Morgunblaðið - 21.08.1984, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 21. ÁGÚST 1984
59
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
X-
Gefið unglingunum grið
I Skemmtistaðuriim Traffic:
„Unglingar eru engin dýr“
■ segir eigandi Traffic, Vilhjálmur Svan, en íbúar hverfisins
mótmæla og segja unglinga liggja ósjálfbjarga í áfengisvímu
sr-s
irtrrrt
:Es:
*
MM.
... ■> |.i M >
látMm n M. —.
1 —
:g:g
va-“i
yrtin.'ss
rsvt
* .fTff*** °*|l
u rfbrua
sr
ar.'Es
VÆJ
ClMM
líyss
,Mterly«i «m.
UllMltlMl
|A vCZ, S,
Grcinin í NT 3. ágúst sl. sem bréfritari á við.
Nigríður Hjaltesteð skrifar:
Kæri Velvakandi.
Föstudaginn 3. ágúst sl. birtist
grein í NT um skemmtistaðinn
Traffic þar sem rætt er við nokkra
íbúa í hverfinu þar sem skemmti-
staðurinn er til húsa (þ.e. við
Hlemmtorg). Þar lýsa þeir yfir
óánægju sinni með opnun staðar-
ins inni í miðju íbúðahverfi og
fara ófögrum orðum um gesti
hans. Einnig er í sömu grein rætt
við eiganda Traffic, Vilhjálm Svan
Jóhannsson, þar sem hann reynir
að bera í bætifláka fyrir unglinga
sem sækja staðinn. Það fyrsta sem
mér datt í hug þegar ég las grein-
inga var að nú ætti að taka
skemmtistaðínn Traffic af okkur.
Það verður að segjast eins og er
að unglingaskemmtistaðirnir hér í
borg eru það eina sem við ungl-
ingarnir höfum til að koma saman
og skemmta okkur. Við megum
greinilega ekki vera hvar sem er
lengur svo að einhvern samastað
verðum við að hafa. Ég er gestur í
Traffic á nær hverjum föstudegi
og það verð ég að segja að þar
ríkir alltaf mjög góður andi. Við
krakkarnir berum mjög mikla
virðingu fyrir staðnum, því þar
getum við skemmt okkur konung-
lega og gaman er að sjá alla
krakkana samankomna í sínu fín-
asta pússi því að í Traffic fyrir-
finnast engir sóðar.
í áðurnefndri grein í NT eru
sem fyrr segir stutt viðtöl við íbúa
við Hlemmtorg um skemmtistað-
inn Traffic. Þar kvarta þeir yfir
glerbrotum, rúðubrotum,
skemmdum bílum, unglingum í
áfengisvímu og mörgu fleiru. Er
þetta okkur öllum að kenna? Af
hverju er eiginlega ráðist á Traffic
út af þessu? Ég segi eins og Vil-
hjálmur Svan að það eru til fleiri
skemmtistaðir en þessi eini og það
er til fleira fólk sem er með ólæti í
bænum en unglingarnir.
Ef unglingarnir „liggja ósjálf-
bjarga í áfengisvímu" á víð og
dreif þá langar mig til að benda
áðurnefndum íbúm á það, að fylli-
raftarnir sem venja komur sínar í
biðskýlið við Hlemmtorg eru þeir
sem ósjálfbjarga eru og í áfengis-
vímu meira og minna alla daga.
Þetta hefur ekki farið fram hjá
mönnum, allra síst þeim sem búa
við Hlemmtorg.
í greininni segir m.a.: „Þá sögðu
íbúarnir að oft mætti sjá ungl-
ingana pissandi í skúmaskotum og
görðum í hverfinu, jafnvel kæmi
það fyrir að þeir hægðu sér á vel
völdum stöðum. Ég hef jafnvel séð
þá vera að eðla sig hérna fyrir
utan gluggann minn,“ sagði öldruð
kona í hverfinu."
Hvað eiga krakkarnir að gera ef
þeim verður skyndilega mál að
pissa? Ég er hrædd um að það yrði
skellt á nefið á þeim ef þeir bönk-
uðu upp á hjá íbúum þessum er
kvarta sem mest, og bæðu um
leyfi til að nota salernið.
Ég er alveg sammála Vilhjálmi
Svan um það að unglingunum er
alltaf kennt um allt, sama hvað
gerist, og allt það sem eyðilagt er í
grennd við Hlemmtorg er okkur
unglingunum úr Traffic kennt um.
Að lokum langar mig til að
biðja fullorðna fólkið, sem sífellt
er að kvarta undan unglinga„lýðn-
um“, að horfa í eigin barm. Því
ekki að beina athyglinni að ein-
hverjum öðrum skemmtistöðum
þar sem nóg er um svall og
skemmdarverk að manni skilst,
eða er það kannski ekki við hæfi
þar sem fullorðið fólk sækir þá?
Limra
misritaðist
í Velvakanda laugardaginn 11.
ágúst birtist limra að norðan eftir
Burkna en því miður reyndist hún
hafa misritast á einum stað.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum en svona er
limran rétt:
í Morgunblaði fékk ég fréttir litið:
Á fjöllum nyrðra væri of mikið bitið,
en sumir reka þó
ög segja að gras sé nóg,
það gengur úr sér Guðlaugsstaðavitið.
vegar sagt að „enginn sími væri í
Traffic". Þykir okkur það harla
ólíklegt og lýsir þessi framkoma
starfsfólksins í garð gesta sinna,
mikilli ósvífni og lélegri þjónustu.
