Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 35
35 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 „Heimavinnandi húsmæður vanmetn- ar í þjóðfélaginu" — Rætt við Unni Halldórsdóttur, Stein- unni Jóhannsdóttur og Hrefnu Tynes Hagsmunanefnd heimavinnandi kvenna, sem starfar á vegum Bandalags kvenna í Reykjavík hélt fund á Hótel Sögu 3. nóvember sl. sem bar yfir- skriftina: „Umreóufundur um réttinda- og hagsmunamál heimavinnandi húsmeóra“ eins og frá hefur verió greint í Morgunblaðinu. Fundinn sóttu um 230 konur hvaðaneva af landinu og var f lok fundarins samþykkt ályktun þar sem skorað er á Alþingi að endurskoða skatta- og tryggingalög- gjöfina með tilliti til hagsmuna heimavinnandi húsmeðra og heimila þeirra. Blm. hafði tal af þremur konum sem þessum málum. „Vanmetnar í þjóðfélaginu“ Unnur Halldórsdóttir, prestsfrú í Háteigssókn, kvað heimavinn- andi húsmæðrum og heimilum þeirra mjög mismunað miðað við aðra skatt- og tryggingabótaþega. „Auðvitað á ég mjög bágt með að sætta mig við þetta og tel okkur heimavinnandi húsmæður hrein- lega vanmetnar í þjóðfélaginu," sagði Unnur. „Ég er þeirrar skoð- unar að konum sé bókstaflega ýtt út á vinnumarkaðinn, ekki bara vegna þess að þær verða að afla sér tekna heldur vegna hins gegndarlausa áróðurs fyrir því hvað heimavinnandi húsmæður eru innilokaðar og einangraðar á heimilunum en það er hlutur sem ég á mjög erfitt með að skilja. Ég t.d. er með stórt heimili og hef í meira en nógu að snúast við að halda því gangandi. Að mínu mati er það bæði lifandi og skemmti- legt starf að vinna heima og geta verið hjá bðrnunum, sérstaklega á meðan þau eru að vaxa úr grasi." Unnur kvað Bandalag kvenna i Reykjavík ákaflega þarfan og góð- an félagsskap. „Bandalagið stuðl- ar að samgangi milli kvenna úr ólíkum bæjarhlutum sem þannig fá tækifæri til að bera saman viðhorf sín. Fundur Hagsmuna- nefndarinnar var sérlega góður og er vonandi að hann hafi orðið til þess að opna augu fólks fyrir hin- um mikla muni á kjörum útivinn- andi og heimavinnandi hús- mæðra.“ „Mismunað miöað við aðra tryggingabótaþega" Steinunn Jóhannsdóttir, for- maður Húsmæðrafélags Reykja- fundinn sátu og leitaði álits þeirra á víkur, kvað mörg merk mál hafa verið reifuð á fundinum. „Númer eitt voru að mínu mati trygg- ingamálin þar sem okkur heima- vinnandi húsmæðrum er mjög mismunað miðað við aðra trygg- ingabótaþega, bæði í sambandi við slysabætur og fæðingarorlof. Sem dæmi má nefna að slasist heima- vinnandi húsmóðir við vinnu þá fær hún ekki helming þeirra bóta sem útivinnandi kona fær, þó svo að hún hafi slasast á sama hátt. Þá finnst mér það ótækt að reynsla og starf heimavinnandi húsmóður sé ekki metið þegar hún fer út á hinn almenna vinnumark- að, þó svo að hún hafi jafnvel rek- ið heimili í 25 ár. Á fundi Hagsmunanefndarinn- ar kom fram sérlega athyglisverð hugmynd um að vekja athygli hins almenna borgara og allra hús- mæðra á starfi heimavinnandi húsmæðra og mynda með því þann þrýsting sem nauðsynlegur er til að breytingar fáist. Að visu er ég á móti þrýstihópum en ef að þetta gæti orðið til þess að opna augu manna þá er það vel. Ég tel þá konu mjög lánsama sem getur verið heima hjá börnum