Morgunblaðið - 14.11.1984, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
1984
r
Amánudagskveldið var birtist
á skjánum harla merkileg
mynd, er rakti tengsl milli lifsfer-
ils breska rithöfundarins George
Orwell og frægasta hugverks hans
er ber heitið 1984. Nefndist mynd-
in „The Road to 1984“ eða : Kveikj-
an að 1984. Sá er hér stýrir penna
hafði sérstaka ánægju af þesari
mynd, kannski í og með vegna
þess að hann hefir þann heiður, að
fjalla um bókina i bókmennta-
áfanga í ónefndum framhalds-
skóla. Er undirritaður þeirrar
skoðunar að fá verk séu verðari
umfjöllunar í skólakerfinu, en ein-
mitt 1984, þvi þar er bent á flestar
þær hættur er steðja að lýðræð-
inu, leynt og ljóst. Hér er eigi
vettvangur að fara frekar út í
þetta mál, en bið menn að hafa
hugfast, að það er alls ekki sjálf-
gefið, að komandi kynslóðir hafi
jafnmikla trú á lýðræðinu og alda-
mótakynslóðin. Vegur Alþingis
hefir eigi farið vaxandi hin sið-
ustu ár og hvað gæti ekki gerst á
voru góða landi ef löggjafarvaldið
gæfist upp fyrir framkvæmda-
valdinu? Sumir virðast jafnvel lita
svo á, að lagasetning sé óþörf, hún
hefti aðeins athafnafrelsi manna.
En eftir hverju eiga menn að fara
þegar engin er lagasetningin, eðl-
isávisun máski eða þeim upplýs-
ingum er birtast á tölvuskjá?
Ríki siðlausra
Ég er ansi hræddur um að það
ríki, er ekki styðst við markvissa
lagasetningu formyrkvist og sið-
lausir menn gangi þar fljótlega á
rétt hinna er hógværari teljast.
Hinir siðlausu munu svo með tíð
og tima rotta sig saman og efla
tök sín og áhrif, og þá er stutt í
Stóra bróður. í bók Orwell um
1984 er hvað eftir annað bent á
þessa hættu, setningin: ... Eins
og venjulega var ekki til neinn
lagabókstafur sem bannaði
mönnum .... er eins og stef í
þeim texta. Þar með gefur Orwell
í skyn að hið siðaða samfélag risi
á tungunni, hún er sverð og
skjöldur hins almenna manns
gagnvart valdhafanum. Það er þvi
kannski ósköp eðlilegt að hinir
siðlausu i 1984 ráðist að sjálfu
tungumálinu, tjáningarmynstri
hugsunarinnar og reyni að búa til
nýtt tungumál er þeir nefna: Ný-
lensku, en hún skal byggjast á orð-
um er gjarnan hafa tvær andstæð-
ar merkingar. Orðið „svarthvítur"
er gott dæmi um eitt slikt ný-
lenskt hugtak.
Tvíbent árás
Ég hef séð þeirri skoðun haldið
fram, að i 1984 sé Orwell i senn að
ráðast á kommúnisma og kapital-
isma. Að hann byggi bókina að
nokkru á skáldsögu rússneska rit-
höfundarins Jevgeni Zamjatin
(1884—1937) er nefndist „Við“ og
fjallaði um óhugnanlegt framtíð-
arríki, en sumir hafa túlkað sem
framtiðarspá bolsévikum til
handa, en bókin er rituð um 1920.
Ég held að ekki leiki nokkur vafi á
því að Orwell ráðist á bolsa i 1984.
Ekki er nóg með að höfuð átaka-
menn verksins, Goldstein og Stóri
bróðir, séu lifandi eftirmyndir
þeirra Trotskí og Stalins, hugs-
anagangur flokksmanna f Eyja-
álfu er allur mjög i stíl hreinrækt-
aðra bolsjevíka. En Orwell lætur
ekki staðar numið við Bolsa í 1984,
hann ræðst og á kúgun undirstétt-
anna „prólanna", sem haldið er
niðri með nægu magni ómerkilegs
vitundarfóðurs.
Og segiði svo að þessi bók sé
ekki umhugsunarverð á því herr-
ans ári, sem kennt hefir verið við
George Orwell.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Andrea Jónsdóttir
Úr
kvenna-
búrinu
■■i Andrea Jóns-
1700 dóttir verður
J- • með þátt sinn
Úr kvennabúrinu á rás 2
kl. 17 í dag. Þáttur
Andreu hefur sérstöðu að
því leyti, að í honum er
eingöngu flutt tónlist
með, um eða eftir kven-
fólk, nema allt sé. Andrea
hefur kynnt Joan Arma-
trading, Janis Ian, Sade
og fleiri og fleiri, sem allt
of langt yrði upp að telja.
