Morgunblaðið - 16.08.1984, Page 22

Morgunblaðið - 16.08.1984, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984 Var Palestína í Saudi-Arabíu? London 13. i&KL. AP. HEIMALAND gyðinga í Gamla testamentinu var ekki í Palestínu, beldur í hinum frjósömu hæðum vesturhluU Saudi-Arabíu, þar sem nú eru héruðin Asir og Hejaz. Þetta kemur fram í bók eftir virtan líbanskan prófessor, Kamal Salibi, „The Bible came from alveg á næstunni. Kamal Salibi, sem er prófessor i sögu við Bandaríska háskólann í Beirút, segist ekki draga í efa i bók sinni að á tímum Jesú hafi gyðingar skotið rótum í Palestínu, sem er nú Ísraelsríki. Hann segist heldur ekki útiloka að gyðingar hafi verið á Palestínusvæðinu i hlutum Gamla testamentisins. En sú kenning hans — sem hefur valdið töluverðu fjaðrafoki meðal sérfræðinga í Gamla testamentis- fræðum — er að meginhluti Gamla testamentisins gerist í Arabia" sem er væntanleg á markað strandhéruðum Vestur-Saudi- Arabíu og hæðunum upp af þeim, þar sem land er frjósamt. „Það var hér sem Davíð og Salómon bjuggu i konungdómi sínum og hér er að leita uppruna gyðingdóms, krist- indóms og islam." Salibi er hálfsextugur að aldri. Hann hefur unnið að bókinni um langa hríð og í umsögn Sunday Times um hana kemur fram, að ástæða sé til að taka röksemda- færslu hans sterklega til greina. Ekki linnir fjölda- moröum í Úganda London, 15. igmgL AP. ÝMSIR forsvarsmenn kristinna manna í Úganda segja að stjórnar- hermenn hafi myrt á annað hundr- Ofsafengin kirkjuferð SAMKV/EMT upplýsingum lögregl- unnar í Potenza á Ítalíu ók kona nokkur á bíl sínum inn í kirkju í augnabliksæði sem á hana rann og flugu bekkir og biblíur í allar áttir. Marine Cervina, en svo heitir konan, viðurkenndi að hafa ekið á mikilli ferð í gegnum lokaðar kirkjudyrnar, farið í nokkra hringi inni í kirkjunni og ekið yfir hvað sem fyrir varð, þangað til bíll hennar rakst á altarið. Þá bakkaði konan bílnum út aftur. Lögreglu, sem kom á vettvang, grunaði fyrst, að þarna hefðu inn- brotsþjófar verið á ferð. að manns við helgidóm kristinna píslarvotta, sem Jóhannes Páll páfi II á að heimsækja þegar hann fer til Úganda á næsta ári. Það var brezka blaðið Daily Telegraph sem sagði frá þessu og hafði eftir fréttamanni sínum A.J. Mcllroy, en hann hafði rætt við fulltrúa kaþólsks safnaðar í mamugongo sem er í aðeins 16 kílómetra fjarlægð frá Kampala. Mcllroy sagði að hermennirnir hefðu einnig pyndað fjölda manns á ólýsanlega grimmi- legan hátt svo að fólkið dó ekki strax, heldur leið voðalegar kval- ir dögum saman áður en það gaf upp öndina. Frásögninni ber saman við fregnir Bandaríkja- manna sem hafa staðhæft að hermenn Úgandastjórnar fremji fjöldamorð og voðaverk sem geri ljótar athafnir Amins, fyrrver- andi forseta, að hreinasta barna- leik samanborið við þetta sem nú er að gerast. Mcllroy sagði að hann hefði getað rætt við forvígismenn safnaðanna á þessum slóðum án þess að nokkur skipti sér af. Hann sagði að stjórn Úganda teldi sig „ekkert hafa að fela“ og allar frásagnir um fjöldamorð væru uppspuni og illgirnislegur áróður. Smíði síðustu Boeing 727 lokið Krnlon, Wanhinmon. 