Morgunblaðið - 26.05.1984, Page 20

Morgunblaðið - 26.05.1984, Page 20
n ■« 2Ö MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1984 Urvals notaöir 1982 59000 1979 81000 1976 130000 1976 105000 1978 80000 1982 5000 1977 94000 1980 117000 Ch. Celebrity diesel Ch. Malibu Classic Ch. Chevy Van Opel Manta Ch. Malibu Sedan Isuzu pick up bensín Ch. Nova Conc. 2ja d. Oldsm. Delta 88 diesel Scout II beinskiptur V 8 1976 130000 Scout II4 cyl. vökvast. 1980 67000 Volvo 244 DL sjálfs. 1982 37000 Saab 900 turbo 1982 27000 Mitsubic Lancer Gsr. 1982 34000 Ford Fairmont Decor 1978 79000 Volkswagen Golf 1980 82000 Ford Fairmont station 1978 109000 Ford Granada 2ja d. 1979 65000 Lada 1300 Safir 1982 17000 BMW 315 1982 37000 Toyota Cressida 2ja d. 1979 60000 Volkswagen Golf 1982 33000 Mazda 323 station 1980 76000 Ch. Malibu Classic 2ja d. 1979 68000 Ford Cortina 1300 1979 36000 BIFRilRADEILD SAMBANDSINS ■HOFÐABAKKA9 SÍMI 39810 OPIÐ MANUDAGA TIL FÖSTUDAGA KL. 9—18 (OPIÐ I HADEGINU) LAUGARDAGA KL. 1S—17 uiicai ui DUI Árg. U Ekinn Kr. Opei Caravan 1982 19000 440.000 Ch. Caprice Classic 1979 70000 375.000 Buick Skylark Ltd. 1980 49000 450.000 L Buick Skylark coupé 1980 20000 410.000 ) i YA™/ Isizu Trooper bensín 1982 17000 550.000 öl T BU CK Chervolet Impala 1977 195.000 OIOSMOBIIE 680.000 280.000 150.000 90.000 175.000 340.000 170.000 390.000 200.000 375.000 425.000 565.000 265.000 175.000 170.000 180.000 270.000 120.000 325.000 195.000 235.000 170.000 310.000 155.000 AF ERLENDUM VETTVANGI eftir GUÐM. HALLDÓRSSON íbúar Hong Kong óttast framtíðina ÍBÚAR Hong Kong, þriðju mestu fjirmálamiðstöðvar heims, hafa verið lengi að ná sér eftir það áfall, sem þeir urðu fyrir þegar Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra Breta, lýsti því yfir eftir viðræður í Peking í aprfllok að Kínverjar tækju við stjórn nýlendunnar 1997, þegar samning- urinn um leigu Breta á henni rennur út. Hong Kong, tákn kapítalista við bæjardyr kommúnista. Howe hefur neitað ásökunum um svik og segir að enn hafi ekki verið gengið frá nokkrum veigamiklum atriðum. Umræður hafa farið fram um málið á þingi og nefnd frammámanna í ný- lendunni hefur verið í Lundún- um og reynt að fá ráðamenn að tryggja að engar breytingar verði á lífsháttum og mannrétt- indum Hong-Kongbúa eftir 1997. Þeir segja að viðurkennt hafi verið að íbúarnir verði að geta sætt sig við væntanlegan samn- ing Breta og Kínverja um fram- tíð Hong Kong og lýðræði verði að auka í nýlendunni. Nokkrir nefndarmenn hyggja á svipaða ferð til Peking. Þar sem Bretar hafa gefið upp alla von um að fá að taka þátt í stjórn Hong Kong hafa þeir fá tromp á hendi til að fá Kínverja til að gera grein fyrir hvað þeir hyggist fyrir eftir 1997. Kínverj- ar vilja skammtíma samning, en Bretar samning til langs tíma, svo að Kínverjar neyðist til að greina í smáatriðum frá tilslök- unum, sem þeir eru fúsir að veita. Þegar liggja fyrir allítarlegar upplýsingar um fyrirætlanir Kínverja, en rúmur helmingur Hong Kong-búa er flóttamenn frá Kína og taka loforðum þeirra með varúð. T.d. er lofað mál- frelsi, en bent er á að lítið mál- frelsi sé í Kína, þótt það sé tryggt í stjórnarskránni. Bretar hafa því reynt að nota þau fáu spil, sem þeir hafa á hendi, til að neyða Kínverja að samþykkja ótvíræðar skuldbindingar, sem kveðið verði á um í formlegum samningi. Bretar hafa stöðugt orðið að láta í minni pokanna í hörðum samningaviðræðum um Hong Kong í tæp tvö ár. Síðan komm- únistar tóku völdin hafa Kín- verjar ekki viljað viðurkenna þrjá gildandi samninga um Hong Kong, þar sem þeir hafi ekki verið gerðir á jafnréttis- grundvelli. Samkvæmt samning- um frá 1842 og 1860 fengu Bretar tvo elztu hluta nýlendunnar, Hong Kong-eyju og Kowloon- skaga, til ævarandi eignar. Svo- kölluð „Nýsvæði", sem eru 92 af hundraði yfirráðasvæðis nýlend- unnar, voru hins vegar leigð Bretum til 99 ára. Það er sá samningur, sem rennur út 1997, og Hong Kong getur ekki verið án þeirra. Deng Xiaoping sagði land- stjóra Hong Kong, Sir Murray MacLehose, 1979 að fjárfest- ingaraðilar þyrftu ekkert að óttast eftir 1997. Árið 1982 stað- hæfði hann að Kínverjar mundu ná