Morgunblaðið - 26.05.1984, Síða 16

Morgunblaðið - 26.05.1984, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ1984 Beztu kartöflur heims eru íslenzkar Fólkið verður að brjóta kerfið niður — eftir Eyjólf Konráð Jónsson Undirritaður hefur ferðast víða, en hvergi bragðað jafngóð- ar kartöflur og þær, sem á ís- landi eru unnt að rækta né held- ur aðra garðávexti. Hvers vegna eitrast þetta „konfekt" í með- höndlun eða er alls ekki fram- leitt, heldur rusl? Svarið er ofur einfalt og allir vita það. En núna, þegar landbúnaður- inn á í erfiðleikum og blaðrað er út og suður um aukabúgreinar, dettur mér í hug að íslendingar einbeiti sér að framleiðslu úr- valskartaflna til útflutnings. Lúxusvöru er nefnilega hægt að selja á ótrúlega hagstæðu verði, ef SÍSið kemur hvergi nærri. En auðvitað verðum við fyrst að koma málum þannig fyrir, að við fáum a.m.k. sjálf að borða ætar kartöflur allt árið, þ.e.a.s. áður en þær eru eyðilagðar af þeim sem telja allt gott í kj... á okkur. Hálfkæringsinnskot: „Til þess voru hrútarnir skotnir”, eða eitthvað svoleiðis sagði kerlingin í þjóðsögunni um Samfélag ýtr- ustu sanngirni — SÝS —, þegar hún miðlaði bændum og neyt- endum nauðsynjum af nægta- brunni sínum, lagðist svo niður og dó — engum harmdauði. (Inn- skoti lýkur). Ekki er ég í vafa um, að ís- lenzkar kartöflur væru nú aug- lýstar úrvalsvara innanlands og erlendis, ef ekkert Framleiðslu- ráð væri til og framleiðendur frjálsir. Einu sinni ræktaði ég sjö hundruð poka sælgætis við ölf- usárósa og það rann út í lítilli verslun föður míns. Kunni ég þó ekkert til kartöfluræktar, nátt- úran sá fyrir því að fólkið bein- linis gleypti þessi grey. — Nú er öldin önnur, kartöfluneyzlan minnkar hér jafnt og þétt og er orðin minni en þekkist meðal frjálsra þjóða, sem vonlegt er. Og íslendingar eru komnir á fremsta hlunn með að hætta öllu áti, sem kartöflukerfið reynir að reka ofan í þá. Við kartöflurækt mína gleymdist raunar að láta flutn- ingabíla aka einu sinni, tvisvar eða þrisvar í gegnum Grænmet- isverslunina til að hirða uppbæt- ur. Samt var þetta sæmilegasti afrakstur. Ég sé þó mest eftir því að flytja ekki góðgætið á Bandaríkjamarkað og verða rík- ur, er samt sáttur við endalokin, því að sjálfsagt hefði kerfið fundið ráð til að hindra svo sið- laust atferli. Enda er nú á þvl herrans ári, 1984, ári Orwells, reynt að koma á kerfi óætra eggja. Kerfið er samt við sig! En þetta er fámenniskerfi: Brjótum það niður og lifum við frjálsræði og velgengni, framfarir og kjarabætur, snúum af brautu of- stjórnaræðisins, sem kyrkt hef- ur framfaravilja. Eyjólfur Konríð Jónsson er alþing- ismaður Sjilfstæðisflokks fyrir Norðurlandskjördæmi vestra. Bundið slitlag 60,9% í árslok 1982 BUNDIÐ slitlag gatna í þéttbýli nam 60,9% í árslok 1982 á móti 30,4% árið 1976. Bundið slitlag gatna í Reykjavík nam 93,1% í árslok 1982 en 87,6% 1976. Heildarlengd gatna í Reykjavík var í árslok 256,5 km en 288,4 km í árslok 1982. Þetta kemur fram í ársskýrslu Framkvæmdastofnunar ríkisins fyrir árið 1983. Segir þar, að ekki liggi fyrir heildartölur um ástand gatnakerfis f árslok 1983 en fyrir liggi haldgóðar upplýsingar um stöðuna hjá alls 72 þéttbýlissveit- arfélögum utan Reykjavíkur í árslok 1982. Heildarlengd gatna í þessum sveitarfélögum var 606,2 km í árslok 