Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
Jenna Jensdóttir:_Frá Kína IV
KÍNA
— „þið leggið við eyrim
er þið heyrið það nefnt“
um lærist að vera algerlega hvíld-
ir utan við allan hávaða og um-
gengni þær tíu mínútur sem þetta
er iðkað dag hvern.
Leikfimi er stunduð á velli skól-
ans af öllum (1300) nemendum i
einu tuttugu mínútur á dag.
Fjöldi nemenda í bekkjardeild-
um er 50—56 í hverri deild og sex
daga skólavika.
Eftirminnilegt að kynnast
kennslu i þessum skóla hjá alúð-
legum, brosandi lærifeðrum og
frjálslegum, hugsandi nemendum,
hvort heldur var á skólavelli eða í
kennslustund. Þótt allir færu i
fríminútur i einu flæktist enginn
fyrir öðrum hvorki úti eða inni.
Fullorðinsfræðsla er á mjög háu
stigi í Kina, þar sem nám er
stundað með vinnu.
Fyrir nokkrum árum munu um
26 millj. Kinverja hafa stundað
fullorðinsnám, allt frá grunnnámi
til háskólanáms. Kvöldskólinn
sem sóttur var heim var stofnað-
ur 1980 og þá sem dagskóli.
Yngsti nemandinn var 12 ára og
sá elsti 73 ára. Inntökupróf er i
skólann og bekkjardeildir telja
milli 40—50 nemendur. Einkum
fer þarna fram tungumálanám.
Yflrkennari skólans er 72 ára
kona menntuð á Vesturlöndum og
vonaðist til að geta enn sótt þau
heim.
í Peking-óperunni sáu ferða-
langar táknræna sýningu á striði
milli Kínverja og Mongóla frá
fornu. íburður allur og skraut var
mikið einkum á búningum leik-
enda. Músík var sérkennileg og
taktföst einskonar „dósamúsik"
sem túlkaði ásamt látbragðsleik
persóna hin ægilegu átök striðs-
ins.
Pekingönd var snædd i virðulegu
boði frammámanna i ferðamálum
Kinverja. Þar voru samræður um
alvörumál og líka slegið á léttari
strengi. Eins og fyrr mynduðust
tengsl skilnings og hlýju og
merkilega vissu þeir mikið um
Bingdaó (ísland).
Dýragarðurinn i Peking var sfð-
asti viðkomustaður áður en haldið
var til flugvallarins á heimleið. Ef
til vill vakti Pandabjörninn mesta
athygli af hinum ægilega fjölda
dýra sem þarna búa og lifa góðu
ÍÖFI að því er best verður séð.
A flugvellinum var leiðsögu-
maðurinn Shen kvaddur í flýti —
þvi nú gerðist allt i flýti.,
Kveðjuorð þau sem hinn hóg-
væri, gáfaði háskólastúdent
mælti til hópsins voru eftir-
minnileg. Brot úr þeim eitthvað á
þessa leið hripað niður f þýðingu:
„Fyrir mér verður ísland nú eitt-
hvað annað og meira en bara
nafn, sem ég heyri og gleymi, þið
hafið fært mig nær þvi með 14
daga óslitinni samveru, af þvi þið
hafið sýnt mér sömu vináttu og ég
væri einn af ykkur. Að sama skapi
vona ég að Kína verði eins fyrir
ykkur nú. Þið leggið við eyrun er
þið heyrið það nefnt — og reynið
að skilja i Ijósi þess sem þið hafið
heyrt og séð.“
Að baki einstæðir dagar. Fram-
undan skyldan með erli sínum.
Marssólin gægist inn um glugga
flugvélarinnar sem flýgur i áttina
til Hong Kong.
Leikfimitími undir berum himni.
Mikilfengleg sýn daganna i Xi’an
lætur hugann knýja á vit sögunn-
ar og viðbrögð vitneskjunnar
klingja eins og bjöllur i vitund
ferðalangs: „Þú veist minna en
ekki neitt um heiminn sem þú
býrð í.“
Hér í Xi’an fölna hin gulli
slegnu mannvirki og skrautlegir
listmunir, silki og allt sem tæp-
lega á sinn líka í fullkomnun list-
ar nema í Kína, fyrir hinum æva-
fornu listaverkum úr eir, bronsi
og leir, sem lýsa upp meir en 3000
ára sögu.
Þau færa sönnur á að Xi’an var
höfuðborg ellefu keisara. Hér
grundvallaði Kao Tí Han-keisara-
dóminn löngu fyrir Krist.
