Morgunblaðið - 14.11.1984, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
ALCAN-menn:
Til við-
ræðna
um um-
hverfis-
mál
ÞRÍR fulltrúar frá ALCAN-álsam-
steypunni í Kanada eru væntanlegir
til landsins í næstu viku til viöræðna
við íslensk stjórnvöld um hugsan-
lega byggingu álvers við Eyjafjörð.
Að sögn Hermanns Sveinbjörnsson-
ar, deildarstjéra í iðnaðarráðuneyt-
inu og ritara stóriðjunefndar, mun
sendinefndin einkum ræða þá þætti
málsins, er lúta að umhverfismálum,
og væri hér um að ræða lokaþáttinn
í þeim kynningarviðræðum sem átt
hefðu sér stað milli ALCAN-sam-
steypunnar og íslenskra stjórnvalda.
I sendinefndinni eru Murray
Lester orkuforstjóri ALCAN,
Patrick Rich yfirmaður Evrópu-
deildar ALCAN, og Margareth
Kerr sérfræðingur fyrirtækisins í
umhverfismálum. Munu þau fara
norður í Eyjafjörð til viðræðna við
aðila þar og verður einkum rætt
um umhverfismál í tengslum við
hugsanlega byggingu álvers við
Eyjafjörð, en af hálfu innlendra
aðila taka m.a. þátt i þessum við-
ræðum fulltrúar frá Náttúru-
verndarráði, Hollustuvernd ríkis-
ins, Staðalsnefnd og fleiri aðilar
sem láta umhverfis- og náttúru-
vernd til sin taka.
Hermann Sveinbjörnsson sagði,
að viðræður við ALCAN-álsam-
steypuna væru enn á kynningar-
stigi, og mætti segja að hér væri
um að ræða lokaþátt þeirra kynn-
ingarviðræðna, með þeirri um-
fjöllun um umhverfis- og náttúru-
vernd, sem nú væri fyrirhuguð. í
sumar fór sendinefnd úr Eyjafirði
til Kanada í boði ALCAN til að
kynna sér starfsemi fyrirtækisins
og að sögn Hermanns dvinaði
mjög ótti manna við umhverfis-
spjöll eftir þá ferð. önnur ferð
héðan á vegum ALCAN er fyrir-
huguð á næsta ári. Hermann benti
einnig á, að í sendinefndinni nú
væri Evrópuforstjóri fyrirtækis-
ins, enda myndi álver við Eyja-
fjörð, ef úr yrði, framleiða fyrir
Evrópumarkað, og væri hann því
kominn til að kynna sér aðstæður
hér. Hermann sagði að samninga-
gerð sem þessi tæki langan tima
og ef af samningum við ALCAN
yrði, væri ekki reiknað með að
nýtt álver við Eyjafjörð risi fyrr
en í fyrsta lagi um eða eftir 1990.
Albert til
yfirheyrslu
hjá RLR
ALBERT Guðmundsson, fjármála-
ráðherra, hefur verið boðaður til yf-
irheyrslu hjá Rannsóknarlögreghi
ríkisins vegna rannsóknar á atburði,
sem átti sér stað þegar radíóeftirlitið
ásamt lögreglunni í Reykjavík fóru
fram á að leita í húsi Sjálfstæðis-
flokksins að Háaleitisbraut 1. At-
burðurinn átti sér stað á meðan
verkfal) BSRB stóð yfir. Radíóeftir-
litið taldi sig hafa miðað út send-
ingar „Frjáls útvarps" úr húsi Sjálf-
stæðisflokksins.
Kjartan Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, hefur einnig verið boðaður til
yfirheyrslu vegna rannsóknarinn-
ar, en hann hefur áður verið kall-
aður fyrir. RLR sendi gögn máls-
ins til embættis ríkissaksóknara
fyrir nokkru. Ríkissaksóknari bað
um framhaldsrannsókn og að þeir
Albert og Kjartan gæfu skýrslu
um málið.
Menntamálaraðuneytið:
Fræðslustjórum
upp kennslutap
„RÁÐUNEYTIÐ mun beita sér fyrir því að reynt verði að einhverju leyti
að bæta nemendum á grunnskólastigi það kennslutap sem varð vegna
verkfalls BSRB með því að heimila fræðslustjórum, að nota hálfa til eina
kennslustund á hvern grunnskólanemanda til stuðningskennslu á skóla-
árinu,“ sagði Sólrún Jensdóttir, skrifstofustjóri í Menntamálaráðuneyt-
inu, í samtali við Morgunblaðið í gær. Sólrún sagði ennfremur, að þessar
ráðstafanir hefðu ekki í för með sér kostnaðaraukningu frá því sem
áætlað var, ef litið væri á skólaárið í heild, þar sem launagreiðslur hefðu
fallið niður til kennara á meðan á verkfallinu stóð.
Ákvörðun um þessar ráðstaf-
anir var tekin í samráði við
fræðslustjóra, sem hafa fjallað
um þessi mál að undanförnu.
Sólrún gat þess, til nánari út-
skýringar, að ef dæmi væri tekið
af skóla með 400 nemendum
gætu þetta orðið 400 stundir á
viðkomandi skóla, en fræðslu-
stjórar fjalla um, hvernig tím-
unum er ráðstafað, enda getur
það verið misjafnt eftir skólum
hvar þörfin er mest. Aðspurð
sagði Sólrún, að ekki væri í ráði
að lengja skólaárið fram á vorið
og ekki heldur áætlanir um að
kenna á laugardögum í grunn-
skólunum, þótt hins vegar væri
hugsanlegt að þessar viðbótar-
stundir yrðu kenndar á laugar-
dögum, en ákvörðun um það er
alfarið í höndum viðkomandi
heimilt að bæta
í verkfallinu
fræðslustjóra og skólayfirvalda.
