Morgunblaðið - 14.11.1984, Page 39
MORGUNBLAÐID, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
39
3(mamynd AF.
Húsbóndahollusta
Hundur Juan Sanchez Sierro situr við lfk húsbónda síns, sem aðskilnaðarsinnar úr röðum Baska rændu og
myrtu við borgina Cestona á Norður-Spáni um heigina. Ræningjarnir voru þrír ungir menn, allir félagar í
aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA.
Tékkóslóvakía:
Rudolf Battek verði
leystur úr fangelsi
Áskorun frá Charter 77 til Husaks forseta
Víb, 12. nóvember. AP.
Mannréttindahreyfingin Charta
77 í Tékkóslóvakíu hefur sent áskor-
un til Gustavs Husak, forseta lands-
ins og Alþjóðasambands jafnaðar-
manna um að beita sér fyrir því, að
Rudolf Battek verði látinn laus úr
fangelsi. Battek, sem er einn af
stofnendum Charta 77, var dæmdur
í TVi árs fangelsi 28. júlí 1981 fyrir
undirróðursstarfsemi gegn tékkn-
eska ríkinu. Áður en dómur gekk
yfir Battek, hafði honum verið hald-
ið í gæsluvarðhaldi í 13 mánuði.
Samkvæmt áfrýjunardómi í
október 1981 var fangelsisvist
Batteks stytt í 5'A ár og er talið,
að þessu hafi valdið hörð mótmæli
á Vesturlöndum vegna upphaflega
dómsins, sem var einn harðasti
dómur, er þá hafði verið kveðinn
upp yfir nokkrum andófsmanni í
Tékkóslóvakíu. í dómi þessum var
Battek m.a. gefið að sök að hafa
ritað bréf til þeirra Brunos
Kreisky, þáverandi kanslara Aust-
urríkis og leiðtoga jafnaðarmanna
þar í landi, og Willy Brandts, leið-
toga jafnaðarmanna 4 Vestur-
Þýzkalandi.
Áskorunin nú um að fá Battek
lausan var send 2. nóvember sl., en
þá varð Battek sextugur. Segir í
áskoruninni, að Battek sé nú al-
varlega sjúkur.
Færeyjar:
Mun stjórnarmyndun
dragast fram til jóla?
Þorsbðfn, 13. nóvember. Frá Jogvan Arge,
frétUriUra Mbl.
Jafnaðarflokkurinn í Færeyjum
mun í lok vikunnar beita sér fyrir
viðræðum um myndun nýrrar land-
stjórnar í kjölfar kosninganna sl.
fimmtudag. Vann hann mest á í
kosningunum og er nú stærsti flokk-
ur á iögþinginu.
Að sögn formanns flokksins,
Atla Dam, munu forystumenn
flokksins og nýkjörnir þingmenn
hans koma saman til fundar og að
því búnu fara fram á viðræður við
aðra flokka. Til þessa hefur Atli
verið heldur fáorður um líklegt
stjórnarsamstarf og býst raunar
ekki við nýrri stjórn fyrr en undir
jól.
ERLENT
Jogvan Sundstein, formaður
Fólkaflokksins, segist ekki vilja
útiloka sama stjórnarsamstarf og
á árunum 1974—80, en þá unnu
þeir saman Jafnaðarflokkurinn,
Fólkaflokkurinn og Þjóðveldis-
flokkurinn. Erlendur Patursson,
formaður Þjóðveldisflokksins,
segist að vísu vera reiðubúinn til
að ræða slíkt samstarf en telur þó,
að stefna flokksins t.d. í jarð-
grunnsmálinu, geri það heldur
ólíklegt.
Hilmar Kass, formaður Sjálf-
stýriflokksins, hefur vísað á bug
hugmyndum um samstarf Sjálf-
stýriflokks, Jafnaðarflokks og
Fólkaflokks og vill, að i stað síð-
astnefnda flokksins komi Sam-
bandsflokkurinn. Pauli Ellefsen,
formaður Sambandsflokksins,
hefur áhuga á samstarfi við jafn-
aðarmenn en segir, að það muni þó
velta á því hvaða verði þeir þurfi
að kaupa það.