Shaanxi-fylki er eitt elsta fylki
Han-menningarinnar og þegar á
fyrra Han-tímabilinu var Xi’an
mikilvæg borg fyrir alþjóðasam-
skipti. Skammt frá er hinn forni
„silkivegur", frá Tangtfmum, sem
liggur áfram til Sinkiang þar sem
Kínamúrinn er tvöfaldur með stór
landsvæði á milli.
Hér eru hinar fornu steintöflur,
sem helgiritin eru höggvin á. Og
Nestóringa-minnisvarðinn frá 781
e. Kr. fannst hér. Höggvin tákn á
hann segja frá boðun „trúar ljóss-
ins“ 635 er kristnir trúboðar komu
fyrst til Kína.
Einhvers staðar hér lifði hinn
sérkennilegi Liu An sem talinn er
upphafsmaður alkemi, móður
efnafræðinnar.
Skammt frá Xi’an eru hinar
geysi víðfeðmu grafhvelfingar,
með leirstyttum hermanna og
hesta í fullri stærð, sem fundust
1974 og eru ekki enn kannaðar til
fulls, en sýna hina miklu skúlp-
túrlist fyrir meira en 2000 árum.
Peking í svo köldu veðri að borg-
arbúar muna ekki annan eins
marsmánuð. Fyrir nokkrum dög-
um hafði snjóað þar. En himinn-
inn var heiður, f fullu samræmi
við fallega borg með vestrænu yf-
irbragði, er lent var á flugvelli
eftir þægilegt flug frá Xi’an.
t Peking var búið á gistiheimili
sem upphaflega var byggt fyrir
rússneska aðalinn. Innan þess
marka voru mörg stórhýsi, þar
sem auk gistirýmis voru öll mögu-
leg hús, banki, hverskyns búðir,
Ieikhús, myndastofa, pósthús,
sjúkrastofa — svo eitthvað sé
nefnt. Stakk þessi gististaður lftið
eitt f stúf við hin glæstu hótel, er
' áður voru gist, að því leyti að hér
var allt fornlegt en mjög viðkunn-
! anlegt að mati ferðalangs.
Peking hefur verið höfuðborg
Kína í 700 ár. Fólksfjöldi er þar
um 8.500.000 manns. Hún er
glæsileg nútímaborg með löngum,
breiðum götum. Og sumar feg-
urstu byggingar f heimi eru hér,
flestar frá Ming-tfmum. Elsti
stjörnuturn í heimi (1279) er (
Peking. Torg hins himneska frið-
ar og öll hin veglegu skrauthýsi
þar í kring varpa glýju f augun og
blendnar tilfinningar bærast f
brjósti við slíka sýn.
Skammt frá Peking eru sumar-
hallir keisaranna, sem fyrst voru
byggðar 1750.
A leið til Kínamúrsins voru
skoðuð grafhýsi Ming-keisara.
Kínamúrinn, ef til vil er hann
stærsta undrunarefni hvers
ferðalangs er lítur hann augum.
HroIIkenndur gustur frá öllum
ógnum fortiðarinnar blandast
stormasömum svala marsmánuð-
ar er langferðabfllinn mjakast
hægt upp fjallendið sem er engu
öðru líkt, með litlum býlum inn
milli grjótlendis og hrikalegra
fjalla, þar sem gróður vorsins
liggur enn að mestu f dvala og
snjór fyllir lægðir og lautir.
Hærra, hærra stundum eins og
Kínamúrinn — þögull og grár.
Ljósmyndir Þorv. Öskarsson
Á Þjóðveginnm.
einstigi en bflstjórinn er frábær f
sínu starfi.
Einnig hér við múrinn eru veit-
ingastaðir og búðir sem freista
ferðalanga.
Múrinn mikli, sem hinn frægi
keisari Shih Hwang Ti lét tengja
saman úr smærri landvarnamúr-
um um 225 f. Kr. Þögull og grár
hrannar hann upp myndum skelf-
ingar og þungra örlaga og storm-
urinn sem feykir hári og treflum
til verður að æpandi röddum
slíkir skólar eru starfandi þar.
Fjörutfu þessara skóla taka að-
eins afburðanemendur (13—18
ára) og var þessi einn af slíkum,
þar sem 99% fara f háskólanám.
í bókasafni skólans gat að lfta
kínverska bók með lesköflum úr
Sðlku Völku eftir Laxness.
Hér komust ferðalangar f nán-
ust kynni við hinar þekktu slök-
unaræfingar Kínverja, þar sem
ærandi tónlist berst úr hverju
horni skólastofunnar og nemend-
Úr garði Sumarhallarinnar.
langt framan úr öldum. Allt verð-
ur að spurn, sem aldrei verður
svarað.
í Peking var heimsóttur ungl-
inga- og framhaldsskóli, en 900