Morgunblaðið - 14.11.1984, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
17
Til sölu
Raðhúsí
Seljahverfi
Ein eða tvœr íbúðir
Naðri haö: Störar stofur. forstofuher-
bergi, gott efdhús meö borökrók og
þvottahúsi vM hllóina, svo og snyrtlng
og forstofur.
Efri hasó: 3 svefnherbergl, gott baö-
herb. meö kerlaug og sturtu, og
geymsla. Miklar og góöar Innréttingar á
hæöunum. Tvennar svalir. Bllskúrsrétt-
ur.
KiaHari: Hann er tilbúinn undir tréverk,
málaöur, meö innihuröum og fl. Sér-
inngangur. Þar getur veriö 2|a herb.
íbúö eöa 3 herbergi og snyrtlng meö
meriru. Hagf er aö taka ca. 4ra her
bergja fbúö upp I kaupin. Teiknlng tll
sýnis. Stærö um 250 fm. Hagstætt
verö. Einkasala.
Hesthús í Víðidal
Háaleitisbraut
5 herbegja íbúö ó 2. haoö. Er í ágætu
standi. Qott útsýni. Rólegur staöur.
Möguleiki aö taka 3ja herbergja íbúö á
2. hæö eöa í lyftuhúsi upp í kaupin.
(Einkasala.)
Sæviðarsund
Endaraöhús meö bilskúr, ca. 165 fm. 1
stór stofa, 4 herbergi (1 forstofuherb ),
stór skáli meö ami (nýtist sem stofa).
Góöar innréttingar. Breytlngar auöveld-
ar ef óskaö er. Góöur garöur meö trjám
o.fl. Rólegur og eftlrsöttur staöur.
Mðguleiki aö taka ca. 4ra Iwrb. ibúö á
1. eöa 2. hœö eöa i lyttuhúsl upp f kaup-
in. (Einkasala.)
Laxakvísl
Rúmlega 200 fm raöhús ó 2 hæöum og
ca. 40 fm bílskúrsplata fylgir Húslö af-
hendist í nóv./des. 1984. Qott hús á
góöum staö. Teikning til sýnis. Verö 2,2
milljónir. (Einkasala.)
íbúöir óskast
Eignaskipti
Hef góöa kaupendur aö ýmsum stærö-
um og geröum ibúöa. Hef ýmsar etgnir í
skiptum.
Mig vantar t.d. 3|a tll 4ra herbergja fbúö
á góöum staö i Reykjavik. Kaupandinn
biöur meö penfngana. Heimahverflö og
grennd æskilegt.
Árni Stefánsson, hrl.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suöurgötu 4. Sími: 14314.
Kvöldsími: 34231.
621600
Barónsstígur
Til sölu huseign meö þrem góö-
um 4ra herb. íbúöum. Hugsanl.
aö taka minni eign uppí.
Espigerði
Góö 4ra herb. íbúö í háhýsi.
Uppl. á skrifst.
Engjasel
4ra herb. íbúö á 1. hæö. Bíl-
skýli. Verö 2,2 millj.
Fljótasel
Gott raöhús á tveim hæöum
2x90 fm. Verö 3.5 millj.
Hraunbær
4ra herb. 110 fm íbúö á 1. hæö.
Verð 1,9 millj.
Tjarnarból — Seltj.
6 herb. 130 fm íbúö meö 4
svefnherb. Verö 2,5 mlllj.
Ljósheimar
4ra herb. falleg íbúö á 2. hæö í
lyftuhúsi. Verö 1900 þús.
Vesturberg
3ja herb. falleg fbúö á 2. hæö.
Parket á gólfum. Verö 1700
þús.
Atvinnuhúsnædi
Til sölu rúmglega 200 fm götu-
hæö og 440 fm 2. hæö í glæsi-
legri nybyggingu við Borgartún.
Til sölu ca. 140 fm íönaöar- eöa
skrifst.húsn. viö Auöbrekku
Kóp.
Til sölu rúml. 200 fm verslun-
arhæö i nýbyggingu á úrvals-
staö í Kóp.
g 621600
Xí': Borgartun 29
^ Ragnar Tomasson hdl
0HUSAKAUP
Karólína Lárusdóttir sýn-
ir í Gallery 10 í London
KARÓLÍNA Lárusdóttir, listmál-
arí, opnar í dag, miðvikudag, mál-
verkasýningu í Gallery 10 við
Grosvenor Street í London.