1976 en í árslok 1982 alls 727,2 km. Af þeim voru 184,5 km lagðir bundnu slitlagi 1976 eða 30,4% en í árslok 1982 er bundið slitlag komið á 442,5 km eða 60,9%. Hér fer á eftir tafla yfir stöðu mála eftir kjördæmum hvað varð- ar bundið slitlag: KJordrmi Reykjavlk Reykjanes Vesturland Veatfirðir Norðurland veatra Norðurland eyatra Auatfirðir Suðurland Alla Bundið alitlag Hfttaa Hgatnt 87,6 93,1 38,1 77,1 23.8 56,7 25,5 59,3 21.3 41,9 30,0 58,2 30.4 42£ 24.9 53,9 30,4 60,9 Sjálfstæðisfélag Seltirninga: Opið hús í dag I DAG, laugardag 26. maí, verður opið hús á vegum Sjálfstæðisfélags Seltirninga í hinu nýja félagsheimili sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi á Austurströnd 3 frá kl. 15.00 til 18.00. Hið nýja félagsheimili sjálf- stæðismanna er ekki fullgert en I dag gefst sjálfstæðisfólki kostur á að skoða það og hlýða á skóla- lúðrasveit Seltjarnarness leika klukkan 15.00 til 15.30, en þá flyt- ur Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ávarp og jafnframt verða ýmsar veitingar á boðstólum. Sjálfstæðisfélag Sel- tirninga hvetur félagsmenn sína og stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins til þess að mæta. Morgunblaðið/ ÓI.K.M. Framkvœmdastjórar á erlendri grund í tengslum við aðalfund Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna eru komnir tll landsins framkvæmdastjórar sölufyrirtækjanna f Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýzkalandi tO að kynna starfsemina í þessum löndum. Hér eru þeir frá vinstri: Gylfi Þór Magnússon, Þýzkalandi, Magnús Gústafsson, Bandaríkj- unum og Olafur Guðmundsson, Bretlandi. Bænadagur þjóðkirkjunnar á morgun: Beðið um trú til þess að lækna þjóð- ina af böli áfengis og neyslu fíkniefna Hinn árlegi bænadagur er á sunnudaginn og er þess vænst að þá farí fram bænaguðsþjónustur í öllum kirkjum landsins. Þar sem prestar hafa svo margar kirkjur til þjónustu að þeir komast ekki til þeirra allra á bænadaginn, er þess vænst að leikmenn stýri messu- gjörð, enda hefur sérstakt form veríð prentað til að nota á bæna- deginum. Hið sérstaka bænarefni dags- ins er: Bæn um trú til þess að lækna þjóðina af böli áfengis og neyslu fíkniefna. Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, hefur ritað söfn- uðum og prestum landsins vegna bænadagsins og fer bréf hans hér á eftir: Hinn almenni bænadagur, 5. sunnudagur eftir páska, er að þessu sinni 27. maí nk. Þá gefst okkur sem fyrr kærkomið tæki- færi til þess að íhuga gildi bæn- arinnar. „Bænin má aldrei bresta þig,“ kvað séra Hallgrím- ur. Bænin er andardráttur trú- arinnar. Á almennum bænadegi samstillum við hug okkar og sál í bæn til Guðs. Þann dag er þess vænst, að guðsþjónustur fari fram í sem flestum kirkjum. Þar sem prest- ur kemst ekki yfir að embætta í kirkjum prestakallsins er þess óskað að leikmaður stýri messu- gjörð. Leggja skal áherslu á virkan þátt leikmanna í bæna- deginum. Arið, sem nú stendur yfir, minnir með sérstökum hætti á Heilaga ritningu og boðskap hennar til íslensku þjóðarinnar. Fjögurra alda afmælisár Guð- brandsbiblíu hvetur okkur til að ígrunda Guðs orð og lifa i ljósi þess, því að „helst mun það blessun valda". Þegar skyggnst er um á vett- vangi íslenskra þjóðmála og þjóðlífs, er sýnilega „ennþá margt að meini og margur sem á bágt“. Eitt er