Morgunblaðið - 21.08.1984, Síða 25
Leiðtogar þýsku ríkjanna:
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984
25
Munu halda áfram
að bæta tengslin
Enn peirðir
á N-írlandi
Belfast, 20. á«úsL AP.
ÓEIRÐIR héldu áfram í Belfast um
helgina og í dag slasaðist a.m.k. einn
lögreglumaður þegar bæði mótmæl-
endur og rómversk-kaþólskir ungl-
ingar réðust að lögreglunni með
múrsteinum og bensínsprengjum.
Átök brutust aftur út, eftir að
kyrrð hafði ríkt í borginni sunnu-
dagskvöld, þegar óeirðir höfðu
stáðið yfir í viku. Mótmælendur
höfðu komið fyrir hindrunum á
götum og þegar lögreglan braut
þær niður, réðust unglingarnir á
lögrégluna með fyrrnefndum
vopnum. Á öðrum stað gengu um
150 unglingar berseksgang í versl-
unarmiðstöð og brutu rúður og
flegðu grjóti um allt. Lögreglan
fann svo haug af bensínsprengjum
í nágrenni verslunarmiðstöðvar-
innar.
f vesturhluta Belfast og í Strab-
ane, utan við Londonderry, tóku
kaþólskir unglingar völdin á göt-
um borgarinnar og grýttu lög-
reglubíl sem leið átti hjá. í öll
skipti svaraði lögreglan í sömu
mynt með því að skjóta plastskot-
um að fjöldanum. Nokkuð var um
handtökur en ekki var tilkynnt um
önnur meiðsl á fólki en lögreglu-
manninum sem slasaðist í dag.
Efri-Volta:
Ríkisstjórn-
in leyst upp
Ouagadougou, 20. ágúsl. AP.
THOMAS Sankara, forseti Afríku-
ríkisins Bourkina Easso, sem til
skamms tíma hét Efri-Volta, leysti í
gær upp ríkisstjórn landsins. Ekki
hefur verið greint frá því hvenær ný
ríkisstjórn tekur við völdum, en á
meðan beðið er eftir skipun ráðherra
fara ráðuneytisstjórar með völd
þeirra.
Sankara rændi völdum í landinu
fyrir rúmu ári og fyrir nokkrum
vikum greindi hann frá því að
nafni þess hefði verið breytt úr
Efri-Volta í Bourkina Fasso.
Bonn, 20. ágúst. AP.
ERICH Honecker, forseti A-Þýska-
lands, og Richard Von Weizsaecker,
forseti V-Þýskalands, sögðu í viðtöl-
um um helgina, að þeir væru reiðu-
búnir að halda áfram að bæta sam-
skipti ríkjanna tveggja þrátt fyrir
gagnrýni Sovétmanna.
Báðir forsetarnir lögðu áherslu
á að sambúð ríkjanna hefði mik-
ilvæg áhrif á samskipti austurs og
vesturs og gáfu í skyn að þeir
myndu halda fast við árs gamla
stefnu sína að bæta tengsl ríkj-
anna.
Weizsaecker sagði í útvarpsvið-
tali á sunnudag, að þýsku ríkjun-
Veður
víða um heim
Akureyri
Aþena
Berlin
BrUssel
Chicago
Feneyjar
Frankfurt
Genf
Helsinki
Hong Kong
Jerúsalem
Kaupmannahöfn
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Mallorka
Miami
Montreal
Moskva
New York
Ósló
París
Peking
Reykjavík
Rio de Janeiro
Rómaborg
Stokkhólmur
Sydney
Tókýó
Vínarborg
Þórshöfn
15 skýjaö
30 haióskírt
25 heiðskfrt
28 haiðskfrt
24 skýjað
22 skýjað
26 skýjað
26 heiðskfrt
19 skýjað
28 rigning
26 hefðskfrt
22 heiðskfrt
25 léttskýjað
30 heiðskfrt
29 heíðskfrt
29 heiðskfrt
28 heiðskírt
28 skýjað
33 skýjað
22 heiðskfrt
18 heiðskfrt
25 hetðskfrt
23 heiðskfrt
29 heiðskfrt
29 skýjað
8 rign. f grend
22 skýjað
30 heiðskirt
22 heiðskírt
17 skýjað
33 heiðskfrt
22 skýjað
15 skýjað
um væri nú þegar orðið vel ágengt
með að slaka á spennunni sem ríkt
hefur milli ríkjanna, en bætti við
að þau yrðu samt sem áður að
virða sjálfstæði þjóðanna og
samning sem ríkin gerðu sín á
milli árið 1972. Honecker sagði að
betra reyndist að semja tíu sinn-
um upp á nýtt, en að hleypa af
einu skoti.