1S. ágúst. AP. ÞÚSUNDIR verkamanna í Boeing-verksmiðjunum gerðu hlé á verki sínu í morgun til að hylla og heiðra síðustu Boeing 727-líugvél- ina sem smíðuð verður. Fyrsta Boeing 727-vélin hóf sig til flugs þann 9. febrúar 1963 og síðan hafa verið smíðaðar 1832 vélar af þessari gerð. Meðal fyrstu félaga sem festu kaup á Boeing 727 utan Bandaríkjanna voru Lufthansa og síðan Iberia og japanska flugfélagið Nippon og hafa þessi félög síðan verið fastir kúnnar Boeing 727-véla. Fyrstu Boeing-vélinni var boð- ið í hófið í gær, en talsmaður eigandans, United Airlines, sagði að gamla þotan væri alltof upptekin til að gefa sér tíma til að stunda samkvæmislíf. Boeing-vélin sú hefur nú að baki 47.180 flugtíma. Boeing 727-vélarnar hafa flutt samtals rösklega 2,3 milljarða farþega og flogið 21 milljarð míla. Á seinni árum hafa pantanir strjálast í Boeing 727 vegna þess meðal annars að nýrri þotur eru hljóðlátari, sparneytnari og þurfa ekki nema 2ja manna áhöfn í stað 3ja í Boeing 727. Þó svo að Boeing 727 séu ekki lengur framleiddar, sagði Frank A. Shorntz, forseti Boeing- verksmiðjanna, munu þær verða lengi á flugi enn og óvíst að þær verði komnar úr notkun þegar næsta öld rennur upp. Iran: Varnarmálaráð- herra hafnað Nikósía, Kýpur. 15. ágúrt. AP. VARNARMÁLARÁÐHERRA írans og (jórir aðrir ráðherrar í 23ja manna stjórn landsins hafa orðið að láta nægilegt traust á íranska þinginu, a íran. Fimmtán ráðherrar sem voru skipaðir í stjórn Hussein Husavi forsætisráðherra fengu hins vegar náð fyrir augum þingmanna. At- kvæðagreiðsla fór fram í þinginu — Majlis — í morgun. Á því eiga 270 fulltrúar sæti, múllar og trú- arleiðtogar eru þar i miklum meirihluta. AP-fréttastofan segir, að túlka megi vantraustssamþykkt á varn- f embætti þar sem þeir fengu ekki sögn írna, opinberu fréttastofunnar í armálaráðherrann sem mikla gremju vegna framgangs stríðsins milli írana og Iraka, sem hefur nú staðið í nærfellt 47 mánuði. Aðrir ráðherrar sem ekki fengu að taka sæti í stjórninni voru dr. Hadi Nanafi, heilbrigðisráðherra, Ali Parvaresh, menntamálaráð- herra, menningarmálaráðherrann Mohammad Najad og Yashemi, iðnaðarráðherra. Sovéskur ráðgjafi Palme- nefndarinnar foringi í GRU SOVÉSKI hershöfðinginn Michail Milstein, sem var einn af sérfræðing- um Palme-nefndarinnarinnar um sameiginlegt öryggi og afvopnunarmál, er í hópi æðstu yfirmanna leyni- og njósnastofnunar sovéska hersins, GRU. Hann er aðstoðarforstjóri þeirrar deildar GRU sem annast dreif- ingu á lygaupplýsingum. Þetta kemur fram í nýrri bók eftir Viktor Suvorov um sovésk- ar hernaðarnjósnir. Suvorov var sjálfur foringi f GRU en flýði til Vesturlanda. Hann hefur áður gefið út tvær bækur um málefni sovéska hersins og meðal annars skýrt ítarlega frá starfsemi Spetnaz-sveita Sovétmanna sem eru sérþjálfaðir skemmdar- verkahópar er hafa það verkefni á átakatímum að myrða lands- stjórnarmenn á Vesturlöndum, eyðileggja herstöðvar og al- mennt valda svo miklum usla að hið raunverulega innrásarlið mæti sem minnstri andstöðu. Frá hinni nýju bók Suvorovs um GRU „Sovéska hernaðar- njósnastofnunin" er sagt í Svenska dagbladet 11. ágúst síð- astliðinn. Þar segir að í bókinni sé að finna skrá yfir háttsetta foringja i GRU og meðal annars sé Michail Milstein lýst með þeim orðum að hann sé aðstoð- arforstjóri fyrir deild GRU er annast miðlun lygaupplýsinga („disinformation") og hafi skrif- að handbók fyrir njósnara stofn- unarinnar. Ekki er tilviljun að þessi upp- ljóstrun um Milstein veki sér- staka athygli f Svíþjóð, þar sem hann hefur verið einn af ráðgjöf- um Palme-nefndarinnar sem starfað hefur í nokkur ár og sent frá sér tillögur um afvopnun- armál undir heitinu: „Sameigin- legt öryggi.