Morgunblaðið - 16.08.1984, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 1984
Svipmyndir frá ól
ÞAÐ ER kunnara en frá þurfi að
segja, aö nýlokiö er Ólympíuleik-
unum í Los Angeles. Þaö þöttu
eftirminnilegir leikar fyrir marga
hluta sakir og hinar ýmsu uppá-
komur voru daglegt brauð sem
endranær á slíkum íþróttahátíö-
um. Hér birtast nokkrar myndir,
svona til minningar um nýliöna
leika. Sýna myndirnar nokkur
augnablik sem gripu augaö á
leikunum.
Á stóru myndinni hér aö ofan
stekkur japanski lyftingarmaðurinn
Takashi lchiba heljarstökk áöur en
hann reynir viö 145 kg í snörun.
Undirbúningurinn haföi ekki tilætl-
uö áhrif, sá japanski náöi þyngd-
inni ekki upp. Á efri myndinni t.h.
steypast Mexíkaninn Armando
Roberto og hestur hans fram af
giröingu og ofan í vatnsgryfju.
Hvorugan sakaöi. Á neðri mynd-
inni er stumraö yfir millivega-
lengdahlauparanum fræga, Steve
Ovett, eftir aö hann gafst upp í
úrslitum 1500 metra hlaupsins.
Ovett átti viö öndunarerfiöleika aö
striöa og lauk hvorki keppni í 800
eða 1500 metra hlaupi.
Frá Ólympíuleikunum:
Framkvæmdin var eins
og best varö á kosiö
Morgunblaöiö/Þórarinn Ragnarsson.
• Einar Vilhjálmsson dregur íslenska fánann aö húni í Los Angel-
es.
— Eftir Þórarín
Ragnarsson
23. Ólympíuleikarnir heyra nú
minningunni til. Leikarnir sem
var slitiö hér meö pomp og
prakt í borg englanna i Kali-
forníu síðla á sunnudagskvöld,
brutu á margan hátt blaö í sögu
Ólympíuleikanna. Mjög margir
höföu spáð illa fyrir leikunum,
en víst er aö ólympíuhugsjónin
og Ólympíuleikarnir eru
sterkari en nokkru sinni fyrr,
eftir aó leikarnir eru búnir.
Framkvæmd Ólympíuleikanna
hér var eins og hún gerist best.
Hún var Bandaríkjamönnum,
bandarísku ólympíunefndinni og
öllum þeim sem í leikunum tóku
þátt til mikils sóma. 140 þjóöir
tóku þátt í leikunum og 7800
íþróttamenn mættu til leiks. 18
þjóóir sátu heima. Segja má aö
þær þjóöir hafi farið mikils á mis.
Alþjóöaólympíunefndin hefur
hugleitt þaö alvarlega aö mæti
þjóöir ekki á Ólympíuleikum,
verði þeim refsaö og jafnvel ekki
leyfó þátttaka í leikum framar.
Þessi hugmynd kom fram hér
eftir Óiympíuleikana í Los Angel-
es þar sem þeir þóttu svo vel
heppnaöir og þar sem svo vel var
búiö aö íþróttafólkinu á allan
hátt.
Öryggisgæsla var til mikillar
fyrirmyndar og allt sem viövék
íþróttafólkinu var betra en oftast
áöur. Leikarnir í Los Angeles eru
þeir fyrstu þar sem einkaframtak
ræöur ríkjum og í fyrsta sinn skil-
uöu leikarnir umtalsveröum
hagnaöi. Gert er ráö fyrir aö
hagnaöurinn af leikunum hér í
Los Angeles nemi rúmum 15
milljónum dollara. Þaö er enginn
kostnaóur sem lendir á íbúum
Los Angeles-borgar. Þá voru
ekki byggö nein ný mannvirki
fyrir íþróttafólkiö, heldur voru
notaöar þrjár stórar heimavistir
háskóla þar í borginni. Ólympíu-
leikvangurinn frá 1932 var gerö-
ur upp og síöan voru stór banda-
rísk fyrirtæki fengin til þess aö
byggja ný íþróttamannvirki eins
og sundlaug, hjólreiöabraut og
fleira, en ekkert kom frá skatt-
borgurunum sjálfum.
