Morgunblaðið - 14.11.1984, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
37
Koivisto í
heimsókn í
Bretlandi
London, 12. nÓT. AP.
MAUNO Koivisto, forseti Finn-
lands, kom til London f dag í fjög-
urra daga opinbera heimsókn í boöi
frú Margaretar Thatcher forsætis-
riðherra.
Koivisto, sem er fyrsti forseti
Finnlands úr röðum jafnaðar-
manna, kom með einkaþotu frá
Helsingfors og var frú Tellervo
kona hans með f förinni svo og
Paavo Váyrynen utanríkisráð-
herra og hópur kunnra manna úr
finnsku athafna- og viðskiptalífi.
Þetta er síðasta kynningar-
heimsóknin, sem Koivisto fer í að
sinni, síðan hann tók við forseta-
embættinu af Urho Kekkonen
1982. Hefur Koivisto þegar heim-
sótt Bandaríkin, Sovétríkin,
Frakkland og öll hin Norðurlöndin
í þessu skyni.
Á meðan Koivisto dvelst í Bret-
landi mun hann snæða hádegis-
verð með Elfsabetu drottningu og
fylgja Diönu prinsessu til athafn-
ar f Southampton, þar sem
stærsta farþegaskipi veraldar, er
smíðað var í Finnlandi, verður
gefið nafnið „Royal Princess".
Baunabyssur gegn lögreglunni
Símamynd AP.
Til nokkurra átaka hefur komið að undanfornu í borginni Bilbao á Spáni milli lögreglumanna og verkamanna í skipasmíðastöðvunum, sem óttast um
atvinnuna vegna endurskipulagningar stjórnvalda í skipasmíðaiðnaðinum. Hafa verkamennirnir efnt til uppþota og barist við lögregluna með
baunabyssum sem eru langt í frá hættulausar.
Kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum:
„Taka verður tillit
til Evrópu allrar“
— segir Poul Schliiter, forsætisráðherra Dana
Jens Evensen
Noregur:
Evensen er
aflögufær
Ósló. 13. nóvember. Frá frétu
ritara Mbl., Jan-Erík Lauré.
JENS Evensen, fyrrum hafréttar-
ráðherra Noregs, mun fá nokkuð
fyrír snúð sinn sem dómari við Al-
þjóðadómstólinn í Haag. Verða
árslaun hans 82.000 dollarar, rúm-
ar 2,7 milljónir ísl. kr.
Launin verða þau sömu og að-
alritari Sameinuðu þjóðanna
hefur, en vinnuálagið miklu
minna þótt nokkuð hafi það
aukist hin síðari ár. Evensen
ætti því að fá tækifæri til ann-
ars sem hann hefur lengi langað
til, en það er að skrifa greinar
og bækur um alþjóðleg álitamál.
Stokkhólmi, 13. nóvember. AP.
DÖNSK stjórnvöld telja, að hug-
myndina um kjarnorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum verði að
ræða í miklu víðara samhengi en
hingað til hefur veríð gert og að hún
verði ekki undan skilin öðrum ráð-
stöfunum í evrópskum öryggismál-
um. Poul Schltiter, forsætisráðherra
Dana, sagði þetta í dag á frétta-
mannafundi í Stokkhólmi en þangað
kom hann í gær f boði sænskra
stjórnvalda.
„Kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum er markleysa nema
stórveldin fallist á að virða það og
á það verður að líta með tilliti til
Evrópu allrar,“ sagði Schlúter,
sem í gær átti langan fund með
Olof Palme, forsætisráðherra. í
dag hitti hann að máli leiðtoga
stjórnarandstöðunnar í Sviþjóð og
forseta þingsins heimsókninni átti
að ljúka með hádegisverði í höllu
Karls Gústafs konungs og Silvíu
drottningar.
Schlúter sagði, að tillögur á
borð við þá um kjarnorkuvopna-
laus Norðurlönd gætu aldrei stað-
ið einar sér, þær yrðu að haldast í
hendur við aðra þróun í þessum
málum. Hann benti líka á, að
Norðmenn og Danir væru aðilar
að Atlantshafsbandalaginu og
sagði, að kjarnorkuvopnalaust
svæði á Norðurlöndum gæti ekki
orðið að veruleika fyrr en sambúð
stórveldanna væri komin f betra
horf.
