Morgunblaðið - 21.08.1984, Qupperneq 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
187. tbl. 71. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Flokksþing repúblikana sett í gær:
Einhugur og góð
efnahagstíðindi
Dallas, Texats, 20. ágúst. AP.
„Nú þegar við höldum til barátt-
unnar höfum við að bakhjarli mestu
efnahagsframfarir í þrjá áratugi og í
tíð sjö forseta," sagði Frank Fahren-
kopf, formaður Repúblikanaflokks-
ins, þegar hann setti 33. þing flokks-
ins að viðstöddum á þriðja þúsund
fulltrúa í Dallas í Texas. Reagan,
forseti, er nú á kosningaferðalagi og
kemur til þingsins á miðvikudag.
í setningarræðu sinni fór Fahr-
enkopf hörðum orðum um and-
stæðingana, demókrata, og sagði,
að þing þeirra í Los Angeles hefði
verið eins konar „svallveisla
þrýstihópa". Hafði hann þau orð
um Mondale, að hann væri „aðeins
maður, sem ekki gæti sagt nei“.
Ræðu sína flutti Fahrenkopf að-
eins tveimur stundum eftir að
birtar voru tölur um efnahags-
þróunina í Bandaríkjunum en þar
kemur fram, að hagvöxturinn var
7,6% á síðasta ársfjórðungi og
heíur líklega ekki verið svo mikill
frá því seint á fimmta áratugnum.
Verðbólgan er svo ekki nema
3,2%. Þykja þessi tíðindi ekki
ónýtt innlegg í kosningabaráttu
Reagans.
Sú stefnuskrárályktun, sem
liggur fyrir þinginu, er mjög í
íhaldssömum anda og ekki fullur
einhugur um hana meðal repú-
blikana. Ekki er þó búist við, að
miklar deilur verði á þinginu og
þykir víst, að einhugur ríki um
framboð Reagans öðru sinni.
Fjármál Ferraro-hjónanna:
Skattar frá 1978
voru vangreiddir
Washington, 20. ágúst. AP.
Geraldine Ferr-
aro, varaforseta-
efni demókrata, og
maður hennar
skvrðu í dag frá
fjármálum sínum
og kemur þar
fram, að þau hafa
greitt 40% tekna
sinna í skatta sl.
fímm ár. Þau létu hins vegar fylgja
ávísun upp á rúma hálfa aðra milljón
ísl. kr. vegna vangoldinna skatta,
sem þau sögðu stafa af mistökum
endurskoðanda síns árið 1978.
Geraldine Ferraro hefur verið
gagnrýnd harðlega fyrir að greina
ekki nákvæmlega frá fjármálum
manns síns, Zaccaro, en hún hefur
borið fyrir sig lög, sem heimila
slíkt. Lögin gera þó ráð fyrir, að
viðkomandi hafi enga hugmynd
haft um fjármál maka síns og
eignir og engan hag af þeim haft.l
þeim efnum hefur Ferraro þó orð-
ið margsaga.
Francis O’Brian, talsmaður
Mondales og Ferraro, sagði í dag,
að mistök endurskoðandans hefðu
verið að vanmeta ákveðin fast-
eignaviðskipti og að þess vegna
hefði nú skattyfirvöldum verið
send ávísun fyrir vangoldnum
sköttum og vöxtum af þeim frá
1978. Repúblikanar, sem nú halda
flokksþing í Dallas, gerðu sér mik-
inn mat úr þessu máli í dag og
óttast demókratar, að það geti
orðið þeim skeinuhættara en
glannaleg gamansemi Reagans um
árás á Sovétríkin.
Mabel Barker, einn af fulltrúunum á flokksþingi repúblikana í Dallas, sem
sett var í gær, veifar hér skilti þar sem endurreisn bandarísks efnahagslífs er
augljóslega þökkuð Reagan forseta og trúlega vísar jafnaðarmerkið til þess
að hann eigi að endurkjósa. Símamynd AP.
Stefnubreyting
Albana:
Viðskipti
við Ítalíu
og tala við
Strauss
Otranto, ÍUlíu, 20. ágúst AP.
ALBANSKUR fískibátur kom í dag í
höfn í ítalska bænum Otranto við
Adríahafíð og er það í fyrsta sinn í
40 ár, sem albanskt skip kemur til
ftalíu.
Albanska skipið „Mitro Dhim-
ertika", sem er 112 tonn, landaði í
Otranto 30 tonnum af kræklingi,
sem seldur verður á Ítalíu. Er það
gert samkvæmt verslunarsamn-
ingi milli ríkjanna og þykir ein-
stakur fyrir Albaníumenn, sem
hafa verið einangraðir frá um-
heiminum í áratugi. Hafa þeir
engin tengsl haft við vestræn ríki
og upp á siðkastið ekki heldur við
kommúnísk ríki.
Að undanförnu hafa Albanir
látið í ljós áhuga á samskiptum
við ítali og var verslunarsamning-
urinn undirritaður í desember sl.
Annað, sem tíðindum þykir
sæta í málefnum Albaníu, er, að
Franz Josef Strauss, leiðtogi
Kristilega sósíalsambandsins í
Bæjaralandi, hefur verið þar í
einkaheimsókn, sem lauk í dag.
