Morgunblaðið - 14.11.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
45
UMSJÓN EIRIKUR INGÓLFSSON
Sjónarhorn ræðir
við Þórarin Jón
Magnússon for-
mann Stefnis
FUS í Hafnarfirði
SíðastliAið haust tók Þórarinn
Jón Magnússon við formennsku
Stefnis, félags ungra sjálfstæð-
ismanna í Hafnarfirði. Starf
Hafnfirðinganna hefur vakið
mikla athygli, en starf Stefnis
hafði verið í lægð í nokkur ár.
Nú þegar líður að lokum þessa
starfsárs þótti ekki úr vegi að
kanna nánar hvað lægi að baki
þessu kraftmikla stard.
„Þetta hefur verið gríðarlega
mikil vinna, en stórskemmtileg,
enda með hressu og ósérhlífnu
fólki að starfa," sagði Þórarinn,
er ég hitti hann að máli. „Við í
stjórninni settum þegar í upp-
hafi fram nákvæma starfsáætl-
un, sem af mörgum gamalreynd-
um félagsmönnum þótti lýsa
fullmikilli bjartsýni. En okkur
tókst að fylgja áætluninni full-
komlega og það er kannski óhætt
að viðurkenna það núna, að við
efuðumst hálft í hvoru um það
til að byrja með, að okkur myndi
takast að standast áætlun."
Aðspurður um það hvað hann
teldi hafa átt stærstan þátt í
góðum árangri, sagði hann:
„Þegar ég samþykkti að gefa
kost á mér sem formaður Stefn-
is, lagði ég áherslu á að fá með
mér nýtt fólk að mestu. Ungt
sjálfstæðisfólk, sem þó hafði
ekki haft mjög mikil afskipti af
félagsstarfinu. Sjálfur hafði ég
ekki tekið þátt í starfinu fram að
þessu. Það fór svo þannig, að i
stjórnina voru kosnar tvær
stúlkur, sem áttu sæti í fráfar-
andi stjórn, en strákarnir fjórir í
stjórninni voru nýliðar. Þar af
voru þrír félagar mínir úr JC,
með haldgóða reynslu af félags-
störfum þar.“
„Ef ég á að segja í stuttu máli
frá því helsta, sem við tókum
okkur fyrir hendur í vetur,“ hélt
Þórarinn áfram, „þá er kannski
fyrst að nefna tvo borgarafundi
sem við héldum. Sá fyrri var í
Hafnarfjarðarbíói í janúar, en
þar var troðfullt hús á kapp-
ræðufundi milli flokksformann-
anna Þorsteins Pálssonar og
Svavars Gestssonar. Sá fundur
þótti mjög vel heppnaður og
vakti nokkra athygli, sem gaf
okkur byr undir báða vængi. Síð-
ari borgarafundurinn var í apríl,
en þá rökræddu þau Agnes
Bragadóttir blaðamaður og
Halldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli um bjór. Þeir Jón
Magnússon og Páll V. Daníels-
son tóku einnig þátt i þeim fjör-
uga fundi, sem haldinn var fyrir
fullu húsi í veitingahúsinu
Gafl-inn.“
„Hér má einnig láta þess getið,
að fyrsta verkefni stjórnarinnar
var þátttaka í ráðstefnu um
sjávarútvegsmál, en hún var
haldin í samvinnu Stefnis, SUS
og félaga ungra sjálfstæð-
ismanna á Suðurnesjum. Innan-
félagsfundi hélt Stefnir að auki,“
sagði Þórarinn, „þeir voru tveir
og reynt að hafa sem léttast yf-
irbragð yfir þeim báðum. Sá
fyrri var haldinn í desember og
Þórarinn Jón Magnússon
mætti þar EUert Borgar Þor-
valdsson fræðslustjóri og bæjar-
fulltrúi í Hafnarfirði. Ræddi
hann við Stefnisfélaga um mál-
efni bæjarins og svaraði fjöl-
mörgum fyrirspurnum fundar-
manna. Síðari fundurinn var svo
í apríl en þar fræddi Friðrik
Friðriksson 1. varaformaður
SUS Stefnisfélaga um þingstörf-
in, en Friðrik er sem kunnugt er
framkvæmdastjóri þingflokks
Sjálfstæðisflokksins. Fóru þarna
fram mjög líflegar umræður um
þjóðmálin."
