Morgunblaðið - 01.08.1984, Page 4

Morgunblaðið - 01.08.1984, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 1. ÁGÚST 1984 r * • r Hafísinn fyrir utan Dalvík kominn alla leið frá Grænlandi. Dalvík: . inwíln Hafísinn við bæjardyrnar Oalvík, 30. júli. „LANDSINS forni fjandi" minnti Dalvíkinga enn á tilveru sína þegar hann fostudaginn 20. júlí sigldi hraðbyri inní mynni Eyjafjarðar. Lónaði hann fyrir utan næstu daga þar til á laugardag 28. júlí að inn á víkina kom töluverð spöng og er nú á fjörum hér. Það er óvenjuleg sjón að sjá hafís hér við bæjadyr á þessum tíma árs, en þó muna elstu menn eftir því að árið 1913 hafi á svipuðum tíma komið hafís á Dalvíkina. Þar sem ísinn stendur á grunni virðist hann eiga fáa lífdaga framundan því hann bráðnar fljótt Eftir langvarandi þurrkatíð brá til óþurrka með norðan- og norðaustanátt samfara rigningu og súld. Heyskap er að mestu lokið í Svarfaðardal og á Dal- vík og má telja fullvíst að bændur séu vel birgir af velverkuðu heyi. Eins og víðar um Norðurland eru hér góðar horfur með berjasprettu og garðávexti. Fréttaritarar. Álftamýrarskóli: Eennsla fyrir 5 ára börn næsta vetur Síðastliðinn vetur var hafln kennsla 5 ára barna i fyrsta skipti í Álftamýrarskóla. Að sögn Ragnars Júlíussonar, skólastjóra, var almenn ánægja með þessa nýbreytni við skólann og ákveðið hefur verið að halda þessu skólastarfi áfram næsta vetur. Mikil breyting hefur orðið á Álftamýrarskóla á liðnum árum en um 1970 voru 6 bekkjardeildir í hverjum aldursflokki en núna ein- ungis 1 bekkjardeild. Aukið rými í skólanum var hvati þess að tilraun var gerð með 5 ára bekk sl. vetur. Tveir skólar í næsta nágrenni við Álftamýrarskóla hafa einnig haldið uppi kennslu í 5 ára bekk um nokk- urt skeið, þ.e. Æfinga- og tilrauna- skóli KHÍ og skóli ísaks Jónssonar. Skoðanir hafa verið skiptar um það hvort leyfa eigi kennslu 5 ára barna í grunnskólunum þó að skýr heimild sé fyrir því í grunnskóla- lögunum. Stjórnir Fóstrufélags ís- lands og Kennarasambands ís- lands hafa t.d. lagst gegn því. í bréfi til borgarstjóra frá stjórn fóstrufélagsins dagsett í febrúar segir m.a.: „Við drögum mjög í efa að það sé hagsmunamál foreldra að börn þeirra gangi í 5 ára bekk og það er sannarlega ekki hags- munamál barnanna sjálfra." Ragnar Júlfusson sagði að í lok skólaársins hefði foreldrum 5 ára barnanna verið sendir spurninga- listar, og þar hefði komið fram að foreldrar hafi undantekningar- laust verið ánægðir með þessa starfsemi. „Þetta er verðugt verk- efni sem rétt er að taka upp ( sem flestum skólum þar sem húsnæði er fyrir hendi,“ sagði Ragnar að lokum. Strákagöng: „Vonum að ný hurð verði til þess að betur verði gengið um“ í SUMAR er unnið að þvf aö setja upp nýja hurö í Strákagöng, Siglufjarðarmeg- in. Vélaverkstæöi Jóns og Erlings á Siglufiröi smíöaði hurðina, en Norðurverk á Akureyri sér um uppsetninguna. Að sögn Jónasar Snæbjörnssonar hjá Vegagerð ríkisins er nú lokið við að sprengja upp i þakið til þess að víkka göngin. Næsta verk er að steypa veggi og loft og verður byrj- að á því á næstunni. „Gamla hurðin var orðin mjög slitin og átti fólk oft í erfiðleikum með að loka henni á veturna. Við vonum að ný og betri hurð verði til þess að betur verði gengið um og