Morgunblaðið - 21.08.1984, Page 2

Morgunblaðið - 21.08.1984, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984 Verkamannasambandið kynnti kröfur sfnar í gær: Yinnuveitendur telja þær vera um 40-50% MorgunblaftiA/Kiri Frá Skarðsrétt í Gönguskörðum þar sem hrossin voru hvfld fyrir útflutning- inn. Skagfirðingarnir eru þarna í slagsmálum við meri eina sem Belgunum fannst full feit og vildu láta vigta aftur. Sauðárkrókur: Útskipun á slátur- hrossum til Belgíu í GÆR voru 110 til 120 hross sett um borð í gripaflutningaskip á Sauð- árkróki. Hrossunum var smalað saman í Húnavatns- og Skagafjarð- Tafir á pfla- grímaflugi Arnarflugs NOKKUR töf varð á pflagríma- flugi Arnarflugs milli Trípólí og Jeddah um helgina, sem að sögn Guðmundar Haukssonar, fjár- mílastjóra félagsins, stafaði af einhverjum pólitískum deilum milli Líbýu og Saudi Arabíu. Þær deilur eru nú leystar og pílagríma- flugið hafið að nýju. Guðmundur Hauksson sagði í samtali við Morgunblaðið, að önnur vél Arnarflugs hefði lent í Jeddah á laugardag, en af- greiðsla hennar hefði tafizt verulega, hugsanlega vegna ein- hverra árekstra milli útlend- ingaeftirlitsins í Jeddah og Líbýumanna, sem komið hefðu með annarri vél skömmu áður. Vegna tafarinnar hefði áhöfnin verið komin „á tíma“ og því hefði hún hvílst á hóteli þar til í gærmorgun er hún kom að nýju til Trípólí. Guðmundur sagði ennfremur, að eitthvað hefði virzt skorta á, að líbýska flugfélagið, sem Arn- arflug flygi fyrir, hefði aflað nægilegra flugheimilda til píla- grímaflugsins, en mál þessi væru nú leyst og hefði flugið hafizt að nýju með eðlilegum hætti í gær. Það væri algengt að í upphafi flugs sem þessa kæmu fram nokkrar tafir og erfiðleik- ar, sem alltaf leystust fljótlega. Aætlud hækk- un byggingavísi- tölu um 0,15% SAMKVÆMT ákvörðun ríkisstjórnar- innar um að vísitala byggingakostnað- ar skuli áætluð fyrir þá mánuði, sem hún er eigi reiknuð út lögformlega, hefur Hagstofan áætlað byggingavísi- tölu eftir verðlagi fyrri hluta ágústmán- aðar. Reyndist hún vera 164,85 stl'g og er þá notast við grunninn 100 í des- ember 1982. Miðað við júlíverðlag reyndist byggingavísitala, reiknuð út með sama hætti, vera 164,60 stig og er því hækkun vísitölunnar milli mánuða 0,15 stig. í fréttatilkynningu frá Hagstofunni, er tekið fram að við uppgjör verðbóta á fjárskuldbind- inga, samkvæmt ákvæðum í hvers konar samningum um að þær skuli fylgja vísitölu byggingakostnaðar, gilda hinar lögformlegu vísitölur, sem reiknaðar eru á þriggja mánaða fresti. Áætluðu visitölurnar skipta þar ekki máli. Þessi mánaðarhækkun bygginga- vísitölunnar mælir 1,8% verðbólgu- hraða á 12 mánaða tímabili. arsýslum um helgina en þau verða flutt til Belgíu til slátrunar ásamt 180 til 190 hrossum, aðallega úr Ár- nes- og Rangárvallasýslum, sem sett verða um borð í skipið í Þorlákshöfn á morgun. Að sögn Magnúsar Friðgeirsson- ar, framkvæmdastjóra búvöru- deildar SÍS, er kaupandi stórfyrir- tæki sem er með hrossaslátrun og kjötsölu. Sagði hann að dýralæknir og fulltrúi Hagsmunafélags hrossabænda færu með skipinu utan til að sjá um að hrossin fái rétta meðhöndlun. Tveir fulltrúar fyrirtækisins eru hér á landi til að fylgjast með að rétt sé staðið að málum hér við útflutninginn. Hef- ur heyrst eftir þeim að