Morgunblaðið - 16.08.1984, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
35
Agúst Kvaran
leikari — minning
Langt er nú liðið á annað ár,
síðan sá mæti maður Ágúst Kvar-
an, leikari og leikstjóri var lagður
til hinstu hvíldar í kirkjugarðin-
um á Akureyri, en í dag 16. ágúst
hefði hann orðið níutíu ára, hefði
hann lifað.
Hann var sonur sr. Jóseps
Hjörleifssonar sóknarprests á
Breiðabólstað á Skógarströnd og
konu hans Lilju Mettu Ólafsdótt-
ur, dóttir Ólafs Jónsonar kaup-
manns í Hafnarfirði. Sr. Jósep lést
á besta aldri og var Ágúst þá að-
eins 9 ára. Hefur það verið mikið
áfall fyrir fjölskylduna, því börnin
voru sjö að tölu og öll ung að ár-
um.
Móðir hans fluttist til Revkja-
víkur með börnin flest, en Ágúst
var í nokkur ár á vegum Sigurðar
Hjörleifssonar læknis, föðurbróð-
ur síns í Grenivík og einnig á Ak-
ureyri. Þá var hann einnig eitt-
hvað hjá afa sínum, sr. Hjörleifi
Einarssyni á Undirfelli í Vatns-
dal, sem kenndi honum nokkuð
undir skóla, en sr. Hjörleifur var
þá orðinn gamall maður og leát
árið 1910. Eftir það var Ágúst í
Verslunarskólanum í Reykjavík í
2 vetur og hóf verslunar- og skrif-
stofustörf þar í borg, en snéri sér
fljótlega að leiklistinni með Leik-
félagi Reykjavíkur.
Einar Hjörleifsson Kvaran
skáld, föðurbróðir hans, var um
þær mundir mikils ráðandi hjá
Leikfélagi Reykjavíkur og mun
Ágúst hafa byrjað sinn leikferil,
fyrir hans tilstilli. Er ekki að orð-
lengja það, að Ágúst virtist vera
„fæddur leikari", eins og sagt er
um þá, sem eiga auðveldara en
aðrir að setja sig í spor þeirra per-
sóna, sem túlka skal.
Ennfremur hafði hann þá kosti,
sem mjög eru ákjósanlegir fyrir
leiksviðið, glæsimennsku, hvar
sem á var litið, fagran málróm og
framsögn og góða söngrödd.
Fór nú vegur hans vaxandi hjá
Leikfélagi Reykjavíkur, hann lék
hvert stórhlutverkið á fætur öðru
við framúrskarandi góða dóma,
allt til hann fluttist til Akureyrar
1927, til að veita forstöðu heild-
versluninni I. Brynjólfsson og
Kvaran, sem starfrækt var hér á
Akureyri allt til ársins 1963, er
hún var lögð niður.
Var hann þá nýskilinn við
Soffíu Guðlaugsdóttur leikkonu og
höfðu þau eignast eina dóttur,
Eddu Kvaran, er síðar varð leik-
kona og giftist Jóni Þórarinssyni
tónskáldi. Eignuðust þau 3 syni.
Þau slitu samvistum. Edda er lát-
in fyrir nokkrum árum.
Eftir að Ágúst fluttist til Akur-
eyrar tók hann að leika og leik-
stýra fyrir Leikfélag Akureyrar
við mikið lof áhorfenda. Blaðaum-
mæli frá þeim tíma eru öll á einn
veg, aðdáun og þakklæti til hans
fyrir framúrskarandi leik og leik-
stjórn. Margur nýliði í leiklistinni
hlaut þar ómetanlega tilsögn og
uppörvun, því ekkert mátti fram
ganga nema þvl besta mögulega
væri náð.
Nokkru eftir að hann fluttist til
Akureyrar kynntist hann ungri
glæsilegri stúlku, Önnu C.
Schiöth, fædd 1909 dóttir Axels
Schiöth bakarameistara og konu
hans Margrethe Schiöth, en þau
hjón voru af dönskum ættum. Þau
Ágúst og Anna giftust 1931 og
bjuggu sér fagurt heimili á Akur-
eyri og voru búsett þar alla tíð upp
frá því.
Þau eignuðust tvö börn, Axel
Kvaran forstöðumann skilorðseft-
irlits ríkisins, kvæntan Ósk Guð-
bjartsdóttur og eiga þau þrjá syni,
Önnu Lilju Kvaran, gifta Sveini
Óla Jónssyni, hljóðfæraleikara og
eiga þau eina dóttur. Auk þess ólu
þau upp sonarson sinn Ágúst
Kvaran yngri, sem er doktor í
efnafræði og kvæntur Eddu Jón-
asdóttur og eiga þau eina dóttur.
