Morgunblaðið - 21.08.1984, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984
Rútur Krist-
inn Hannes-
son hljóðfæra-
leikari látinn
RÍJTUR Kristinn Hannesson,
hljóðfæraleikari, Öldugötu 42,
Hafnarfíröi, lést í Landspítalanum
að morgni 18. ágúst.
Hann fæddist á Stokkseyri 16.
ágúst 1920, en fluttist 4 ára gam-
all til Hafnarfjarðar. Rútur
Kristinn Hannesson var sjálf-
menntaður tónlistarmaður og
fékkst mest við spilamennsku á
harmonikku, en hann var einnig
organisti í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði árin 1965 til 1967.
Eftirlifandi kona Rúts Krist-
ins er Ragnheiður Benedikts-
dóttir og áttu þau sjö börn, en
auk þess átti hann einn son.
Rútur Kristinn Hannesson
Fyrstu „frjálsu“ íslensku kartöflurnar teknar upp í Þykkvabænum á
sunnudag. Jens Gíslason kartöflubóndi (til hægri) við upptökuna ásamt
föður sínum og fjölskyldu.
Morgunbiaftií/ RAX.
Hagkaupsmenn taka við kartöflunum í gærmorgun. Sigurður Gísli
Pálmason framkvæmdastjóri, Hengst til hægri, Gísli Blöndal, fulltrúi
framkvæmdastjóra í miðið, og Jens Gíslason skoða kartöflurnar.
„Frjálsu" íslensku kartöflurn-
ar seldust vel fyrsta daginn
í gærmorgun var hafín sala á
„frjálsum“ íslenskum kartöflum,
það er kartöflum sem keyptar eru
beint af bændum, í verslun Hag-
kaups hf. í Reykjavík. Jens Gíslason
á Jaðri í Þykkvabæ kom þá með
fyrstu sendinguna en hann selur
kartöflur til Hagkaups án milligöngu
Grænmetisverslunar landbúnaðar-
ins. Þetta fyrsta tonn sem Jens kom
með seldist upp fyrir klukkan 17 og
ætla Hagkaupsmenn að fá meira
magn af kartöflum næstu daga.
Kartöflurnar eru seldar ópakkaðar á
29,90 kr. kílóið en kartöflur sem
Hagkaup hefur keypt í gegnum
Grænmetið hafa verið seldar á 36,00
kr. kflóið.
„Þessu framtaki okkar hefur
verið tekið afar vel eins og sést á
því hvernig salan gekk í dag,“
sagði Gísli Blöndal, fulltrúi fram-
kvæmdastjóra hjá Hagkaup, í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær. „Neytendur sýna
samstöðu nú eins og í síðasta kart-
öflustríði. Oft er þörf en nú er
nauðsyn að standa með frjálsu
kartöflunum," sagði Gísli einnig.
Gísli sagði að Hagkaup hefði
ákveðið að kaupa aðeins af þessum
eina kartöflubónda til að byrja
með þrátt fyrir mikið framboð.
Ætlunin væri að fá frekari
reynslu í viðskiptunum áður en
lengra yrði haldið. Kartöflurnar
komu óþvegnar, beint af upptöku-
vélinni, þennan fyrsta morgun.
Gísli sagði að framvegis myndu
þeir fá þær þvegnar og einnig
hefði verið haft samband við
matsmenn til að fá þær metnar
eins og reglur gerðu ráð fyrir.
Skipulag nauðsynlegt
„Ég lít svo á að þeir megi ekki
gera þetta án leyfis Framleiðslu-
ráðs,“ sagði Ingi Tryggvason, for-
maður Framleiðsluráðs landbún-
aðarins, þegar álits hans var leit-
að. Sagði Ingi að málið yrði skoðað
nánar hjá Framleiðsluráði og
vafalaust rætt á Framleiðslu-
ráðsfundi síðar í vikunni. „Ég hef
ekkert um þetta að segja annað en
að ég tel það mikla nauðsyn að
bændur hafi skipulag á sölu af-
urða sinna, ekkert síður á kartöfl-
um en öðru, til þess að þeir geti,
eftir því sem tök eru á, staðið sem
jafnastir gagnvart markaðnum,"
sagði Ingi einnig.
Viöskipti eiga að vera frjáis
„Það eru ekki nein skýr ákvæði í
lögum um þetta. Aðalreglan er þó
sú að viðskipti eru frjáls hverjum
sem er,“ sagði Helgi V. Jónsson,
lögfræðingur Hagkaups hf., þegar
hann var beðinn um álit á lagahlið
Úlfarsá miklu
lakari en í fyrra
Heldur slöpp veiði hefur verið
í Úlfarsá, eða Korpu eins og
sumir kannast betur við hana.
Síðustu fregnir hermdu að
komnir væru um 140 laxar á
land. Um tíma í júlí var prýðis-
veiði, en léleg fram að því og
eftir að gangan slotaði datt allt
í dúnalogn á ný. Nú þykir
mönnum ekki vera mikið af laxi
og auk þess leit að honum upp
um alla á. Best kunna flestir við
sig er sjávarfossarnir fyllast svo
af laxi að þar er sporður við
sporð. Þá er hægt að sitja á
klettunum og dorga með lítilli
fyrirhöfn. Annars lags fiskerí
dugar nú ef eitthvað dugar á
annað borð. Korpa hefur verið
vatnsmikil lengst af í sumar.