Varðandi samræmdu prófin
sagði Sólrún, að ákveðið hefði
verið á síðasta skólaári, að í ár
yrðu þessi próf í maíbyrjun, en
áður höfðu þau verið þreytt í
febrúar. Sólrún sagði að ekki
væri fyrirhugað að breyta þess-
ari ákvörðun og yrðu samræmdu
prófin því þreytt í byrjun mai,
eins og ákveðið hafði verið enda
breytti verkfallið engu þar um.
Þessi tímasetning á prófunum
var ákveðin með hliðsjón af því
að allir nemendur á landinu
gætu þreytt þau á sama tíma, en
eins og kunnugt er starfa sumir
skólar úti á landi í átta mánuði,
þ.e. kennslu lýkur í lok apríl.
Prófin eru sem sagt færð aftur á
skólaárið, en námsefnið til próf-
anna var ekki aukið að neinu
marki nema í stærðfræði. Sagði
Sólrún að námsefni í stærðfræði
yrði endurskoðað í ljósi þess
kennslutaps, sem varð í verkfall-
inu.
Hvað varðar framhaldsskól-
ana sagði Sólrún að aðstæður
þar væru mismunandi, enda
misjafnt eftir skólum hversu
lengi kennsla lá niðri. Lausn á
þessu máli yrði því að finna mið-
að við aðstæður í hverjum skóla
fyrir sig, en nokkrir fram-
haldsskólar hafa ákveðið að taka
upp laugardagskennslu á þessari
önn og próf færast yfirleitt fram
yfir áramót, eða a.m.k. úrvinnsla
þeirra.
Atyikið yfir Osló:
Tveir flugumferðarstjórar á
Fornebu leystir frá störfum
Frá J*n Erik Laure, frétUriUra MbL f Noregi.
TVEIR flugumferðarstjórar á Fornebu-flugvelli í Osló hafa verið leystir fr
á störfum á meðan norska loftferðaeftirlitið rannsakar atvikið, sem átti
sér stað 25. október sfðastliðinn þegar litlu munaði að Boeing-þota
Flugleiða og SAS-þota rækjust saman yfir Osló. Anders Löhne, yfirflug-
umferðarstjóri á Fornebu, segir að Ijóst sé að öryggi flugvélanna hafi
verið stefnt í voða, þó erfitt verði að dæma um hver fjarlægðin milli
flugvélanna hafi í raun verið þegar hún var minnst.
Upptökur af samtölum milli
flugturns og beggja flugvélanna
hafa verið sendar til norska loft-
ferðaeftirlitsins og flugstjóri
SAS-þotunnar hefur þegar gefið
skýrslu um atvikið. Hann telur
að fjarlægðin milli flugvélanna
hafi aðeins verið um 800 metrar
í um 1.000 feta hæð, en þá voru
þær á um 500 kílómetra hraða.
Nú fer í hönd víðtæk rannsókn
á atvikinu. Loftferðaeftirlitið
mun safna gögnum í málinu og
er talið að niðurstöður rann-
sóknarinnar liggi fyrir eftir um
sex mánuði. Þá liggi ljóst fyrir
hvort einhver þeirra aðila sem i
hlut eiga, hafi brotið i bága við
öryggisreglur.
Rolf Skrede, formaður Félags
norskra flugmanna, sagði í dag
að enginn dómur hefði verið
kveðinn upp þó flugumferðar-
stjórarnir hefðu verið leystir frá
störfum um stundarsakir. Hann
bendir á að það sé alvanalegt
erlendis að leysa flugumferða-
stjóra frá störfum í kringum-
stæðum sem þessum og Norð-
menn eigi að taka upp slík
vinnubrögð.
Tveir aftrir flugumferðar-
stjórar leystir frá störfum
Tveir aðrir flugumferðarstjór-
ar hafa verið leystir frá störfum
vegna atviks, sem átti sér stað
þann 6. nóvember síðastliðinn
þegar litlu munaði að tvær
norskar flugvélar rækjust sam-
an á leiðinni milli Haugasunds
og Bergen.
Alls hafa norska loftferðaeft-
irlitinu borist á síðastliðnum
fimm árum 77 tilkynningar um
að öryggisreglur hafi verið
brotnar, en í flestum tilvikum
var lítil hætta á ferðum. övind
Kristiansen, yfirmaður norska
loftferðaeftirlitsins, segir að
héðan í frá verði það regla að
flugumferðarstjórar verði leyst-
ir frá störfum ef öryggisreglur í
flugi verði brotnar og verði því
flugmenn og flugumferðarstjór-
ar settir undir sama hatt hvað
þetta snertir. „Með þessu er ég
ekki að taka afstöðu í þessu til-
tekna máli, heldur aðeins að
benda á hve alvarlegum augum
svona atvik eru litin," sagði
Kristiansen.
Morgunblsðið/Júllus.
Gullinbrú vígð
Gullinbrú yfír Grafarvog var formlega opnuft fyrir umferft í gær. Á myndinni má sjá Davíft Oddsson borgarstjóra þegar hann klippti á
borftann.