það böl, sem hrjáir þjóðina í vaxandi mæli og grefur um sig í þjóðarlíkamanum líkt og krabbamein. Það er böl of- drykkju og notkun fíkniefna. Hér er um að ræða einn höfuð- sjúkdóm þjóðarinnar, sem Guðs orð á mátt til að lækna. Á djúpu mannlífssárin vill kirkjan leggja lífgrös sín. Það er ósk mín, að sameigin- Iegt bænarefni okkar sé: Bæn um trú til að lækna þjóðina af böli áfengis og neyslu fikniefna. í greinargerð með frumvarpi til laga á Alþingi um þetta vandamál segir svo: „Mun ekki ofmælt, að hver einasta fjöl- skylda f landinu sé nú i meira eða minna mæli tengd eða ofur- seld erfiðleikum og hörmungum vegna neyslu áfengis og annarra fíkniefna. Biblían gerir grein fyrir bar- áttunni gegn áfengisbölinu. Þar segir, að menn skuli ekki sækj- ast eftir áfengum drykk, ekki vera með flóandi vin í sam- diykkju, þá gefi menn ekki gjörðum Drottins gaum og sjái ekki það, sem hann hefir með höndum. (Jes. 5:11,12.) „Verið þvi ekki óskynsamir heldur reynið að skilja hver sé vilji Drottins. Drekkið yður ekki drukkna af vini, það leiðir aðeins til spill- ingar. Fyllist heldur andanum.“ (Gal. 5:22.) Bindindi er einn af ávöxtum andans (á grisku egkra- teiga) Orðið er viðtækrar merki- ngar. Hér er um þá dyggð að ræða að geta haft stjórn á löng- unum sínum og þrám i lysti- semdir, að andi mannsins ráði yfir þvi, hvers hann óskar sér og hvað hann vill. Griska orðið er notað jöfnum höndum um fþróttamann sem agar líkama sinn og um kristinn mann, sem hefir taumhald á hvötum sinum (William Barclay). Mannshugurinn þolir ekki tómarúm. Til þess að fæla burt myrkrið verður hann að vera opinn fyrir ljósinu. „Framgöng- uis sómasamlega eins og á degi, ekki í ofáti né ofdrykkju, ekki i þrætu né öfund. íklæðist heldur Drottni Jesú Kristi og alið ekki önn fyrir holdinu, svo að það verði til að æsa girndir." (Róm. 13:13,14.) Trúin, sem lifir og nærist í Guðs orði, er læknisdómur, sem nær til allra þátta sálarlífsins. Þeir, sem læknast hafa af böli ofdrykkjunnar, eiga það ekki sfst trúnni að þakka. Þann 10. janúar sl. var öld liðin síðan fyrsta góð- templarastúkan var stofnuð hér á landi. Merki bindindis höfðu Fjöln- ismenn áður haldið á lofti til þess að benda á skaðsemi ofdrykkjunnar. Allar bindind- ishreyflngar eiga sammerkt í því að byggja baráttu sina og hug- sjón á trúnni til hjálpar. Lestur Guðs orðs færir manninum ljós og kærleika. í orði krossins skín fórn kær- leikans, ást Guðs og miskunn- semi. Þar er lækning við böli og synd, sem trúin kemur til leiðar. „Og mín sjúka sál verður hljóma haf“ (Stefán frá Hvítadal). Biðjum hverjum þeim hjálpar, sem á við vandamál ofdrykkju og fíkniefna að stríða. Biðjum um hjálp allri þjóðinni til handa, að hún bjargist frá því mesta böli, sem velferðarþjóðfélag okkar stendur nú frammi fyrir. Þörf er á þjóðarvakningu. Hér er mál, er varðar ekki síst heill og hamingju yngstu kynslóðarinn- ar, framtíð lands og þjóðar. Þvi er hvatt til þess að þjóðin sam- einist í bæn til Guðs um bænar- efni þetta, sem nú er yfirskrift Bænadagsins. Á mátt og þýðingu bænarinnar minnti séra Jóhann- es Pálmason með bænarorðum sinum: Vökum og biðjum, bænin má ein bæta að fullu sárustu mein. Gjðfin sú dýra Drottni er frá dýrmætust alls, sem mannheimur á. Pétur Sigurgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.