Morgunblaðið - 06.06.1984, Page 36

Morgunblaðið - 06.06.1984, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984 Stúdentahópur Menntaskólans að Laugarvatni 1984. i • váPk m'V u íkMð Laugarvatn: Skólaslit menntaskólans Menntaskólanum á Laugarvatni var slitið í 31. sinn sunnudaginn 3. júní. Brautskráðust að þessu sinni 32 stúdentar frá skólanum, af máladeild, nátturfræðideild og eðl- isfræðideild. Hæstu einkunn á stúdents- prófi hlaut Sigríður Jónsdóttir nátturufræðideild, 8,60. Hæstu meðaleinkunn í skólanum hlaut að þessu sinni Sigurður Karls- son, þriðja bekk eðlisfræðideild, 9,40. f skólaslitaræðu sinni minnt- ist Kristinn Kristmundsson, skólameistari, Jóhanns S. Hann- essonar, sem lést á síðasta ári, en Jóhann var skólameistari Menntaskólans á Laugarvatni árin 1960 til 1970. Kristinn Kristmundsson, skólameistari, óskar Sigríði Jónsdóttur til ham- ingju með árangurinn, en hún hlaut hæstu einkunn á stúdentsprófi í vor. Iðnskólinn braut- skráir 170 IÐNSKÓLANUM í Reykjavík var slitið í áttugasta skipti 30. maí síð- astliðinn og voru þá brautskráðir 170 nemendur. Ingvar Ásmunds- son flutti skólaslitaræðu, afhenti nemendum prófskírteini og verð- laun til nemenda sem sköruðu fram úr í námi. Brautskráðir nemendur skipt- ust þannig eftir deildum: úr fram- haldsdeild bifreiðasmiða braut- skráðust fjórir, af frh.deild bif- vélavirkja 11, úr frh.deild fataiðna tólf, úr frh.deild í hárgreiðslu 23, frh.deild í hárskurði átta, úr frh.deild í húsasmíði 12, úr frh.deild húsgagnasmíði fimm, úr frh.deild í rafeindavirkjun tíu, úr frh.deild í vélvirkjun 16 og úr framhaldsdeild í rafvélavirkjun og rafvirkjun voru brautskráðir fjór- ir nemendur. Auk þessa útskrifuðust 36 samningsbundnir iðnnemar og 30 nemendur tækniteiknarar. Föstudaginn 1. júni voru svo brautskráðir 24 nemendur með meistarapróf, 22 húsasmiðir og tveir pípulagn- ingamenn. Eftirtaldir nemendur fengu verðlaun fyrir góðan námsárang- ur: Guðmundur Hannesson nem- andi í húsgagnasmíði, Kristinn Ingi Kristinsson í bakaraiðn, Kristbjörn Guðmundsson í húsa- smíði, Ólafur Guðlaugsson í vél- virkjun, Steinunn Steingrímsdótt- ir í tækniteiknun, Ólafur E. Als í tækniteiknun, Elísabet Halldóra Einarsdóttir í tækniteiknun, Guðni R. Björnsson í tækniteikn- un, Jóhannes Magnússon í mál- áraiðn, Rannveig Árnadóttir í tækniteiknun, Sigrún Ágústsdótt- ir í tækniteiknun, Sigrún L. Kvar- an í fataiðn, Vilhjálmur Grímsson í vélvirkjun og Jóhann Heiðar Ár- sælsson í rafeindavirkjun. Ingvar Ásmundsson skólastjóri flutti ræðu við skólaslitin og lagði Ljósm. Mbl. KEE. Ingvar Ásmundsson afhendir Guðmundi Hannessyni, nemanda í húsgagna- smíði, prófskírteini. Skólaslit Fjölbrauta- skólans á Akranesi Laugarvatn: Skólaslit Hérads- skólans Héraðsskólanum á Laug- arvatni var slitið laugardag- inn 19. maí. Nemendur á ný- liðnu skólaári voru 67 alls, í tveimur grunnskólabekkjum, fornámsdeild og á íþrótta- og félagsmálabraut fyrsta og annars árs framhaldsnáms. Hæstu einkunnir á prófi fyrsta árs íþróttabrautar hlaut Halldór Leifsson frá Patreks- firði og hlaut hann verðlauna- bók bæði frá skólanum og frá þýska sendiráðinu í Reykjavík fyrir góðan árangur í þýsku. Á prófi annars árs sömu brautar varð hæstur skólafé- lagsformaðurinn Arnar Már Snorrason frá Völlum í Svarfað- ardal og hlaut hann verðlauna- bók frá skólanum. Áróra Gústafsdóttir frá