Morgunblaðið - 16.08.1984, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
Vetrartískan kvik-
mynduö hér á landi
„Feikileg landkynning,“ segir Sveinn Sæmunds-
son, forstödumaöur kynningardeildar Fhigleiða
„ÞAÐ eru tólf stærstu tískuhús
heims sem standa að mvndinni
isamt þýska sjónvarpinu (ZDF),
en ástæðan fyrir því að Island varð
fyrir valinu er að hér er landslag
um margt óvenjulegt. Sú hefð hef-
ur verið ríkjandi hji þessum aðil-
um að nota tækifærið til landkynn-
ingar samhliða kynningar i tísk-
unni,“ sagði Sveinn Sæmundsson,
forstöðumaður kynningardeildar
Flugleiða, í samtali við Mbl., en
fyrir nokkru kom hingað til lands
nítjin manna hópur sjónvarps-
manna og sýningarstúlkna til að
vinna að upptökum i 30 mínútna
langri mynd um vetrartískuna
1984 til 1985.
Að sðgn Sveins verður myndin
sýnd í þýska sjónvarpinu 19.
september næstkomandi, en
samkvæmt skoðanakönnunum,
sem gerðar hafa verið vegna
fyrri sýninga af þessari gerð, þá
munu um 40 milljónir manna
horfa á útsendinguna samtímis.
Sendingin mun ná til Þýska-
lands, Austurríkis, Hollands,
Belgíu, Lúxemborgar, N-Frakk-
lands og eitthvað norður eftir
Danmörku. Þátturinn verður
sýndur samtimis á ftalíu.
Fimm sýningarstúlkur eru í
þessum nítján manna hópi og
koma þær víðs vegar að úr heim-
inum. Meðferðis hafa þær um
800 kíló af fatnaði. Hópurinn
hefur aðalbækistöð á Hótel Loft-
leiðum, en var á Skógum um
helgina. Einnig verður kvikm-
yndað á Þingvöllum, við Gullfoss
og Geysi og í Reykjavík. Hópur-
inn kemur til með að dvelja hér
á landi fram að næstu helgi.
Hann hefur til ráðstöfunar
langferðabifreið frá Guðmundi
Jónassyni.
Auk þýska sjónvarpsins eru
það Flugleiðir og Ferðamálaráð,
sem standa að ferðum hópsins
hér á landi, og sagði Sveinn
Sæmundsson að lokum að hann
gerði sér vonir um að hér yrði
um feikilega landkynningu að
ræða.
Kvikmyndatökuraenn og aðstoðar-
fólk frá þýzka sjónvarpinu. Lög-
reglan var þeim innan handar
meðan á upptökum stóð í miðborg-
inni. Efri myndin er af sýningar-
stúlkum að störfum.
Morgunblaðið/Júlíus
Sami sendi-
herrann í bæði
S- og N-Kóreu
Htmml S-Kéra«, 10. áfáurt. AP.
AFRÍKURÍKIÐ MauHUnu befur
nú ákveöið aö sendiberra ríkisina f
Peking og Pyongyang í N-Kóreu
skuli einnig gegnn sendiberraemb-
ætti í Seoul í S-Kóreu. ÞetU er í
fyreU skipti sem sami maóurinn er
sendiberra fyrir báða hluU skaganiL
Fjandskapur hefur ríkt meÖal
suÖur- og noröurhluta Kóreu síftan
ríkinu var skipt viö lok seinni
heimsstyrjaldarinnar og er ekkert
stjórnmálasamband ríkjandi þar á
milli. S-Kórea hefur samþykkt
hinn nýja sendiherra Mauritaniu,
en ekki er vitað hvenær hann af-
hendir stjórninni þar trúnaöar-
bréf sitt.
Pétur Thorsteinsson
fyrsti sendiherrann
í S- og N-Kóreu
f frétt Morgunblaðsins sl.
sunnudag segir að sendiherra Afr-
íkuríkisins Máritaníu sé sá fyrsti
sem gegni því embætti bæði Suð-
ur- og Norður-Kóreu. Þetta er
rangt því að Pétur Thorsteinsson
sendiherra afhenti Kim II Sung
forseta Norður-Kóreu trúnaðar-
bréf 2. apríl 1982 og Chun Doo
Hwan forseta Suður-Kóreu trún-
aðarbréf 17. apríl 1982. Pétur
Thorsteinsson er því fyrsti sendi-
herrann sem gegnir því embætti í
báðum ríkjum.
Fyrirlestur um
menntamál
Thomas S. Popkewitz, prófessor
við School of Education, Univers-
ity og Wisconsin — Madison, held-
ur opinberan fyrirlestur, sem
nefnist Umbætur i menntamálum:
Goðsögn eða veruleiki, í Kennara-
háskóla íslands við Stakkahlíð,
stofu 301 í dag, fimmtudag, kl. 17.
Siglufjörður:
Minningarstofa um séra
Bjarna Þorsteinsson opnuð
Næstkomandi laugardag, 18. ág-
úst, verður opnuð á Siglufirði minn-
ingarstofa séra Bjarna Þorsteinsson-
ar tónskálds og þjóðlagasafnara,
sem var sóknarprestur á Siglufirði í
47 ár. Séra Bjarni var sæmdur pró-
fessorsnafnbót og riddarakrossi
Hinnar íslensku fálkaorðu 1930 fyrir
þjóðlagasöfnun sína og störf að
opinberum málum fyrir Siglufjörð.
Ennfremur var hann gerður að heið-
uraborgara Siglufjarðar 1936.