í ferðinni ræddi Schlúter einnig
viðskipti landanna og kom það
fram hjá honum, að fjármálaráð-
herrum þeirra hefði verið falið að
leggja drög að stofnun norræns
fjárfestingarsjóðs. Hvorugur
Poul Schliiter forsætisráðherra.
þeirra forsætisráðherranna vildi
þó segja hve stór sá sjóður yrði
eða í hvaða framkvæmdum hann
ætti að festa fé.
Desemberkosningar
afráðnar á Indlandi
Nýju Delhí, 13. nóvember. AP.
INDVERSKA ríkisstjórnin tilkynnti í
dag, að almennar þingkosningar færu
fram seint í desember eins og fyrir-
hugað hefði verið. Verður þá úr því
skorið hvort Rajiv Gandhi, eftirmað-
ur Indiru, skipar forsætisráðherra-
embættið áfram.
Kosningar munu fara fram 24. og
27. desember í öllum nema tveimur
af 22 ríkjum Indlands. Þessi tvö
ríki eru Punjab, þar sem síkhar
búa flestir, og Assam, en þar hefur
komið til alvarlegra átaka milli
landsmanna og ólöglegra innflytj-
enda frá Bangladesh.
Áður en Indira var ráðin af dög-
um, töldu margir, að hún ætlaði að
fresta kosningunum með tilvísan
til ókyrrðar { landinu, en augljóst
er, að Rajiv hefur engan hag af þvi.
Vegna móðurmissisins nýtur hann
mikillar samúðar með þjóðinni og
því líklegur til að styrkja stöðu
sína og Kongress-flokksins.
Tón I istaru n nend u r
Selfossi og Reykjavík
Þriöja starfsár íslensku hjómsveitarinnar hefst með tónleikum í íþróttahúsi
gagnfræðaskólans á Selfossi laugardaginn 17. nóvember kl. 14:30.
Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn.
HI jóms veitarst jór i:
Ragnar Björnsson
Efnisskrá
Karl Hermann Pillney:
Eskapaden Eines
Gassenhauses.
Svíta fyrir kammerhljómsveit.
Jacques Ibert:
Suite Symphonique.
Svíta tyrir kammerhljómsveit.
Frédéric Chopin:
Mazurka nr. 17, Scherzo nr. 2.
Einleikur: Stephanie Brown.
Wolfgang Amadeus Mozart:
Píanókonsert nr. 9,
í Es-dúr, K271.
Einleikur: Stephanie Brown.
Einleikari:
Stephanie Brown
Að loknu meistaraprófi frá Julliard tónlistar-
háskólanum (1976) vakti Stephanie
Brown (1955) þegar athygli fyrir öryggi i
tækni og túlkun. Síðan hefur hróður hennar
vaxið jafnt og þétt með tónleikum viðs
vegar um Bandaríkin. Hún hefur leikið með
mörgum helstu hljómsveitum þarlendis, og
hefur nú á efmsskrá sinni fjölda pianó-
konserta. Ummæli gagnrýnenda stórblað-
anna hafa öll verið á einn veg: „Stephanie
Brown er sannarlega undursamlegur
pianóleikari, eigin tón og ákveðinn listræn-
an persónuleika" (N. Y. Times). „Stephan-
ie Brown er ungur pianisti með stórar hug-
myndir og tækni sem hæfir þeim. Blæ-
brigðin voru í fögru jafnvægi og styrkleika-
breytingar virtust hlíta innra afli hennar"
(The Wahington Post). Þess má geta, að
Stephanie Brown lék nú I haust þennan
Stephanie Brown
konsert Mozarts með þekktustu kammer-
hljómsveit Bandaríkjanna, St. Paul
Chamber Orchestra, undir stjórn Pinnkas
Zukerman.
Efnisskrá þessi verður endurflutt á fyrstu áskriftartónleikum hljómsveitarinnar
í Bústaðarkirkju sunnudaginn 18. nóvemberkl. 17:00.
Áskriftarsímarnir eru 22035 og 16262.
Þú getur tryggt þér áskrift með símtali og greitt gjaldið eftir samkomulagi.
önnur efnisskrá vetrarins verður frumflutt á Akranesi laugardaginn 24. nóvember kl. 14:30 og endurtekin á
áskriftartónleikum í Reykjavík sunnudaginn 25. nóvemberkr. 17:00.