Morgunblaðið - 16.08.1984, Side 34

Morgunblaðið - 16.08.1984, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984 + Elskuleg móöir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN SIGRÍDUR BENEDIKTSDÓTTIR, Vífilsgötu 16, Rsykjavfk, lést á heimili sínu 14. ágúst. Börn, tengdabörn og barnabörn. t Maöurinn minn og sonur mínn, BIRGIR ÁSGEIRSSON, lögfræóingur, Mióbraut 38, Saltjarnarnasi, andaöist í Landspítalanum 14. ágúst. Margrét Sigurjónsdóttir, Karólína Sveinsdóttir. + Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir, afi og bróöir, ÓSKAR Þ. BERGÞÓRSSON fré Flatey, Snæfellsási 5, Hellissandi, lést á Reykjalundi 6. ágúst. Útförin hefur fariö fram í kyrrþey, aö ósk hins látna. Björg A. Sigvaldadóttir, Ingibjörg Óskarsdóttir, Jónína Bára Óskarsdóttir, Sigvaldi H. Hrafnberg, tengdabörn, barnabörn og systur. + Móöir mín og tengdamóöir, ÁRBJÖRG ÁRNADÓTTIR, Langholtsvegi 151, fyrrum húsmóöir, Nýjabss, Meóallandi, veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. ágúst kl. 10.30. Ingimundur Ólafsson, Ingbjörg Guölaugsdóttir. + Eiginmaöur minn, ERLENDUR GUÐMUNDSSON, matsveinn, sem lést 9. þessa mánaöar, veröur jarösunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn 17. ágúst kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagiö. Kristín Gunnarsdóttir. + Ástkær sonur okkar, bróöir og dóttursonur, ROBERT A. SOMMER, fæddur 17. nóv. 1961 í Ytri-Njarövík, lóst af slysförum þ. 7. júlí sl. í Bandaríkjunum. Rannveig J. Sommer, Robert C. Sommer og syatkini. Jónína Ólafsdóttir, Guórún J. Milburn, Robert J. Milburn og Jóhann Jónsson. + Sonur okkar, faðir og bróöir, GUÐNI SVAVAR KRISTJÁNSSON, Hétúni 12, Reykjavfk, er lóst aöfaranótt 7. ágúst sl., veröur jarösunginn frá Fossvogs- kirkju föstudaginn 17. ágúst kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á Sjálfsbjörg. Kristjén Gíslason, Halldóra Stefénsdóttir, börn og systkini hins létna. + Útför móöur minnar, tengdamóöur og ömmu, JÓHÖNNU STEFÁNSDÓTTUR fré Féskrúösfiröi, Langholtsvegi 148, fer fram frá Fossvogskapellu, fimmtudaginn 16. ágúst kl. 15.00. Aóalsteinn Aöalsteinsson, Hanna Ingibergsdóttir, Eiríkur Jón Aóalsteinsson, Auóur Lind Aöalsteinsdóttir. Minning: Tómasína Tómas- dóttir Fjalldal Faedd 13. október 1913 Dáin 8. ágúst 1984 Mig langar til að minnast minn- ar kæru stjúpmóður. Hún var allt- af kölluð Ása af ættingjum og vin- um. Ég kynntist henni þegar hún varð seinni kona föður míns Jóns Fjalldal árið 1950. Á þeim var mikill aldursmunur, en það kom ekki að sök, því að bæði voru þau þroskuð og lífsreynd. Æskuheimili mitt, Melgraseyri við ísafjarðardjúp, breytti um svip, þegar þessi myndarlega góða kona tók við búsforráðum. Með sinni hlýju léttu lund og elskulega viðmóti vann hún fljótt hjörtu sveitunga minna. Allir tóku henni tveim höndum, öllum þótti vænt um hana. Árin fimm, sem hún og faðir minn bjuggu saman á Mel- graseyri voru hamingjurík. Þar fæddist þeim sonurinn Magnús, sem ólst þar upp til 5 ára aldurs ásamt tveim hálfbræðrum sínum, sonum Ásu af fyrra hjónabandi, Oddi Benediktssyni og Jóni Benediktssyni. Árið 1955 brugðu þau búi og fluttu til Reykjavíkur þar sem þau áttu síðan heima til æviloka. Margt breyttist þegar þangað var komið. Baráttan fyrir lífinu hélt áfram í annarri mynd, en þau voru hin sömu, samhent í blíðu og stríðu og undu glöð við sitt. Drengirnir þeirra uxu upp og stofnuðu sín eigin heimili. Allir voru þeir elskulegir synir, sem ásamt fjölskyldum sinum veittu móður sinni styrk og gleði eftir að hún var orðin ein. Faðir minn andaðist 14. nóvember 1977. Ása var greind kona af góðu fólki komin. Hún hafði yndi af ljóðum og góðum bókmenntum, en tómstundir voru fáar. Þessi fín- gerða kona bjó yfir miklum vilja- styrk því að likamlegt þrek fór þverrandi síðustu árin. Oft var vinnudagurinn langur og strang- ur. Allt var fínt og fágað á fallegu heimilinu hennar, þar sem iðnar hendur og fimir fingur höfðu saumað og prýtt. Hún keppti vissulega á leikvangi lífsins. Ekki til að vinna verðlaun, eða láta klappa sér lof í lófa, heldur til að verða að sem mestu liði. Við stjúpa mín vorum á sama aldri og vorum því eins og góðar systur. Hugöum við gott til elliár- anna. Þá myndum við hafa meiri tíma til að hittast og gera það sem + Eiginmaður mlnn, faöir og tengdafaölr, SNÆBJÖRN TRYGGVI ÓLAFSSON, skipatjóri, Erluhólum 4, Reykjavik, veröur jarösunginn fra Domkirkjunni föstudaginn 17. agust kl. 13.30. Þeir, sem vilja mlnnast hins látna, eru vinsamlega beönir aö láta líknarstofnanir njóta þess. Sigríöur Jóakimsdóttir, Jóakim Snæbjörnsson, Guöfínna Snæbjörnsdóttir, Margrét Snæbjörnsdóttir, Helga Snæbjörnsdóttir, Anna S. Snæbjörnsdóttir, Guörún Snæbjörnsdóttir, Ólafur T. Snæbjörnsson, Brynjólfur Aóalsteinsson, Björn Birnir, Birgir Guömundsson, Kristjén Birgir Kristjénsson, Guöni S. Gústafsson, Oddný Siguröardóttir. