Morgunblaðið - 29.07.1984, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29 JÚLÍ1984
31
Konur vinna öll verk, hér eru þær að fara heim með hávaxin grös, sem eru notuð til að endurbæta húsþökin.
bundið og þeir komi til með að
taka þessa starfsemi í sínar hend-
ur, skólarnir og þær byggingar
sem við reisum eru eign ríkisins
frá byrjun og verða því aldrei
byrði á okkur."
Konurnar gera allt
En hvert er starf konu kristni-
boðans? Valdís svarar.
„Konurnar eru líka vígðar sem
kristniboðar og við förum út í von
um að gera eitthvert gagn, konan
hefur líka mikil tækifæri til þess.
Við höfum þá skyldu að sjá um
heimilið og taka á móti gestum.
Hjá okkur var mikill gestagangur
og gisti fólk oft næturlangt, heim-
ilið var stundum eins og nokkurs
konar hótel.
Ég hafði námskeið fyrir konur í
saumakennslu, heilsufræði,
hreinlæti, biblíusögum og að
hugsa um börnin. Þegar við
kenndum þeim sem hvorki voru
læsir né skrifandi biblíusögur, lét-
um við þá hafa biblíumyndir og
sögðum þeim sögurnar sem við
áttu. Þar sem ég er kennari að
mennt hóf ég kennslu í lestri og
skrift fyrir fullorðna, en það var
mikið basl. Þetta fólk hefur aldrei
sest á skólabekk fyrr og þekkir
ekki þann aga sem því fylgir. Það
er erfitt að koma því í skilning um
mikilvægi þess að mæta í alla
tíma og hversu nauðsynlegt er að
mæta á réttum tíma. Það þarf eig-
inlega að passa þau eins og ung-
börn, jafnvel sækja þau í tíma.
Þetta fólk hefur mikinn áhuga á
því að læra en það hugsar öðru-
vísi, lifir einungis fyrir augnablik-
ið. Ég kenndi bæði konum og körl-
um, en konurnar sóttu tímana
miklu betur, þær hafa meiri
ábyrgðartilfinningu en karlarnir."
Hvernig er staða konunnar í
þessum þjóðflokki?
„Konan er kúguð í þessu samfé-
lagi; þær sjá um heimilið og þær
vinna fyrir því, það má segja að
þær geri bókstaflega allt, það
lendir allt á þeim. Manngildi kon-
unnar fer líka eftir því hve mörg
börn hún getur átt og því fleiri því
betri er konan."
„Það er traðkað á konunni
þarna, mér fyndist að rauðsokkur
ættu að fara þangað, þar myndu
þær gera gagn,“ skýtur Kjartan
inn í.
En hvað gera karlarnir ef kon-
urnar gera allt?
„Þeir spila og drekka. Þetta er
hirðingjaþjóðfélag og það tekur
langan tíma að breyta hugsunar-
hætti manna. Þarna eru stór
drykkjusamfélög manna og hittist
fjöldi manna daglega. Áður fyrr
ferðuðust þeir um og áttu t.d.
margar konur á mörgum stöðum,
hittust og drukku saman. Núna
eru hirðingjarnir á undanhaldi og
flestir eru bændur, en hugsunar-
hátturinn er enn við lýði. Núna
hafa þeir hins vegar meira efni til
að brugga úr, enda brugga þeir
gjarnan í 200 lítra tunnur."
Hjálpum þeim
sem varðveita sína
eigin menningu
En á að troða vestrænni menn-
ingu upp á þetta fólk?
„Vestræn menning hefur flætt
yfir þessi lönd og það þykir fínt að
taka allt upp eftir hvíta mannin-
um. Þetta kemur ekki fyrst og
fremst til með kristniboði heldur
viðskiptamönnum og hermönnum,
þetta voru líka nýlendur Evrópu-
veldanna. Ef litið er á þessi frum-
stæðu þjóðfélög er mörgu ábóta-
vant. Með kristniboðinu koma
skólar og heilsugæsla. Staða kon-
unnar er mjög slæm en kristnin
leitast við að bæta stöðu hennar,
Kristur boðar að allir menn séu
jafnir. í trúarbrögðum þessara
þjóðflokka er ekki boðað neitt líf
eftir dauðann, enda er ekkert eins
hryllilegt og dauðinn í hugum
þessa fólks. Þetta þjóðfélag er að
mörgu leyti mjög grimmt, og fólk-
ið býr við mikinn ótta. Virðingin
fyrir lífi mannsins og náunganum
er oft lítil. Kristnin gefur fólki von
um líf eftir dauðann, boðar ná-
ungakærleik og virðingu fyrir líf-
inu.
Við höfum reynt að benda
mönnum á að velja það besta úr
báðum menningarheimunum,
hjálpa þeim að varðveita það sem
gott er í þeirra menningu, t.d.
tungumálið. Kristniboðar hafa bú-
ið til ritmál og málfræði, þar sem
þeir hafa orðið að þýða bibliuna,
og einnig vísi að orðabók. Við
reynum að fá fólkið til að varð-
veita menninguna með því að skrá
sögur sínar og siði niður. Þetta
fólk hefur ekki heldur tilfinningu
fyrir þjóðerni en við reynum að
vekja með því þjóðerniskennd."
Sjáið þið árangur af starfi ykk-
ar?
„Það er mjög erfitt að meta
árangur í starfi sem þessu á svona
stuttum tíma, árangur í andlegum
efnum næst miklu hægar en í efn-
islegum. En við sjáum árangur,
það er alveg augljóst.
Markmiðið er að gera okkur
ónauðsynleg, þannig að þeir geti
séð um útbreiðslu og prestsefni og
alla kennslu, starfinu miðar þó að
hægt fari. Kannski eftir 15 ár
verðum við nær markinu."
Helgistund hjá Kjartani eftir vinnu á kirkjuakrinum.
Námskeið
ffyrir ieiðbeinendur í almennings
íþróttum
veröur haldiö 10., 11. og 12. ágúst n.k. í Kennara-
háskóla íslands og hefst föstudaginn 10. ágúst kl.
18.00.
Kennari veröur dr. Kenton Finanger prófessor viö
Lúther Colleg í Bandaríkjunum.
Þátttaka vinsamlegast tilkynnist skrifstofu Í.S.Í., sími
83259 þar sem nánari uppl. veröa veittar.
íþróttasamband íslands,
íþróttanefnd ríkisins.
Vegna sídustu vaxtabreytinga
eru ávöxtunarmöguleikar í verðbréfa-
veltu okkar allt að 9% umfram
verðtryggingu
30%
Ávöxtunarmöguleikar í óverðtryggðri
verðbréfaveltu okkar eru allt að 30%
Ávöxtunartími er eftir samkomulagi.
Kynnið ykkur
ávöxtunarþjónustu
Ávöxtunar s.f.
-Óverðtryggð
veðskuldabréf
Ár
1
2
3
4
5
6
20%
80,1
72.5
66,2
61,0
56.6
52,9
21%
80,8
73,4
67,3
62,2
57,8
54,2
-Verðtryggð —
veðskuldabréf
Ár Söhig. 2 afb/ári.
1 95,9 6 84,6
2 93,1 7 82,2
3 91,9 8 79,8
4 89,4 9 77,5
5 87,0 10 75,2
Ávöxtun ávaxtar fé þitt betur
# * *
AVOXTUNSf^
LAUGAVEGUR 97 - SÍMI 28815 OPIÐ FRÁ 10 - 17
Spqrifjáreigendur látið
Avöxtun sf. ávaxta
sparifé yðar
9%
ÁVÖXTUNSf-gy
VERÐBRÉFAMARKAÐUR