Morgunblaðið - 21.08.1984, Síða 64
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984
Liverpool byrjar þetta tímabil eins og það síðasta:
Sanngjarn og öruggur sigur
Everton í góögeröarieiknum
Everton vann gódgerðarskjöldinn er Liverpool og Everton mœttust á Wembley í þessum árvissa opnun-
arleik ensku knattspyrnunnar. Liverpool byrjaði tímabilið eins og það síðasta, eða með ósigri í góðgeröar-
leiknum, liðið tapaði þá fyrir Manchester Utd. 0—2, en tyrir Everton nú 0—1. Everton var ákaflega vel að
sigrinum komið, liöið var allan tímann mun betri aöilinn, eínkum þó og sér í lagi eftir að sigurmarkið var
komið á blað á 55. mínútu leiksins.
ósannfærandi.
Fyrri hálfleikurinn var marklaus
og ef frá er taliö eitt stórgott færi
sem Kenny Dalglish fékk fyrir Liv-
erpool, voru öll hættulegustu at-
vikin hinum megin á vellinum. En
þar var var Bruce Grobbelaar
kóngur í ríki sínu og bjargaöi Liv-
erpool oft meö snjallri markvörslu
og góöum innígripum. Dalglish var
ákaflega daufur í leiknum og undir-
strikaöi þaö meö því aö klúöra
fyrrgreindu færi. Rush og Lee léku
þá vel saman og Lee sendi knött-
inn á endanum inn fyrir vörn Ever-
ton. Dalglish var þar á auöum sjó,
en í staö þess aö afgreiöa knöttinn
í netiö eins og hann heföi gert í
eina ttö, skaut hann lausu skoti
framhjá.
Rush sýndi litiö í leiknum, Dal-
glish enn minna, en þeir skipuðu
framlínu Liverpool. Þaö var ekki
fyrr en seint í leiknum, aö Paul
Walsh kom inn á, en þá var allt um
seinan og Liverpool haföi engin
tök á leiknum. Þá var fjarvera
Souness á miöjunni áberandi, Liv-
erpool náöi þar engum tökum.
Peter Reid, prímusmótor Everton,
réö lögum og lofum á miöjunni og
mataöi félaga sína í framlínunni, þá
Heath, Sharpe og Richardson,
meö snjöllum sendingum. Þá
reyndi á vörn Liverpool, en þar
Eftir það var um algera einstefnu
Everton — Liverpool
1:0
stóöu engir sig vel nema Bruce
Grobbelaar og Alan Kennedy.
Neal, sem var fyrirliöi í fjarveru, átti
afleitan dag og miöverðirnir Lawr-
enseon og Hansen voru einnig
seinir og ósannfærandi.
Markiö kom á 55. mínútu sem
fyrr segir og þaö var átakanlegt
fyrir Grobbelaar, því þaö var
klaufalegt frá hans sjónarhóli. Gra-
eme Sharpe komst einn inn fyrir
vörn Liverpool eftir snjalla stung-
usendingu. Grobbelaar kom æö-
andi út og fór skot Sharpe í mark-
vöröinn. Sharpe fékk knöttinn á ný
og spyrnti á markið, en varnar-
maöur hljóp þá fyrir knöttinn,
breytti stefnu hans, hrökk í fæt-
urna á Grobbelaar sem var aö
hlaupa í mark sitt á ný. Skrúfaðist
af honum í netiö. Klaufamark, en
forysta Everton var þó afar sann-
gjörn.
Eftir markiö náöi Everton end-
anlega yfirhöndinni og haföi algera
ræða og liö Liverpool vægast sagt
yfirburöi. Trevor Steven, Adrian
Heath og Kevin Rathcliff voru allir
nálægt því aö bæta mörkum viö.
Liverpool reyndi ákaft aö sækja,
en án árangurs. Eitt sinn komst þó
Rush meö knöttinn inn í vítateig
Everton, en féll viö eftir samstuð
viö Garry Stevens. Leikmenn Liv-
erpool heimtuöu hástöfum víta-
spyrnu en dómarinn var á annarri
skoöun. Fleiri uröu mörkin því
ekki.
Metaðsókn var aö leiknum aö
þessu sinni og kom þaö vart á
óvart þar sem bæöi liöin eru frá
borginni Liverpool. Friöur og spekt
ríkti þrátt fyrir þaö á áhorfenda-
pöllunum og góöur andi sveif yfir
vötnunum. Liöin voru þannig skip-
uö:
Everton: Neville Southall, Gary
Stevens, Derek Mountfield, Kevin
Rathcliff, John Bailey, Trevor Stev-
en, Peter Ried, Paul Bracewell,
Kevin Richardson, Adrian Heath
og Graeme Sharpe. Andy Gray gat
ekki leikiö vegna meiösla.
