Morgunblaðið - 14.11.1984, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
27
Pasco-Kennewkk-brúin yfir Columbia-fljótið í Washington-fylki I Bandaríkjunum.
uppi eins öflugu rannsóknarstarfi
og þeir treysta sér til og nauðsyn-
legt er. Það mun skila sér vel. En
auk þess verða Islendingar að
halda góðu sambandi við aðrar
þjóðir, þar sem rannsóknarstarf
er öflugt. Þeir verða að fylgjast
vel með, heimsækja rannsóknar-
og tilraunastofur erlendis."
— Hvað finnst þér um bygg-
ingarlag íslendinga?
„Ég hef ekki ennþá kynnst land-
inu nógu vel til þess að geta dæmt
um þetta. Þó vekur það athygli
mína hve lítið er um háhýsi í
Reykjavík. Það finnst mér til mik-
illar prýði. Reynslan hefur sýnt að
háhýsi í mörgum stórborgum
heimsins þjóna ekki lengur til-
gangi sínum. Þau valda einfald-
lega of mörgum hliðarverkunum.
Umferðarvandamál eru dæmi um
það. Þið íslendingar hafið nægi-
legt landrými og ættuð að vera
ósparir á að nota það.“
— Á hvaða sviði innan mann-
virkjaverkfræði telur þú mesta
þörf á auknum rannsóknum f ná-
inni framtíð?
„Áherslu þarf að leggja á rann-
sóknir á varanleika mannvirkja.
Þær kröfur verður að gera að
mannvirki þjóni fullkomlega hlut-
verki sínu — og það með lágmarks
viðhaldi — á meðan þeim er ætlað
að standa. Á þessu sviði er mikilla
rannsókna þörf.“
Ponte de Val Restet-brú á Ítalíu f smíðum. Brúargólfið er framleitt {
vinnuhúsi við brúarendann og síðan smám saman fleytt yfir brúarstæðið.
Þessi aðferð auðveldar mjög
brúargerð sérstaklega þar sem
erfitt er að koma við hefðbundn-
um uppslætti. Allt að 1200 m löng
brúargólf hafa verið gerð með
þessum hætti.
SJÓN V ARPSTURN AR
Dr. Leonhardt er einnig braut-
ryðjandi í hönnun steinsteyptra
sjónvarpsturna. Hann hannaði
fyrsta turn þeirrar tegundar, og
var hann reistur í Stuttgart árið
1954. Þessi turn hefur síðan orðið
fyrirmynd annarra turna af ýmsu
tagi um allan heim.
Þegar dr. Leonhardt kynnti
hönnun sína fyrst fyrir löndum
sínum vildu þeir ekki trúa að turn-
inn gæti staðið. Annað kom þó á
daginn, og er burðarform þessara
turna í raun mjög hagkvæmt.
Njóta slikir turnar nú mikilla
vinsælda fyrir fagurt útlit, auk
þess sem algengt er að útsýnis-
stæðum og jafnvel veitingahúsum
sé komið fyrir efst í þeim.
Af turnum, sem dr. Leonhardt
hefur hannað, má nefna sjón-
varpsturnana í Stuttgart, Ham-
borg og Frankfurt, en samtals
hefur verkfræðifyrirtæki hans átt
þátt í hönnun um 130 turna af
þessu tagi. Hæsti turninn er um
330 m hár (4,5 sinnum hæð Hall-
grímskirkju) og mesta þvermál
útsýnisstæðis í toppi turns er 58
metrar.
ERFIÐ EÐA ÓVENJU-
LEG VERKEFNI
„Uppáhaldsverkefni mín eru á
sviði brúargerðar, og skemmtileg-
ast finnst mér að fást við brýr
með löngum höfum. Raunar fæst
fyrirtæki mitt nú orðið ekki við
öðruvísi brýr. Við höfum t.d. ný-
lokið þátttöku i samkeppni um
hönnun á brú yfir Messina-sund á
Ítalíu. Við hönnuðum skákaplabrú
(„Cable-stayed bridge", sbr.
Pasco-Kennewick-brúna) með
1800 m löngu meginhafi. Við unn-
um til verðlauna fyrir hönnun
okkar, en brúin hefur ekki enn
verið byggð.
Af öðrum verkefnum, sem mér
eru minnisstæð má nefna hönnun
brúarinnar yfir Columbia-fljót í
Bandaríkjunum. Þetta var fyrsta
brúin, sem var hönnuð vestanhafs,
en það tók okkur langan tíma að
komast inn á Bandaríkjamarkað.
Þar hafa löngum ríkt gamlar venj-
ur í brúargerð, sem erfitt er að
brjóta á bak aftur. Það var ekki
fyrr en bandarísk sendinefnd frá
Washington D.C. kom í heimsókn
til Evrópu og skoöaði verk okkar
og skriður komst á málin.
Skömmu eftir 1970 var okkur síð-
an falið að hanna brúna yfir Col-
umbía-fljótið. Hönnunin þótti
nýstárleg þar vestra og erfiðlega
gekk að finna verktaka sem var í
stakk búinn til að vinna verkið.
Skákaplabrú í byggingu. Brúin er yfir Parana-fljót nálægt Braso Large í Argentínu.
Um var að ræða skákaplabrú með
um 300 metra spennivídd. Að lok-
um tókst þó að byggja brúna, og
voru Bandaríkjamenn himinlif-
andi með árangurinn. Brúin var
vígð árið 1978, og í kjölfarið hafa
fylgt fleiri verkefni í Bandaríkjun-
um.