sínum vegna þess að eiginmaður- inn hefur nægar tekjur til að sjá heimilinu farborða og er hlynnt því að konan fái greiddar barna- bætur eða annað þvíumlíkt fyrir það að vera heima. Ég er ekki þeirrar skoðunar að hægt sé að heimta allt af þjóðfélaginu en að réttlætis sé gætt i þessum málum sem öðrum tel ég framar öllu. Fundurinn opnaði augu min fyrir ýmsum málum sem ég var ekki kunnug áður og vona ég að við heimavinnandi húsmæður sam- gagnkvæm tengsl og eru forsenda alhliða þjónustu- og iðnaðarupp- byggingar á svæðinu. Næstu stór- verkefni i vegamálum eru í fyrsta lagi göng um ólafsfjarðarmúla og er brýnt að lokið verði rannsókn- um á gerð þeirra hið allra fyrsta og hafnar framkvæmdir, og i öðru lagi lagning varanlegs slitlags á þjóðveginn til Reykjavikur, sem hvort tveggja í senn lækkar vöru- verð norðanlands og stuðlar að iðnþróun, þar með ódýrari og greiðari markaðssetningu á fram- leiðsluvörum þaðan á Stór- Reykj avíkursvæðið. 3. Ljúka verður rannsóknum á náttúrufari við Eyjafjörð vegna álverksmiðju hið allra fyrsta. 4. Á næsta ári verður að ljúka botnrannsóknum á hafnarsvæðun- um við Húsavík með stóriðju eða nýiðnað fyrir augum. 5. Treysta verður starfsskilyrði skipasmiðaiðnaðarins og tryggja i lánsfjárlögum að viðhald og end- urbætur á fiskiskipastólnum geti farið fram hér á landi. Mikilvægt er að hið fyrsta verði endurnýjun- arþörf fiskiskipastólsins metin, svo að innlendar skipasmiðar hefjist að nýju. 6. Samhliða þeim breytingum, sem verið er að undirbúa og gera á starfsgrundvelli landbúnaðarins, verður að gera landið að einu markaðssvæði. 7. Sérstakt átak verði gert til að efla ferðamannaiðnaðinn, sem er vaxandi og gjaldeyrisskapandi at- vinnugrein, með samvinnu einka- aðila, sveitarfélaga og Ferðamála- ráðs. 8. Menntamál strjálbýlisins verði tekin til endurskoðunar. Sérstak- lega verði athuguð heildarstefna í framhaldsskólamálum kjördæm- isins. Uppbyggingu Verkmennta- skólans á Ákureyri verði hraðað og hafist handa um byggingu heimavistar. Háskóladeild rísi á Akureyri. 9. Fyrirhugað þróunarfélag, sem stofna á skv. samkomulagi stjórn- arflokkanna, verði stofnað á Ak- ureyri og þar verði aðalskrifstofa þess. Kjördæmisráð skírskotar til þjóðarinnar allrar um að íhuga síðustu atburði í kjaramálum, af- leiðingar þeirra og draga lærdóm af þeim. Ný verðbólguskriða bætir einskis manns hag og mun ekki gera. Því er mikilvægt að tíminn til næstu kjarasamninga verði notaður til hins ýtrasta, svo að unnt verði að finna lausn, sem allt í senn viðheldur stöðugleika efna- hagslífsins, bætir iífskjörin og skapar fyrirtækjunum skilyrði til að standa undir þeim. Kjördæm- isráð leggur áherslu á að starfs- mat og laun verði byggt á rökum en ekki hefðum. Með breyttum þjóðfélagsháttum standa konur jafnfætis körlum sem fyrirvinnur heimilanna. Það kemur í hlut Sjálfstæðis- flokksins nú sem fyrr að vinna að þjóðarsátt. Það er í samræmi við sögu hans, stöðu og grundvallar- stefnu að hafa um það forystu." GBerg Unnur Halldóradóttir einumst um að fá kjör okkar bætt.