Morgunblaðið - 14.11.1984, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
Verkstæði til
skothleðslu
í síðastliðnum mánuði opnaði
Sportval verkstæði þar sem fer fram
hleðsla i ýmsum gerðum af hagla-
skotum. Hér er um að rsða mjög full-
komið verkstæði sem uppfyllir ströng-
ustu gæða- og öryggiskröfur, enda er
þetta eina verkstæðið sinnar tegund-
ar, svo vitað sé, sem hefur hlotið
opinbera viðurkenningu hvað öryggi
snertir.
Hráefnið er keypt erlendis frá en
siðan fullunnið hér heima. Einungis
er notað viðurkennt efni. Agnar
Guðjónsson hefur yfirumsjón með
hleðslunni, en hann er meðlimur i
Skotveiðifélagi Reykjavíkur og hef-
ur margra ára reynslu í þessum
efnum. Agnar sagði i samtali við
Mbl. að helstu haglaskotin sem
hlaðin væri hjá þeim i Sportval
væru rjúpnaskot og gæsaskot.
Einnig sagði Agnar að þeir myndu
hlaða eftir sérpðntunum ef þess
væri óskað. Hlaðin rjúpnaskot eru
u.þ.b. 30% ódýrari en meðal inn-
flutt skot og enn meiri verðmunur
er á gæsaskotum. Þessi íslenska
framleiðsla stenst fyllilega sam-
anburð við innflutt skot aö mati fé-
laga i skotveiðifélaginu sem hafa
notað þau.
Einnig geta menn komið með not-
uð skothylki í endurhleðslu og geta
þeir sem skjóta mikið sparað þó
nokkuð með þvi að hirða tómu hylk-
in og láta hlaða þau, en flest plast-
hylki má endurhlaða allt að 8 sinn-
um.
Það er trú min að þessi íslenska
framleiðsla á haglaskotum eigi
góða framtíð fyrir sér, bæði varð-
andi verð og gæði, sagði Garðar
Kjartansson verslunarstjóri að lok-
um.
Vestmannaeyjan
Neytenda-
félag stofnað
VwlwiufyjvB, 9. ■óvember.
f SÍÐUSTU viku var stofnaö hér
Neytendafélag Vestmannaeyja en
stofnun þessa félags fylgdi í kjölfar
mikillar umræöu í blööum og manna
i milli um verðlagsmil hér í bæ.
Hafa margir lýst furöu sinni i því
hversu miklu hærri hin margvísleg-
asta matvara er í verði í verslunum
bér miðað við stórmarkaðina í böfuð-
borginni og viljað leita skýringa á
þessum verðmismun. Aðrir hafa talið
þennan mismun i vöruverði til kom-
inn vegna ytri aðstæöna, hirra fhitn-
ingsgjalda, birgðakostnaðar og annað
í þeim farvegi.
öll þessi umræða hefur nú sem
sagt fætt af sér sérstakt félag neyt-
enda. Gestur á stofnfundinum var
Jón Magnússon, formaður Neyt-
endasamtakanna, sem eru lands-
samtök sem Neytendafélag Vest-
mannaeyja hefur þegar gerst aðili
að. Á stofnfundinum gerðust 45
manns félagar og fjðlmargir aðrir
hafa sýnt þessu nýja félagi áhuga.
Lög félagsins eru að mestu sniðin
eftir lögum annarra neytendafé-
laga á landinu. Félagið ætlar sér á
næstunni að gangast fyrir verð-
könnunum, koma upp aðstöðu fyrir
félagið og gera átak f þvi að fjölga
félögum. Kosin var fimm manna
stjórn fyrir félagið og er Stella
Skaptadóttir formaður en með
henni í stjórn eru Barbara Wdowi-
ak, ólafur H. Sigurjónsson, Hildur
Oddgeirsdóttir og óskar Ólafsson.
Umræðan um verðlagsmálin
náði á dögunum alla leið inn á
dagskrá bæjarstjómar, því í fram-
haldi af hinni almennu umræðu
bæjarbúa um málið flutti Sigurður
Jónsson, forseti bæjarstjórnar, til-
lögu um það f bæjarráði að kosin
yrði sérstök nefnd til að kanna
verðlag í Vestmannaeyjum og bera
það saman við það sem gerist í öðr-
um bæjarfélögum. Miklar og all-
snarpar umræður urðu um þessa
tillögu Sigurðar f bæjarstjórn svo
og almennt um verðlagsmálin en
tillagan var síðan samþykkt og
ákveðið að tilnefna i nefndina full-
trúa frá bæjarstjórn, frá félagi
kaupsýslumanna, Verkakvennafé-
laginu Snót auk fulltrúa frá ný-
stofnuðu Neytendafélagi Vest-
mannaeyja. - hkj.
Engin verðskerðing á
kindakjöti innan búmarks
Á SÍDASTA fundi Framleiðsluriðs
landbúnaðarins voru samþykktar
uppgjörsreghir vegna lokauppgjörs i
verði sauðfjirafurða sem framleiddar
voru irið 1983. Ákveðið var að engin
verðskerðing komi i kindakjöts-
framleiðslu sem var innan búmarks i
lögbýlum, en i framleiðslu umfram
búmark komi 25% verðskerðing.
Á framleiðslu þéttbýlisbúa innan
búmarks komi 10% verðskerðing,
en á framleiðsiu umfram búmark
eða það sem framleitt er án bú-
marks komi 25% skerðing. Þessi
samþykkt felur í sér að flestir fjár-
bændur fá enga skerðingu fyrir
kjötinnlegg frá árinu 1983, því fáir
munu hafa framleitt kjöt umfram
búmark. Gunnar Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins, sagði i sam-
tali við Mbl. að þrátt fyrir að verð-
skerðingu yrði ekki beitt við upp-
gjör á framleiðslu innan búmarks
væri fyrirsjáanlegt að víða fengju
bændur ekki fullt verð fyrir fram-
leiðsluna þar sem sláturkostnaður
hefði verið of lágt áætlaður. Sagði
Gunnar að Framleiðsluráð myndi
kalla inn reikninga sláturleyfis-
hafa eins og í fyrra og láta endur-
skoðanda yfirfara þá og bera sam-
an til að fá fram upplýsingar um
raunverulegt útborgunarverð til
bænda.
ÍSLENSKUR
HÚSBÚNAÐUR
Langholtsvegi 111 sími 686605
í staö þess að fara á tíu staöi
þarftu nú aðeins að fara á einn stað til að sjá úrval
íslenskra húsgagna og húsbúnaðar.
íslenskur húsbúnaður sparar þér tíma og fyrirhöfn
og auðveldar þér val á íslenskum húsbúnaði
í háum gæðaflokki.
Aðeins 30% útborgun og eftirstöðvar lánaðar
í allt að sex mánuði.
Eftirtalin fyrirtæki eru aðilar að íslenskum húsbúnaði:
Álafoss, Axis, Epal, Gamla Kompaníið, Húsgagnaiðjan Hvolsvelli, Iðnaðardeild
Sambandsins, Málmsteypa Ámunda Sigurðssonar, Stálhúsgagnagerð Steinars,
Topphúsgögn (Smíðastofa Eyjólfs Eðvaldssonar) og Trésmiðjan Víðir.