinargerð, þar sem lýst er yfír að þeir telji ekkert að vanbúnaði að taka við öllum bekkjum grunnskólans hvað hús- næði snertir. Á það skal bent að Breiðagerð- isskóli er einn af best útbúnu skól- um Reykjavíkur." Þetta eru raddir fólks „heima í héraði“ og ekki gætir þar ýkja mikils stuðnings við áframhald- andi grunnskólahald í Réttar- holtsskóla. Rödd skólastjórans í Fossvogi Þennan sama dag, 14. júnf 1982, barst einnig bréf frá Kára Arn- órssyni skólastjóra Fossvogsskóla, þar sem segir m.a.: „Vorið 1981 var gerð könnun á því meðal foreldra í Fossvogs- hverfí, hvort þeir óskuðu þess að nemendur lykju grunnskólanum f Fossvogsskóla. Það er ótvfrætt vilji mikils meiri hluta foreldra að Fossvogsskóli spannaði grunn- skólann allan." Ennfremur: „Eftir þeim tölum, sem fyrir liggja, er sjáanlegt að f Réttar- holtsskóla koma eftir 4 ár aðeins þrjár deildir f árgangi. Útlit er fyrir að þeir nemendur, sem nú innritast í Fossvogs- og Breiða- gerðisskóla, verði samtals innan við 70. í Réttarholtsskóla voru í vetur leið 408 nemendur og sýni- legt er að þeir verða komnir eftir fá ár f 200 til 250.“ Skólastjóri Fossvogsskóla tekur fram að byggingu skólans sé ekki lokið en henni verði að ljúka, ef ákvörðun yrði tekin um að 7.-9. bekkur yrðu í skólanum. Hann rifjar upp fyrri hugmynd sína um að Reykjavíkurborg seldi ríkinu Réttarholtsskólann og andvirðið yrði notað til þess að ljúka bygg- ingu Fossvogsskóla. * Vegna fyrirsjáanlegrar fækkun- ar nemenda í þessu umrædda skólahverfi og annarra brýnna framkvæmda f skólamálum er Hekla af- hendir 500. Caterpillar- vinnuvélina FRA árinu 1947, að Hekla hf. geröist umboösaöili fyrir Cater- pillar á íslandi, befur fyrirtækið flutt inn og afgreitt 500 vinnuvéi- ar af ýmsum stærðum og gerðum frá þessum heimsþekkta fram- leiðanda. Það er verktakafyrirtækið Ellert Skúlason hf., sem kaupir 500. vélina og er hér um að ræða jarðýtu af gerðinni D9L, en hún er önnur af tveim sömu gerðar, sem Hekla hf. hefur selt, og eru afkastamestu jarð- ýtur hérlendis. Jarðýtan vegur 60 tonn, er með 12 strokka, 460 hestafla dfsilhreyfli og togkrafturinn er 76 tonn. Þessa risatækis bfða nú ýmis stórverkefni úti á landi á veg- um Ellerts Skúlasonar hf., en það fyrirtæki hefur til umráða allmargar Caterpillar-vinnu- vélar og hefur verið í viðskipt- um við Heklu hf. sl. 30 ár. (FrétUtilkymting) Meðferð kartöflumáls — eftir Eiö Guönason Vegna greinar f Morgunblaðinu miðvikudaginn 23. maf um með- ferð kartöflumáls i landbúnaðar- nefnd efri deildar kemst ég ekki hjá því að gera nokkrar athuga- semdir, er varða veigamikla þætti þessa máls. Þannig var, að á haustdögum flutti ég ásamt fleirum frumvarp til laga til breytinga á lögum um Framleiðsluráð landbúnaðarins. Meginefni frumvarpsins var að af- nema einokun Grænmetisverslun- ar landbúnaðarins á kartöflu- innflutningi, þó aðeins þann tfma, er innlend framleiðsla fullnægir ekki eftirspurn. Frumvörp sama eða svipaðs efnis hafa verið flutt á mörgum undanförnum þingum af ýmsum þingmönnum, en ekki náð fram að ganga. Meðflutningsmenn þessa frumvarps voru Karl Stein- ar Guðnason, Kolbrún Jónsdóttir og Stefán Benediktsson. Til þess að lesendur Morgun- blaðsins fái rétta mynd af af- greiðslu þessa máls á Alþingi er nauðsynlegt að eftirfarandi stað- reyndir komi fram: Þann 24. nóvember var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd þar sem þetta frumvarp var tekið fyrir og samþykkt að senda það til umsagnar m.a. til Búnaðarfélags- ins, Stéttarsambands bænda, Framleiðsluráðs landbúnaðarins, Verzlunarráðsins, Neytendasam- takanna og Alþýðusambands ís- lands. Á þessum fundi nefndar- innar var umsagnarfrestur ákveð- inn til 15. janúar. 