Almennt má þó segja að ég hafi
ánægju af öllum þeim verkefnum,
sem ég fæst við. Fyrirtæki mitt er
í þeirri aðstöðu að geta valið úr
viðfangsefnum og við tökum að-
eins að okkur verkefni sem eru
erfið eða óvenjuleg. Af þessum
ástæðum höfum við viðað að
okkur mjög sérstæðri reynslu og
þekkingu".
FÆST EKKI VIÐ SKRIF-
BORÐ EÐA TÖLVUSKJÁ
Við snúum nú talinu að öðru.
— Þú ræddir í fyrirlestri þínum
við setningu norrænu ráðstefn-
unnar um þátt rannsókna á
starfsferli þínum. Hverja telur þú
vera þýðingu tilrauna og rann-
sókna fyrir verkfræðinga og
tæknimenn?
„Ég hef gert og iátið gera gífur-
legan fjölda tilrauna um ævina í
tengslum við hin ýmsu verkefni,
sem ég hef unnið að. Vegna þessa
hef ég með tímanum fengið mjög
næma tilfinningu fyrir hegðun
mannvirkja og á auðvelt með að
gera greinarmun á góðri og lélegri
hönnun. Sérstaklega á þetta við
um hönnun deiliatriða (details).
Þessa tilfinningu er ekki hægt að
fá við skrifborðið eða við tölvu-
skjáinn. Af þessari ástæðu tel ég
gífurlega þýðingarmikið að allir
hönnuðir fái tækifæri til að taka
átt í a.m.k. einhverjum rann-
sóknum og tilraunastarfsemi.
Raunar er best að verðandi hönn-
uðir kynnist prófunum og tilraun-
um þegar við nám. Allir verkfræð-
ingar, sem leggja stund á mann-
virkjagerð við Háskólann í Stutt-
gart eru til dæmis látnir aðstoða
við prófanir af ýmsu tagi. Því mið-
ur búa þó ekki allir háskólar svo
vel að geta haft þennan háttinn
á.“
RANNSÓKNIR GETA
SPARAÐ MIKIÐ FÉ
— Telur þú að nægilegur skiln-
ingur á þýðingu rannsókna við
hönnun ríki meðal þeirra sem
fjármagna framkvæmdir?
„Það er mjög undir því komið
fyrir hverja er unnið og hvers eðl-
is verkefnið er. Þegar um mjög
erfið verkefni er að ræða geta
skynsamlegar prófanir gefið mik-
ilvægar upplýsingar og sparað
mikið fé. Ef hægt er með sannfær-
andi hætti að sýna fram á nauð-
syn rannsókna, er yfirleitt auðvelt
að fá fjármagn til þeirra. Ég hef
að minnsta kosti ekki átt í miklum
erfiðleikum með það. En menn
verða að muha að málstaður
þeirra þarf að vera góður. Ég held
t.d. að á Norðurlöndum séu menn
tiltölulega vel settir í þessum efn-
um, skilningur ríki þar á mikil-
vægi rannsókna.”
VERIÐ ÓSPARIR Á
AÐ NOTA LANDRÝMIÐ
— Hvaða hlutverki telur þú að
rannsóknir þurfi að gegna í ís-
lensku atvinnulifi?
„Þó Islendingar séu fámenn
þjóð og hafi ekki yfir miklu fjár-
magni að ráða ættu þeir að halda
FENGIST VIÐ SKRIFTIR
— Að lokum, dr. Leonhardt,
hvaða viðfangsefni eru þér hug-
leiknust þessa stundina og hvað
munt þú helst fást við á næstu
árum?
„Verkfræðifyrirtæki mitt er nú
að vinna að mjög viðamiklu og
skemmtilegu verkefni á sviði brú-
argerðar. Er það hönnun á all-
mörgum stórum járnbrautarbrúm
í Þýskalandi. Það er liður í áætlun
um gerð umfangsmikils járn-
brautarkerfis í landinu fyrir mjög
hraðskreiðar lestir. Með því er
m.a. stefnt að þvi að gera almennt
innanlandsflug óþarft innan um
það bil 30 ára. Auk þess mun þetta
kerfi ef að líkum lætur draga mjög
úr allri bílaumferð.
Annars tek ég nú orðið mun
minni þátt í almennum störfum
innan fyrirtækisins en áður var.
T.d. má segja að ég stundi nú brú-
arhönnun aðeins sem tómstunda-
gaman. Ég hjálpa yfirleitt til við
hönnun á upphafsstigum hennar,
en læt síðan starfsmönnum mín-
um eftir nánari útfærslur.
Á síðari árum hef ég hinsvegar
fengist talsvert við skriftir og geri
ráð fyrir að halda því áfram. M.a.
hef ég skrifað bækur um brýr og
nýverið komu endurminningar
mínar út. Nú vinn ég að bók, sem
fjallar um turna. Að mínu mati
eru turnar mjög athyglisvert við-
fangsefni. Þeir hafa raunar alltaf
heillað mannfólkiö, og til eru ótal
sagnir um turnbyggingar, nær því
frá upphafi mannkyns. Mönnum
hefur alltaf þótt gaman að klífa
turna og horfa niður á heiminn úr
fjarlægð."
Texti: Guðmundur Þorbjörnsson