Morgunblaðið - 26.05.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1984
23
„Samverkandi eitrun" 155
— olli dauða David Kennedys
Palm Beach, Florida, 25. maí. AP.
LÆKNAR, sem skoðuðu David
Kennedy látinn, hafa nú greint frá
því, að banamein hans hafi verið
„samverkandi eitrun af völdum
nokkurra lyfja“. Er þá átt við ró-
andi lyf, mjög sterkt verkjalyf og
kókaín.
I skýrslu læknanna segir, að
dauði Kennedy hafi verið slys
vegna „samverkandi eitrunar af
völdum nokkurra lyfja" og að
um hafi verið að ræða lyfin mep-
eridine og thioridazine, sem eru
róandi lyf og afar sterkt verkja-
lyf, og eiturlyfið kókaín. Einnig
segir, að ljóst sé, að David heit-
inn hafi sprautað sig milli fóta
sér og er talið, að hann hafi gert
það til að fela eiturlyfjanotk-
unina.
Tveir fyrrum vikadrengir á
hótelinu þar sem David Kennedy
fannst látinn hafa verið hand-
teknir og sakaðir um að hafa selt
honum kókaín.
David Kennedy
Rauða stjarnan:
4 Bandaríkjamenn
sakaðir um njósnir
Metþátttaka í Los
Angeles-leikunum
V... YnrL « m.t .4 P ^ ^
New York, 25. maí. AP.
HÁTTSKlTlR menn í íþróttahreyf-
ingum kommúnistaríkjanna, sem
hafa verið á fundi í Prag í Tékkó-
slóvakíu, létu í gær í Ijós „ugg og
óánægju“ með að Ólympíuleikarnir
árið 1988 skuli eiga að fara fram í
Seoul í Suður-Kóreu, en stjórnvöld
þar eru mjög andsnúin kommún-
isma eins og kunnugt er. Skipuleggj-
endur leikanna í Los Angeles
greindu svo frá því á sama tíma, að
um metþátttöku yrði að ræða þar,
bæði hvað varðar fjölda þjóða og
keppenda.
Peter Ueberroth, forseti skipu-
lagsnefndar leikanna í Los Angeles,
sagði í gær, að Sovétmönnum hefði
orðið á í messunni þegar þeir
ákváðu að hætta við þátttöku í leik-
unum. Nú væri ljóst, að fleiri þjóðir
og fleiri íþróttamenn en nokkru
sinni fyrr myndu vera með í Los
Angeles eða 123 þjóðir og 7.500
íþróttamenn á móti 122 og 7.200 í
Múnchen árið 1972. „íþróttamenn
um allan heim hafa með þvi sagt
skoðun sína á ákvörðun Sovét-
manna,“ sagði Ueberroth.
Á fundinum í Prag voru fulltrúar
frá 11 kommúnistaríkjum, sem öll
hafa ákveðið að mæta ekki í Los
Angels að Rúmenum undanskildum.
í yfirlýsingu, sem fundurinn lét frá
sér fara, var farið hörðum orðum
um ríkisstjórn Ronalds Reagan, sem
ekki hefði getað tryggt öryggi
íþróttamanna frá þessum þjóðum,
en hins vegar sagði í þessari sömu
yfirlýsingu, að dómarar og aðrir
embættismenn yrðu sendir í sam-
ræmi við ákvarðanir einstakra
landa.
í yfirlýsingunni var látinn í ljós
„uggur og áhyggjur" yfir því, að
næstu Ólympíuleikar eiga að fara
fram í Seoul í Suður-Kóreu. Engar
nánari skýringar voru gefnar á
Fargjaldastríð
á Atlantshafi
næsta sumar?
London, frá The Oboerver News Service.
HORFUR eru á, að næsta sumar
hefjist nýtt verðstríð á flugleiðinni
yfir Atlantshafið þegar allt að fimm
þúsund farþegum verður á degi
hverjum boðið upp á flugmiða, sem
kosta kannski aðeins 70 dollara
(jafnvirði um 2.100 ísl. króna) á leið-
inni milli London og New York.
Forráðamenn bandarfska flugfé-
lagsins People Express eru nú að
hefja viðræður við embættismenn í
samgönguráðuneyti Breta og hyggj-
ast þeir fara fram á, að fá að fjölga
flugferðum sínum; í stað einnar
ferðar á degi hverjum, eins og nú,
vilja þeir fá að fara fimm ferðir og
lenda þá ýmist á Gatwick, Heath-
row, Stansted eða Manchester.
Haft er eftir áreiðanlegum heim-
ildum í London, að á þessa beiðni
verði fallist ef bresk flugfélög vilji
og geti flutt jafnmarga farþega og
People Express og á sömu lágu far-
gjöldum og flugfélagið stærir sig af.
Þeir sem fljúga með People Express
frá Gatwick-flugvelli í London og til
Newark-flugvallar, sem er skammt
frá New York, þurfa aðeins að
greiða 158 dollara í fargjald (en það
er jafnvirði um 4700 ísl. króna).