En hvaða kvenmann fjall-
ar Andrea um í dag? „Ég
ætla að helga þáttinn i
dag að mestu leyti söng-
konunni Joni Mitchell,
sem hefur sungið lengi og
afkastað miklu,“ sagði
Andrea. „Hún hefur gefið
út um 11 plötur og ég ætla
að reyna að komast yfir
að spila sem mest af þeim,
reyna að spanna allan
hennar feril. Síðan mun
ég leika nokkur lög af
nýrri plötu, sem hefur að
geyma bestu lög Yoko
Ono, en flytjendur með
henni eru t.d. eiginmaður
hennar heitinn, John
Lennon, og sonur þeirra
Sean, auk kappans Elvis
Costello."
■■■ { kvöld sýnir
OO 15 sjónvarpið
breska heim-
ildamynd um Þjóðher
Indverja og leiðtoga hans.
Einn leiðtoganna var
Subhas Chandra Bose,
sem var í eina tíð fylgis-
maður Gandhis, en varð
síðar helsti andstæðingur
hans. Gandhi vildi veita
Bretum andspyrnu án
ofbeldis, en Þjóðaherinn
undir forystu Chandra
Bose, háði strið gegn
Bretum við hlið Japana.
Tákn Þjóðahersins var
stökkvandi tígrisdýr,
hugsað sem andstæða við
spunahjól Gandhis og
fylgismanna hans. Bose
Tígrisstríðið
Mohan Singh (Lv.) einn foringja þjóöahersins og Mahatma
Gandhi (Lh.).
áleit, að erfiðleikar Breta
í samskiptum við Hitler
og Japani gæfu ákjósan-
legt tækifæri fyrir Ind-
verja til að losan undan
yfirráðum Breta. Atburð-
ir þeir, sem lýst er í þess-
ari heimildamynd, koma
mjög við sögu f nýjum
framhaldsmyndaflokki,
sem sjónvarpið hefur sýn-
ingar á á sunnudgskvöld.
Nefnist myndaflokkur sá
„Dýrasta djásnið", en
nafnið bendir til Indlands,
sem oft var kallað gim-
steinn krúnu Viktorfu
drottningar. Þýðandi
heimildamyndarinnar um
Tígrisstríðið er Helgi
Skúli Kjartansson.
Bein
útsending
frá Cardiff
■i Sjónvarps-
25 áhorfendum
skal bent á, að
útsendingartími frétta f
sjónvarpi verður með
nokkuð óvenjulegum
hætti í kvöld. Fréttaágrip
á táknmáli verður flutt kl.
18.35, fréttir eru kl. 18.45
og síðan hefst bein út-
sending frá heimsmeist-
arakeppninni f knatt-
spyrnu kl. 19.25. í leikn-
um, sem sýndur verður í
kvöld eigast við lið fs-
lands og Wales, en eins og
mönnum mun f fersku
minni tókst íslendingum
að vinna sætan sigur á
Walesbúum í sumar.
Heyrst hefur, að Wales-
menn ætli sér að hefna
sín grimmilega f kvöld,
enda er mikið f húfi. I liði
Wales er nú markaskorar-
inn mikli, Ian Rush, sem
ekki gat leikið með liðinu
hér heima og binda Wal-
esbúar miklar vonir við
hann. íslendingar eru þó
ekki á þvf að gefast upp,
frekar en fyrri daginn, en
þvf miður vantar nokkra
frábæra menn f íslenska
liðið, t.d. Ásgeir Sigur-
vinsson, Janus Guðlaugs-
son og Atla Eðvaldsson.
Útsendingin frá Cardiff í
Wales hefst kl. 19.25 eins
og áður er sagt.
Ian Rush verður einn af leikmönnum landsliös Wales í
leiknum í kvöld. Ilann kveöst ætla aö skora mörg mörk.
UTVARP
AHÐMIKUDKGUR
14. nóvember
74)0 Veðurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi. 7.25
Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. páttur Siguröar G.
Tómassonar frá kvöldinu áö-
ur.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir.
Morgunorö — Guömundur
Hallgrimsson talar.
9.00 Fréttir.
94)5 Morgunstund barnanna:
„Breiöholtsstrákur fer I
sveit“ eftir Dóru Stefánsdótt-
ur. Jóna Þ. Vernharösdóttir
les (11).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10A5 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.15 Úr ævi og starfi fslenskra
kvenna. Umsjón: Björg Ein-
arsdóttir.
1145 íslenskt mál
Endurtekinn páttur Jóns Aö-
alsteins Jónssonar frá laug-
ardegi.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
12JS0 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.20 Barnagaman
Umsjón: Gunnvðr Braga.
13.30 Zara Leander, Marika
Rökk og Roland Cedermark
syngja og leika.
14.00 „A Islandsmiöum" eftir
Pierre Loti. Séra Páll Pálsson
á Bergþórshvoli les þýöingu
Páls Sveinssonar (15).
14.30 Miödegistónieikar
Beverley Sills syngur Til-
brigöi eftir Adolphe Adams
um lagiö A,b,c,d meö
Kammersveit Lincoln Center
I New York. / Cantabile-
kammerkórinn I Montreal
syngur tvö lög, „Ég er ást-
fangin" og „Svo sannarlega
sem sólin skln“ eftir Robert
Schumann. Janine Lach-
ance leikur á planó.