samviskusamlega lok- að á eftir sér á veturna. Ef göngin eru skilin eftir opin myndast grýlu- kerti í loftinu. Úr þeim rennur síð- an vatn niður á gólf og frýs þar. Af þessu stafar mikil hætta,“ sagði Jónas. Áætlað er að ljúka verkinu í ág- úst. Akveðið að selja bensín áfram á lægra verði f Botnsskála: Salan aukist um 500 % á hálfri annarri viku „Bensínsalan í Botnsskála hefur aukist um 500% síöastliðna hálfa aðra viku miðað viö sama tfma í fyrra,“ sagði Pétur Geirsson f Botnsskála, í samtali við Morgun- blaðiö, en hann hefur undanfarið selt landsmönnum ódýrara bensín en annars staðar er fáanlegt í land- inu eða á krónur 22,00 í stað þess að lítrinn kosti 22,70. „Að mínu viti er stærsti þáttur- inn i þessari aukningu ánægja al- mennings með að verði skuli hreyft á þessari vöru, en ekki verðlækkunin sjálf sem slfk. Þetta sýnir stuðning almennings við að verslunin sé frjáls með þessar vör- ur eins og aðrar vörur,“ sagði Pét- Jarðhitasvæðið á Svarteengi: Dælt niður vatni til að hækka þrýstinginn Kemur í veg fyrir að bæta þurfi við vinnsluholum FYRIR skömmu hófust á jarðhitasvæðinu á Svartsengi prófanir á niðurdæi- ingu vatns. Það er HiUveiU Suðurnesja sem lætur framkvæma þessar próf- anir með aðstoð Orkustofnunar. Ástæða þess að þessi niðurdælingarprófun fer fram er að þrýstingurinn í jarðhitasvæðinu hefur minnkað og vatnsyfir- borðið hefur lækkað um 130—140 metra. Jón Steinar Guðmundsson, verkfræðingur, hefur haft yfir- umsjón með þessum framkvæmd- um og sagði hann f samtali við Morgunblaðið að niðurdæling vatns í jarðhitasvæði hefði ekki verið framkvæmd áður hér á landi. Hins vegar hefði íslending- ur stjórnað framkvæmdum af þessu tagi í E1 Salvador fyrir u.þ.b. tiu árum. „Lækkun vatnsyfirborðsins hef- ur það í för með sér að þær vinnsluholur, sem þarna eru, og sjá orkuverinu fyrir vatni og gufu, gefa með tímanum minna af sér,“ sagöi Jón Steinar. „Því er ekki nema um tvennt að ræða til að halda uppi fullri vinnslu, það er að bæta við vinnsluholum eða að framkvæma þessa niðurdælingu vatns sem við erum að prófa núna. Til þessarar framkvæmdar notum við jarðsjóinn og þéttivatnið, sem búið er að nota, og dælum þvf aft- ur niður I jarðhitasvæðið þannig að nettó-vatnstakan á svæðinu minnkar. Með þessu móti er sfðan vonast til þess að hægt verði að hægja á vatnsborðslækkuninni. Prófunin felst fyrst og fremst í þvf hvernig hægt sé að koma því vatni, sem búið er að nýta, niður í jörðina, og vandamálið sem þarf að glíma við í þvi sambandi er út- felling kisils úr vatninu og það þarf að koma í veg fyrir hana til að hún stífli ekki leiðslur, borhol- ur og fleira," sagði Jón Steinar. Jón Steinar kvað það mjög mik- ilvægt að koma í veg fyrir útfell- ingu kisilsins og viö þann þátt prófunarinnar væri beitt nýjung sem væri að blanda þéttivatni við jarðsjóinn en það hefði þynningar- áhrif á hann og einnig efnafræði- leg áhrif þannig að útfelling kfs- ilsins yrði ekki jafnmikil. Sagði hann að sú blanda sem þeir dældu niður væri 20% þéttivatn og 80% jarðsjór og alls væri dælt niður um 50 lftrum á sekúndu. „Þetta er bara prófun sem við framkvæmum núna þannig að þaö er bara hluti af þvf jarðvatni sem kemur upp sem við dælum niður aftur en í framtfðinni getur hugs- ast að við dælum