Morgunblaðið - 14.11.1984, Page 42

Morgunblaðið - 14.11.1984, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 Styrktarfélag vangefinna: Nýtt happdrætti af stokkiinum ÞESSA dagana stendur yfir útsend- ing á happdrættismiðum í irlegu happdrætti Styrktarfélags vangef- inna. Vinningar verða 10 talsins og heildarverðmæti þeirra um 1.675.000. Aðalvinningur að þessu sinni er Citroén BX TRS, árgerð 1985 að verðmæti um 530 þús. Annar vinn- ingur er Daihatsu Charade CX, 5 dyra, árgerð 1985 að verðmæti um 325 þús. Þriðji vinningur er bifreið að eigin vali að upphæð kr. 260 þús. Þá eru 7 vinningar, hús- búnaður að eigin vali, hver að upp- hæð kr. 80 þús. Miðaverð er kr. 100 og vinningar skattfrjálsir. Félagið stendur nú í miklum og fjárfrekum framkvæmdum. Unnið er að frágangi tveggja raðhúsa i Víðihlíð og er annað þeirra ætlað undir sambýli en hitt sem skammtímaheimili. Tilfinnanleg vöntun er á slíkum heimilum hér í borginni. Stefnt er að því að starf- semi í þessum húsum geti hafist i næsta mánuði. Þá hefur félagið fest kaup á 350 m! húsnæði í Brautarholti undir vinnustofu, en þar munu um 20—25 öryrkjar vinna að ýmis konar framleiðslu. Unnið er að endurbótum á hús- næðinu og verður það tekið í notk- un í þessum mánuði. Um leið og félagið þakkar al- menningi mikilsverðan stuðning á liðnum árum treystir það enn á skilning fólks á nauðsyn þess að búa vangefnum sem best skilyrði. Fréttatilkynning. Ólafsvík: Þeir fiska sem róa ÓUfsrfk, 13. aóienber. HAUSTIÐ hefur verið með afbrigð- um gott hér vestra, hvort sem litið er til tíðarfars eða aflabragða. Þó grán- aði jörð í gær f leiðindaveðri, en haustkálfur hefur enginn komið. Atvinna hefur verið næg það sem af er árinu og góð nú í haust. Það er auðvelt að taka undir með Vestfirðingum með það, að sjávar- líf virðist vera með kröftugasta móti. Hér var góð kvæma f vetur og í sumar fiskuðu handfærabátar með ágætum. Hafa þeir raunar verið að fram undir þetta. f haust hefur svo fiskast ágætlega í dragnót. Virðist sama hvort bát- arnir róa norður á flóann eða eru hér heima, nánast uppi í fjöru, alls staðar er fiskur. Ekki hefur þó verið um kraftfiskerí að ræða, en jafnan og góðan afla, algengast 3 til 8 tonn á dag. Var mikið um kola framan af hausti, en síðan góðan þorsk. Bátar Stakkholts hf., fjórir tals- ins, hafa verið á rækju og aflað vel þegar næði hefur verið á miðun- um, sem eru 30 til 40 mílur frá Nesi. Hefur því verið mikil vinna í rækjustöð Stakkholts frá því hún byrjaði starf í sumar. Já, sjávar- lífið er gott og mikið er af síli. Hér heima sést ekki fugl. Þeir Már Magnússon Tónleikar á Flúðum MÁR Magnússon tenórsöngvari og Ólafur Vignir Albertsson píanóleik- ari halda tónleika í félagsheimilinu á Flúðum föstudaginn 16. nóvember kl. 21.00. Á efnisskránni eru ítalskar arí- ur og sönglög, þar á meðal nokkur vinsælustu verk söngbókmennt- anna. eru allir á sjó og gera út á sílið. Þeir fiska sem róa. Heigí. Stofnuð samtök kvennalista NÚ UM helgina voru haldnir stofn- fundir Samtaka um kvennaiista f þremur kjördæmum landsins og gerðust þar tugir kvenna stofnfélag- ar. Á laugardaginn var haldinn fram- haldsstofnfundur Kvennalistans f Borgarnesi, en aðalstofnfundur var á Akranesi nú fyrir skömmu. Sama dag var haldinn á Selfossi stofnfundur Samtaka um kvenna- lista í Suðurlandskjördæmi og fyrirhugaðir eru framhaldsfundir