Morgunblaðið - 03.11.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 1984
37
fclk í
fréttum
Niels Macholm, saxófónleikari, með Eyþóri Gunnarssyni.
„Eldfjallaeyjan ísland
gýs einnig góðri tónlist"
- segir danska blaðið B.T. um hljómsveitina Mezzoforte
+ „Það má segja margt og mikið
um ísland en eitt er víst, að þaðan
hefur komið mikil músík að und-
anfornu fyrir milligöngu hljóm-
sveitarinnar Mezzoforte, sem verð-
ur með hljómleika i Saga á mið-
vikudagskvöld. Hljómsveitin hefur
oft verið á listanum yfír 30 vinsæl-
ustu lögin og selt hér um 20 þús-
und eintök af síðustu breiðskíf-
unni sinni.“ Þannig byrjar frásögn
af Mezzoforte í danska blaðinu BT
sl. þriðjudag en þar er m.a. rætt
við Eyþór Gunnarsson, einn
hljómsveitarfélaganna.
„Við flytjum þessa tónlistar-
tegund, leikna tónlist án söngs,
vegna þess, að hún er óháð öllum
tungumálum. Síðasta árið höf-
um við haldið um 130 hljómleika
víða um heim, m.a. i Japan og
um alla Evrópu, og haldið til á
hótelum eða langferðabílum. Til
skamms tíma höfðum við fast
aðsetur í Englandi en nú erum
við aftur komnir heim til ts-
lands,“ segir Eyþór Gunnarsson.
Eyþóri líkar það að sjálfsögðu
vel hve tónlist hljómsveitarinn-
ar fellur mörgum vel í geð enda
hefur plötusalan gert þeim kleift
að lifa eingöngu af leiknum í
hálft annað ár. Meðalaldurinn i
hljómsveitinni er 22—24 ár.
„Ég byrjaði að spila á pianó
átta ára gamall og foreldrar
mínir hafa alltaf stutt við bakið
á mér. Þeir kunnu lika að meta
jazz þannig að þeim kemur fátt á
óvart i þessari tónlistartegund,"
segir Eyþór, sem býr með unn-
ustu sinni, sem er söngkona, og
þriggja ára gamalli dóttur
þeirra. „Ég vona, að ég hafi
fundið rétta veginn milli hljóm-
sveitarlífsins og fjölskyldu-
lífsins," segir hann.
Á fslandi er Eyþór þekktur
sem frægur hljómlistarmaður en
þar er hann aldrei beðinn um
eiginhandaráritun. Fólk stingur
hins vegar saman nefjum þegar
það sér hann á götu og Éyþór
lætur sér það vel líka. Astæðan
fyrir því, að Mezzoforte fluttist
aftur heim til fslands er m.a.
skattarnir en plöturnar verða
eftir sem áður teknar upp í
Englandi.
Fyrir hálfum mánuði fékk
Mezzoforte til liðs við sig dansk-
an saxófónleikara, Niels Mac-
holm, og kveðst hann vera mjög
ánægður með vistina. „Tónlistin,
sem Mezzoforte flytur, er ein-
mitt tónlistin mín,“ segir Niels.
COSPER
— Hvort ég kunni á ritvél? Þetta er nú í fyrsta skipti, sem ég er
spurð að því.
+ Paul Eddington, sem margir
muna eftir úr þáttunum „Já, hr.
ráðherra**, er ekki verr við
nokkurn hlut en tóbaksreyk-
ingar. Nú nýlega var honum
boðið gott hlutverk hjá leikhúsi
nokkru en þegar hann komst að
því að tóbaksfyrirtæki fjár-
magnaði leikhúsið að hluta
sagði hann þvert nei.
Hef flutt
tannlæknastofu mína á Grensásveg 48.
Kristján H. Ingólfsson
tannlæknir.
Hin heimsþekktu
Steinway og Son
píanó og flyglar.
Pálmar ísólfsson og Pálsson sf.,
símar 30392 — 15601 — 30457.
RESTAURANT
arðurinn
Öm Arason leikur
klassískan gitarleik
fyrir matargesti í Húsi
verslunarinnar viö
Kringlumýrarbraut.
Borðapantanir
í síma 3<
rj 11
V
» Husi i't rslunannnar riö KnnglumumrOravt
\
Viötalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
______ Reykjavík
Viötalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæöisflokksins
í Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstaaölsflokkslns veröa tll viötals í Valhöll, Háaleit-
isbraut 1, á laugardögum frá kl. 10—12. Er þar tekiö á mótl hvers
kyns fyrirspurnum og ábendlngum og er öllum borgarbúum boöiö aö
Blaóburóaifólk
óskast!
, eftirtaiin hverti: Qrafarvogshverfi
Skeifunni