Sama sagan í
Vatnsdal og Víðidal
Fyrsti íslendingahópurinn í
Vatnsdalsá eftir útlendinga-
tímabilið banaði 50 löxum og
þótti ekki mikið þó það sé meiri
veiði en þeir erlendu gátu státað
af. Síðasti hópur þeirra dró 46
stykki á þurrt á einni viku, ís-
lendingarnir voru í 3 daga.
Stærsti laxinn í síðasta „holli“
var 23 punda hængur dreginn á
maðk úr Kríu. Þó nokkrir 17,5
til 23 punda fiskar hafa veiðst
síðustu daga og vikur, auk 28
pundarans sem áður hefur verið
greint frá. Nú eru komnir 506
laxar úr Vatnsdalsá.
í Víðidalsá veiddust 75 laxar
fyrstu dagana sem íslendingar
dorguðu í kjölfar erlendu veiði-
garpanna. Stærsti 30 punda
tröll sem greint var frá í Mbl. á
föstudag. Hilmar Helgason
veiddi laxinn í Harðeyrarstreng'
á spón. Þar eru komnir milli 400
og 500 laxar á land sem þykir
lélegt með afbrigðum.
Blanda léleg
Blanda hefur verið afar léleg
þrátt fyrir að laxar mættu þar
til leiks í talsverðum mæli mun
fyrr í vor en dæmi eru til um.
Voru menn himinlifandi með
gang mála fram í júlí, en þá var
ljóst að það var hætt að mestu
að bætast við í ánni, veiðin
þvarr og nýrenningar hættu að
mestu að sjást. Nú eru komnir
um 450—460 laxar á land og
þykir iélegt sérstaklega þegar
borið er saman við bestu ár
Blöndu, en þá hefur hún slagað
hátt í tvö þúsund fiska.
Við þetta má bæta, að Svartá
hefur verið heldur dauf í heild
séð og ákaflega mishitt. Rúm-
lega 100 laxar munu komnir á
land úr henni og margir vænir.
Einn hópur fyrr í mánuðinum
fékk t.d. 10 laxa á stangirnar
þrjár á tveimur dögum. Enginn
var undir 12 pundum og einn vel
yfir 20 pund sleit sig af í fjöru-
borðinu eftir þriggja tíma viður-
eign. Það var Haukur óskarsson
rakari sem setti í laxinn á flugu
nr. 10. Menn una annars vel við
Svartá þó laxveiðin sé heldur
treg, því satt mun vera að hún
sé með allra fallegustu laxveiði-
ám þessa lands.
Húsavík:
Orkumálaráð-
herrar funda
Húsavík, 20. ápísL
FUNDUR orkumálaráðherra
Noröurlanda var haldinn á
Húsavík í dag og var þar rædd
þróunin á orkusviðinu í hverju
landi fyrir sig svo og staða al-
þjóðlegra orkumála. Fundinn
sátu Seppó Lindblom, við-
skipta- og iðnaðarráðherra
Finnlands, Sverrir Her-
mannsson, iðnaðar- og orku-
málaráðherra íslands, Birgitta
Dahl, orkumálaráðherra Sví-
þjóðar, Arild Rödlend, aðstoð-
armaður orkumálaráðherra
Noregs og Michael Lunn,
ráðuneytisstjóri Orkumála-
ráðuneytis Danmerkur.
Á fundinum var lögð fram
skýrsla um olíuhreinsunarstöðv-
ar. Ráðherrarnir töldu nauðsyn-
legt að kanna nánar möguleika á
hagnýtri norrænni samvinnu á
þessu sviði. Málið verður rætt
frekar á næsta fundi orkumála-
ráðherranna.
Á sviði orkurannsókna sam-
þykktu ráðherrarnir að fram
skuli fara ýmis upplýsingaþjón-
usta og samhæfing milli Norður-
landanna. Þetta mun fela í sér
sameiginlega skráningu á rann-
sóknarverkefnum og útgáfustarf-
semi, stuðning við sérstöknám-
skeið á olíu- og gassviðinu, sam-
eiginlegar námstefnur, stuðning
við ferðir rannsóknarmanna,
sameiginlega bókaútgáfu og
fleira.
Orkumálaráðherrarnir voru
sammála um að auka ætti sam-
vinnu á orkurannsóknarsviðinu,
sérstaklega töldu þeir nauðsyn-
legt að auka samvinnu hinna
ýmsu stofnana, sem fást við rann-
sóknir á orkusviðinu.
Ráðherrarnir lögðu áherzlu á
mikilvægi náinnar samvinnu um
upplýsingar í orkumálum, þar á
meðal með útgáfustarfsemi, sýn-
ingum og námskeiðum. Þá bentu
þeir á, að framkvæmdir í orku-
málum gegna miklu hlutverki í
efnahagslegri þróun og í að halda
uppi fullri atvinnu, en ályktun um
það hefur komið fram í Norður-
landaráði.
Að loknum fundi munu fund-
armenn skoða orkuver í Þingeyj-
arsýslu.
— Fréttaritari.
Herðubreiðarlindin
Snyrtiaðstaða
til fyrirmyndar
Meinleg prentvilla varð í
Reykj avíkurbréfi sl. sunnu-
dag. Þar átti að standa:
„Snyrtiaðstaða á fjöirómum
leiðum eins og f Herðubreiðar-
lindum er til raikillar fyrirmynd-
ar. Af óskiljanlegum ástæð-
um slæddist orðið ekki inn í
þessa setningu og gjörbreytti
merkingu hennar. Þetta leið-
réttist hér með.