Ágúst Kvaran missti konu sína
1981, eftir löng veikindi og dvöl á
sjúkrahúsum. Var hann þá einnig
orðinn lélegur til heilsu. Var því
að ráði að hann vistaðist á dval-
arheimilinu Ási í Hveragerði, þar
sem börnin hans voru búsett
sunnanlands og áttu því hægara
með að líta til með honum. í
Hveragerði leið honum vel, hann
dáðist að fegurð staðarins og þar
kom að kallinu síðasta, i byrjun
ársins 1983.
Þetta er í stuttu máli aðalæfi-
ágrip hins gáfaða manns Ágústar
Kvarans, er hann nú er allur.
Margar minningar vakna um störf
hans í musteri „Thaliu". Þar var
engin fyrirhöfn talin eftir, þar var
hann heill og óskiptur.
Við gleymum ekki túlkun hans á
„Lutz“, „ógautan", sr. Sigvalda,
Natani Ketilssyni og mörgum
fleiri frægum hlutverkum úr
þekktum leikverkum, þar sem
hann skapaði ógleymanlegar per-
sónur. Slíkir hæfileikar eru sjald-
gæfir okkar á meðal og ef forsjón-
in hefði deilt honum lífsstarfi með
stærri þjóðum hefði hann eflaust
orðið frægur víða um heim. Alltaf
má deila um hvort frægðin sé eft-
irsóknarverð og sumum veitir hún
litla hamingju, en víst er að Ágúst
fann sína hamingju á Akureyri,
með sinni mikilhæfu og glæsilegu
eiginkonu og efnilegu börnum.
Að lokum viljum við I fjölskyld-
unni þakka samferðina og gengn-
ar stundir.
Fagurt sálmavers eftir Einar H.
Kvaran frænda Ágústar hljóðar
svo:
„Þín náðin, Drottinn nóg mér er
því nýja veröld gafstu mér,
þótt jarðnesk gæfa glatist öll,
ég glaður horfi á lífsins fjöll.
Sigríður Guðmundsdóttir Schiöth
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir GUÐMUND GUÐJÓNSSON
Zimbabwe:
Eins flokks stjórn
fyrir eða eftir 1990?
UM FÁTT er meira skrafað og skrifað í heimsmálum í dag, en stjórn-
málaþróunin í Afríkuríkinu Zimbabwe, sem áður hét Ródesía. Þar er
æðsti maðurinn, forsætisráðherrann Robert Mugabe, búinn að fá ein-
róma samþykkt flokks síns fyrir því að stofnað verði og stefnt að eins
flokks stjórn í landinu, önnur stjórnmálastarfsemi verði bönnuð. Stofnað
hefur verið stjórnmálaráð, miðnefnd og undirnefndir, eða hið sama
stjórnkerfi og viðgengst í Sovétríkjunum. Þá hefur Mugabe tilkynnt að
Zimbabwe verði Marz-leninískt þjóðfélag og er því Ijósara en frá þarf að
segja, að fyrirmyndina sækja Mugabe og flokksbræður hans til Sovétríkj-
anna. Þetta var ákveðið á ársþingi Zanu-flokksins sem Mugabe beitir
formennsku og samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta, nánast einróma.
skipta í landinu. Fjármálaráð-
herrann, Enos Nkala, er meira
að segja úr röðum Nbedelel-
manna, þeir telja 20 prósent
þjóðarinnar og styðja að miklum
meiri hluta Zapu-flokk Joshua
Nkomo. Val Mugabes bendir til
að Mugabe vilji ekki að neinn
hópur sé alfarið hlunnfarinn án
þess þó að það fari milli mála að
þrír helstu ættbálkar Zanu-
flokksins séu herrar landslýðs,
enda sitja leiðtogar ættanna
þriggja í mestu valdastöðunum.
Hvað ber framtíðin
f skauti sér
Þingi Zanu-flokksins er lokið
og nú veit heimurinn hvað Mug-
abe ætlar landslýð. Tekst honum
að koma á eins flokks stjórn að
hætti Rússa? Hvaða meðul verða
'notuð og munu þau hrífa? And-
staða verður umtalsverð og kem-
ur þá til blóðsúthellinga?
Mugabe sagði í ræðu sinni á
þinginu, að Zimbabwe-búar yrðu
Stjórnarandstöóuleiðtogi:
Joshua Nkomo.
að leggja áherslu á að koma al-
gerum sósíalisma á í landinu, í
öllum krókum og kimum þjóð-
lífsins, hvort heldur í knatt-
spyrnusambandi landsins eða
efnahagsmálum. Hann þykir
góður ræðumaður og orðum
hans öllum var yfirleitt vel tekið
af þingfulltrúum.
Mugabe var óumdeilanlega
leiðtoginn í fundarlok, hann er
formaður Zanu-flokksins og eng-
inn annar. Eftir að hafa slitið
þinginu með langri og skorin-
orðri ræðu, stökk hann af ræðu-
pallinum og tók þátt í villtum
ættbálkadansi Shona-ættbálks-
ins. Síðan gekk hann um á meðal
hinna 6.000 þingfulltrúa og tók í
hendur allra sem hann náði til.
