Morgunblaðið - 03.11.1984, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 03.11.1984, Blaðsíða 48
OPIÐALLA DAGA FRÁ KL. 11.45-23.30 AUSTURSTRÆTI22 INNSTRÆTl, SlMI 11633 SDfcÐFEST lÁNSTRAUST LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Sterk hass- lyktin gaus upp úr ferða- töskunni 2Vi kíló af hassi blöstu við tollvörðum STERK hasslykt gaus upp úr ferAatösku 23 ára gamals Reyk- víkings þegar tollverAir á Kefla- víkurflugvelli opnuAu tösku hans í fyrrakvöld. f töskuna hafAi maAur- inn raAaA hassplötum, alls um 2Vi kílói. Engin tilraun hafAi veriA gerA til þess aö hylja hassið, eða pakka því inn. Virðist sem maður- inn hafi vonast til að verkfall BSRB sUeði enn þegar til landsins kæmi og tollskoðun því í lág- marki. Fíkniefnadeild lögreglunnar gerði kröfu um gæsluvarðhald yfir manninum og var hann úr- skurðaður í 11 daga gæsluvarð- hald í Sakadómi í ávana- og fíkniefnamálum i gær. Maður- inn var að koma til landsins frá Amsterdam. Hann hefur ekki áður komið við sögu fíkniefna- mála hér á landi. Hreyfing kom- in á viðræður ASÍ/ VSÍ NOKKUR hreyfing komst á samn- ingaviðreður Vinnuveitendasam- bands íslands og aðildarsambanda ASÍ á átta stunda löngum samninga- fundi í gær. Fundinum var frestað kL 18 í gærkvöld þar til kl. 16 í dag, að sögn Asmundar Stefánssonar, forseta ASÍ. Hann sagði í samtali við blaða- mann Mbl., að drjúgur hluti fund- artimans í gær hefði farið í athug- un á tillögu að kjarasamningi, sem VSÍ hefði sett fram. Þeirri hug- mynd hefði síðan verið svarað og óskað eftir nánari útfærslu ým- issa atriða. Vinnuveitendur hefðu þá óskað eftir fresti til að gera útreikninga og athuganir. „Það sér ekki fyrir endann á þessum viðræðum," sagði Ásmundur, „en við höldum áfram yfir helgina." Samningamenn úr báðum hóp- um, sem Mbl. hefur rætt við, telja að væntanlegir samningar hljóti að verða í anda þeirra samninga, sem gerðir hafa verið að undan- förnu. Horgunblaðið/Sig. Sigm. Bjöllusauður í Hrepparéttum Eiríkur Kristófersson á Grafarbakka í Hrunamannahreppi á þennan myndartega bjöllusauð. Þetta er forystusauður mikill, svartarnaugull að lit og vaninhyrndur með bjöllu. Eirikur sagðist samt oft hafa ætlað að fella hann en þá hefði hann ævinlega gert einhverjum bölvun og hann því umsvifalaust sett hann á aftur. t hitteðfyrra heimtist hann til dæmis í 3. leit hjá Flóamönnum. Einn leitarmaður kom að honum þar sem hann var einn að þvælast. Maðurinn var líka einn en náði honum með aðstoð tveggja hunda. Batt hann sauðinn með belti sínu þar sem hann hafði ekkert annað tiltækt en þurfti svo að ná í hesta sína. Sauðurinn sleit beltið af sér á meðan og skyldi það eftir í tvennu lagi þannig að leitarmaður- inn gat ekki hlaupið á eftir honum með buxurnar á hælunum. Er eftir þetta sagt að sauðurinn hafi náð af honum buxunum. Mokveiði á loðnu- miðunum MOKVEIÐI hefur verið á loðnumið- unum síðustu sólarhringa og síðdeg- is í gær var allur flotinn við löndun eða á leið inn. I gær tilkynntu 13 skip um afla samtals 9.300 lestir og sólarhringinn áður voru þau 24 með 18.000 lestir. Alls eru nú um 127.000 lestir komnar á land. Andrés Finnbogason hjá Loðnu- nefnd sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að þetta væri mesta veiði þessarar vertíðar, nú vantaði bara fleiri skip, um hádegið hefði ekkert loðnuskip verið á miðunum. Nú væru tvö skip, Grindvíkingur og Pétur Jónsson, á leið til Fær- eyja með afla og Hilmir SU væri nýbúinn að landa í Danmörku. Því hefði nú loðnu alls verið landað 6 sinnum erlendis. Mestur afli á þessum tima var út af Horni, en einnig hefur loðna veiðzt út af Vestfjörðum og út af Norðurlandi. Fékk torkenni- legan hlut í vörpuna VÉLBÁTURINN Helgi S. kom inn til Keflavíkur síðdegis í gær með torkennilegan hlut sem hann fékk í vörpuna 1 gær. Sprengisérfræðingur frá Land- helgisgæslunni fór til Keflavík- ur til að rannsaka hlutinn en niðurstöður hans lágu ekki fyrir þegar