Morgunblaðið - 21.08.1984, Síða 6

Morgunblaðið - 21.08.1984, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984 í stuttu máli Neues Deutschland: íbúar NATO- landa að verða gíslar eldflauga- pólitíkusa Berlín. AF. MÁLGAGN austur-þýsku stjórn- arinnar Neues Deutschland vék í dag að þeim „spaugsyrðum" Reagans forseta Bandaríkjanna sem fræg hafa orðið, er hann var að reyna hljóðnema fyrir ræðu- flutning og talaði um að sprengja Sovétríkin í loft upp. Blaðið segir að slík „gaman- semi“ hljóti að magna gagn- rýni á að koma fyrir NATO- eldflaugum í Evrópu. Blaðið segist þeirrar skoðunar að íbú- ar NATO-landa séu að verða gíslar eldflauga pólitíkusa. Einnig er skrifað um orð Reagans í málgagn æskulýðs- samtaka Austur-Þýzkalands Junge Welt og sagt að þetta sé dæmi um öfugsnúinn og brenglaðan pólitískan skiln- ing. Mál Trifa verðurrann sakaðí Portúgal Lissabon. AP. TALSMAÐUR portúgalska utanríkisráðuneytisins sagði í dag, að það væri rétt að Valeri- an Trifa, rúmenski erkibiskup- inn sem var vísað frá Bandarfkj- unum vegna ákæru um stríðs- glæpi fyrir nazista, hefði fengið landvistarleyfi í Portúgal. „Okkur var ekki kunnungt um fortíð hans né feril. Hann var með lögmætt vegabréf og við vissum það eitt að hann hafði verið búsettur í Banda- ríkjunum um árabil og hafði fengið bandarískan ríkisborg- ararétt." Talsmaðurinn bætti því við í viðtali við AP að Trifa hefði fengið leyfi til 3ja mánaða dvalar. Mál hans yrði nú kannað og portúgölsk yfir- völd væru síðan í fullum rétti að vísa honum úr landi þegar dvalarleyfi hans rynni út í næsta mánuði. Trifa, sem er sjötugur að aldri, fór frá New York á mánudag og ætlaði til Rúm- eníu. Honum var neitað um að stíga þar á land og síðan höfn- uðu ísraelsk, vestur-þýsk, ítölsk og svissnesk stjórnvöld tilmælum frá Bandaríkjunum um að hleypa honum inn í við- komandi lönd. Fréttir úr Morgunblaö- inu lesnar á virkum dögum kl. 19.50 á „Ot- rás“ FM 89,4. Fylgjendur Ayatollah Khomeinis sjást hér halda á myndum af leidtoga sínum. Sjónvarp kl. 21.55 Land klerkanna f sjónvarpi í kvöld verður sýnd fréttamynd frá breska sjónvarp- inu, BBC, sem ber heitið „Land klerkanna“. Breskir sjónvarps- fréttamenn heimsóttu íran sl. vor og fjallar þátturinn um það hvernig landið kom þeim fyrir sjónir, á meðan á þriggja vikna dvöl þeirra stóð. Eins og flestum mun vera kunnugt var gerð bylting í íran fyrir fimm árum og tóku klerkarnir í landinu þá við völdum, með Ayatollah Khom- eini yfirklerk í broddi fylk- ingar. Trúin skiptir öllu máli í íran í dag og er öll hegðun fólks í landinu í samræmi við múhameðstrúna þar sem leið- toginn, Khomeini, ræður lög- um og lofum og stjórnar öllum gerðum fólksins með harðri hendi. Þykir flestum mönnum á Vesturlöndum sem trúarof- stækishugsjón þessi sé hin mesta afturför fyrir íranskt þjóðfélag. í lokin verður hugað að styrjöld írana við íraka, sem engan endi virðist ætla að taka og hefur þó geisað í fjöldamörg ár. Útvarp kl. 22.35 Smfóníublús, rokksónötur og kammerdjass Sigurður Einarsson er stjórn- andi þáttarins „Sinfóníublús, rokksónötur og kammerdjass" og er það síðari hluti sem verður á dagskrá útvarps í dag. I þættinum verður leikin alls kyns óvenjuleg tónlist, þ.e. tón- list sem íslenskir útvarpshlust- endur hafa lítið heyrt í útvarpi. Flutt verður indversk tónlist þar sem indverski gítarleikarinn Ravi Shankar og fiðluleikarinn Yehudí leika saman. Breski bítillinn George Harri- son helgaði sig um tíma að ind- verskri dulspeki og samdi nokk- ur lög undir áhrifum af ind- verskri tónlist sem leikn verða í þættinum. Þá verður flutt tónlist fyrir djasshljómsveit eftir pólska nú- tímatónskáldið Tenderecki og einnig verk eftir Stravinsky. Loks verður leikin tónlist eftir íslenskt tónskáld, Gunnar Reyni Sveinsson, sem upphaflega var djassleikari en lagði síðan stund á klassísk fræði og semur nú að- allega tónlist sem flokkast undir „kammerdjass". Karlakórinn Fóstbræður syngur m.a. í þættinum. Útvarp kl. 16.20 Lagasmiðir í hjáverkum Þátturinn „íslensk tónlist" er á dagskrá útvarps í dag kl. 16.20 og nefnist hann „Lagasmiðir í hjáverk- um“. Fyrst leikur Sinfóníuhljómsveit íslands lög eftir Ólaf Þorgríms- son. Stjórnandi er Páll P. Pálsson. Þá syngur Karlakórinn Fóstbræð- ur lög eftir Gylfa Þ. Gíslason und- ir stjórn Jóns Þórarinssonar. Því næst leika Pétur Þorvalds- son og Ragnar Björnsson saman á selló og orgel lagið „Barnagæla" eftir Gylfa Þ. Gíslason. Loks flytur Karlakórinn Stefnir ásamt Gunnari Kvaran, Moniku Abendroth, Kristni Sigmundssyni, Jónasi Ingimundarsyni, Smára Ólasyni, Halldóri Vilhelmssyni og Friðbirni G. Jónssyni lög eftir Gunnar Thoroddsen. Stjórnandi er Lárus Sveinsson. Útvarp ReykjavíK ÞRIÐJUDKGUR 21. ágúst MORGUNNINN____________________ 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. t bítið. 