Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 06.06.1984, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1984 Þessar ungu dömur eiga heima vestur á Melum hér í Rvík. Þær heita Birna Ásgeirsdóttir og Brynhiidur Thors. Þær efndu til hlutaveltu til ágóóa fyrir Rauða kross íslands. Söfnuðu þær rúmlega 280 krónum. Þær efndu til hlutaveltu þessar vinkonur til styrktar ferða- og skemmtisjóði vistfólks Hrafnistu í Hafnarfirði. — Söfnuðu þær rúmlega 820 krónum. — Þær heita Tinna Stefánsdóttir og Nanna Þ. Árnadóttir. * i Þessar telpur efndu fyrir nokkru til hlutaveltu til ágóða fyrir Hjálparstofnun kirkjunnar og söfnuðu rúmlega 300 krónum. Þær heita Halla Rosenkranz og Hugrún Harðardóttir. Fyrir nokkru efndu þessir krakkar til hlutaveltu á Neshaga 9 hér í Rvík til ágóða fyrir Rauða kross íslands. Þau söfnuðu 600 krónum. — Þau heita Sólveig Halldórsdóttir og Flóki Halldórsson. Samanburðurinn var íslensku rokki í vil Tónlist Siguröur Sverrisson Dönsku rokksveitinni Clinic Q óx mjög ásmegin er á tónleikana leið. NORROKK tónleikarnir í Laug- ardalshöll sl. sunnudag færðu okkur heim sanninn um að íslensk rokktónlist stendur annarri nor- rænni rokktónlist fyllilega á sporöi og jafnvel gott betur. Mér er til efs aö nokkur sveitanna sex hafi ógnað veldi Baraflokksins svo nokkru nam, nema ef vera skyldi Imperiet frá Svíþjóð. Hin íslenska sveitin, Vonbrigði, varð fórnar- lamb hörmuiegs hljómburðar og naut sín ekki sem skyldi. Trommu- leikarinn lét þó ekkert á sig fá og barði húðirnar af slíkri snilld að undrun sætti. Tvímælalaust „mað- ur kvöldsins“. Tónleikarnir á sunnudag voru óheyrilega langir. Hófust laust eftir kl. 21 og stóðu framundir kl. 3 aðfaranótt mánudags. Gest- ir Laugardalshallar, sem annars voru skammarlega fáir, voru enda orðnir æði framlágir marg- ir hverjir þegar Baraflokkurinn tók við. Nokkuð löng hlé á milli hljómsveita, þar sem Svart og sykurlaust gerði þó sitt til að stytta biðina með frumlegum at- riðum sínum sem öll enduðu á því að hópurinn myndaði nafn næstu sveitar með ýmsum hætti, höfðu líka sitt að segja. í raun voru þetta allt of margar sveitir fyrir aðeins eitt svið. Tvö svið hefðu þurft að vera í Höllinni. Framtakið annars lofsvert, þ.e. að efna til norrænna rokktón- leika. Norska sveitin Cirkus Modern reið á vaðið og stóð sig bærilega. Sannaði áþreifanlega að Norð- menn má ekki dæma á grund- velli þátttöku þeirra í Eurovis- ion. Tónlistin hjá CM var reynd- ar ekki ný af nálinni fyrir fimm árum, en býsna góð samt. Söngv- arinn fjörugur mjög en varla heyrðust orðaskil hjá honum fremur en öðrum söngvurum þetta kvöldið. Þótt hljómurinn væri í flestum tilvikum þokka- legur varð söngurinn alltaf út- undan. Frammistaðan engu að síður bærileg. Það sama má segja um dönsku sveitina Clinic Q, sem sté á svið næst á eftir Norðmönnunum. Frammistaðan ágæt þrátt fyrir dálítið erfiða byrjun. Fyrst hélt ég að söngkonan ætlaði að herma eftir Siouxie Sioux, en það reyndist á misskilningi byggt. Stúlkurnar þrjár, sem ráða ferðinni í sveitinni, sýndu að þeim er ýmislegt til lista lagt og í samvinnu við tvo af „sterkara kyninu" framdi sveitin tónlist, sem varð æ skemmtilegri eftir því sem á leið, sum laganna fóru dálítið út í fönk en minn- ingin um Clinic Q varð samt jákvæð. Vonbrigði urðu sem fyrr segir fórnarlömb ömurlegs hljóm- ,burðar. Vart er hægt að dæma frammistöðu sveitarinnar því hljómurinn líktist lengstum háv- aðavegg fremur en tónlist. Ekki fór þó á milli mála, að trommu- leikari flokksins er á góðri leið með að verða sniliingur af