9. febrúar var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 16. febrúar var haldinn fundur i landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 8. marz var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 28. marz var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 29. marz var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 2. aþríl var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 5. aprfl var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 9. aprfl var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 10. aprfl var haldinn fundur 1 landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir, en rætt um afgreiðslu tveggja nýfluttra frumvarpa um Framleiðsluráð. 12. aprfl var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var tek- ið fyrir, afgreiðslu þess frestað. 26. aprfl var haldinn fundur 1 landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 4. maí var haldinn fundur f land- búnaðarnefnd. Málið var ekki tek- ið fyrir. 10. maí var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd, þar sem Eyj- ólfur Konráð Jónsson óskaði eftir, að þetta mál, ásamt öðru, yrði tek- ið til umræðu. Formaður nefndar- innar, Egill Jónsson, kvaðst þá bíða eftir niðurstöðu þingflokks- fundar Sjálfstæðisflokksins. 11. maí var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 12. maí var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið var ekki tekið fyrir. 15. maí var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið tekið fyrir. ítrekaði formaður nefndar- innar þá tillögu sína, að málinu yrði vísað til ríkisstjórnarinnar með jákvæðri umsögn um endur- skoðun Framleiðsluráðslaganna. 17. maí var haldinn fundur í landbúnaðarnefnd. Málið tekið Eiður Guðnason „Þessu máli er ekki lokið. Landbúnaðarráð- herra hefur nú ákveðið að slaka lítillega á ein- okunarkló Grænmetis- verslunar landbúnaðar- ins. Það er þó hvergi nærri nóg. Nú er ætlun- in, eins og innflytjendur segja, að koma upp nýju „hálfgildings einokun- arfyrirkomulagi“ við hlið þess gamla“. fyrir. Bókað, að meirihluti nefnd- arinnar leggi til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar með sérstökum rökstuðningi. Minni- hluti leggur til, að frumvarpið verði samþykkt. 19. maí, á laugardaginn var, var enn haldinn fundur i landbúnað- arnefnd og málið tekið fyrir og þar greindi formaður frá því að komið hefði á daginn, að mat hans á því hverjir mundu skipa meiri- hluta nefndarinnar hefði ekki reynst rétt. Á fundum landbúnaðarnefndar eftir að kartöflufrumvarpið kom til nefndarinnar var tólf sinnum rætt um sölu fjögurra ríkisjarða og einnar kristfjárjarðar, sex sinnum rætt um frumvarp til laga um lífeyrissjóð bænda, fjórum sinnum um frumvarp til skógr- æktarlaga, fimm sinnum breyt- ingar á jarða- og ábúðarlögum, og þrisvar um frumvarp til laga um að breyta lausaskuldum bænda í föst lán. Þetta er skv. lauslegri samantekt úr fundargerðarbók nefndarinnar. Sitthvað fleira mætti segja um meðferð þessa máls, en hér verður látið staðar numið að sinni, nema frekara tilefni gefist. Lyktir þessa máls eru síðan öll- um kunnar, því var vísað til ríkis- sjórnarinnar með atkvæðum allra þingmanna Framsóknarmanna f efri deild og Sjálfstæðismanna, nema atkvæði Eyjólfs Konráðs Jónssonar, sem vildi samþykkja frumvarpið og hafði alla tíð hreina afstöðu í málinu. Með þess- um hætti var unnið að meðferð þessa máls í landbúnaðarnefnd efri deildar Alþingis, undir for- ustu formanns hennar, Egils Jónssonar, alþingismanns. Ef mönnum þykja þetta góð vinnu- brögð og eðlileg, þá verða þeir auðvitað að hafa þá skoðun. — Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, að þetta séu í hæsta máta óeðlileg vinnubrögð og að vinnubrögð af þessu tagi séu Alþingi til vansa. Ýmislegt annað í grein Morgun- blaðsins í gær um þetta mál sé ég ástæðu til að gera athugasemdir við. Fyrst er þar til að taka, að Egill Jónsson, formaður landbún- aðarnefndar efri deildar, ræddi aldrei við mig um framgang þessa máls í nefndinni. Það gerði Eyjólf-

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.