í sýslum austan fjalls og í Vest- mannaeyjum. Þá var á sunnudag- inn, í gær, fjölmennur stofnfundur Samtaka um kvennalista á Höfn í Hornafirði. Stuðningsskeyti barst þangað frá konum á Héraði sem ekki komust til fundarins vegna veðurs. í yfirlýsingu sem nýstofn- aður Kvennalisti á Höfn sendi frá sér, kemur fram að mikill hugur er í konum þar eystra og hyggja þær á framhaldsstofnfundi á Austurlandi á næstu vikum. Fréttatilkynning. Samdráttur í október. þó vaxandi straumur ferðamanna í októbermánuði síðastliðnum komu 2.128 útlendingar hingað til lands og er það liðlega 2 þúsund erlendum ferðamönnum minna en í sama mánuði i fyrra, þá komu 4.200 útlendingar til landsins. Mestan hluta mánaðarins var verkfall opinberra starfsmanna. Fyrstu 10 mánuði þessa árs komu 157.119 ferðamenn til landsins, tæplega 78 þúsund íslendingar og rúmlega 79 þúsund útlendingar. Sömu mánuði í fyrra voru ferða- mennirnir, sem hingað komu, alls 143.805, þar af 71.165 íslendingar og 72.640 útlendingar. Lýst eftir vitni I GÆRMORGUN um klukkan ell- efu varð árekstur fyrir framan pósthúsið við Digranesveg í Kópa- vogi. Þar rákust saman jeppi og sendiferðabifreið. Lögreglan í Kópavogi biður þá, sem kunna að hafa orðið vitni að óhappinu, vin- samlega að láta sig vita. Pétur Pétursson í Kjötbúrinu með jólamatarpakka, sem eiga að fara til íslendinga f útlöndum. Jólamaturmn til útlanda „ÞEIR SEM vilja senda ættingjum sínum eða vinum í útlöndum mat- arpakka fyrir jólin ættu að fara að huga að þeim málum,“ segir Pétur Pétursson, kjötiðnaðarmaður og kaupmaður í Kjötbúri Péturs á Laugavegi 2 f Reykjavfk. Þar var um áratugaskeið rekin Kjötversl- un Tómasar, sem m.a. annaðist matarsendingar til útlanda fyrir jólin. Kjötbúr Péturs mun halda áfram þessari þjónustu. Starfs- fólk verslunarinnar sér um að pakka vörunni, afla tilskilinna leyfa og vottorða og að póst- leggja pakkann. Pétur Pétursson segir að fyrir jólin sé enn mest sent af hangikjöti en mjög hafi þó færst í vöxt að senda Lond- on-lamb. Harðfiskurinn er alltaf vinsæll og sömuleiðis reyktur lax. Ýmisleg niðursuðuvara er einnig send, t.d. niðursoðin svið, Þingvallamurta og fleira. Kjötbúr Péturs býður í ár upp á nýjung, sem er reyktur, ís- lenskur áll. Víða í útlöndum þyk- ir reyktur áll hátfðarmatur og er seldur þar háu verði. Allar nán- ari upplýsingar um tilhögun matarsendinganna má fá f Kjötbúri Péturs, Laugavegi 2 í Reykjavík. Kennarar safna uppsögnum STÓR HLUTI félagsmanna Kenn- arasambands íslands hefur lýst yfir að hann sé reiðubúinn að segja upp störfum til að knýja á um bætt kjör, endurmat á störfum kennara með tUliti tU menntunar og ábyrgðar, lögverndun starfsheitisins kennari og sjálfstæðan samningsrétt fyrir stéttarfélög kennara, að því er segir í fréttatilkynningu frá Fulltrúaráði Kennarasambands íslands. Á fundi ráðsins sl. laugardag var samþykkt að fela stjórn Kenn- arasambands íslands að safna þegar í stað saman fyrirhuguðum uppsögnum frá félagsmönnum og að því verði lokið fyrir 24. október. í fréttatilkynningu frá ráðinu seg- ir að ákvörðunin sé tekin „í fram- haldi af samþykkt, sem gerð var á 3. fulltrúaþingi KI sl. vor, þar sem skorað var á stjórn KÍ að safna saman uppsagnarbréfum frá kennurum, sem lögð verði fram ef ekki tekst að ná fram leiðréttingu á kjörum þeirra". Segir einnig að fulltrúaráðið telji að í „nýgerðum