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ELÍSABETAR STEFÁNSDÓTTUR KEMP. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Ragna Kemp, Stefén Kemp, Friögeir Kemp, Björgólfur Stefénsson, Oddný Thorsteinsson, Helga Lovísa Kamp, Stefanía Kemp, barnabörn oi leild II, Vífilsstaöaspítala. Þóra Siguröardóttir Kemp, Áslaug Björnsdóttir, Elísabet Geirlaugsdóttir, Unnur Jóhannsdóttír, Pétur Thorsteinsson, Hrafnkell Helgaaon, Siguróur Helgason, barnabarnabörn. + Þökkum innilega samúö og hlýhug viö andlát og útför fööur míns, tengdafööur og afa okkar, ÁGÚSTS LÍNDAL PÉTURSSONAR, Framnesvegi 16, Keflavik. Haraldur Ágústsson, Fjóla Eiríksdóttir og barnabörn + Innilega þökkum vlö öllum þeim sem auösýndu okkur hlýhug og samúö viö fráfall og jaröarför fööur okkar, tengdafööur og afa, ÓSKARS GARIBALDASONAR, Hvanneyrarbraut 25, Siglufiröi. Sérstaklega þökkum viö stjórn og félögum í Verkalýösfélaginu Vöku, Siglufiröi, fyrir þá virðingu sem þeir sýndu viö minnlngu föður okkar. Þeim straumi samhygöar og vináttu sem barst okkur gleymum viö aldrei. Höröur S. Óskarsson, Erla Óskarsdóttir, Hlynur S. Óskarsson, Hallvaröur S. Óskarsaon, Hólmgeir S. Óskarsson, Dagný Jónsdóttir, Bragi Ingason, Silke Óskarsson, Ágústa Lúthersdóttir, Ólína Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. okkur langaði til. Minningin um hana er björt og hrein eins og hún var sjálf. Ég þakka henni af hjarta árin öll, sem við áttum samleið. Þakka allt sem hún var föður mínum og mínu fólki. Nú er hún farin til okkar sanna föðurlands, þar sem henni er fagn- að. Söknuður og tregi fylla hug- ann. Samt skulum við gleðjast með þeim, sem hafa endurheimt hana. Það myndi hún vilja. Guð styrki og blessi syni henn- ar, systur og aðra ástvini. Megi þau finna huggun í öllum kæru minningunum. Við hittumst heilar er minn tími kemur. Stjúpdóttir I dag er til moldar borin Tómas- ina Tómasdóttir Fjalladal, eða Ása eins og hún var jafnan kölluð, en hún lést eftir stutta legu í Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík. Fátt hefði verið henni meira á móti skapi en löng, erfið sjúk- dómslega, því hennar stærsta von var að verða ekki svo veikburða að hún gæti ekki séð um sig sjálf og farið allra sinna ferða án þess að vera öðrum háð, því hennar háttur var að hafa ávallt eitthvað að starfa og þau 18 ár sem við áttum samleið féll henni sjaldan verk úr hendi og margt kenndi hún mér sem ég mun ávallt vera henni þakklát fyrir. Það verður líka tómlegt til þess að hugsa að nú er ekki lengur hægt að skreppa til ömmu í „Dúfnó“ og fá heitar kleinur og spjalla smá stund. Hún hefur í gegnum árin sýnt barnabörnum sínum mikla umhyggju og ást. Hana vilja þau Sigvaldi, Raggi og Anna María þakka á skilnaöar- stundinni. Þau munu lengi búa að þeirri fræðslu sem hún hefur miðlað þeim í gegnum árin því fátt er meira virði fyrir börnin en amma sem gefur sér tíma til að hlusta á þau og taka þátt 1 áhuga- málum þeirra og leiðbeina þeim um vegi lífsins. Hún Ása var tengdamóðir mfn og vinur. Þær verða mér ógleym- anlegar kvöldstundirnar sem við sátum saman og hún sagði sögur frá ungdómsárunum. Margt gekk hún í gegnum á lífsleiðinni og af sögu hennar má ráða að þar var sterk kona og traust á ferð. Ása var lagleg kona, blíðleg (kvik) í hreyfingu, vildi lifa lífinu eins og kostur var og þá fann hún best árangur lífsins er hún sofnaði þreytt eftir annasaman dag. Asa var Reykvíkingur að ætt og bjó þar lengstan hluta æfi sinnar, að nokkrum árum frátöldum er hún bjó vestur við ísafjarðardjúp. Öll munum við, sem nutum vin- áttu hennar og ráðgjafar kveðja með söknuði um leið og við þökk- um samfylgdina sem ætíð reyndist svo traust og farsæl. Ásta Krossar á leiöi Framleiði krossa á leiðí Mismunandi geröir Uppl. í síma 73513 kl. 6.30—9 á kvöldin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.