þvf öllu niður,“ sagði Jón Steinar. „Það eru sex vinnsluholur á svæðinu og við dæl- um núna niður jarðvatni sem svarar til vinnslu einnar holu. Ef öllu jarðvatninu sem upp kemur verður dælt aftur niður í framtfð- inni, þá mun Bláa lónið hverfa en það er ekki þar með sagt að ekki verði hægt að baða sig úr þessu jarövatni sem þarna kemur upp því það væri hægt að koma fyrir einhverskonar kerum eða pottum til að liggja í en þeir þyrftu ekki að taka nema brot af þvf vatns- magni sem Bláa lónið tekur núna.“ Jón Steinar sagði að þessi til- raun væri verulega gagnleg því hún héldi við þrýstingnum á svæð- inu og kæmi f veg fyrir lækkun vatnsyfirborðsins en þetta fæli f sér þá hættu að það gæti orðið skammhlaup á milli hola, þvf það vatn sem færi niður væri kaldara en það sem fyrir væri í holunum og þvf yrði að kanna sambandið á milli holanna á svæðinu þvf skammhlaup á milli hola gæti valdið því að vinnsluhola eyði- legðist. Því væri það næsta skref í þessum prófunum að kanna sam- bandið milli holanna og sagði hann að þeir væru reyndar byrjað- ir á því að kanna hvort sú hola, sem nú væri notuð til niðurdæl- ingar, yrði nothæf til frambúðar. Sem fyrr segir hefur prófun af þessu tagi aldrei verið fram- kvæmd hérlendis áður, en Jón Steinar sagði prófanir sem þessar þó hafa verið framkvæmdar f nokkrum löndum áður. „Til dæmis hafa Japanir verið með niðurdæl- ingar sm þessar, en með misjöfn- um árangri. Þá hafa þær verið framkvæmdar á Filippseyjum með góðum árangri og einnig hefur þetta verið reynt í EI Salvador, en þær prófanir hóf Sveinn Einars- son, verkfræðingur, og það má eig- inlega segja að þá hafi þetta fyrst verið reynt í sambandi við jarð- hitasvæði en sú tækni sem við þetta er beitt er vel kunn úr olíu- iðnaði,“ sagði Jón Steinar Guð- mundsson að lokum. ur. Pétur sagði að þeim feðgum hefði komið saman um að halda áfram að selja bensín á sama verði einn mánuð í viðbót. Þar kæmi bæði til viljayfirlýsing ríkis- stjórnarinnar um að málið verði losað úr þessari klípu og nefnd- arskipunin, en nefndin eigi að endurskoða reglur um þessa versl- un. „í annan stað hefur að minnsta kosti forstjóri eins olíufé- lags, olíufélagsins Skeljungs, lýst því yfir að hann sé fylgjandi frjálsri verslun og við erum það að sjálfsögðu. Til þess að brúa þetta bil þangað til að nefndin hefur skilað áliti, sem á að vera um mánaðamótin ágúst/september, ákváðum við þetta. Annars reikna ég fastlega með því að þá verði olíufélögin sjálf tilbúin til að taka ákvörðun í þessu máli sem eðlilegt er. En til þess að minna menn á og til þess að málið falli ekki niður, höfum við ákveðið að halda áfram í einn mánuð i viðbót," sagði Pétur að lokum. Handtóku 4 á innbrotsstað FJÓRIR pörupiltar voru { fyrrakvöld handteknir af lögreglunni, þar sem þeir höfðu brotist inn í Pennaviðgerð- ina f Ingólfsstræti. Grunur lék á að þeir hefðu einnig brotist inn ( Gjafa- húsið fyrr um kvöldið. Þá er talið að einhverjir úr hópnum hafi verið valdir að líkamsárás á aldraðan mann ( mið- borginni í síðustu viku. Þá handtók lögreglan í fyrrakvöld ungan pilt, sem hafði brotist inn 1 fjögur fyrirtæki í Sundaborg. Rann- sóknarlögregla ríkisins hefur bæði þessi mál til meðferðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.