Mbl. fór í prentun í gærkvöldi. Er helst talið að þetta hafi verið sprengja, lík- lega djúpsprengja, frá stríðsár- unum. Hampiðjan íhugar að setja upp verksmiðju í Kanada STJÓRN Hampiðjunnar hefur nú til athugunar að sækja um að setja upp veiAarfæraverksmiAju I Burin á Ný- fundnalandi. YrAi það háð þeim skil- yrAum, að þarlendur styrkur vegna stofnkostnaðar fáist og verksmiðjan verði í meirihlutaeigu Hampiðjunn- ar. Vitað er um tvö kanadísk fyrir- tæki, sem sótt hafa um leyfi þarna. TaliA er að markaðshlutdeild Hamp- iðjunnar í Kanada, sem er veruleg, sé í hættu, setji hún ekki upp verk- smiðju á þessu svæði. Stærsti viðskiptavinur Hamp- iðjunnar í Kanada er sjávar- útvegsfyrirtækið Fishery Pro- ducts International á Nýfundna- landi. Morgunblaðið náði tali af Bifreið út af bryggju í Grindavíkurhöfn (•ríadaTÍk, 2. ■ÓTember. f dag rann bifreið út af bryggju í vesturhöfninni í Grindavík sem nefnd er Svíragarður og sex metra niður í sjóinn. ökumaðurinn, sem jafnframt er eigandi bifreiðarinnar, var Sigurð- ur Halldórsson, 17 ára gamall skipverji á Mb. Hrafni Svein- bjarnarsyni III. Sigurður kveðst hafa ekið niður á bryggju um klukkan 15.40 og ætlað að skipi sínu sem þar lá við trébryggju. Talsverð hálka var á bryggjunni. Bíllinn snerist, fór fram af bryggjukantinum, vó þar salt og steyptist að lokum í sjóinn. Sig- — urður kveðst hafa spyrnt upp '■% hurðinni og náð að komast út, en hann hefði fest sig í bíldyrunum þegar bíllinn fór að sökkva vegna þrýstings, en þó tekist að losa sig þegar bíllinn var kominn hálfa leið niður og synda upp að bryggj- unni þar sem nærstaddir komu að og hjálpuðu honum upp á bryggj- una. Nokkur hrollur var í Sigurði en hann bar sig vel þó kaldur væri, enda kominn í þurr ullarföt. — Guðfinnur. aðstoðarframkvæmdastjóra fyrir- tækisins, Joseph Moulton. Sagði hann fyrirtækið hafa keypt öll sín veiðarfæranet frá Hampiðjunni síðan 1978 enda væru þeir mjög ánægðir með þá framleiðslu. Nú væru 52 skuttogarar í eigu fyrir- tækisins og 12 síðutogarar. Það væri nú mikill vilji fyrir því hjá fyrirtækinu, að Hampiðjan setti upp verksmiðju á Nýfundnalandi, bæði til að auka atvinnu þar og eins til að draga úr landfræðilegri fjarlægð milli fyrirtækjanna. Gunnar Svavarsson, forstjóri Hampiðjunnar, sagði í samtali við Morgunblaðið, að það væru kröfur að vestan um að þessi verksmiðja yrði reist þar. Af og til seinni árin hefðu komið upp hugmyndir og kvaðir frá FPI um að eitthvað af netunum yrði unnið á Nýfundna- landi. Væri þá aðallega hugsað um stað, sem héti Burin, en þar væri nú atvinnuleysi í kjölfar þess, að FPI hefði lagt niður fiskvinnslu- stöð þar. Niðurstaða könnunar, sem fyrirtæki á vegum stjórn- valda í Kanada gerði væri sú, að á þessu svæði væri heppilegast að byggja upp atvinnu tengda sjávar- útvegi og kæmi þá veiðarfæra- verksmiðja helzt til greina. Það lægi fyrir nú, að netaverksmiðja yrði sett upp á staðnum, spurning- in væri bara hver gerði það. Tveir aðilar hefðu þegar sýnt áhuga. Hampiðjan stæði þannig frammi fyrir því, að eiga á hættu að glata stöðu sinni á kanadíska veiðarfæramarkaðnum, hafnaði hún alfarið beiðni heimamanna. Hugsanlegt væri að fyrirtækið sækti um á móti hinum tveimur um styrk og leyfi til að setja upp verksmiðju. Yrði af þessu, myndi öll framleiðsla verða að vera á staðnum og gætu þá framkvæmdir hafizt seint á næsta ári. Um 30 manns myndu starfa við verk- smiðjuna, en til samanburðar mætti geta þess, að í Hampiðjunni störfuðu að jafnaði um það bil 180 manns. Með því að reisa þarna netaverksmiðju gæti opnazt markaður fyrir aðrar vörur Hampiðjunnar, sem ekki væru á kanadíska markaðnum nú. Það gæti vegið upp á móti missi þeirra atvinnutækiíæra, sem flyttust úr landi. Einnig væri nú unnið markvisst að öflun nýrra mark- aða, þannig að litlar líkur væru á fækkun starfsgilda í Hampiðjunni þó svo að af þessu yrði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.