Bandaríska flugfélagið hefur átt
mjög góðu gengi að fagna og hin
lágu fargjöld hafa notið mikilla
vinsælda. Á dögunum þegar auglýst
voru laus sæti á flugleiðinni yfir
Atlantshafið á tímabilinu frá miðj-
um júní og fram í miðjan júlí nk.
seldust allir flugmiðarnir, 41 þús-
und að tölu, upp á fimm klukku-
stundum.
í næsta mánuði hyggst breska
þessum áhyggjum en í Suður-Kóreu
eru stjórnvöld mjög andkommúnísk.
MoNkvu, 25. maí. AP.
RAUÐA stjarnan, málgagn
sovéska hersins, sakaði í dag
fjóra núverandi og fyrr-
verandi starfsmenn banda-
ríska sendiráðsins í Moskvu
um að hafa stundað iðnað-
arnjósnir í Leníngrad og
sagði að fyrir þetta „óþverra-
verk“ kæmi refsing.
í frétt, sem birtist í blaðinu í
dag undir fyrirsögninni „Staðnir
að verki“ sagði, að á síðasta ári
hefði sést til fjórmenninganna,
sem voru nafngreindir í frétt-
inni, þar sem þeir voru að taka
ljósmyndir af iðnfyrirtækjum og
verksmiðjum í Leníngrad. Sam-
kvæmt sovéskum lögum er
óheimilt að taka myndir af flest-
um opinberum byggingum.
Leníngrad er ein helsta iðnað-
arborg Sovétríkjanna og talið er
að þar séu einnig höfuðstöðvar
hergagnaiðnaðar í landinu.
Óeirðir í
Bombay-
héraði
Bombay, 25. maí. AP.
EKKERT lát er á óeirðunum í Bombay
og nágrenni á Indlandi, sem sprottnar
eru af trúarbragðadeilu hindúa og mú-
hameóstrúarmanna. Eftir tvær spreng-
ingar þar í nótt er tala þeirra sem látist
hafa 215.
Indíra Gandhi forsætisráðherra
hefur varað við því, að óeirðirnar í
Bombay kunni að breiðast út um
landið og skapa öngþveiti. Hersveitir
stjórnarinnar og lögregla hafa reynt
að stilla til friðar en engu fengiö
áorkað.
flugfélagið Virgin Atlantic, sem er 1
eigu Richard Branson, hefja flug
milli London og New York og kostar
farmiðinn þar 166 dollara á virkum
dögum en 180 dollara um helgar.
Áhuginn á því að fljúga yfir Atl-
antshafið með svo ódýrum hætti,
sem flugfélögin tvö bjóða upp á, er
miklu meiri en þau geta annað í
sumar. Þess vegna verður allur
þorri farþega að greiða hærri upp-
hæð fyrir flugmiðann. Verðið hjá
stóru flugfélögunum, British Air-
ways, Pan American og TWA, er 376
dollarar á virkum dögum og 394
dollarar um helgar (sem er jafnvirði
um 11.280 til 11.820 ísl. króna).
Enda þótt stóru flugfélögin haldi
því fram, að greiðslan sem þau fara
fram á sé sanngjörn, er augljóst að
farþegum sem ekki hafa úr of miklu
að moða finnst að verið sé að hafa af
þeim fé. Á hitt er að benda, að lágu
fargjöldin fást ekki nema þau séu
greidd með löngum fyrirvara og
bókun er ekki hægt að breyta, önd-
vert við það sem viðgengst hjá stóru
félögunum.
Flugmálayfirvöld í Bretlandi eru
sögð hafa nokkrar áhyggjur af því,
að í sumar verði Gatwick-flugvöllur,
sem núna er eini lendingarstaður
People Express í Bretlandi, yfirfull-
ur af fólki, sem bíður eftir þvf að
sæti losni og það hreppi ódýran far-
miða. Þetta fólk gæti haft þar næt-
urstað langtimum saman eins og
gerðist þegar flugfélag Freddy Lak-
er bauð upp á ódýrar ferðir yfir Atl-
antshafið, en þá varð að reisa stórt
tjald til að hýsa mannfjöldann.
Bflasýning
í dag frá kl. 1—4
Nýir og notaðir bílar til
sýnis og sölu
Tökum vel meö farna Lada upp í nýja
Mest seldi bíllinn
...
Sifelld þjónusta
Verð við birtingu auglýsingar
kr. 183.000,-
Lán 93.000,-
Þér greiðiö 90.000,-
Bifreiðar &
Landbúnaðarvélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600
Söludeild sími 31236
Verðlisti yfir Lada-bifreíöar
fyrir handhafa örorkuleyfa.
Lada 1300 kr. 106.600
Lada 1200 station kr. 113.600
Lada 1500 stationkr. 124.300
Lada 1500 Safir kr. 118.100
Lada 1600 Canda kr. 128.000
Lada Lux ' kr. 135.400
Lada Sport
kr. 216.600