7.25 Leikfimi. 7.55 Dag- legt mál. Endurt. þáttur Eiríks Rögnvaldssonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð: — Pétur Jósefsson, Akureyri, talar. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Eins og ég væri ekki til“ eftir Kerstin Johansson. Sigurður Helgason les þýðingu sína (6). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynn- ir. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl. (útdr.). 10.45 „Ljáðu mér eyra“. Málfríð- ur Sigurðardóttir á Jaðri sér um þáttinn (RÚVAK). 11.15 Hljóðdósin. Létt lög leikin af hljómplötum. Umsjón: Ólafur Þórðarson. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. SÍDDEGIO______________________ 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar 13.30 Shirley Bassey og Placido Domingo syngja. 14.00 „Við bíðum“ eftir J.M. Coetzee. Sigurlína Davíðsdóttir les þýðingu sína (10). 14.30 Miðdegistónleikar. St. Martin-in-the-Fields-hljómsveit- in leikur Sinfóníu nr. 1 í D-dúr eftir Sergej Prokofjeff; Neville Marriner stjómar. 14.45 Upptaktur. — Guðmundur Benediktsson. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð- urfregnir. 16.20 íslensk tónlist: „Lagasmiðir í hjáverkum." Sinfóníuhljóm- sveit íslands leikur lög eftir Ólaf Þorgrímsson; Páll P. Pálsson stj./ Karlakórinn Fóstbræður syngur lög eftir Gylfa Þ. Gíslason; Jón Þórar- insson stj./ Pétur Þorvaldsson og Ragnar Björnsson leika á selló og orgel „Barnagælu" eft- ir Gylfa Þ. Gíslason/ Gunnar Kvaran, Monika Abendroth, Kristinn Sigmundsson, Jónas Ingimundarson, Smári Ólason, Halldór Vilhelmsson, Friðbjörn G. Jónsson og Karlakórinn Stefnir flytja lög eftir Gunnar Thoroddsen; Lárus Sveinsson stj. 17.00 Fréttir á ensku. 17.10 Síðdegisútvarp Tilkynningar 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. KVÖLDID__________________________ 19.50 Við stokkinn. Stjómandi Gunnvör Braga. 20.00 Sagan: „Júlía og úlfarnir" eftir Jean Graighead George. Geirlaug Þorvaldsdóttir les þýð- ingu Ragnars Þorsteinssonar (5). 20.30 Horn unga fólksins í umsjá Siguriaugar M. Jónsdóttur. 20.40 Kvöldvaka a. Við héldum hátíð. Frásögn Gunnars M. Magnúss frá stofn- un lýðveldisins 1944. Baldvin Halldórsson les sjötta og síð- asta hluta. b. Norður fjöll. Baldur Pálma- son les flokk ferðakvæða eftir Hannes Hafstein. 21.10 Frá ferðum Þorvaldar Thoroddsen um ísland. 12. og síðasti þáttur: Um hinn vísinda- lega árangur o.fl. Umsjón: Tóm- as Einarsson. Lesari með hon- um: Snorri Jónsson. 21.45 Útvarpssagan: „Vindur, vindur vinur minn“ eftir Guð- laug Arason. Höfundur les (17). 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Sinfóníublús, rokksónötur og kammerdjass. Ólíkar hefðir mætast — síðari hluti. Sigurður Einarsson kynnir. 23.45 Fréttir. Dagskrárlok. SKJANUM ÞRIÐJUDAGUR 21. ágúst 19.35 Bogi og Logi Pólskur tciknimyndaflokkur. 19.45 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.35 Fundyflói Bresk náttúrulífsmynd. New Brunswick. Þar gætir sjáv- arfalla meir en ó nokkrum öðr- um stað vegna lögunar flóans. En einmitt vegna þess er fugla- og sjávariíf óvíða auðugra. Þýðandi og þulur Óskar Ingi- marsson. 21.05 Aðkomumaðurinn Fimmti þáttur. Breskur framhaldsmyndanokk- ur í sex þáttum. I>ýöandi Jón O. Edwald. 21.55 Land klerkanna Fréttamynd frá breska sjón- varpinu. Breskir sjónvarpsmenn heim- sóttu íran í vor og dvöldust þar í þrjár vikur. f myndinni er fjallað um styrjöldina við fraka og þjóðfélagið þar sem trúar- brögðin eru sett ofar öllu. Þýðandí og þulur Bogi Ágústs- son. 22.45 Fréttir í dagskrárlok ÞRIÐJUDAGUR 21. ágúst 10.00—12.00 Morgunþáttur Músík og sitthvað fleira. Stjórnendur: Páll Þorsteinsson og Ásgeir Tómasson. 14.00—15.00 Vagg og velta Létt lög leikin af hljómplötum. Stjórnandi: Gísli Sveinn Lofts- son. 15.00—16.00 Með sínu lagi Lög leikin af íslenskum hljómplötum. Stjórnandi: Svavar Gests. 16.00—17.00 Þjóðlagaþáttur Komið við vítt og breitt í heimi þjóðlagatónlistarinnar. Stjórnandi: Kristján Sigurjóns- son. 17.00—18.00 Frístund Unglingaþáttur. Stjórnandi: Eðvarð Ingólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.