Var hann í sumarleyfi í Júgóslavíu
þegar hann fór öllum að óvörum
til Albaníu og átti þar viðræður
við frammámenn.
Byggja írakar eitur-
vopnaverksmiðju?
New York, 20. ágúst. AP.
MEÐ HJÁLP vestur-þýskra tækni-
manna eru írakar í þann veginn að
Ijúka smíði mikillar verksmiðju þar
sem þeir geta framleitt eiturefnið
tabun og e.t.v. einnig sinnepsgas.
Verða risaolíuskip
notuð til fiskeldis?
Ósló, 20. ágúst. Frá frétU ritara MbL JanKrik
HÓPUR athafnamanna í Norður-
Noregi stefnir að því að nota risa-
olíuskip sem eldisstöðvar fyrir lax
og silung.
500.000 tonna risaolíuskip
gæti rúmað allt fiskeldi í land-
inu. Skipið gæti haldið sig á al-
þjóðlegum siglingaleiðum og
sniðgengið þannig þau ströngu
skilyrði sem sett eru i Noregi
fyrir veitingu rekstrarleyfa. Þar
að auki gæti skipið verið á haf-
svæðum, þar sem hiti er mun
hagstæðari fiskeldi en er í Nor-
egi til þess að fá eins hraðan
Lauré.
vöxt hjá ungviðinu og mögulegt
er. Og síðast en ekki síst gæti
skipið siglt með vöruna til mark-
aðslandanna sem vildu kaupa
hana.
Hinn stærsti þeirra aðila sem
stunda fiskeldi í Norður-Noregi
vildi þó ekki vera með í fyrirtæk-
inu. Hann heldur því fram, að
fljótandi fiskeldisstöð sem þessi
hljóti að eyðileggja möguleika á
að skapa atvinnutækifæri í af-
skekktum strandhéruðum lands-
ins.
Risaolíuskipin eru alltof mörg
á heimsmarkaðnum í dag og
verðlag á þeim því lágt, eða um
40—50 milljónir nkróna. Útbún-
aður sem þyrfti myndi kosta
30—40 milljónir og rekstrar-
kostnaður er áætlaður um 100
milljónir nkr. á ári. Talið er, að
60—70 manns gætu séð um
rekstur slíkrar fljótandi eldis-
stöðvar.
Hins vegar gætu sjúkdómar
sett strik í reikninginn. Kæmi
upp sjúkdómur í laxinum eða sil-
ungnum um borð, mundi allur
fiskurinn smitast og fyrirtækið
fara í rúst.
Segir frá þessu í nýjasta hefti af
bandaríska tímaritinu Newsweek.
íranir eru nú enn einu sinni farnir
að boða mikla sókn gegn írökum.
Newsweek, sem kveðst hafa
fyrir fréttinni háttsetta menn í
Bandaríkjunum og erlendis, segir
suma hluta verksmiðjunnar til-
búna og að aðeins nokkrar vikur
séu í að full starfsemi hefjist í
henni. Segir einnig, að bandarískir
embættismenn hafi um tíma velt
því fyrir sér að gera árás á verk-
smiðjuna en hætt við vegna þess
hve verksmiðjan er nálægt Bagd-
að. Afleiðingar árásarinnar hefðu
getað orðið þær, að banvæn eit-
urský hefðu lagst yfir borgina.
I desember sl. keyptu írakar af
vestur-þýska fyrirtækinu Karl
Kolb verksmiðju, sem var sögð
vera til að framleiða skordýraeit-
ur, en í Newsweek segir, að hún
hafi verið gerð til að framleiða eit-
urvopn. Vestur-þýska stjórnin
kvaðst ekki hafa lagaheimildir til
að stöðva söluna eða aðstoð sér-
fræðinga fyrirtækisins. Fréttir
herma, að nú hafi vestur-þýska
stjórnin krafist þess, að fulltrúar
hennar fái að kynna sér írösku
verksmiðjuna og þá starfsemi,
sem þar á að fara fram.
íranskir embættismenn og blöð
hafa nú aftur tekið til við að boða
stórsókn gegn Irökum og segja, að
nú sé sá gálgafrestur Iiðinn, sem
þeir gáfu þeim. Krefjast þeir m.a.
stríðsskaðabóta og að Hussein,
forseti íraks, fari frá. Er undir-
búningur sóknarinnar sagður hafa
staðið í fimm vikur og að þúsundir
sjálfboðaliða streymi til víglín-
Bretland:
Fjármálaráð-
herra rændur
Ix>ndon, 20. áffúst. AP.
NÍUTÍU sterlingspund, jafnvirði
um 3.600 íslenskra króna, hurfu
úr veski Nigel Lawson, fjár-
málaráðherra Breta, um helg-
ina. Veskið geymdi ráðherrann í
jakka í embættisbústað sínum í
Downing-stræti í London.
Ekki er sjáanlegt að brotist
hafi verið inn í íbúðina og
beinist lögreglurannsókn nú
að því hvort einhverjir í
starfsliði Lawsons hafi gerst
helsti fingralangir.