Liverpool: Bruce Grobbelaar,
Phil Neal, Alan Hansen, Mark
Lawrenson, Alan Kennedy, Sam-
my Lee, John Wark, Ronnie Whel-
an, Steve Nicol, Kenny Dalglish,
lan Rush og Paul Walsh sem kom
inn á fyrir Lee á 53. mínútu.
Horfir ekki vel fyrir
Coppell og Cr. Palace
DEILDAKEPPNIN hefst í Englandi
um næstu helgi og augu margra
munu beinast að 2. deildar liöi
Crystal Palace. Þaö er vegna
þess að við stjórnvölinn þar er
yngsti framkvæmdastjóri ensku
knattspyrnunnar, hin vinsæli 28
ára gamli Steve Coppell, sem
gerði garðinn frægan með Man-
chester Utd. og ekki síst enska
landsliðínu. Coppell varð að
hætta knattspyrnu vegna þrálátra
meiðsla, en ekki er það auðveld-
ari þraut sem nú blasir við.
Coppell og aöstoöarmaöur
hans, lan Evans, standa frammi
fyrir erfiðu tímabili, ekki síst þar
sem þrír bestu leikmenn liösins
gengu úr rööum þess um þaö leyti
sem Coppell var aö taka viö. Var
mikil ólga og háværar yfirlýsingar í
kjölfarið á brottrekstri Alans Mull-
ery. Leikmennirnir, sem fernir eru,
eru Billy Gilbert varnarmaður sem
gekk til liðs við Portsmouth, Vince
Hilaire, sem fór til Luton og Kevin
Mabbutt, sem reyndar er ekki far-
inn, en hefur þrálátlega neitað aö
undirrita nýjan sanining og látiö
þess getið við 1. deildar félög aö
hann sé tilbúinn.
Coppell veit hvers er vænst af
honum, sjö framkvæmdastjórar
hafa ráöiö þar ríkjum síöustu átta
tímabilin, sá síöasti sat í stólnum í
aðeins 4 daga. Félagið er fjár-
hagslega illa á vegi statt og þaö
tekur sinn tíma aö byggja upp nýtt
lið er buröarásar þess hafa allir
horfið með tölu á einu bretti.
Coppell byrjaöi á því aö kaupa
Trevor Aylott frá Luton og hann
segist ósmeykur við væntanlega
glímu.
Punktar úr
ensku knatt-
spyrnunni
Enska 1. deildar liöiö Norwich
City hefur gert auglýsingasamn-
ing viö danska íþróttavörufyrir-
tækiö Hummel. Samningurinn er
til þfiggja ára og þóknun til
handa iiöinu veltur aö nokkru á
því hvernig gengur hjá því. Ef vel
gengur hjá Norwich, gæti félagiö
grætt allt aö 200.000 pund.
O O O O
Nokkrir minni háttar leik-
mannaflutningar hafa átt sér
stað síðustu daga. Everton hefur
fest kaup á markveröinum Barry
Daines sem árum saman hefur
vermt varamannabekkinn hjá
Tottenham. Undir þaö síöasta
haföi hann þó gefist upp á því og
lék knattspyrnu í Hong Kong.
O O O O
Varnarmaðurinn gamalreyndi,
Jeff Clarke, sem var lengst af hjá
Manchester City, æfir nú af kappi
meö Brighton. Ef hann spjarar
sig í æfingarleikjum mun 2. deild-
ar liöiö hafa áhuga á aö kaupa
hinn þrítuga Clarke.
O O O O
Keppni hófst á laugardaginn í
skosku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu. Úrslit leikja uröu sem hér
segir:
Celtic — Dundee Utd. 1 — 1
Dumbarton — Rangers 1—2
Dundee — Hibernian 0—1
Hearts — Morton 1—2
St. Mirren — Aberdeen 0—2
• Tony Barton.
Phil Neal, hinn leikreyndi
bakvöröur Liverpool, tók viö
fyrirliöastööunni úr höndum Gra-
eme Souness sem leikur í ítölsku
deildarkeppninni í vetur. Neal lék
á laugardaginn í 6. skiptiö í
„Charity Shield“-viöureign, en
það er met.
O O O O
Alls borguðu 99.000 áhorfend-
ur sig inn á Wembley-leikvanginn
í Lundúnum til aö sjá viöureign
Liverpool og Everton. Áhorfend-
ur voru því í raun yfir 100.000
talsins, en þaö er aösóknarmet á
þessum leikvangi.
O O O O
Tony Barton, fyrrum fram-
kvæmdastjóri hjá Aston Villa,
fékk hjartaslag fyrir skömmu.
Hann er á örum batavegi og
hlakkar til aö takast á viö ný
verkefni. Barton, sem var rekinn
frá Villa, hefur gert samning viö
4. deildarlið Northampton.