Morgunblaðið - 14.11.1984, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
29
Gestur í undirheimum
FeAgarnir Njörður P. Njarðrfk og Freyr Njnrðaraon, böfundar Ekkert mál.
esió
fjöldanum!
Jóhann Hjálmarsson
Njörður P. Njarðvík, Freyr Njarð-
arson:
EKKERT MÁL.
Setberg 1984.
Njörður P. Njarðvík og Freyr
Njarðarson hafa skrifað sögu ungs
manns sem er veikur fyrir freist-
ingum vímuefna, byrjar á hassi,
fer síðan að sniffa kókaín og verð-
ur loks heróínneytandi. Hann
missir áhuga á skólanámi, gerist
hasssali með góðum árangri,
stundar sjálfur innkaupaferðir til
Kaupmannahafnar. Þangað flyst
hann 1982, kynnist íslenskri
stúlku sem svipað er ástatt fyrir
og smám saman verða þau for-
fallnir heróínneytendur. Freddý,
en svo nefnist ungi maðurinn í
Ekkert mál verður fljótlega at-
hafnasamur sölumaður og inn-
flytjandi kókaíns í Kaupmanna-
höfn, en síðan nær heróínið tökum
á honum og þá kemst ekkert ann-
að að. Ekkert mál segir sögu
Freddýs og Ástu, sambýliskonu
hans í Kaupmannahöfn, lýsir
niðurlægingu þeirra og kvalræði,
ýmsu fólki sem þau hafa sam-
skipti við og endar á heimkomu
þeirra til Islands þar sem þau fá
meðferð á Kleppsspítala.
Það er að mörgu leyti óviðeig-
andi að segja að Ekkert mál sé
spennandi bók. Bókin er fyrst og
fremst viðvörun, saga hennar viti
til varnaðar. Siðferðilegur boð-
skapur bókarinnar fer ekki á milli
mála. Það er ekki æskilegt að ungt
fólk eyðileggi eigið lif og annarra
með heróinneyslu og vissulega
fleiri eiturefnum. í því hlýtur að
felast að lifið sjálft hafi upp á
eitthvað að bjóða sem sé nokkurs
virði, þess megi njóta án þess að
ánetjast vímuefnum. Frásögn höf-
undanna er víða i anda skáldsögu,
æsileg á köflum, fær lesandann til
að trúa að hann sé með annað og
meira i höndum en heimild,
skýrslu. Þetta er kostur, en stund-
um á kostnað boðskaparins.
Vissulega er Freddý illa haldinn
i Kaupmannahöfn, sekkur djúpt.
Sumar lýsingarnar eru nöturleg-
ar. En flestar þeirra eru með þeim
hætti að það getur hvarflað að
manni að Freddý sé gestkomandi i
undirheimum. Hann sé þar með
hálfum hug og bíði eftir þvi að
losna.
Maður hefur á tilfinningunni að
mörgu sé sleppt úr reynsluheimi
heróinistans. Og líklega er það
með ráðum gert þvi að nógu öm-
urlegt er það sem lesandinn fær að
kynnast. Aftur á móti gengur
furðu fljótt að koma þeim Freddý
og Ástu yfir það versta þegar
heim er komið. Þau þrjóskast að
vísu við og valda aðstandendum
sinum hugarangri og þjáningum.
Átakanlegust er i raun og veru
lýsingin á föður og móður Freddýs
sem verða að horfast i augu við að
sonur þeirra er lengra leiddur en
þau gátu gert sér grein fyrir. Höf-
undum tekst einna best að lýsa
angist og vanmætti foreldranna.
Aður var minnst á siðferðilegan
boðskap. En þótt hann sé í fyrir-
rúmi er sagan gerð forvitnileg af-
lestrar með ýmsum ráðum hins
þjálfaöa rithöfundar. Njörður P.
Njarðvík kann vel að byggja upp
sögu svo að hún nái tökum á les-
andanum. Frásögn er jafnvel reyf-
araleg á köflum og er það ekki
sagt til hnjóðs. Siður en svo.
Það sem aftur á móti verður að
telja galla er að bakgrunninn
vantar. Freddý er leiddur til móts
við lesandann án þess að hann fái
að kynnast því hvaðan hann kem-
ur. Hvers vegna er hann til dæmis
sólginn í að prófa hass? Hvers
vegna verður hann kókaíni svo
auðveld bráð? Og hvers vegna þarf
hann endilega að sprauta sig með
heróíni? Áður en hann fellur fyrir
heróíninu virðist hann þrátt fyrír
allt hafa það gott, njóta til fulln-
ustu hins ljúfa lífs.
Þessum og fleiri spurningum er
ekki svarað í Ekkert mál. Þær eru
auðvitað nærgöngular. En þess má
krefjast af höfundum sem reyna
að brjóta til mergjar mikið sam-
félagsmein að þeir séu óhræddir
við hvers kyns afhjúpanir.
Hugsun sú líkust þversögn sem
kemur fram i Eftirmála föður er
rétthá og mjög heimtufrek:
„Sérhver manneskja verður að
læra að horfast svo fast í augu við
sjálfa sig að hún neyðist til að líta
undan. Og horfa svo aftur. Án
þess að líta undan."
Þessa hefur verið freistað með
Ekkert mál. En ekki horft nógu
fast.
NEC
PC-8201
EINKATOLVAN
EIN SU FULLKOMNASTA A MARKAÐNUM.
Islenskt letur, innbyggö/ritvinnsla, basic og samskiptaforrit.
Einnig fylgja 14 önnur forrit meö vélinni.
Innbyggöur skjár, tengimöguleiki viö flesta prentara, segulband og sem útstöö viö PDB 11 og Vax tölvur
Tengin'viö auka skjá og seguldisk væntanleg.
Fjöldi aukahluta fyrirliggjandi.
Til afgreiðslu strax.
Verð aðeins kr.
19.850.
Benco
Bolholt 4.
Sími 91-84077/21945.
Bókmenntir