Morgunblaðið - 16.08.1984, Page 20

Morgunblaðið - 16.08.1984, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984 J.B. Priestley látinn J.B. Priestley London, 15. ágúst AP. J.B. Priestley, einn af fremstu rithöf- undum Breta, lést í gær í London 89 ára að aldri. Ekkert var látið uppi um banameinið en talsmaður útgef- enda hans sagði, að Priestley hefði fyrst og fremst lotið í lægra haldi fyrir Elli kerlingu. J.B. Priestley kom víða við á ferli sinum. Hann var rit- höfundur, gagn- rýnandi, smá- sagnahöfundur, leikritaskáld, útvarpsmaður, blaðamaður og skáld. Þekkt- asta verk hans er „The Good Companions", sem kom út árið 1929, en með „Literature and Western Man“, athugun á enskum og bandarískum bókmenntum frá síðmiðöldum til vorra daga, öðlað- ist hann sess sem meiriháttar fræðimaður í bókmenntum. Priestley skrifaði meira en 100 bækur um dagana og kom sú fyrsta út árið 1922. Þar gætti margra grasa, fræðirita og skemmtisagna, hrollvekja, hug- ljúfra ástarsagna og reyfara- kenndra framtíðarsýna um sálar- lausa vísindamenn og ósvífna braskara. Það, sem skar þó úr um vinsældir hans meðal Englend- inga, voru sögur hans af þeim sjálfum, beinskeyttar og háðskar en ávallt með undirtón einlægrar hlýju og væntumþykju. John Boynton Priestley fæddist 13. september árið 1894 í bænum Bradford í Yorkshire. Hann fékkst við margt á yngri árum, skrif- stofustörf og kennslu m.a., en 26 ára gamall ákvað hann að gerast blaðamaður á lausum kili. Hann var þá farinn að skrifa bækur en mátti þó bíða til 35 ára aldurs eft- ir frægðinni, sem kom með bók- inni „The Good Companions" eins og fyrr sagði. Priestley hafði mik- inn áhuga á stjórnmálum og barð- ist mjög gegn litlum skilningi breskra ráðamanna á hættunni, sem stafaði af uppgangi Hitlers á sínum tíma. f stríðinu sá hann um vikulegan þátt á sunnudögum i BBC þar sem hann stappaði stál- inu í þjóð sína á eftirminnilegan hátt. Priestley taldi sig vinstrimann og hafði alltaf mikla samúð með fátæku fólki og atvinnuleysingj- um. Skoðanir hans voru þó mjög mótsagnakenndar og má segja, að hann hafi verið vinstrisinnaður íhaldsmaður. „Ég er ljósrauður á litinn," sagði hann einu sinni, „og það þykir mér heilsusamlegur og ljúfur litur.“ Veöur víða um heim Akureyri Ameterdam Aþena Barcelona Berlfn BrUaael Chicago Dubiin Feneyjar Frankfurt Genf Helsinki Hong Kong Jerúsalem Kaupmannahöfn Las Palmas Lissabon London Los Angeles Mallorca Miami Montreal Moskva New York Ósló París Peking Reykjavfk Rió de Janeiró Rómaborg Stokkhólmur Sydney Tókýó Vfnarborg 8 skýjaö 24 heióskírt 33 skýjaó 22 heióskírt 23 skýjaó 27 heiðskirt 29 skýjaó 21 heióskírt 25 heiðskfrt 26 skýjaó 23 heióskfrt 14 skýjað 31 heiöskírt 26 heióskfrt 19 rigning 25 heióskfrt 27 heióskírt 26 heióskfrt 28 heiöskfrt 28 léttskýjaó 28 léttskýjaó 30 skýjaó 28 skýjaó 16 skýjað 31 skýjaó 15 skýjaó 23 heiöskfrt 32 heióskfrt 11 rigning 25 heióskírt 30 heiósklrt 22 heióskírt 16 heióskút 34 heíóskirt 23 heióskfrt AP. Forsetadóttir giftir sig Patti Davis, dóttir Nancy og Ronald Reagans, kvæntist í gær jógakennaranum Paul Grilley og fór athöfnin fram í Bel Air-hótelinu í Los Angeles. Á myndinni eru, frá vinstri til hægri: Terrence F. Grilley og Donna Grilley, foreldrar brúðgumans, Paul Grilley og Patti og foreldrar hennar, Nancy og Ronald Reagan. Gamanyrði Reagans þykja fremur grá Bonn. Moakvu, Önió og víðar. 15. ágúnt AP. RONALD Reagan, Bandaríkjafor- seti, á sér ekki marga viðhlæjendur þessa dagana og þykir mörgum gam- ansemi hans heldur grá. f Sovétríkj- unum og Austur-Evrópu eru honum að sjálfsögðu ekki vandaðar kveðj- urnar og Vestur-Evrópumönnum þykir miður, að hann skyldi grínast með árás á Sovétríkin. Þegar leitað var álits vestur- þýsku stjórnarinnar á orðum Reagans svaraði talsmaður henn- ar því til, að stjórnin fyrirhugaði þessum brandara þau meinlegustu örlög, sem beðið gætu eins brand- ara. Hún ætlaði ekki að endurtaka hann. Þegar á talsmanninn, Peter Bönisch, var gengið og hann spurður hvort honum hefði þótt Reagan fyndinn, sagði hann: „Að sumum skrítlum má hlæja, öðrum ekki. Þið skuluð skipa þessari á réttan bás.