Morgunblaðið - 21.08.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984
5
Fyrsti kaupandi þeirra „frjálsu“ íslensku, fyllir pokann sinn á tíunda
tímanum í gærmorgun. Honum leist vel á þær og tók þær framyfir
kartöflurnar frá Grænmetinu sem seldar voru viö hliðina á þeim frjálsu,
það geröu einnig flestir þeir sem keyptu kartöflur í Hagkaup í gær.
málsins, en ágreiningur er á milli
Hagkaups og Framleiðsluráðs um
hvort Hagkaup sé heimilt að
kaupa kartöflur beint af bændum
til sölu í verslunum sínum.
„Bændur þurfa ekki verslunarleyfi
til að selja framleiðslu sína og
smásalar geta keypt vörur af
hverjum sem er. Ákvæði eru um
að sérstakt leyfi þurfi til að
stunda heildsölu á garðávöxtum,
en ekki tekið neitt fram um þetta
atriði, það er að segja kaup versl-
ana á afurðum beint frá bændum.
Hinsvegar eru ákvæði í lögum þar
sem segir að Framleiðsluráð fari
rneð yfirstjórn á sölumálum mat-
jurta og gróðurhúsaframleiðslu
landsins. Síðan eru alls konar
atriði sem þeir geta sett til að sjá
um að hún sé í lagi. En það kemur
alls ekki fram að viðskipti sem
þessi séu bönnuð," sagði Helgi
einnig.
Eyyindarstaðaheiði:
Hross hafa enn ekki ver-
ið sótt vegna vatnavaxta
Upprekstrarmenn í Seylu- og
Lýtingsstaöahreppum í Skagafirði
hafa enn ekki náö í hross sína á
Eyvindarstaðaheiði, en eins og
kunnugt er varö um þaö sam-
komulag á milli aðila að þeir
sæktu þau í síöasta lagi 20. ágúst.
Hafsteinn Lúðvíksson bóndi í
Ytra-Vallholti sagði í samtali við
Morgunblaöiö í gær aö hrossin
hefðu ekki verið sótt ennþá vegna
vatnavaxtá í Ströngukvísl en í
samningi aðila var gert ráð fyrir
að hrossin yrðu sótt við fyrstu
hentugleika ef svo færi.
Hallþór Þ. Jónsson sýslumaóur
Skagfirðinga sagðist hafa skrifað
viðkomandi hreppsnefndum bréf
fyrir um viku til-að minna þær á
að sækja hrossin og hafa um það
samráð við sig. Hann sagðist í gær
ekki hafa ástæðu til að halda ann-
að en að upprekstrarmenn stæðu
við samkomulagið en það kæmi þó
ekki í ljós fyrr en eftir 20. ágúst.
Hafsteinn Lúðvíksson sagði málin
vera í biðstöðu en væntanlega
myndi það skýrast fljótlega hve-
nær hægt yrði að sækja þau. Sagði
hann að áin væri í foráttuvexti og
ekkert hross komið norður fyrir
hana enn og uppgræðslan neðar á
heiðinni því laus við hross. Hins-
vegar sagði hann að fé væri farið
að sækja norður og væri margt fé
á ábornu svæðunum sem nú væru
orðin hagalaus.
Hafsteinn sagði að kunnugir
menn og vanir yrðu sendir til að
að ná í hrossin því vandasamt yrði
að ná þeim án þess að fé styggðist
og tæki á rás norður. „Við leggjum
ofurkapp á að standa við gerða
samninga. Landbúnaðarráðuneyt-
ið hefur lofað að koma þessum
JÓN B. Sveinsson, fyrrverandi útgerð-
armaður á Seyðisfirði, lézt á sjúkrahús-
inu á Seyðisfirði síðastliðinn laugardag
96 ára að aldri.
Jón var fæddur 7. apríl 1888 á
Horni við Hornafjörð og var sonur
hjónanna Ragnheiðar Brynjólfsdótt-
ur og Sveins Jónssonar, útgerðar-
manns. Jón fluttist ungur með for-
eldrum sínum að Eiríksstöðum í
Seyðisfirði, en þaðan stundaði faðir
hans útgerð. Jón lauk búfræðinámi
frá Eiðaskóla 1907 og hélt síðan til
Akureyrar til frekara náms. Hann
var hins vegar kallaður frá námi við
fráfall föður hans skömmu eftir að
það hófst. Þá hóf hann útgerð frá
Skálanesi við Seyðisfjörð með hálf-
bróður sínum Brynjólfi Sigurðssyni.
Þeir stunduðu síðan útgerð þaðan,
frá Hornafirði og Keflavík til loka
síðari heimsstyrjaldarinnar. Jón
hafði þá nokkrum árum áður tekið
við stjórn Fisksölufélags Seyðis-
fjarðar og gegndi þann því embætti
til áttræðs, en auk þess saltaði hann
síld með Jónasi Jónssyni á Seyðis-
firði upp úr stríðsárunum.
Jón tók talsverðan þátt í félags-
málum í viðunandi horf og mun-
um við því standa við okkar hlut í
samkomulaginu," sagði Hafsteinn
einnig.
málastörfum og átti meðal annars
sæti í skattanefnd Seyðisfjarðar, í
stjórn kaupfélagsins og síldar-
verksmiðjanna. Kona Jóns var Torf-
hildur Sigurðardóttir og varð þeim 5
barna auðið og eru fjögur þeirra á
lífi.
Jón B. Sveinsson fyrr-
um útgerðarmaður á
Seyðisfirði er látinn
SIÐUSTU BÍLAR SUMARSINS!
218.000.-
Ki. á götuna.
(gengi 10 08, '84)
MEST SELDIBILL Á ISLANDI
Unol BENSÍNNIRFILL! rr rnn VTD ATTT?A U JFVT
FTAT UNO or séTfdaklnarr snnrnm/tinn nrrrnrrnnfnrrrfAÍ 1\*J V-/JL V VILJ ii I I 1 iIXjLX 1 IjCJLjI 1
FIAT UNO er sérstaklega sparneytinn, og má neína aö í
sparakstursprófi sem íram fór á Ítalíu á s.l. sumri var
meðaleyðsla hjá UNO ES 3.9 lítrar á hundraðið.
Á 90 km. meöalhraða eyöir UNO ES 4.3 lítrum og
UNO 45 Super 5 lítrum á hundraðið.
VegSll í
1VILHJÁLMSSON HF.i
Smidjuvegi 4. Kopavogi. Simar 77200 - 77202.