í kosningunum sl. fimmtudag
unnu jafnaðarmenn og Fólka-
flokkur einn mann hvor en Sam-
bandsflokkurinn og Sjálfstýri-
flokkurinn urðu hins vegar jafn
mörgum mönnum fátækari.
New York:
Noregur:
Flugfarþeg-
um sýndar of-
beldismyndir
Ósló, 13. BÓvember. Fri J»n Erik Uuré.
frétUritura MbL
MÖRG þeirra flugfélaga, sem
fljúga með norska farþega í leigu-
flugi til Spánar, sýna grófar ofbeld-
Lsmyndir um borð í vélunum til
þess að hafa ofan af fyrir fólkinu.
Og börn hafa einnig fengið að sjá
myndirnar.
Þetta hefur nú vakið áköf
mótmæli. Hafa nokkrar flug-
freyjur tekið frumkvæði í mál-
inu eftir að hafa horft upp á
barn sem varð ofsahrætt þegar
það horfði á krókódíla étalifandi
fólk.
Flugfélögin hafa harmað, að
þetta skuli hafa viðgengist, og
lofa að leitast við að hafa á
boðstólum þekkilegra fjölskyldu-
efni.
Fiðlan fór á
10 millj. kr.
New York. AP.
FYRIR skömmu var 294 ára gömul
Stradivarius-fiðla slegin á 308.000
dollara (yfir 10 millj. ísl. kr.) á upp-
boði hjá Christie’s-uppboðsfyrir-
tækinu í New York, og er það met-
verð.
Fiðlan var seld ótilgreindum
safnara, sem kann ekki hið
minnsta fyrir sér í fiðluleik, sam-
kvæmt upplýsingum uppboðsfyr-
irtækisins.
Metabo
Endlng-Kgaftur-ttryqgi
RR BYGGINGAVÖKUR
HE
STJÓRNMÁL
Athyglisverð grein um kynlíf á níunda ára-
tugnum, en miklar breytlngar viröast nú
vera að eiga sér staö í þessum efnum á Vest
urlöndum.
METSÖLUTÍMARITIÐ
Athugið: Þrðtt fyrlr
ótrúlega sölu fæst 1.
tölublaö MANNLÍFS,
endurprentun, enn á
bóka- og blaösölu-
stöóum viöast hvar á
landinu. Nýir áskrif-
endur fá 1. tölublaö
sent um lelö og þeir
skrá síg.
MANNLIF
Skoöanakannanir, gildi þeirra og áhrif, er
viöfangsefni Ólafs Haröarsonar prófessors í
fróölegri grein, en Ólafur vinnur nú aö dokt-
orsritgerð um þetta efni.
Annaö töiublaö MANNLÍFS er nú komið út, eitt
efnismesta og vandaðasta tímarit, sem út hefur
komiö hér á landi. Meöal efnis er einkaviötal viö
Jesse Jackson, merkasta leiötoga blökkumanna
í Bandaríkjunum eftir aö Martin Lúther King var
myrtur. Þá er birt svipmynd af Styrmi Gunnars-
syni, ritstjóra Morgunblaösins, birt er óvenjulegt
Tryggið ykkur eintak í tíma, síöast seldist
viöal viö Svavar Gestsson formann Alþýöu-
bandalagsins, grein um lífsstíl, tískuþáttur á sín-
um stað, sagt frá kvikmyndastjörnunni Goldie
Hawn, skemmtileg grein um sögufræg hótel á
Norðurlöndunum, viötal viö Tinnu Gunnlaugs-
dóttur og margt fleira, skemmtilegt og fróölegt
efni.
MANNLÍF upp á aðeins fimm döguml
Metsölutímaritið
MANNLÍF,
áskriftarsími
91-687474.