þeir séu ekkert ánægðir með hvað hrossin séu orðin feit eftir þetta grösuga sumar. Magnús lagði á það áherslu að hér væri um tilraun að ræða sem vonandi yrði til að framhald gæti orðið að þessum útflutningi. Verkamannasamband ís- lands kynnti Vinnuveitenda- sambandi íslands kröfur sínar á fundi í gær, og samkvæmt upplýsingum Magnúsar Gunn- arssonar, framkvæmdastjóra VSÍ, þá eru kröfurnar að með- altali á milli 40 og 50%, en samkvæmt upplýsingum Guð- mundar J. Guðmundssonar, formanns Verkamannasam- bandsins, þá eru kröfurnar frá 20 til 30%, en Guðmundur sagði þó að nákvæmir útreikn- ingar þar um hefðu ekki verið gerðir af Verkamannasam- bandinu. „Kröfurnar eru með þeim hætti, að það er engin leið að líta á þær sem umræðu- grundvöll, miðað við þær að- stæður sem eru í þjóðfélaginu í dag,“ sagði Magnús í samtali við blm. Mbl. og Magnús bætti við: „Það var því engin leið önnur fær, en að hafna þess- um kröfum algjörlega og því greindum við fulltrúum Verka- mannasambandsins frá í dag.“ „Kröfur okkar eru að lægsti taxti verði um 14 þúsund krónur, en sá hæsti tæpar 20 þúsund krónur, og það sér hver maður að hér er ekki verið að gera neinar ógnarkröfur," sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði að kröfurnar hljóðuðu upp á að taxtarnir yrðu 5 en ekki 9, eins og verið hefur, þannig að bilið á milli taxtanna breikkaði. Jafn- framt yrðu aldurshækkanir færri. Eina aðalkröfuna sagði Guð- mundur vera fyrir fólk í fisk- vinnslunni, til þess að afnema þetta tvöfalda kaupkerfi sem í gangi væri, „við viljum afnema þá taxta sem eru fyrir neðan lág- marksdagvinnutekjutryggingu“, sagði Guðmundur. „Við höfum reiknað út, hvað kröfur Verkamannasambandsins þýddu fyrir fiskvinnsluna, ef að þeim yrði gengið og okkur sýnist að launakostnaður fiskvinnslunn- ar myndi hækka um 45%,“ sagði Magnús, „auðvitað getum við ímyndað okkur hvaða áhrif það hefði, ef samið yrði á þessum nót- um. Það tæki ekki nema ör- skamman tíma að hleypa verð- bólgunni yfir 100 stig á nýjan leik,“ sagði Magnús. Magnús sagði að það hefði kom- ið nokkuð á óvart, að þessar kröf- ur virtust vera algjörlega á skjön við þá láglaunastefnu sem verka- lýðshreyfingin hefði rekið á und- anförnum árum, þar sem mestar kröfur væru gerðar til handa þeim sem hefðu tiltölulega hæstu launin, en minnstar kröfur fyrir þá sem hefðu lægstu launin. Borgarfjörður: Óþurrkarnir jafnvel meiri en í fyrrasumar Grund, Skorradal, 20. ágúst. HEYSKAPARTÍÐ hefur verið með eindæmum erfið hér í Borgarfirði í sumar. Þrálátar rigningar dag eftir dag og er nú svo komið að þetta sumar ætlar að verða sýnu verra en í fyrra. Sláttur hófst hér um slóðir með fyrra móti, eða almennt í síð- ustu viku júnímánaðar. Það er um það bil 3 vikum fyrr en í fyrra. Þrátt fyrir það eiga menn nú mun meira eftir af heyskapnum en á sama tíma síðasta sumar. Síðan 10. júlí hefur rignt meira eða minna flesta daga, að frá- dregnum dögunum 18. og 19. júlí, 29. til 31. júlí og 3. og 4. ágúst. Það sem slegið var síðustu daga júlí- mánaðar liggur því enn á túnum. ýmist í múgum eða flatt. Augljóst er, að slíkt hey er ákaflega lélegt fóður og raunar verður það sama að segja um það sem óslegið er á túnum, því það liggur nú í legum, úr sér sprottið og trénað. Mikill mismunur er á sprettu