Og hann var hylltur sem guð.
Smith og Nkomo sjá nú hvers
lags barátta er í vændum, hvern-
ig bregðast þeir við, hvað geta
þeir gert?
Heimildir: Obserever, New York
Times, AP o.fl
Hvað þýðir þetta?
Mugabe kaus strax 4ra
manna stjórnmálaráð og
kosið var einnig í aðrar nefndir á
þinginu. Þegar I stað komu upp
ýmsar deilur. f fyrsta lagi reynd-
ust margir flokksbræður Mugab-
es andsnúnir því að hann sjálfur
og nánasti aðstoðarmaður hans,
Simon Muzenda, kysu menn í
stjórnmálaráðið á eigin spýtur.
Það var mál margra að réttara
væri að miðnefndin kysi menn í
æðsta ráðið. Þessar kröfur barði
Mugabe frá sér og undirstrikaði
um leið hver það er sem völdin
hefur. Það gekk svo langt, að
upphaflega var áætlað að 15
manns ættu sæti í ráðinu, en
þeim fækkaði um einn eftir að
Mugabe skipaði Muzensa I tvö
embætti.
Svo var það annað, á að koma
á slíku stjórnkerfi í landinu
strax í skjóli valds eða hægt og
sígandi? Þannig er mál vexti, að
til er stjórnrskrá samin af Bret-
um í samvinnu við landsmenn er
landið fékk sjálfstæði frá Bret-
landi. Þar er kveðið á um lýð-
ræði fram til ársins 1990 nema
að þjóðareining sé um að hafa
hlutina öðru vísi. Það þýðir I
raun, að allir 100 þingmenn
landsins samþykki það og engar
horfur eru á því að það verði. Ian
Smith, leiðtogi hvítra manna og
Joshua Nkomo leiðtogi svartra
stjórnarandstæðinga hafa heitið
því að samþykkja aldrei eins
flokks stjórn í landinu.
Mugabe sagði i ræðu á flokks-
þinginu, að trúlega yrði að fara
varlega í sakirnar, það eina sem
samþykkt hefði verið væri að
mynda slíka stjórn innan Zanu-
flokksins með það á stefnuskrá
að koma á slíkri stjórn i landinu
i fyllingu tímans. „Slíkar breyt-
ingar gerast ekki á einni nóttu,“
sagði Mugabe i ræðunni. Þing-
kosningar eru í Zimbabwe á
næsta ári og talið er vist að
Zanu-flokkurinn muni leggja
allt í sölurnar til að ná fram úr-
slitum sér i hag i kosningunum,
það myndi styrkja stöðu flokks-
ins mjög.
Áhyggjuraddir hafa komið
upp þess eðlis að Mugabe vilji
slá ryki í augun á grunlausum
með tali sínu um „fyllingu tim-
ans“ á sama tíma og hann undir-
búi meiri háttar breytingu á
stjórnkerfi landsins í skjóli
valds. Að minnsta kosti eitt
styður orð Mugabes, val hans f
stjórnarráðið. Þrír ráðherrar
hans eiga þar ekki sæti, þeir
Eddison Zvbogo dómsmálaráð-
herra, Kumbirai Kangai iðnað-
arráðherra og Edgar Tekere,
fyrrum * framkvæmdastjóri
flokksins, en hann var rekinn úr
flokknum eftir að hafa verið
sakaður um morðið á hvítum
bónda árið 1980. Þessir menn
þykja allir mjög róttækir og
þykir mörgum fjarvera þeirra í
stjórnmálaráðinu segja nokkra
sögu um stefnu Mugabe. Þó þyk-
ir það mestum tíðindum sæta að
sá fyrst nefndi skuli ekki vera i
Robert Mugabe
stjórnmálaráðinu þar sem hann
er sprenglærður og snjall lög-
fræðingur, en mörgum þykir
glæfralegt að hafa ekki að
minnsta kosti einn slfkan mann
til staðar er leiðtogar flokksins
fara að velta fyrir sér leiðir til
að breyta stjórnarskránni sem
nær öruggt er talið að gert verði
til að flýta fyrir valdatökunni.
Mugabe segir að allt muni fara
fram i „fyllingu tímans“, en
stjórnarandstæðingar og margir
stjórnmálasérfræðingar eru
þeirrar skoðunar að þau orð feli
f sjálfu sér ekki mikið i sér, Mug-
abe og taglhnýtingar hans muni
ekki bíða ótilneyddir til ársins
1990 eftir þvi að koma stjórn-
kerfi sínu á. Dómsmálaráðherr-
ann er einnig leiðtogi ákveðins
hóps róttækra, en hann ásamt
hinum tveim tóku sæti í mið-
nefndinni. Annars þykir Mugabe
hafa valið í stjórnmálaráðið með
hliðsjón af klíkum þeim og ætt-
bálkum sem einhverju máli