Við gripum til þess ráðs að fá að
hringja á lögreglustöðinni, sem er
eins og kunnugt er í nánd við
Traffic. Þar sögðum við lögreglu-
þjónunum raunasögu okkur og þá
buðust nokkrir til að aka okkur
heim. Því miður var þó enginn bíll
inni á þessum tíma sólarhrings og
því urðum við að bíða i hálfa
klukkustund eftir að bíll yrði laus
og hægt væri að keyra okkur
heim. Þá var klukkan orðin hálf
fimm að morgni.
Við flytjum lögreglunni f
Reykjavík bestu þakkir fyrir að-
stoðina, án hennar hefðum við
ekki komist heim. Nú langar
okkur til að beina þeim fyrir-
spurnum til forráðamanna ungl-
ingastaðarins Traffic: Eiga þeir
ekki að sjá til þess að þeir krakkar
sem greitt hafa fúlgu fjár í að-
gangseyri og fyrir rútuferð heim,
fái notið þeirrar þjónustu?
diskó
Um íslenska
málvernd
Jón Helgason skrifar:
Víðkunni Velvakandi!
Viltu veita viðtöku volæðisvæli
vesalings?
Ég er, eins og svo margir, unn-
andi íslenskrar tungu og er því hér
með nokkrar athugasemdir varð-
andi íslenskt mál og það sem mér
fellur miður við það. Fyrst vil ég
nefna tvö orð, en og enn. Þau hafa
sitt hvora merkingu en eru þó yf-
irleitt borin fram sem væru þau
bæði með tveimur ennum. Er það
að vonum slæmt. Á þessu man ég
þó eina undantekningu. Helgi
Hannesson, sem var bæjarstjóri í
Hafnarfirði í nokkur ár, bar alltaf
fram orðin en og enn með þeim
hætti sem átti við.
í fréttum af slysum á mönnum
er oft sagt að viðkomandi hafi
slasast illa og langar mig í því
sambandi að benda á að enginn
slasast vel. Réttar þætti mér að
segja að viðkomandi hafi slasast
talsvert mikið, mjög mikið eða
lífshættulega. Tökuorðin kannski
og eitthvað skeði í gær, hafa
ævinlega farið fyrir brjóstið á mér
og veit ég að svo er um marga
aðra. Þá finnst mér orðin sökum
þess vera oft notuð á óviðeigandi
hátt s.s.: við fórum í útilegu en
urðum mjög óheppnir með veður.
Það gerði mikinn byl og frost en
við þoldum það sökum þess að við
vorum vel útbúnir. Betra hefði
verið að segja í þessu sambandi:
sem var því að þakka.
Að lokum langar mig til þess að
láta hér tvær vísur fylgja, sem ég
hef dálítið gaman af:
Kuldabólga
Þegar ég var innan til við tekt
var tíðum svalt í norðanhörkubáli.
Kuldabólgan var þá víða þekkt,
en verðbólgan ei til f okkar máli.
Verðbólga
Um verðbólgu í vítahring,
virðast flestir úti á þekju.
En hún er augljós afleiðing,
ágirndar og heimtufrekju.
\
Lækkið tekjuskatt-
inn í stað
kauphækkunar
Lífeyrisþegi hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
„Mig langar til að 'beina þeirri
fyrirspurn til stjórnvalda í fram-
haldi af allri umræðu um kaup-
hækkun láglaunafólks, hvort að
það hafi aldrei komið til greina að
lækka tekjuskatt sem tekinn er af
fólki, er svaraði þeirri upphæð
sem almenningur vill að kaupið
verði látið hækka um?“
INNRÖMMUNARSTOFA
ER TEKIN TIL STARFA AÐ
ÓÐINSGÖTU 3.(frímerkjaverslunin)
• ÖLL ALMENN INNRÖMMUN
• ÚRVAL RAMMAEFNA
• FLJÓT AFGREIÐSLA
• VÖNDUÐ VINNA
Slítþols-
prófun
áklæóa
hafinn
Norðurlanda-
meistarinn
í rúmasölu
er kominn aftur
Viö vorum aö fá sendingu af þess-
um vinsælu rúmum, tegund Anna í
Ijósri og lútaöri furu.
1
Ijós lútuó
8.290,- 8.570,-
9.410.- 9.870,-
10.740,- 11.390,-
12.490- 13.140,-
14.270,- 14.810,-
1.420,- 1.590,-
Takiö eftir veröinu
90x200 cm m/dýnum
100x200 cm m/dýnum
120x200 cm m/dýnum
140x200 cm m/dýnum
170x200 cm m/dýnum
Náttborö
Aðeins 3.000 kr■
úborgun
og 1.500 kr ■ á mánuöi.
Mundu, aö viö tökum greiöslukort sem
útborgun á afborgunarsamninga og aö
sjálfsögu sem staðgreiöslu.
HDSE4GN4HÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 • 110 REYKJAVfK « 91-81199 og 81410