Blaðamaður Morgunblaðsins
ræddi við Karólínu á dögunum
og spurði hana um sýninguna
o.fl.
„Það er búið að vera mjög
mikið að gera undanfarið,"
sagði Karólína, „og ég hlakka
óskaplega til geta tekið það ró-
lega þegar sýningin hefst og
allur undirbúningur er að
baki.“
— Hvernig myndir verða á
sýningunni?
„Myndirnar eru ekki beint ís-
lenskar landslagsmyndir, eins
og ég er vön að mála. Samt er
eitthvað íslenskt í þeim. Ég hef
mikið notað vatnsliti áður, en
er farin að vinna meira með
olíu, eins og þessi sýning ber
með sér.“
— Kemur þú oft til íslands?
„Ég kom ekki til íslands í
langan tíma, en hef gert meira
af því á undanförnum árum,
eftir að bömin fóru að stækka.
Nú eru þau orðin það stór, að ég
gat komið ein til lslands til að
vinna. En það var í raun og
veru mjög takmarkað, hvað ég
gat notað mér það sem ég vann
þar.“
— fsland er þitt aðalmótíf,
er ekki svo?
„Jú, það er rétt. Ég hef nær
eingöngu notað ísland sem
mótíf, því mér finnst það mest
spennandi. Landslagið er
raunverulegt, mosi, sandur og
grjót og svo auðvitað fjöllin.
Það er ekki búið að eyðileggja
það. Ég þarf að koma meira til
fslands til að vinna, og gæta
þess að hafa nógan tíma til
þess.“
— En svo við víkjum að
ððru. Er ekki erfitt að komast
að hjá góðum galleríum (Lond-
on?
„Jú, það er mjög erfitt og eig-
inlega alveg ómögulegt, þvi
samkeppnin er mjög mikil.“
— En hvernig fórst þú að
þessu?
„Fyrir rúmu ári gekk ég bara
inn í Gallery 10 og spurði hvort
ég gæti sýnt þar. Þarna hafa
sýnt margir mjög góðir málar-
ar og var þetta mikil bjartsýni
hjá mér. Eg mætti með ljós-
myndir af nýlegum málverkum.
Mér var tekið mjög vel. Þær
sem eru með galleríið komu
heim til min og skoðuðu hvað
ég var að gera. Svo gáfu þær
mér meiri tíma, til að vinna að
fleiri verkum og komu aftur
nokkrum mánuðum seinna til
að athuga hvort ekki væri allt í
lagi og til að velja myndir. Síð-
an hef ég eingöngu unnið fyrir
þessa sýningu. Ég er mjög
ánægð að fá að sýna hjá Gall-
ery 10.“
— Er eitthvað fleira á döf-
inni hjá þér?
„Já. f lok þessa mánaðar
verður einhverskonar íslands-
kynning í Edinborg, sem ís-
lenska sendiráðið í London sér
um, og verða myndir eftir mig á
sýningu þar. Svo það er mikið
um að vera hjá mér, því það
þarf að velja úr hvaða verk eigi
að fara á þessar sýningar."
— En, svona að lokum, áttu
von á að fá marga fslendinga á
sýninguna í Gallery 10?
„Svo skemmtilega vill til að
Gallery 10 er beint á móti
skrifstofu Flugleiða í London,
svo það ætti að vera auðvelt
fyrir fslendinga, sem þar eru á
ferð, að rata og það væri gaman
ef þeir myndu líta inn.“
Sýning Karólínu í Gallery 10
stendur til 30. nóvember.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Þriðju áskriftartón-
leikarnir á morgun
ÞRIÐJU áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar fslands verða f
Háskólabíói í morgun, fímmtudag-
inn 15. nóvember og hefjast þeir
kl. 20.30. Efnisskráin verður:
Þorsteinn Hauksson: „Ad astra“,
Carl Nielsen: Flautukonsert og
Robert Schumann: Sinfónía nr. 2 í
C-dúr, op. 61. Verk Þorsteins
Haukssonar var frumfíutt hér á
Listahátíð sl. sumar, en flautukons-
ert Nielsens og Schumann-sinfóní-
MATSEÐILL
HÁDEGISVERÐUR
14.11.
