Morgunblaðið - 03.11.1984, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1984
7
Hljóðræraleikararnir sem koma fram i tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í
dag. T.f.v. Martial Nardeau, Hrefna Eggertsdóttir, Helga Þórarinsdóttir, Nora
Kornblueh, Rut Ingólfsdóttir og Kjartan Óskarsson.
Kammermúsíkklúbburinn:
Fyrstu tónleikar á
þessu starfsári á
Kjarvalsstöðum í dag
Kammermúsíkklúbburinn heldur
sína fyrstu tónleika á starfsárinu {
dag, laugardag, á Kjarvalsstöóum og
hefjast þeir kl. 21.00. Fyrirhugað var
að halda þessa tónleika 21. október,
en af því gat ekki orðið, en efnis-
skráin verður sú sama og ráðgert var
að flytja þá. Þau verk sem leikin
verða eru eingöngu kammertónverk
eftir Mozart, Flautukvartett nr. 1 f
D-dúr, K. 285, Tríó fyrir klarinett,
Sýning á
myndum úr
samkeppni
Reykinga-
varnanefndar
NÚ STENDUR yfir f menningarmið-
stöðinni Gerðubergi á vegum Krabba-
meinsfélags Reykjavfkur, sýning á
veggmyndum og myndasögum úr
samkeppni þeirri sem reykingavarna-
nefnd efndi til meðal grunnskóla-
nema snemma á árinu 1983.
Myndirnar voru fyrst sýndar á
Kjarvalsstöðum í desember f fyrra
en síðan á Akureyri og í Vest-
mannaeyjum. Sýningin er nú
endurtekin í Reykjavík samkvæmt
sérstakri 6sk frá Félagi íslenskra
myndmenntakennara.
Allar myndirnar, sem eru á ann-
að hundrað talsins, snerta með ein-
hverjum hætti reykingavandamálið
en þær eru mjög fjölbreyttar bæði
um efni og vinnubrögð.
Sýningin í Gerðubergi stendur
yfir til 18. nóvember. Húsið er opið
almenningi mánudaga til fimmtu-
daga kl. 16—22 daglega og á laug-
ardögum og sunnudögum kl. 14—18.
víólu og píanó í Es-dúr, K. 498 (Keg-
elstatt) og Píanókvartett nr. 2 í Es-
dúr, K. 493. Flytjendur á tónleikun-
um verða Hrefna Eggertsdóttir (pf-
anó), Kjartan Óskarsson (klarinett),
Martial Nareau (flauta), Rut Ing-
ólfsdóttir (fiðla), Helga Þórarins-
dóttir (víóla) og Nora Kornblueh
(selló).
Kammermúsfkklúbburinn hóf
starfsemi sína áriðl957 og að sögn
Guðmundar W. Vilhjálmssonar er
þetta óformlegur félagsskapur
með um 200 meðlimi, sem sækja
tónleika reglulega. Einnig eru
seldir lausir miðar á tónleikana.
Guðmundur sagði að á hverju
starfsári væru haldnir 4—5 tón-
leikar og væri fyrst og fremst sóst
eftir því að fá íslenska hljóðfæra-
leikara. En hingað hefur þó verið
fenginn erlendur strengjakvartett
á eina tónleika á ári, þar sem eng-
inn slíkur er starfandi hér á landi.
Næstu tónleikar verða haldnir
nú í nóvember. Þeir verða helgaðir
blásturshljóðfærum og þar koma
fram hljóðfæraleikararnir Einar
Jóhannesson, Bernharður Wilk-
insson, Joseph Ognebene, Haf-
steinn Guðmundsson og Daði
Kolbeinsson. Anna Málfríður Sig-
urðardóttir leikur á píanó. Á efn-
isskrá tónleikanna eru Blaáara-
kvintett eftir Carl Nilsen, Sónata
fyrir flautu og píanó eftir Poulenc
og Kvintett fyrir píanó og blásara
eftir Beethoven.
í vor verða síðan tvennir tón-
leikar. Á þeim fyrri verður
strengjatríó. Þar koma fram þau
Guðný Guðmundsdóttir, Gunnar
Kvaran og Snorri Birgisson. En
síðar f vor kemur hingað þýski
strengjakvartettinn Sinnhoffer og
leikur á lokatónleikum Kammer-
músíkklúbbsins.
Sverrir Ólafsson, myndhöggvari, á sýningu sinni.
Sýningu Sverris Ólafs-
sonar lýkur um helgina
SVERRIR Ólafsson myndhöggvari Sverrir ólafsson hefur tekið þátt
hefur undanfarið sýnt 33 verk unnin á í fjölda samsýninga hérlendis og
árinu 1984 á Kjarvalsstöðum. Verkin erlendis, en siðast sýndi hann hér
eru bæði skúlptúrar og veggmyndir í heima i FlM-salnum. Sýningunni
stál, kopar og tré. lýkur nú 4. nóvember.
KAIIPIÐ
NÝJAN
LADA LUX
FULLBÚINN TIL VETRARAKSTURS
Á NEGLDUM SNJÓDEKKJUM
Verö
Afsláttur
kr. 236.642,00 m/negldum snjódekkjum
kr. 16.764,00
Bifreiðar &
Sifelld þjonusta Landbúnaðarvélar hf.
SUÐURLANDSBRAUT 14, SÍMI 38600
Söludeild sími 312 36