1445 Popphólfið
15JO Tilkynningar. Tónleikar.
18.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veöurfregnir.
19.25.Aftanstund
Barnaþéttur með innlendu
og erlendu efni sem veröur á
þessa leiö: Sðguhorniö —
Hnyklarnir, ævintýri. Sögu-
maður Þorbjörg Kolbrún As-
grlmsdóttir. Myndir geröi
Herdls Hubner. Litli sjóræn-
inginn: þýsk brúðumynd.
Þýöandi Salóme Kristins-
dóttir. Tobba: þýskur brúöu-
myndaflokkur. Þýðandi
Kristrún Þóröardóttir. Sðgu-
maður Þurlöur Magnúsdóttir.
Högni Hinriks: bresk teikni-
mynd.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veöur.
20 JO Auglýsingar og dagskrá.
2040 Matur og næring.
1. Formáli og fiskur. Fyrsti
þátturinn af fimm sem Sjón-
16.20 Slödegistónleikar
Flladelfluhljómsveitin leikur
Sinfónlu nr. 2 I e-moll op. 27
eftir Sergej Rakhmaninoff;
Eugene Ormandy stjórnar.
17.10 Sfödegisútvarp
Tilkynningar.
1845 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Siguröur G.
Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Utvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum" eftir Jón
Sveinsson Gunnar Stefáns-
son les þýöingu Freysteins
Gunnarssonar (3).
AHÐMIKUDKGUR
7. nóvember
varpiö hefur látiö gera um
næringu og hollt mataræöi.
Fléttaö er saman umræöu
og fræöslu um næringarefni
fæöunnar og matreiöslu
skemmtilegra og hollra rétta.
I hverjum þætti er fjallaö um
einn flokk fæöu og I fyrsta
þætti veröur flskur fyrir val-
inu. Gestir I þessum þætti
verða Guömundur Þorgeirs-
son læknir og Alda Möller
dósent viö Háskóla Islands.
Umsjónarmaöur Laufey
Steingrlmsdóttir næringar-
fræöingur. Upptöku stjórn-
aöi Kristln Pálsdóttir.
21.10 Þyrnifuglarnir.
Þriöji þáttur. Framhalds-
myndaflokkur I tlu þáttum,
geröur eftir samnefndri
skáldsögu Colleen McCull-
2020 Hvaö viltu veröa?
Starfskynningarþáttur I um-
sjá Ernu Arnardóttur og Sig-
rúnar Halldórsdóttur.
21.00 „Let The People Sing“
1984
Alþjóðleg kórakeppni á veg-
um Evrópubandalags út-
varpsstööva. 1. þáttur. Um-
sjón: Guömundur Gilsson. I
þessum þætti keppir m.a.
Hamrahllðarkórinn, sem
varö sigurvegari I flokki
æskukóra.
2130 Útvarpssagan: Grettis
saga
Oskar Halldórsson byrjar
oughs. Aöalhlutverk: Rich-
ard Chamberlain, Rachel
Ward og Barbara Stanwyck.
Efni siöasta þáttar: Mary
Carson kostar Meggie I
klausturskóla þar sem faöir
Ralph heldur verndarhendi
yfir henni. Fee er barnshaf-
andi og Frank hellir sér yfir
Paddy, sem I Ijóstrar þvl upp
aö hann sé óskilgetinn.
Frank ákveöur þá aö fara aö
heiman. Þýöandi Öskar Ingi-
marsson.
22.00 Kastljós.
Þáttur um erlend málefni.
Meöal annars veröur fjallað
um forsetakosningarnar I
Bandarlkjunum og úrslit
þeirra. Umsjónarmaöur Einar
Slgurösson.
22J5 Fréttir I dagskrárlok.
lesturinn. Hljóöritun frá
1981. Hjörtur Pálsson flytur
formálsorð.
22.00 Horff I strauminn
með Kristjáni frá Djúpalæk
(RÚVAK)
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22.35 Tfmamót
Þáttur I tali og tónum. Um-
sjón: Arni Gunnarsson.
23.15 Nútlmatónlist
Þorkell Sigurbjörnsson kynn-
ir.
2345 Fréttir. Dagskrárlok.
RÁS 2
14. nóvember
104)0—12.00 Morgunþáttur
Róleg tónlist. Viötal. Gesta-
plötusnúöur. Ný og gömul
tónHst.
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Jón Ölafsson.
14.00—15.00 Út um hvlppinn
og hvappinn
Létt lög úr hinum ýmsu átt-
um.
Stjórnandi: Inger Anna Aik-
man.
15.00—16.00 Nú er lag
Gömul og ný úrvalslög að
hætti hússins.
Stjórnandi: Gunnar Salvars-
son.
16.00—17.00 Nálaraugaö
Djass rokk.
Stjórnandi: Jónatan Garö-
arsson.
17.00—18.00 Úr Kvennabúrinu
Hljómlist flutt og/eöa samin
af konum.
Stjórnandi: Andrea Jóns-
dóttir.
SJÓNVARP