“ í Sovétríkjunum var í dag gefin út formleg yfirlýsing um orð Reagans og sagði þar, að þau lýstu meiri óvild í garð Sovétríkjanna en áður væru dæmi til. í sama streng tóku blöð í Austur-Evrópu- ríkjunum. í Dagblaðinu norska var sagt, að Reagan væri orðinn gamall og andlegum hæfileikum hans farið að hraka. Verst af öllu væri þó, að gömlu mönnunum í Kreml skyldi hafa borist þessi brandari til eyrna því að þar væri um að ræða menn, sem alls ekki skildu brandara. Til að bæta gráu ofan á svart fyrir Reagan lét starfsmanna- stjóri Hvíta hússins þau orð falla i viðtali við NBC-sjónvarpsstöðina, að Reagan ætti stundum erfitt með að halda sér vakandi á ríkis- stjórnarfundum. Raunar bætti hann því við, að svo væri kannski með fleiri og færi nokkuð eftir því hvað væri til umræðu. Pólland: Brezhnev við Pompidou: „Þú hefur sprengt París í loft upp“ Samstaða endur- metur stöðu sína (kUixk. PólUndi, 15. áyúsL AP. LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, segir, að samtökin séu nú að endur- meta stöðu sína í ljósi sakaruppgjaf- arinnar í síðasta mánuði, sem hafi verið skref í rétta átt. „Sakaruppgjöfin var eitt skref í rétta átt og við viljum ekki hindra stjórnina í að stíga það næsta,“ sagði Walesa eftir að hann lagði blóm að styttu fyrir utan Lenin- skipasmíðastöðvarnar í Gdansk en hún var reist árið 1980 til minn- ingar um fallna verkamenn. Sagði hann ennfremur, að sakaruppgjöf- in hefði valdið því, að fólki þætti ekki rétt um sinn að efna til mót- mæla eða ögra stjórnvöldum á annan hátt. Lögreglumenn höfðu engin afskipti af Walesa þegar hann Iagði blóm á fótstall stytt- unnar en þegar hann fór fögnuðu viðstaddir og heilsaði Walesa þá með sigurmerkinu. RONALD Reagan, Bandaríkjafor- seti, er ekki fyrsti leiðtogi stórþjóðar til að hafa sprengjuárás á aðra þjóð að gamanmálum. Segir frá þvf f franska blaðinu Le Matin í dag. Le Matin gerði f dag kímni Reagans að umtalsefni og sagði jafnframt frá því, að hann væri ekki fyrsti þjóðarleiðtoginn, sem fyndist svona nokkuð fyndið, þótt það afsakaði ekki orð hans á neinn hátt. Fyrir 14 árum, í október árið 1970, var Georges Pompidou, þá- verandi Frakklandsforseti, í heim- sókn í Sovétríkjunum og gestgjafi hans var Leonid Brezhnev. „Brezhnev tók á móti Pompidou með pomp og prakt og bauð hon- um með sér til sovésku geimferða- og eldflaugamiðstöðvarinnar í Baikonur," sagði Le Matin. „Þegar þangað kom bauð Brezhnev hon- um að ýta á hnapp og þar sem Pompidou var maður gamansam- ur studdi hann á hnappinn, alls- endis grunlaus um þær hrellingar, sem biðu hans. „Herra forseti," sagði Brezhnev þegar Pompidou hafði ýtt á hnappinn, „þú hefur sprengt París í loft upp.““ Reyna að miðla málum milli írans og íraks AP. Walesa krýpur við mínnismerkið um verkamennina, sem féllu fyrir kúlum lögreglu og hermanna árið 1970. Málgagn stjórnarinnar, Rzeczp- Gdansk með langri grein þar sem sagt, að nauðsyn hefði borið til að ospolita, minntist verkfallanna í setning herlaganna var varin og forða þjóðinni frá „stjórnleysi". Mamma, Bahrain, 15. ágiinL AP. KAMAL Hassan Aly, forsætisráð- herra Egyptalands, sagði í dag, að árangurinn af tillögum egypzku stjórnarinnar til þess að koma á friði milli íraks og Irans væri kominn undir afstöðu stjórnarinnar í Teher- an. Tillögur þessar eru í sex liðum og sagði Aly, að þar væri „gætt mik- ils jafnvægis með tilliti til krafna beggja stríðsaðila'*. I tillögum þessum er gert ráð fyrir, að landamærin milli Irans og íraks frá 1975 verði áfram 1 gildi, vopnahléi verði komið á und- ir eftirliti alþjóðlegs gæzluliðs, báðar þjóðirnar viðurkenni skyldu sína til þess að greiða stríðsskaða- bætur og hafizt verði handa um að koma á friðarsamningi, þar sem „lögmæt réttindi" beggja land- anna verði viðurkennd. Tareq Aziz, utanríkisráðherra Iraks, kom til Egyptalands fyrr í þessari viku í boði Alys til við- ræðna um friðartillögurnar. Hann er sagður hafa látið í Ijós nokkrar efasemdir varðandi friðartillögur Egypta. Afstaða Iransstjórnar er enn ekki ljós, en haft var eftir Aly forsætisráðherra i dag, að afstaða hennar hefði mildazt verulega frá því sem áður var.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.