ein- hverju tagi, ef ekki þegar orðinn það. Imperiet frá Svíþjóð vakti mesta hrifningu erlendu gest- anna. Þetta fjögurra manna band, sem reist var á rústum Ebba Grön, minnir oft á Clash á meðan sú sveit var og hét og til- þrifin kunnu hinir annars afar daufu gestir að meta. Lögin voru keyrð áfram af öryggi og í þeim var að finna það fjör, sem nauð- synlega hafði skort á hjá hinum þremur. Trommarinn brosti meira að segja. Slíkt sást ekki hjá öðrum sveitum. Er svona leiðinlegt að vera poppari í dag? Finnski flokkurinn Hefty Load var næstsíðastur á svið og var ekki nema rétt sæmilegur. Skaut þar nokkuð skökku við því ef marka mátti plötur norrænu gestanna átti Hefty Load að standa sig miklum mun betur en raun bar vitni. Baraflokkurinn, sem hljóp í skarðið fyrir Þursana á elleftu stundu, sló botninn í þessa maraþontónleika. Reyndar var mesta furða hvernig þeim tókst upp í Ijósi aðstæðna. Eg fer ekki ofan af þeirri skoðun minni, að Baraflokkurinn stóð sig allra sveita best þetta kvöld og getur þó betur. Lokakafla efnisskrár þeirra hlustaði ég á heima í stofu fyrir tilstilli Rásar 2, og naut enn betur en í Höllinni. „Sándið" var nefnilega glettilega gott í útvarpinu. Eftir á að hyggja er ekki hægt að segja annað en tónleikarnir hafi verið vel heppnaðir að flestu leyti þótt ekki næðu gestirnir einu sinni þúsundinu. Hvort þetta var prófsteinninn á frekari norræna samvinnu veit ég ekki, en lognist hún út af geta þeir, sem teija sig í hópi íslenskra rokkunnenda, litið í eigin barm og spurt hvers vegna? Svarið vita þeir hinir sömu. Sigurbjörn stigahæstur á Suður- landsmóti í hestaíþróttum Ljósm. Valdimar Kristinsson. Efstu menn f fimmgangi. Frá vinstri: Sigurbjörn á Neista, Hróðmar á Snar- fara, Guðni á Don Camillo, Erling, og Páll á Kolbrá. UM SÍÐUSTU helgi var haldið á Selfossi Suðurlandsmót í hesta- fþróttum. Voru það hestamannafé- lögin í Árnessýslu, Sleipnir og Smári, sem gengust fyrir þessu móti en fyrirhugað haföi verið að halda stórkappreiöar þessa helgi í Víðidal en fallið frá því. Til leiks voru mætt- ir nokkrir af snjöllustu keppnis- mönnum landsins og var þeim veitt hörð keppni af yngri og óreyndari mönnum og er það gott dæmi um hversu mikil breidd er orðin í hesta- mennskunni hérlendis. Flest hrossanna sem þarna voru í keppni eru lítt kunn en þó voru þarna tveir hestar sem verða að teljast landsþekktir. Annar þeirra var Snjall frá Gerðum sem Þórður Þorgeirsson reið til sigurs í tölti á síðasta íslandsmóti. Nú var það Olil Amble sem var við stjórnvöl- inn og sigraði hún 1 tölti, fjórgangi og íslenskri tvíkeppni. Þórður Þorgeirsson sat hinsvegar skeið- hestinn kunna Börk frá Kvíabekk og sigraði hann í gæðingaskeiði og skeiðtvíkeppni. Stigahæstur í mótinu varð Sig- urbjörn Bárðarson en hann keppti í öllum greinum. 1 fimmgangi, gæðingaskeiði og hlýðniæfingum keppti hann á Neista frá Kolkuósi og sigraði hann í fimmgangi og hlýðni. í fjórgangi og tölti keppti hann á Gára frá Borðeyri og varð þriðji í tölti og annar í fjórgangi. Af öðrum keppendum má nefna Guðna Jónsson sem keppti á at- hyglisverðum hesti í fimmgangi en sá heitir Don Camillo og er frá Stór-Hofi. Einnig var hann í úr- slitum í bæði fjórgangi og tölti. Mótið stóí'yfir í tvo daga og var veður mjög gott seinni daginn. Milli keppnisgreina voru sýndir stóðhestar sem Sunnlendingum standa til boða í sumar og voru það allt fyrstu verðlauna hestar og má þar nefna Gáska 914 frá Hofstöðum, óð frá Torfastöðum, Höð frá Hvoli og Vin frá Kotlaug- um.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.