Grœrimetissiípa
°9
Djúpstáktur kaiýi
með jronsftum kartöfíum,
gúrkusalati og kokktéiísósu
kr. 190
eða
Soðnar ungfiamur í
korrýsósu, hrísprjónum,
anamssneið cy fírásalati
kr. 210
Auk inuiarro rétta á vayu verði
OPNUNARTÍMI ALLA DAGA
KL. 11.30-14.00
KL. 18.00-23.00
Veitingahúsið Hagameí 67
Rcyfejavík, sími: 26070.
Hinqir \*úVtr I lalldtVrssim. matrriðsfumdstarí.
an nr. 2 hafa aldrei heyrst hér á
tónleikum fyrr.
Hljómsveitarstjórinn Karolos
Trikolidis er af grískum ættum,
fæddur í Austurríki 1947. Hann
stundaði nám m.a. við Mozarte-
um í Salzburg og við Tónlistar-
háskólann í Vín, lagði sig eftir
fiðluleik og tónsmíðum og lék
auk þess á ásláttarhljóðfæri.
Tvítugur að aldri þreytti hann
frumraun sína sem hljómsveitar-
stjóri í Aþenu og helgaði sig þvi
starfi eftir það. Meðal kennara
hans í hljómsveitarstjórn voru
Hans Swarowsky og Bruno Ma-
derna, en einnig hefur hann
starfað með Sir Adrian Boult,
Herbert von Karajan og Leonard
Bernstein. Hann hefur unnið ým-
is eftirsótt verðlaun og stjórnað
tónleikum og óperusýningum í
mörgum löndum, austan hafs og
vestan. Hann er nú fastur stjórn-
andi við ýmis óperuhús í Þýska-
landi og ennfremur við Ríkisóp-
eruna í Aþenu og við grísku
útvarpshljómsveitina.
Einleikarinn Bernharður
Wilkinson er fæddur í Englandi.
Hann fluttist til fslands árið
1975 og hefur starfað í Sinfóníu-
hljómsveit fslands síðan. Hann
er nú íslenskur ríkisborgari.
Kvenfélag
býöur upp á
N
Neskirkju
iLLfili
Athvarf fyrir aldraða í Nessókn.
Starfið hefst fimmtud. 15. nóv. í Safnaöarheimili
Neskirkju, og verður Athvarfiö opið frá kl. 12.00 á
hádegi til kl. 17.00. Heitur matur í hádeginu fyrir þá,
sem þess óska. Verð: 105 kr. Panta verður á þriðju-
dag 13. nóv. kl. 16.00—17.00 og í síma 16783. Ýmis-
legt er boðið upp á til afþreyingar. Síödegiskaffi meö
eöa án meðlætis veröur selt á vægu veröi.
Handavinna veröur á þriðjudögum.
Athvarfið er hugsaö, sem heimili fyrir eldra fólk í
sókninni. Upplýsingar í síma 13726 kl. 10.00—11.00
á mánudögum, og í síma kirkjunnar 16783 kl.
16.00—17.00 á þriðjudögum og fimmtudögum.
Kvenfélag Neskirkju.
Þorsteinn Hauksson.
Hann nam flautuleik í Royal
Manchester College of Music
undir leiðsögn Trevor Wye og
lauk þaðan burtfararprófi 1973.
Ennfremur stundaði hann nám
hjá William Bennett, James
Galway, Marcel Moyse. Bern-
harður hefur komið fram sem
einleikari í sjónvarpi og útvarpi
og er meðlimur í Blásarakvintett
Reykjavíkur.
Staða forstöðumanns
íslenskrar málstöðvar
Umsóknarfrestur um stöðu for-
stöðumanns íslenskrar málstöðvar
rann út mánudaginn 12. nóvember.
Forstöóumaðurinn mun jafnframt
gegna stöðu prófessors í íslenskri
málfræði í heimspekideild Háskóla
íslands.
Umsækjendur voru tveir, Bald-
ur Jónsson formaður íslenskrar
málnefndar og Eiríkur Rögn-
valdsson, cand. mag.
Skipuð verður dómnefnd eins og
gert er, þegar um prófessorsemb-
ætti er að ræða og munu niður-
stöður liggja fyrir eftir nokkrar
vikur.
101»