nú eða í fyrra, nú er allt vafið í grasi jafnt á túnum sem utan túna. í fyrra náði spretta sér aldrei sökum kulda og bleytu. Ljóst er, að einn eða tveir þurrkdagar í senn bjarga eftirleið- is litlu, því tún eru orðin það blaut að illfært er um þau á vélum, og því óskemmtilegt að þurrka hey við slíkar aðstæður. DP Viðræðumar um verkefnalistann hefjast: Ríkisfjármálin og kjarasamning- ar erfiðustu úrlausnarefnin ÞORSTEINN Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, Friðrik Sophusson, varaformaður, og Geir Hailgrímsson, utanríkisráðherra, fóru til fundar við Steingrím Hermannsson, forsætisráðherra, upp úr hádeginu f gær og ræddu við hann um nýjan verkefnalista og næstu viðfangsefni ríkisstjórnarinnar. Strax eftir þann fund eða klukkan 14.30 hittist þingflokkur framsóknar- manna í Alþingishúsinu. Var það fyrsti fundur þingflokksins með Stein- grími Hermannssyni í meira en mánuð. Það var að frumkvæði Þor- ári, en í frumvarpi og fjárlögum steins Pálssonar að strax í þing- lok í vor komu fram óskir um formiegar viðræður milli stjórn- arflokkanna af þvf tagi sem nú eru að hefjast. Þegar Steingrímur Hermannsson kom heim úr sumarleyfi í síðustu viku hafði Sjálfstæðisflokkurinn mótað hugmyndir' sínar um það hvað skyldi rætt við Framsóknarflokk- inn. Eftir þingflokksfundinn í gær hefur forsætisráðherra feng- ið umboð samflokksmanna sinna. Hvorugur aðilanna hefur í hyggju að skipa viðræðunefndir en flokksformennirnir segjast kalla þá með sér hverju sinni sem beri ábyrgð á þeim málaflokkum sem til umræðu eru. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er talið að viðræðurnar muni standa í að minnsta kosti tvær vikur. Á þessum tveimur vikum þurfa stjórnarflokkarnir ekki einvörð- ungu að taka afstöðu almennt til næstu verkefna ríkisstjórnarinn- ar heldur einnig koma sér saman um frumvarp til fjárlaga fyrir ár- ið 1985. Að þvi er heimildir Morg- unblaðsins herma er það vilji formanna stjórnarflokkanna að fjárlög verði hallalaus á næsta ársins í ár var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði. Að sögn heimildar- manna blaðsins kann það að reynast flokkunum erfiðara að ná samkomulagi um hallalaust fjár- lagafrumvarp en næstu verkefni ríkisstjórnarinnar að öðru leyti. Þá hefur i blöðum komið til orða- hnippinga milli Steingríms Her- mannssonar, forsætisráðherra, og Alberts Guðmundssonar, fjár- málaráðherra, um það hvernig staðið skuli að samningagerð í launadeilunni við opinbera starfsmenn. Og telja heimildar- menn blaðsins þar einnig erfiðara mál viðfangs fyrir stjórnina en verkefnalistann. Loks hafa nú komið fram hugmyndir um það meðal annars hjá forsætisráð- herra og fjármálaráðherra að Þorsteinn Pálsson taki sæti í rfk- isstjórninni og verður væntan- lega tekin afstaða til þeirra í til- efni af þessum viðræðum. Heimildarmenn Morgunblaðs- ins lögðu á það áherslu að ekkert benti til þess að vilji stjórnar- flokkanna til samstarfs væri minni en áður og því væri gengið til viðræðnanna nú með það að markmiði að ná samkomulagi. MorKunbUAið/ Arni Sæberg Þorsteinn Pálsson og Geir Hallgrímsson ræðast við fyrir utan Stjórn- arráðið að loknum fundinum með forsætisráðherra í gær. Auk þeirra sat Friðrik Sophusson fundinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.