Morgunblaðið - 21.08.1984, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGtJST 1984
19
„Nei heyrðu
mig nú, ég var
sko næstur“
Húsavík, 15. ágúst.
ÞAÐ var svo sannarlega mikið um
dýrðir hjá kvenfélagskonum í Húsa-
vík í dag, en þar stóðu þær fyrir
heljarmiklu útiknalli við barnaskól-
ann. Forsprakkar að þessari uppá-
komu kvennanna, voru konur í fjár-
öflunarnefnd félagsins með frú Kar-
itas Hermannsdóttur í broddi fylk-
ingar.
Höfðu konurnar í nógu að snú-
ast við að afgreiða hungraða Hús-
víkinga ásamt fleira fólki og má
með sanni segja að það ríkti þarna
nokkurs konar suðræn stemmning
í góða veðrinu.
Þarna var boðið upp á allt
mögulegt sem konurnar höfðu
sjálfar búið til í eldhúsinu heima
hjá sér s.s. gómsætar pönnukökur,
bláber með rjóma, alls konar sult-
ur og saftir, heita og kalda rétti
o.fl. o.fl. Og ekki má gleyma
brauðinu ekki var það síðra, tertur
og kökur, soðið brauð og kleinur
og annars konar góðgæti í fjall-
háum stæðum ásamt glöggi og
öðrum drykkjum, sannkallaðar
krásir hjá konum enda hvarf þetta
í fólk, eins og hendi væri veifað
fylltist allt af fólki og var víst
eitthvað um að sagt væri á þessa
leið: „Nei heyrðu mig nú, ég var
sko næst(ur).
Félagar úr Harmónikkuklúbbn-
um mættu á staðinn og tóku nokk-
ur lög, margt annað var gert til að
gleðja eyru og augu gestanna.
Nú fara menn að bíða eftir ann-
arri uppákomu eða ámóta knalli
hjá kvenfélagskonunum á Húsavík
því þetta var stórgott, og télja
ým3Ír að eiginmenn sumra kvenn-
anna geti alveg séð af einni og
einni tertu svo þéttir sem þeir eru.
- ÞE.
Nikkan var þanin og sölukonur voru á þönum með barðamikla hatta.
BENSIN
Þia munarum minna!
Það er flókið og kostnaðarsamt mál að rífa í sundur og hreinsa
bensínkerfi bílsins í hvert skipti sem útfellingarefni taka að
hamla eðlilegum gangi vélarinnar. Þess vegna lögðu
vísindamenn Shell hart að sér við leit á bætiefni í bensín sem
annars vegar hreinsaði burt útfellingarefnin sem setjast í
blöndunga og ventla op hins vegar hefur engin áhrif á aðra
eiginleika bensínsins. Utkoman varð ASD.
Að loknum 20 viðamiklum tilraunum, eftir að hafa ekið 497
mismunandi bílum í samtals um 5 milljón km, birti Shell
niðurstöður sínar um áhrif ASD bensínsins:
• Útfelling í blöndunga minnkað að meðaltali um 60%.
• Útfelling á ventla minnkaði að meðaltali um 70%.
• Kolmonoxíð (CO) í útblæstri minnkaði að meðaltali
um 15%.
• Bensíneyðsla minnkaði að meðaltali um 4% í bílum
með óhreint bensínkerfi en um 1 % í nýrri gerðum bíla.
• ASD hefur engin skaðleg áhrif á bensín með eða án
annarra bætiefna.
Skeljungur h.f.
Við vinnum fyrír þig!
Taktu eftir merkinu á næstu bensínstöð Skeljungs.