í viðtali við Honecker kom ekki
fram hvort hann hyggi á heim-
sókn til V-Þýskalands í næsta
mánuöi. Helmut Kohl, kanslari
V-Þýskalands, sagði á föstudag að
hann vænti þess að úr heimsókn
Honecker yrði, en heimsóknin hef-
ur ekki enn verið tilkynnt opin-
berlega.
Samtalið við Honecker um sam-
búð þýsku ríkjanna er það fyrsta
síðan Sovétríkin hófu gagnrýni
sína á batnandi samskipti ríkj-
anna. Vestrænir fréttamenn halda
því fram að Sovétríkin óttist að
þýsku ríkin reyni að sameinast á
ný og það veiki stöðu Sovétríkj-
anna í A-Evrópu. í viðtalinu virt-
ist sem Honecker væri að fullvissa
Sovétmenn um að A-Þýskaland
væri örugglega ekki á leið með að
gefa kommúnisma upp á bátinn.
„Bandalag kommúnisma og kapí-
talisma er jafn óframkvæmanlegt
og bandalag íss og vatns," sagði
Honecker í viðtalinu.
Sovéska fréttastofan Tass birti
um þriðjung viðtalsins við Hon-
ecker, en sleppti ýmsum fuliyrð-
ingum a-þýska leiðtogans um
batnandi sambúð þýsku ríkjanna.
Þíng UNIDO í Vín:
Ekki samstaða
um ályktunina
V.'. on a d A
Vín. 20. ágúst AP.
ÞINGI Iðnþróunarstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna (UNIDO) lauk í
Vín í morgun án þess að samkomu-
lag tækist um efnisatriði í formála
að almennri ályktun þingsins. Ekki
varð heldur eining um drög að sam-
þykkt um tvö mikilvægustu málin,
sem þar voru til umræðu.
Upphaflega átti að slíta þinginu
á laugardag, en þingslitum var
frestað meðan reynt var að ná
samkomulagi.
Bandaríkjamenn einir greiddu
atkvæði gegn formálanum og 12
iðnríki sátu hjá. Bandaríkjamenn
segja að umfjöllun um alþjóðleg
efnahagsmál í formálanum komi
ekki heim við staðreyndir, auk
þess sem þar sé vikið að ýmsum
efnum, jafnt í efnahagsmálum
sem hermálum, sem eigi ekki er-
indi í ályktanir á vettvangi Iðn-
þróunarstofnunarinnar.
Á blaðamannafundi, sem fram-
kvæmdastjóri UNIDO, Álsírbúinn
Abdel Rahman Khane, efndi til í
dag, sagði hann að of snemmt
væri að segja hvort einhver raun-
verulegur ávinningur hefði orðið
af þinghaldinu. Hann kvaðst
harma að Bandaríkjamenn hefðu
ekki samþykkt formála aðalálykt-
unar þingsins og sagðist vonast til
að sú afstaða þeirra breyttist.
Á þinginu hvöttu fulltrúar
þróunarríkjanna iðnríki Vestur-
landa til að auka efnahagsaðstoð
sína, en engin vilyrði um það voru
hins vegar gefin.
Fallhlífarstökk endar með slysi
Tveir fallhlífarstökkvarar fónist og hinn þriðji slasaðist lífshættulega
þegar fallhlífar þeirra flæktust saman á sýningu á Wheat Ridge-hátfðinni
í Colorado á laugardag. Myndin er tekin þegar þeir eru komnir u.þ.b. M
hluta leiðarinnar og einn þeirra hefur skorið sig lausan frá fallhlífinni.