Morgunblaðið - 10.06.1984, Page 16
64
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 1984
NENA
ný vestur-þýsk
útflutningsvara
I>að eni ekki bara íslendingar
sem verða uppveðraðir af því þegar
landar þeirra gera það gott í út-
landinu. I>jóðverjar eru ekki síður
hreyknir af Nenu sinni og Rumm-
enigge en íslendingar af Mezzo-
forte og Asgeiri Sigurvinssyni.
Nena er ein vinsælasta hljómsveit-
in í Vestur-I>ýskalandi um þessar
mundir og vann það afrek fyrir
skömmu að komast upp í efstu
sæti vinsældalistanna í Banda-
ríkjum, Bretlandi og Japan. I>að er
ekki á hverjum degi sem það gerist
og Nena hefur orðið enn þekktari
á heimaslóðum fyrir bragðið. Hún
höfðar aðallega til krakka á aldrin-
um 10—16 ára, lesendahóps
poppblaðsins Bravo, en vikutíma-
ritið Spiegel lét ekki eftir sér liggja
að birta um hana grein þegar
boðsmaðurinn Jim Rakete hana.
Fimm manna hljómsveit var sett
saman, Nena söng „Nur ge-
tráumt" í sjónvarpsþætti og varð
vinsæl á svipstundu.
Lagið „99 Luftballons" var
lengi á vinsældalista þýskumæl-
andi útvarpsstöðva í fyrra. Það
er gripandi lag, sem allir geta
raulað, og plötusnúður í Kali-
forníu, þar sem þýsk lög eru fá-
heyrð, ákvað að spila það í út-
varpið þótt hlustendur skildu
ekki textann. Lagið varð strax
vinsælt og komst í efstu sæti
vinsældalistanna í vetur í ensku
útgáfunni „99 red balloons".
Textinn fjallar um „stríðsráð-
herra" sem halda að 99 svífandi
blöðrur séu árásarlið frá fjar-
lægum hnöttum og verjast þann-
Nena tekur við blómum.
Ellefu ára aðdáendur í Nena-bolum og með Nena-ennisband skoða Nena-úrklippur.
Beðið eftir að dyrnar á tónleika verði opnaðar.
hljómsveitin var orðin ný v-þýzk
útflutningsvara. Önnur „fullorð-
insblöð" hafa gert henni góð skil
og miðar á tónleika hljómsveitar-
innar, sem er á tónleikaferð um
Evrópu, seljast eins og heitar
lummur.
Nena er gælunafn söngkon-
unnar, en hún er aðalaðdráttar-
afi hljómsveitarinnar. Hún
hleypur um sviðið, hoppar um og
hristir sig alla frá toppi til táar
og gerir veinandi, klappandi
krakkana alveg vitlausa. Hún
heitir Gabriele Susanne Kerner
fullu nafni og er 24 ára dóttir
menntaskólakennara í Hagen.
Hún er lærður gullsmiður en
hefur meiri áhuga á söng. Hún
flutti til Berlínar með kærastan-
um, trommuleikaranum Rolf
Brendel, fyrir rúmum tveimur
árum, og þar uppgötvaði um-
ig að heimurinn ferst, rústir
standa bara eftir. Textahöfund-
urinn, Carlo Karges, fékk hug-
myndina á útikonsert með Roll-
ing Stones í Berlín 1982. Miklum
fjölda blaðra var sleppt lausum
og hann velti fyrir sér hvað
myndi gerast ef blöðrurnar svifu
yfir múrinn til Austur-Þýska-
lands og yfirmenn þar yrðu yfir
sig hræddir og gripu til sinna
ráða.
En Nena er annars fullkom-
lega ópólitísk. Nýja stóra platan
hennar heitir „?“ og söngkonan
segir að það sé af því að hún er
alltaf í leit að einhverju nýju,
annars verður lífið of leiðinlegt.
Hún er kát, hress og krakkaleg.
Það var ekki nema hálft hús á
tónleikum hjá hljómsveitinni í
fyrra í Volkshaus í Zurich (tón-
leikar hjá Mezzoforte á sama
stað síðast í mars voru mjög vel
sóttir) en í vor mættu 11.000 að-
dáendur á tónleika í íþróttahöll-
inni í sömu borg. Yngri aðdáend-
urnir komu í fylgd foreldra
sinna, sátu til hliðar og klöppuðu
í takt við músíkina, en hinir
eldri stóðu í einni allsherjar
þvögu fyrir framan sviðið og
sveifluðu sér fram og aftur og
teygðu hendurnar í átt að Nenu.
Hún var klædd í þröngan,
hlébarða-Ieikfimisgalla, rauða
sokka og strigaskó. Hún settist
varla niður og eftir tveggja tíma
tónleika var hún klöppuð þrisvar
upp. Allir gátu sungið 99 Luft-
ballons í lokin og farið ánægðir
heim, en það er auðvelt að taka
undir orð enska gagnrýnandans
sem skrifaði: „Stúlkan hefur
mjðg góða rödd, en tónlistin er
jafn ófrumleg og hljómsveitin
sjálf.“
ab
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Til leigu
Verslunar- og/eða skrifstofuhúsnæði
til leigu í nýju húsnæði nálægt Hlemmtorgi. Hið
leigða er á tveimur hæöum ca. 185 fm með lag-
erplássi. Er hentugt fyrir heildsölu. Húsnæöiö get-
ur væntanlega verið laust 1. okt. nk. eða eftir
nánara samkomulagi.
Upplýsingar eru veittar í síma 38875 eða 38930 á
virkum dögum frá kl. 13.00—17.00.
Sarasota, Florida, USA
Sarasota Surf og Racquet Club, 5900
Midnight Pass Road, Sarasota, Fl. 33581
Tökum á móti pöntunum fyrir sumarleyfiö 1984. Tvö
lúxusherbergi og tvö baöherbergi í íbúöarblokk meö
sundlaug og fjórum tennisvöllum. Staösett viö Mexí-
kóflóa. Hvít sandströnd — ein af þeim fegurstu í
heiminum.
Skrifió og pantiö eöa fáiö upplýsingabæklinga.
Sími 1-813-349-2200.