“ „Erfítt að meta vinnu heimavinnandi húsmæðra“ Hrefna Tynes, formaður Kven- félags Neskirkju, kvað mikið vatn hafa runnið til sjávar frá því að hún var ung. „Ég hef starfað með ungu fólki frá því að ég var sjálf unglingur og er það mín skoðun að nú sé fólk orðið miklu opnara og ófeimnara við að láta skoðanir sinar í ljós, eins og kom fram á þessum fundi,“ sagði Hrefna. „Að minu mati á ekki að vera að mis- Steinunn Jóhannsdóttir muna annars vegar þeim konum sem vilja vinna heima og hins veg- ar þeim sem eru útivinnandi Ld. i sambandi við fæðingarorlof og sjúkradagpeninga. Mér hefur allt- af fundist að þær mæður sem vinna heima og gæta sinna barna eigi heiður skilinn. Ég veit auðvit- að að fólk lítur misjöfnum augum á þessi mál og ekki gera allir sömu kröfur til lífsþægindanna. Þvi vinna sumar konur meira úti en aðrar. Skatta á maður auðvitað að greiða svo fremi sem að réttlætis sé gætt en hvernig getur það kall- ast réttlæti þegar svo margir Hrefna Tynes svikja undan skatti? Auðvitað er það rangt að heimili skuli skatt- lögð svo mismunandi, eftir því hvort annað hjónanna eða bæði afla tekna og þvi að sjálfsögðu réttlæti i þvi að meta vinnu heimavinnandi húsmæðra til jafns við vinnu eiginmannsins. Hins vegar held ég að það geti reynst erfiðleikum bundið þar sem menn eru i mismunandi launa- flokkum og húsmæður með mis- stór heimili. Heimavinnandi hús- mæður eru þó að mínu mati að berjast fyrir góðu og nýtu málefni og er vonandi að hagur þeirra vænkist i framtiðinni.“ Sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi fjölmenntu rið athöfnina og bér má sjá hhiU þeirra. Seltjamames: Nýtt félagsheimili sjálf- stæðismanna tekið í notkun NYTT félagsheimili sjálfstæð- ismanna á Seltjarnarnesi var form- lega tekið í notkun laugardaginn 10. nóvember sl., og þann dag var jafnframt haldið upp á 25 ára af- mæli Sjálfstæðisfélags Seltirninga, sem stofnað var hinn 25. septem- ber 1959. Nýja félagsheimilið er rúmir 200 fermetrar að stærð, til húsa á rishæð verslunarhúsnæðisins að Austurströnd 3. Um tvö ár eru síðan sjálfstæðismenn á Seltjarnarnesi festu kaup á hús- næðinu og að sögn Ásgeirs S. Ásgeirssonar, formanns bygg- ingarnefndar, hefur síðan verið unnið að fjármögnun á kaupun- um og innréttingum og kvaðst Ásgeir vera mjög ánægður með hið nýja húsnæði. Að sðgn Ás- laugar Harðardóttur, í stjórn Sjálfstæðisfélags Seltirninga, eru bundnar miklar vonir við nýja félagsheimilið og þess vænst, að það geti orðið öllu fé- lagsstarfi mjög til framdráttar. Á vigsluhátiðinni var jafn- framt haldið upp á 25 ára af- mæli Félags sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi. Var hátíðin fjöl- sótt og af forystumönnum flokksins, sem viðstaddir voru, má nefna Geir Hallgrimsson, utanríkisráðherra og fyrrum formann Sjálfstæðisflokksins, Friðrik Sophusson varaformann flokksins, Matthías Á. Mathie- sen viðskiptaráðherra, alþingis- mennina Gunnar G. Schram og Salome Þorkelsdóttur, og Kjart- an Gunnarsson framkvæmda- stjóra Sjálfstæðisflokksins. í til- efni dagsins bárust félaginu margar góðar gjafir. Formaóur byggingarnefndar, Ásgeir S. Ásgeirason, tekur vió málverki í viðurkenningarakyni fyrir vel unnin störf, eftir aó hafa afhent formanni Sjálfstæðisfélagins á Seltjarnarnesi, Jóhannesi Jónssyni (til vinstri) hús- næóió.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.