yfirráðum yfir Hong Kong þegar leigusamningurinn rynni út. Þangað til Thatcher forsæt- isráðherra fór til Peking í sept- ember 1982 höfðu Bretar haldið því stíft fram að allir samning- arnir væru í fullu gildi, en hún dró í land. Stjórn hennar sam- þykkti að sniðganga samningana og einbeita sér að samningi er tryggði velsæld Hong Kong. Viðræðurnar komust í ógöng- ur í september 1983 vegna ágreiningsins um yfirráðarétt- inn og áframhaldandi stjórn Breta. Síðan höfðu Bretar hægt um sig og Kínverjar notuðu tækifærið til að skýra frá fyrir- ætlunum sínum, sem eru i aðal- atriðum þessar: Hong Kong verður „sérstakt stjórnsvæði" Kína í 50 ár eftir 1997. íbúarnir fá töluverða sjálf- stjórn og eigið dómkerfi og lög- reglu. Nokkrir brezkir embætt- ismenn fá að vera um kyrrt, en gegna ekki æðstu embættum. Ríkjandi þjóðfélags- og hagkerfi verður óbreytt. Hong Kong- dollar á að verða öruggur gjald- miðill og gjaldgengur hvar sem er. Tryggt verður málfrelsi, tján- ingarfrelsi, prentfrelsi, funda- frelsi, ferðafrelsi og trúfrelsi. Viðskiptum og menningarsam- skiptum við aðrar þjóðir verður haldið áfram. Útgáfa ferðaskil- ríkja og vegabréfsáritana til og frá Hong Kong verður áfram í höndum yfirvalda þar. Kínverjar „láku“ þessum upp- lýsingum og skýrðu ekki frá þeim opinberlega, en sögðu að þeir mundu kunngera fyrirætl- anir sínar einhliða fyrir sept- ember 1984, með eða án sam- þykkis Breta. í desember sögðu Kínverjar að Bretar hefðu sætt sig við einhvers konar tengsl Hong Kong við Bretland eða Samveldið. í marz færðust Bret- ar nær sjónarmiðum Kínverja með tillögum um óbreytt kerfi og sjálfstjórn. Síðan virðast Kínverjar ekki hafa verið eins ákveðnir í að kunngera fyrirætl- anir sínar í september, minntust ekki á það þegar Howe var í Pek- ing, en gáfu í skyn að samkomu- lag gæti tekizt fyrir haustið. Ein sterkasta röksemd Breta er að Kínverjar hafa sjö millj- arða dollara tekjur af nýlend- unni á ári og hafa þar aðgang að tækni, sem er mikilvæg fyrir breytingar þeirra í atvinnumál- um. Bretar benda einnig á að samningur um Hong Kong geti auðveldað Kínverjum að komast að svipuðu samkomulagi um Tai- wan. Mikill uggur hefur ríkt i Hong Kong síðan viðræður Breta og Kínverja hófust. í september í fyrra varð metlækkun á Hong Kong-dollar, sem hafði lækkað um 32% á einu ári, og fólk hamstraði matvæli og keypti gull til að hamla gegn verðbólgu. En erfiðleikar Hong Kong-doll- arans hafa aðallega stafað af miklum fjárflótta, aðallega til Ástraliu, Bandaríkjanna og Kanada. í Ástralíu hafa margir Hong Kongbúar t.d. fjárfest í verzlunum, veitingahúsum og íbúðum. Risastórt verzlunarfyrirtæki, Jardine Matheson, tákn velsæld- ar og stöðugleika, hefur flutt aðalstöðvar sínar til Bermuda. Það þykir lýsa vantrú á framtíð Hong Kong og hefur vakið tor- tryggni í Peking vegna tengsla fyrirtækisins við brezk yfirvöld. Mikið verðfall hefur orðið í kauphöllinni: fáir vilja kaupa og flestir bíða átekta. Margir hafa gert ráðstafanir til að flytja fjölskyldur sínar burtu. Foreldrar, sem eru tregir til að fara, senda börn sín til náms í Ástralíu og aðrir setjast þar að. Kröfur Hong Kong-búa, sem eru um fimm milljónir, um að þeir séu hafðir með í ráðum og fái að hafa áhrif á framtíð sína, hafa orðið háværari. Fæstir gera sér grein fyrir hvað framtíðin ber í skauti og mikið vonleysi ríkir. Áður en Howe gaf yfirlýs- ingu sína höfðu menn enn nokkra von um að Bretar yrðu um kyrrt, nú gera íbúarnir sér grein fyrir að það er útilokað. íbúarnir eru sammála um að Bretum beri siðferðileg skylda til að hjálpa fólki qþ fara, ef Kínverjar standa ekki við loforð sín eftir 1997. Nýlega var þess krafizt í opnu bréfi hóps há- skólamenntaðra Hong Kong-búa að öll ákvæði væntanlegs samn- ings við Kínverja yrðu skýr og ótvíræð og fram færi þjóðar- atkvæði um samninginn. í umræðum Neðri málstofunn- ar viðurkenndi Howe að staða Breta væri veik og þeir mundu ekki geta gegnt mikilvægu hlut- verki eftir 1997. Hann lagði áherzlu á mikilvægi þess að Hong Kong-búm yrði kynntur samningurinn fyrir september og þeir fengju að lýsa áliti sínu á honum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.