Morgunblaðið - 21.08.1984, Side 23

Morgunblaðið - 21.08.1984, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984 23 Det Store Nordatlantiske Idesel- sab og Café Victor eru útgefendur og þar kennir margra grasa — kvæði, sögur og greinar um allt milli himins og jarðar. Ég hef haft forlag síðan ’72, Forlag Sommersko. Um svipað leyti stofnaði ég styrktarsjóð, sem ég nefndi „Verkfærastyrk". Það var nefnilega eitt skáldið, sem skilaði af sér alveg ólesandi hand- ritum af þvi að ritvélin hans var mesta skran. Ég hringdi í Olivetti og stakk upp á, að þeir gæfu ritvél til styrktar skáldinu. Forstjórinn tók undir eins vel í það og það várð upphafið að „Verkfærastyrk Vict- or B. Andersens". Það er nokkuð góður styrkur að fá rafmagnsvél upp á 5—6.000 kr. Síðan hitti ég annan, sem gat gefið skrifstofu- stól — Arne Jacobsen-tegund með hjólum og öllum græjum — arki- tektar sem teikna borð gáfu borð og svona hélt það áfram. í raun eru margir, sem vilja rétta hjálp- arhönd og oft þarf ekki annað en að benda á hvað megi gera — að- stoða við fæðingu, ef ég má kom- ast svo að orði. Skáld gætu svo sem gefið út eigin bækur ef enginn annar vill gera það. Ég hitti kannski rithöfund, sem kvartar undan því, að enginn vilji gefa bók hans út. Ég ræð honum til að láta prenta hana sjálfur, ég skuli borga með því að selja eitt af málverkum mínum. Peningar eru óraunveru- legir fyrir mér — ég þekki lítið inn á bókhald — háar upphæðir lama mig ekki. Hlutirnir eru í rauninni ósköp einfaldir og auðveldir." Hvað er á döfinni hjá þér núna? „I undirbúningi er útgáfa á ævintýrum og þjóðsögum frá ýms- um löndum. Prófessor við Háskól- ann í Höfn, Jes P. Asmussen er ritstjóri útgáfunnar. Hann er sér- fræðingur í írönskum fræðum og sér því um þau ævintýri sjálfur. Síðan hefur hann valið fólk til að sjá um hin löndin. Ætlunin er að hafa íslenskar þjóðsögur í þessum bókaflokki. Viðskiptavinir eiga kost á bókunum ókeypis — eða réttara sagt, þeir fá þær í kaup- bæti. Hver veit nema þetta gæti smitað og önnur veitingahús farið að gera eitthvað fyrir menninguna — til að mynda d’Angleterre hér á næsta horni! Það er enginn efi á því, að þetta mun vekja athygli. í bígerð er einnig rit um alla stjórnarmeðlimi landsins. Ég hef sent ljósmyndara til allra ráð- herranna og hafa þeir fengið að taka andlitsmyndir af þeim. Síðan voru myndirnar sendar til danskra rithöfunda, 21 talsins. Fékk hver rithöfundur eina mynd, sem hann á að lýsa likt og hann væri á göngu í andliti stjórnmála- mannsins — hann getur dvalið á nefinu í 3 daga, heldur svo áfram og athugar augun, brýrnar og heilann að lokum — eða eitthvað þvíumlíkt. Bókin á að reyna að gefa heildarmynd af mönnum þeim, sem stjórna landinu. Ég gæti vel hugsað mér að nota þessa hugmynd á öllum Norðurlöndun- um. Sænskir rithöfundar skrifa um sænska stjórnmálamenn — það er reyndar verið að semja við þá — islenskir rithöfundar væru kannski fáanlegir í það sama um eigin stjórnmálamenn, norskir um norska o.s.frv. Þar með hefðum við ágæta mynd af norrænum stjórnmálum og því fólki er situr við völd. Reyndar er það fín kynn- ing á norrænum rithöfundum líka. Ljóðabók með skandinavískum ástarljóðum kemur út einhvern næstu daga. Það eru 33 ljóð frá Noregi, 33 frá Svíþjóð og 34 frá Danmörku — 100 ljóð.“ Augun leiftra af tilhlökkun og ég er viss um, að við gætum haldið svona áfram lengi því enn er ótal- ið sumt. Það verður að bíða betri tíma. Ég kveð með ósk um, að Kaup- inhafn megi lengi njóta hinna menningarlegu stauma frá Café Victor. Cuðrún Jakbosdóltir er búsetl í Kaupmannahöfn. Hún er lærð í persnesku og hefur fengist við þýð- ingar úr því máli auk ýmissa greinaskrifa. Ertu með réttu ráði eða framleiðsluráði Einokuninni hefur enn ekki verið aflétt, styðjið frjálsa sölu. Við bjóðum íslenskar kartöflur beint frá bóndanum á betra verði. ÓLAFS-RAUÐUR: Opinbera verðið 35 kr. kg. Okkar verð 29.90 kr. kg. HAGKAUP Reykjavík Akureyri Njarðvík Frábærar niðurstöður íslenskra sérfræðlnga. Efnaverkfræðingar MÁLNINGAR h/f hafa staðið fyrir vlðtækum prófunum á STEINAKRÝLI (rúmlega þrjú ár. Niðurstöður þeirra eru m.a. þær, að STEINAKRÝL er hægt að nota á flestum árstímum og STEINAKRÝL er endingargóð útimálning. STEINAKRÝL er þvl einstaklega hæf fyrir íslenskar aðstæður. Duftsmitandi fletlr valda ekkl lengur erflðlelkum. Með STEINAKRÝLI geturðu málað beint á duftsmitandi fleti án þess að eiga á hættu flögnun málningar, sem er óhugsandi með hefðbundinni plastmálningu. Rlgningarskúr er ekkert vandamál. STEINAKRÝL er terpentfnuþynnanleg málning, sem er óvenjulega hæf fyrir islenskar aðstæður.STEIN- AKRÝL endist. Rigningarskúr skiptir litlu máli, þú færð þér bara kaffisopa á meðan rigningin gengur yfir - og heldur svo áfram að mála; STEINAKRÝL þolir rigningu fljótlega eftir málun. Nú geturðu málað I frosti. Yfirburðakostur nýju útimálningarinnar frá MÁLNINGU h/f er einfaldlega sá, að þú þarft ekki lengur að hafa áhyggjur af veðrinu. STEINAKRÝL er akrýlbundin útimálning með sléttri áferð. Þú getur málað með STEINAKRÝLI við mjög lágt hitastig. Jafnvel 110 gráðu frosti (celcius) ef þú endist til að mála I svo miklum kulda. STEINAKRÝL ENDIST! STEINAKRÝL - málnlngin sem andar málninghlf Ef þúnrálarmeáSTEIHAKRÝU frá Mélningu M þarftu ekki að biða eHir nrálningarveðri!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.