aðalkjara- samningi BSRB og ríkisins hafi ekki náðst leiðrétting á kjörum kennara og þvi neyðist kennara- stéttin til að grípa til svo alvar- legra aðgerða, sem uppsagnir eru. — Fulltrúaráðið mun koma aftur saman sunnudaginn 25. nóvember og þar mun verða tekin ákvörðun um hvort uppsagnir verða lagðar fram fyrir 1. desember." Vegna mistaka í vinnslu birtist þessi frétt ekki undir fyrirsögn sinni í blaðinu í gær. Beðist er velvirðingar á því. Fá 700 manns vinnu í bílaverksmiðju hér? Bandarískt fyrirtæki vill setja upp De Lorean-samsetningarverksmiðju á íslandi NÝLEGT bandarískt fyrirtæki, Trans-Sonic Jet Corporation, hef- ur áhuga á að setja upp bfla- samsetningarverksmiðju hér á iandi. Gera forkólfar fyrirtækis- ins ráð fyrir að stofnkostnaður fyrirtækisins verði nærri 12 millj- ónum Bandaríkjadala, eða sem svarar um 400 milljónum ísl. króna, og að um 700 manns gætu haft atvinnu við samsetninguna. Bandaríska fyrirtækið mun hafa í hyggju að taka yfir þrotabú De Lorean-bílaverk- smiðjunnar, sem stofnsett var á N-írlandi með þátttöku bresku stjórnarinnar, að sögn Her- manns Sveinbjörnssonar, deild- arstjóra í iðnaðarráðuneytinu. „Við fengum bréf og skýrslu frá þessu fyrirtæki í sumar og svo hafa þeir nýverið ýtt á eftir svari í gegnum utanríkisráðu- neytið," sagði Hermann. „Við erum að ganga frá svari til þeirra, þar sem þeim er sagt að þeir séu velkomnir hingað til lands til að ræða málin við okkur. Gallinn er sá, að upplýs- ingar um fyrirtækið sjálft eru heldur af skornum skammti. Það er til dæmis ekki að finna á alþjóðlegum skrám verðbréfa- sala og kauphalla." Hann sagði að hugmynd Bandaríkjamannanna væri að setja hér upp samsetningar- verksmiðju og selja síðan bíla til Bandaríkjanna og Evrópu. „Þeir telja að hér séu þeir vel staðsettir og eins mun lágur launakostnaður hér freista þeirra. Þeir lýsa áhuga sínum á að íslendingar taki þátt í fjár- festingunni og segjast geta haf- ist handa mjög fljótlega eftir að uppsetning verksmiðjunnar hefst en þeir myndu væntanlega flytja hana frá írlandi." De Lorean-bílaverksmiðjurn- ar voru stofnaðar af bandaríska bílasmiðnum John de Lorean, sem ætlaði að framleiða ódýrt Laugarásbíó sýnir „Hard to Hoíd“ LAUGARÁSBÍÓ hefur hafið sýn- ingar á nýrri bandarískri ungl- ingamynd, sem nefnist Hard to hold. Með aðalhlutverk í myndinni fer söngvarinn og gítarleikarinn Rick Springfield, sem er hvað þekktastur fyrir plötu sína „Succes hasn’t spoiled me yet“ sem var mjög vinsæl á síðasta ári. Tónlist í myndinni er eftir Rick og ameríska fusion-saxó- fónleikarann Tom Scott. Myndin fjallar um poppstjörn- una Jamie Roberts (Springfield) og tilraunir hans til að vinna hjarta elskunnar sinnar (Janet Eilber), semer ekki svo auðvelt „sportmódel“ fyrir allan al- menning. Rekstur og fram- leiðsla verksmiðjunnar gekk mjög brösuglega og varð bíllinn mun dýrari í útsölu en John de Lorean hafði gert ráð fyrir. Fyrirtækinu var lokað þegar de Lorean var handtekinn í Los Angeles fyrir rúmu ári, grunað- ur um aðild að stórfelldu kóka- ínsmygli. Hann var nýlega sýknaður af ákæru þar um en er enn talinn skulda breskum stjórnvöldum tugi milljóna. Hermann Sveinbjörnsson kvað ekkert benda til að de Lorean væri sjálfur þátttakandi í Trans-Sonic Jet Corporation. þegar allur heimurinn fylgist með.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.