Minningarstofan verður opnuð
með athöfn sem hefst kl. 14. Verð-
ur fyrst komið saman í Hvanneyr-
arkirkjugarði, þar sem kirkjukór-
inn syngur undir stjórn Páls
Helgasonar. Séra Vigfús Þór
Árnason flytur minningarorð og
Bogi Sigurbjörnsson forseti bæj-
arstjórnar Siglufjarðar leggur
blómsveig á leiði prestshjónanna.
Minningarstofan sem er í bóka-
safni Siglufjarðar verður opnuð
kl. 15. Verður þar flutt ávarp,
ræða og tónlist.
í tengslum við minningarstof-
una sem geymir ýmsa muni i eigu
Háskólabíó:
The Local Hero
HÁSKÓLABÍÓ er nú að hefja
sýningar á myndinni The Local
Hero. Myndin fjallar um milljóna-
mæringinn Felix Happer, sem
hyggst auðgast á oliborun við
strendur Skotlands. Hann sendir
þangað tvo menn, sem komast að
þvi að það verður ekki auðvelt að
semja við sérvitra þorpsbúa. Allt
þokast þó í rétta átt þar til Ben
nokkur Knox leggur fram pappíra,
sem segja að hann eigi alla
ströndina.
Bill Forsyth leikstýrði mynd-
inni. Tónlist er eftir Mark Knopfl-
er í Dire Straits.
Hitchcock-hátíð
í Laugarásbíói
í DAG hefst Hitchcock-hátíð í Laug-
arásbíói meó sýningu myndarinnar
Glugginn á bakhliðinni, „Rear
Window“, sem frumsýnd var árið
1954.
Myndin fjallar um L.B. Jeffries,
fréttaljósmyndara, sem slasaðist er
hann hætti sér út á kappaksturs-
braut. Meðan hann situr heima í
gifsi fer hann að virða fyrir sér
mannlífið í kringum sig í Greenwich
Village í New York og verður margs
vísari.
Aðalhlutverk eru í höndum þeirra
James Stewart og Grace Kelly.
Handritið er gert eftir sögu John
Michael Hayes „It Had To Be Murd-
séra Bjarna og konu hans, verður
tónlistarhorn. Þar verða hljóm-
flutningstæki, og fyrst og fremst
lögð áhersla á að koma upp safni
af þjóðlegri tónlist, bæði islenskri
og erlendri.
Jafnframt verður opnað hér-
aðsskjalasafn Siglufjarðar sem
stofnað er samkvæmt lögum um
slík söfn. Hefir þegar verið safnað
þangað allmiklu af skjölum er
varða síldartímabilið, auk ýmis-
legra gagna um sögu og menningu
Siglufjarðar og Hvanneyrahrepps
hins forna. Við opnun minn-
ingarstofunnar og skjalasafnsins
mun óttar Proppé bæjarstjóri og
óli J. Blöndal bókavörður flytja
ræður. Sigurjón Sæmundsson
syngur við undirleik Silke
Óskarsson. Hlynur óskarsson
leikur á trompet og kirkjukórinn,
undir stjórn Páls Helgasonar
syngur lög eftir séra Bjarna.
Bókafulltrúi ríkisins, Kristin
Pétursdóttir, flytur ávarp. Klukk-
an 16—18 verður síðan kaffiboð
fyrir bæjarbúa. Búist er við að-
komugestum til þessarar athafn-
ar, auk þess sem allir eru að
sjálfsögðu velkomnir.
(Fréttatilkynning)
Finnsk listakona í
Gallerí Langbrók
FINNSKA listakonan Outi Heisk-
anen opnar á morgun sýningu í
Gallerí Langbrók f Reykjavik. Á
sýningunni verða um 40 grafíkm-
yndir.
Outi Heiskanen er, að sögn
Langbróka, einn fremsti mynd-
listarmaður Finnlands. Hún er
fædd árið 1937 og er búsett í
Helsinki. Hún hefur haldið fjöl-
margar einkasýningar og tekið
þátt I samsýningum víða um
heim og hlotið ýmsar viðurkenn-
ingar fyrir verk sín.
Outi var í óða önn að setja upp
sýninguna í Gallerí Langbrók,
þegar blaðamann bar að garði.
„Öll verkin á þessari sýningu eru
unnin.út frá sama efni,“ sagði
hún. „Þegar ég var barn, heyrði
ég gamla þjóðsögu, sem fyrst var
skráð í Finnlandi á 16. öld, um
fólk, sem bjó á lítilli eyju, Fugla-
eyju, á heimsenda. Fólk þetta
var mjög smávaxið, þvi á heims-
enda var svo lágt til himins, að
það gat ekki verið stærra. Þessi
þjóðsaga um þetta fólk, þessa
dverga á heimsenda, hreif mig
mjög mikið, en myndirnar eru
ekki beint um þetta fólk, heldur
er sagan fremur bakgrunnur,
sem ég vinn út frá miðað við
mitt eigið líf.“
Hjónin Anne Marie og Harold Reinholdtsen.
Hjálprædishernum
bætist liðsauki
Til Hjálprsðishersins eru komin
hjónin Anne Marie og Harold
Keinholdtsen, kapteinar. Þau munu
taka við stjórn samkomustarfs
Hjálprsðishersins í Reykjavík. Þau
hafa áður búið hér á landi og störf-
uðu þá í fimm ár á Akureyri.
í kvöld, fimmtudag, verður
kvöldvaka, þar sem komu þeirra
verður fagnað. Veitingar verða
bornar fram.