“ Olof Palme, forsæt- isráðherra, en við hann er nefnd- in kennd, situr þar í forsæti fyrir Michail Milstein — foringi í GRU. hópi manna frá austri og vestri sem vill að farnar séu nýjar leið- ir til að takmarka vfgbúnað. Uppruna nefndarinnar má rekja til Alþjóðasambands sósfalista. Þá tengdist Milstein einnig umræðum um sænsk öryggis- og varnarmál vegna viðræðna sem hann átti við Anders Ferm, sendiherra Svía hjá Sameinuðu þjóðunum, sem Olof Palme skip- aði í það embætti eftir að Ferm hafði starfað á vegum sænska Jafnaðarmannaflokksins og sem sérstakur starfsmaður Palme meðal annars á vegum Palme- nefndarinnar. Þeir Milstein og Ferm ræddu saman um ferðir sovéskra kafbáta í sænskri land- helgi og í bréfi til Palme um við- ræðurnar sagði Ferm, að Sov- étmenn ætluðu „ekki að viður- kenna nein brot á sænskri land- helgi jafnvel þótt fullgildar sannanir lægju fyrir um þau“. Vakti þetta bréf og meðferð sænsku ríkisstjórnarinnar á því miklar deilur í Svfþjóð þannig að jafnaðarmenn völdu þann kost að gefa út „hvíta bók“ um það 13. júlí síðastliðinn en þar er Mil- stein lýst „sem sovéskum herfor- ingja á eftirlaunum er einnig gegndi ráðgjafastörfum fyrir Palme-nefndina". Engin kjarna- vopn hjá Indiru Nýju Delhí 15. ágúsl. AP. INDIRA Gandhi, forsætisráðherra Indlands, sagði í morgun á fundi í Nýju Delhí, að engin kjarnorkuvopn væru á Indlandi. Indverjar byggju yfir tækni- þekkingu og getu til að smíða slík vopn, en hins vegar myndi sú þekking verða notuð í friðsamleg- um tilgangi, svo sem til að þróa rafeindarannsóknir og vísindaleg störf á sviði heilbrigðismála. Ind- ira Gandhi ítrekaði fyrri fullyrð- ingar um, að Indlandsstjórn vildi draga úr framleiðslu slíkra vopna og teldi nauðsynlegt að stórveldin hættu fáránlegu og hættulegu vígbúnaðarkapphlaupi sín f mill- um. Hins vegar mætti nota aukna þekkingu á sviði kjarnorkurann- sókna mannkyni til heilla og það væri markmið Indverja. Skaut mann sinn og grillaði San José, Kaliforníu, 15. ágúrt. AP. KONA nokkur í Kaliforníu var í gær dæmd sek um morð en hún skaut eiginmann sinn til bana og brenndi síðan á fjölskyldugrill- inu. Kviðdómurinn ræddi málið hálfan þriðja dag en komst sið- an að þeirri niðurstöðu, að hár- greiðslukonan Dianne Fell- man, sem er 36 ára gömul, væri sek um morð af yfirlögðu ráði og ætti sér engar málsbætur. Þýkir því líklegt, að dómarinn sendi hana í fangelsi fyrir lífstíð. Dianne myrti mann sinn, 39 ára gamlan, og brenndi síðan líkið á stóru grilli fjölskyldunnar. Sagði saksóknarinn, að maður henn- ar hefði verið sjúklingur og ör- yrki en hún hefði ekki nennt að annast hann. Finnland: Atvinnuleysi 5 prósent Helsinki, 15. ágÚHt. AP. ATVINNULEYSI í Finnlandi í júlí- mánuði var um 5 prósent og ívið mcira en í júní. Samtals voru þá skráðir 130.500 atvinnulausir. Þó svo að nokkur aukning hafi orðið segir f tilkynn- ingu atvinnumálaráðuneytisins í dag, að miðað við árið 1983 sé ástandið að skána. í júlí i fyrra voru 5,4 prósent skráðir atvinnu- lausir í landinu. Olof Palme til Tanzaníu OLOF Palme, forsætisráðherra Sví- þjóðar, fer f opinbera heimsókn til Tanzaníu hinn 1. september nk. I boði forseta landsins, Juliusar Nier- ere. Eftir að opinberri heimsókn Palmes í Tanzaníu lýkur tekur hann þátt í alþjóðlegri ráðstefnu jafnaðarmanna í Arusha þar f landi 4. september. Er Suður- Afríka aðalefni ráðstefnunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.