Morgunblaðið - 14.11.1984, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÖVEMBER 1984
3
Vestmannaeyjan
Þurfti að sæta lagi
í innsiglingunni
Vextmannaejjnm, 13. néTember.
LOÐNUSKIPIÐ Sigurður
RE hefur oft komið færandi
hendi til hafnar í Vest-
mannaeyjum drekkhlaðið
loðnu, en skipið hefur landað
hér öllum afla sínum undan-
farnar loðnuvertíðir hjá
Fiskimjölsverksmiðju Einars
Sigurðssonar. Á dögunum
kom Sigurður með rétt tæp-
lega 1.400 tonn af loðnu og
varð skipið að sæta lagi með
að sigla inn í höfnina því svo
hlaðið var skipið. Sigurgeir
Jónasson tók þá þessa mynd.
Hjá FES hefur nú verið
tekið við 10.600 tonnum af
loðnu á þessari vertíð. — hkj.
Verður efna-
innihald
mjólkur
staðlað?
Rætt um að auka áherslu
á eggjahvítuinnihald
Nautgriparæktarmenn hafa að
undanfórnu veríð að huga að huga-
anlegum breytingum á framleiðslu-
stefnu mjólkur. Sérstaklega hefur
komið til athugunar hvort staðia
ætti mjólkina og leggja aukna
áhershi á eggjahvítuinnihald henn-
ar.
ólafur E. Stefánsson, naut-
griparæktarráðunautur Búnað-
arfélags íslands, sagði i samtali
við blm. Mbl. að þetta mál hefði
komið til umræðu í kynbóta-
nefnd Búnaðarfélagsins sem
ákveðið hefði að leita álits hjá
Framleiðsluráði, sem færi með
yfirstjórn framleiðslumálanna, á
því hvernig haga bæri kynbóta-
starfinu með tilliti til efnainni-
halds mjólkur. Sagði hann að
með stöðíun mjólkur væri átt við
að öll mjólk sem á markað færi
væri með ákveðnu efnainnihaldi.
Sagði ólafur að hann teldi það
koma vel til greina að taka hluta
fitunnar úr mjólkinni og nota
umframfituna i smjör og lækka
þannig smjörverðið. Þá sagði
Ólafur að mjög vel kæmi til álita
að leggja aukna áherslu á eggja-
hvítuinnihald mjólkurinnar í
ræktunarstarfinu þar sem eggja-
hvítan væri orðin töluvert verð-
mætari en fitan. Nú væru til
mælingatæki sem gerðu það
mögulegt að leggja áherslu á
eggjahvítuinnihald mjólkur í
ræktunarstarfinu.
Viðgerðin á Klakk
tekur 2 mánuði:
Tjónið metið
á 20 til 22
milljónir kr.
ÁÆTLAÐ er að viðgerð á skuttog-
aranum Klakk VE, sem valt við sjó-
setningu í skipasmíðastöð í Cux-
haven í síðustu viku, kosti 20 til 22
milljónir kr. og að hún taki tvo
mánuði.
Gísli ólafsson, forstjóri Trygg-
ingamiðstöðvarinnar hf., trygg-
ingafélags útgerðarinnar, sagði í
samtali við blm. Mbl. þeir teldu
að skipasmiðastöðin bæri ábyrgð
á óhappinu þar sem það hlyti að
hafa orðið vegna mistaka þeirra.
Gísli sagði að í dag, miðvikudag,
mætti búast við að mál skýrðust
varðandi ástæður óhappsins.
hentar vaxandi
fyrirtækjum
„Litla S/36“ tölvan hefur notiö mikilla
vinsælda frá því aö hún var sett á
markaðinn. Ástæöan er aö sjálfsögðu sú, aö
„Litla S/36“ er mjög fjölhæf og uppfyllir þarfir
fyrirtækja af öllum stærðum.
Einn helsti kostur hennar er hversu vel
hún fellur inn í stór tölvukerfi og hentar
þess vegna fyrirtækjum sem hafa dreifða
gagnavinnslu. Einnig má tengja margar
IBM PC einkatölvur viö „Litlu S/36“ og auka
þannig vinnslurými þeirra.
Stækka má „Litlu S/36“ eftir því sem
tölvuþörfin vex. Allan hugbúnaö sem
gerður er fyrir „Litlu S/36“ má nota óbreyttan
fyrir stórar S/36 tölvur. Þessi hugbúnaður er
mjög fjölbreyttur og svarar þörfum flestra
atvinnugreina.
Það er auðvelt að vinna með „Litlu
S/36“. Engar skipanir þarf að gefa, heldur
starfar hún samkvæmt verkseðlum.
Kerfisfræöings er ekki þörf til aö hagnýta sér þessa skemmtilegu tölvu.
Unnt er að tengja 22 skerma eða prentara við „Litlu S/36“. Eins eru tengimöguleikar um
símalínur. Tölvan vegur ekki nema 72 kg og þegar hún hefur verið sett á sinn stað, þá tekur aöeins 45
mínútur aö setja hana í gang og lesa inn stjórnforritin.
Þú ættir að kynna þér kosti „Litlu S/36“ frá IBM. „LitlaS/36“ertölvasemhentarvaxandi
fyrirtækjum.
ÍSLENSK ÞEKKING-ALÞJÓÐLEG TÆKNI
Skaftahlíð 24 105 Reykjavik Sími 27700