Allt gafst þetta mjög vel. Þaö
má segja aö bandaríska ólympíu-
nefndin hafi gert kraftaverk í því
hvernig hún hreif meö íbúa
landsins. Hún lét íbúana taka
þátt í leikunum og lét leikana
snerta eins marga og hægt var.
Þaö var gert fyrst meö því aö
gefa fólki kost á því aö hlaupa
meö Ólympíueldinn þvert yfir
Bandaríkin, frá austurströnd yfir
á vesturströnd og þeir voru
margir sem tóku þátt í því hlaupi
og hrifust meö.
Nýtt met var sett á leikunum
hvaö áhorfendur snerti. Áhorf-
endur voru um 5,7 milljónir, eöa
fleiri en nokkru sinni fyrr og var
mjög athyglisvert hversu stóran
þátt þeir tóku í gleöi og sorg
íþróttafólksins og hversu mikil
þjóöerniskennd kom fram hjá
Bandaríkjamönnum.
Á þessum Ólympíuleikum
skiptust á skin og skúrir, sigrar,
töp og óhöpp eins og jafnan áö-
ur. Erfitt er aö segja til um hvaö
stendur upp úr á slíkum leikum,
mörg nöfn koma fram í hugann
og mörg atvik eru manni Ijós er
hugsaö er til baka. Blökkumaö-
urinn Carl Lewis vann til fern
gullverölauna í frjálsum íþróttum
blökkustúlkan Valerie Brisco-
Hooks sem var svo til óþekkt
fyrir leikana vann til þrennra gull-
verölauna í frjálsum íþróttum.
Breski tugþrautarmaöurinn
Daley Thompson var án efa með
vinsælli keppendum á leikunum,
hann skemmti bæöi sjálfum sér
og áhorfendum þegar hann sigr-
aöi í tugþrautarkeppninni og var
aöeins einu stig frá því aö setja
heimsmet. Þaö mætti halda lengl
áfram aö telja upp íþróttafólk,
hin 16 ára gamla Mary Lou Rett-
on, sem tvivegis í röö fékk 10 í
einkunn í fimleikunum þegar á
þurfti aö halda, vann hug og
hjörtu áhorfenda meö fallegu
brosi sínu og geöugri framkomu,
maraþonhlaupararnir, banda-
ríska stúlkan Benoit og Portúgal-
inn Lopez, sýndu stórkostlega
frammistööu og fleira íþróttafólk
mætti nefna.
Þaö voru ekki sett mörg
heimsmet á þessum leikum, en
mörg ólympíumet féllu. En þegar
upp er staðiö er sjálfsagt ekki
mikilvægast hve mörg met hafa
falliö, hvort sem þaö eru heims-
met eöa ólympíumet, heldur er
þaö mikilvægast, aö hægt er aö
sameina íþróttafólk 140 þjóöa á
einum vettvangi og sýna fram á
aö friður og skilningur getur ríkt
og íþróttafólkiö nýtur þess aö
vera saman og nýtur þess aö
sameina krafta sína á jafn stór-
kostlegri hátíö og Ólympíuleik-
arnir eru.
Ólympiuleikarnir í Los Angeles
fóru fram úr vonum allra, á því er
ekki nokkur vafi. Margir höföu
spáö því aö illa færi, öryggis-
gæslan yröi aldrei slík aö hægt
væri aö koma í veg fyrir óhöpp,
mengunin í borginni væri slík að
þar væri ekki hægt aö halda
íþróttahátíö og margt fleira var
tint til. En annaö hefur komiö á
daginn, stórkostlegir leikar eru
búnir. Veöriö lék viö keppendur
og áhorfendur. Heiöskirt var dag
eftir dag og glampandi sól. Lítil
sem engin mengun var, umferö-
aröngþveiti varö varla aö veru-
leika og öryggisgæslan kom í veg
fyrir aö nokkur óhöpp kæmu
fyrir. Sem sagt, stórkostlegum
leikum er lokiö og Ólympíuleik-
arnir standa eftir sterkari en
nokkru sinni fyrr. Þeir næstu eiga
aö fara fram aö fjórum árum liðn-
um i Seoul í Suöur-Kóreu.