fsa- firði, á öðru ári íþróttabrautar, hlaut verðlaunabók frá danska sendiráðinu í Reykjavík fyrir góðan árangur í dönsku. í lok haustannar sl. janúar luku nemendur fornámsdeildar prófum sínum en í þeim bekk náði bestum árangri Hildur Harðardóttir frá Raufarhöfn. Hæstu einkunn á grunnskóla- prófi hlaut Kristrún Sigurfinns- dóttir frá Efstadal og hlaut hún fyrir það verðlaunabók frá skól- anum. SKOLANLIT Fjölbrauta.skólans á Akranesj fóru fram sunnudaginn 20. maí sl. og lauk l»ar með sjöunda starfsári skólans. Ntúdentsprófi frá skólanum luku að þessu sinni 26 nem- endur af sjö námsbrautum, og bestum árangri náði Áslaug Rafnsdóttir, stúd- ent af félagsfræðabraut. Af tveggja ára bóknámsbrautum brautskráðust sjö nemendur og af tæknisviði luku 14 nemendur próf- um, þar af sjö af verknámsbrautum. Meistaranámi í byggingagreinum luku átta nemendur og eru þeir fyrstu nemendurnir sem ljúki því námi frá Fjölbrautaskólanum á Akranesi. Grunnskólaprófi luku 88 nemendur en þeir tóku þátt í tilraun sem gerð var með nýskipan kennslu- hátta í níunda bekk. í stað sam- ræmdra prófa í febrúar tóku nem- endur próf í desember í dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði. Hlutu að jafnaði 30 nemendur í hverri grein rétt til þess að hefja nám á framhaldsskólastigi eftir áramót. Aðsókn utanbæjarnemenda að skólanum hefur farið stöðugt vax- andi á undanförnum árum, að því er segir í fréttatilkynningu skólans, og hefur á síðustu önnum orðið að vísa fjölda nemenda frá vegna skorts á heimavistarrými. Af þeim sökum er nú í byggingu heimavist við skólann sem mun rúma 64 nemendur I 32 herbergjum og verður helmingur herbergjanna tilbúinn í haust. Segir ennfremur að nú fari fram viðræður á milli fulltrúa sveitarfé- laga á Vesturlandi um stofnun Fjöl- brautaskóla Vesturlands. Ef úr stofnun verður munu sveitarfélög á Vesturlandi standa sameiginlega að rekstri framhaldsskóla ásamt ríkis- sjóði, og verður meginaðsetur skól- ans á Akranesi. áherslu á nauðsyn þess að efla samkeppnishæfni íslensks iðnað- ar, en í því skyni eru fyrirhugaðar nokkrar breytingar á skólanum af hálfu skólanefndar. Stefnt er að því að treysta námið í undirstöðu- greinum skólans og efla tengslin við Tækniskólann með viðbótar- námi í tækniskólagreinum og ennfremur er fyrirhugað að setja á stofn starfsnám í tölvufræðum í Iðnskólanum í Reykjavík. Húsmæðraskólinn Ósk, ísafirði: Vetrarstarf- inu lokið VETRARSTARFI Húsmæðraskól- ans Ósk á ísafiröi er nú lokið, en 250 nemendur sóttu námskeið skólans sl. vetur. Námskeið í al- mennri matreiðslu, vefnaði, myndvefnaði, fatasaum, postu- línsmálningu, leirmunagerð og bótasaumi sóttu 149 nemendur og í gerbakstri, smáréttum, haust- matargerð, grænmetisréttum og laufabrauðsgerð 101 nemandi. Sú nýbreytni varð á skólastarf- inu í vetur, að vefnaðarkennari skólans, Guðrún Vigfúsdóttir, fór til Suðureyrar i Súgandafirði og kenndi myndvefnað. Á fundi Nemendasambands skólans 20. maí skýrði skólastjóri frá því að áformað væri að halda þriggja mánaða hússtjórnarnám- skeið fyrir áramót og annað fjög- urra mánaða eftir áramót. Auk þess verða haldin styttri námskeið í ýmsum greinum, en öll þessi námskeið verða auglýst með góð- um fyrirvara, að því er segir í fréttatilkynningu skólans. Stúdentahópur Fjölbrautaskólans á Akranesi 1984.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.