„Ekki má gleyma
skemmtanahaldinu“
Þórarinn var þessu næst
spurður um skemmtanahald
Stefnis. „Já, því má ekki gleyma,
það verður að gera eitthvað af
slíku líka,“ svaraði hann. „Fé-
lagsmenn þurfa að eiga saman
glaðværar stundir, þar sem þeir
eiga betra með að kynnast en á
fundum þar sem dagskráin er
stíf. Það sem við gerðum, var að
halda „kúrekaball” í hinum
bráðskemmtilega skíðaskála i
Hveradölum. Þátttaka var góð.
Talsverður fjöldi fólks úr ná-
grannafélögum slóst í hópinn og
gerði það öllum gott og varð til
að efla tengslin milli félaganna.
Þá gekkst Stefnir einnig fyrir
sameiginlegri árshátíð sjálf-
stæðisfélaganna fjögurra í
Hafnarfirði og var hún haldin í
maí. Heiðursgestir voru þeir
Matthías Á. Mathiesen við-
skiptaráðherra og Gunnar Sig-
urjónsson stofnformaður Stefn-
is. Þetta var stórveisla með
skemmtiatriðum, ræðuhöldum
danshljómsveit og öðru tilheyr-
andi. Nokkuð sem allir voru
sammála um að þyrfti að gera að
árlegum viðburði, en sameigin-
leg árshátíð sjálfstæðisfélag-
anna í Hafnarfirði hefur ekki
verið haldin i áratugi, ef þá
nokkurn tíma með þeim hætti
sem þarna.“
„Ekki má svo gleyma að geta
Vestmannaeyjaferðar Stefnis í
febrúar, en þar blandaðist sam-
Agnes Bragadóttir ó „bjórfúndinum
Tveir hreasir ó „kúrekaballi“ Stefnis, Friðrik Friðriksson og Árni
Mathiesen.
an gaman og alvara,“ bætti Þór-
arinn við. „Ferðin var farin í
þeim tilgangi, að kynnast hinum
athafnasömu Eyverjum, félagi
ungra sjálfstæðismanna í Eyj-
um. í þessari ferð tókust góð
kynni, en við áttum með Eyverj-
um tvo fundi um félagsmálin og
skemmtum okkur svo með þeim i
Skansinum á kvöldin. Vinafé-
lagatengsl af þessu tagi ættu
önnur félög ungra sjálfstæð-
ismanna að hugleiða, þvi þau
geta verið skemmtileg tilbreyt-
Fró heimsókn Stefnismanna til Eyverja í Vestmannaeyjum sl. vetur.
ing i félagsstarfinu um leið og
þau eru gagnleg."
Loks var Þórarinn spurður um
námskeiðahald Stefnis og fé-
lagaöflun. „Námskeiðin voru tvö.
Fyrst nokkurra kvölda námskeið
í ræðumennsku, sem lauk með
bráðskemmtilegum kappræðum
þátttakenda. Siðar var svo hald-
ið námskeið í fundarstjórn og
fundarsköþum. Bæði þessi nám-
skeið er fyrirhugað að endurtaka
næsta vetur, því það er hverju
félagi og ekki sist stjórnmálafé-
lagi, nauðsynlegt að félagsmenn-
irnir þori og kunni að tjá sig.
Fleiri námskeið voru ekki haldin
síðasta vetur, en fljótlega í haust
er ætlunin að halda nokkurra
daga stjórnmálanámskeið og ef
til vill ýmiss konar styttri nám-
skeið þar sem félagsmenn fá inn-
sýn í stjórnmál.
Um félagaöflunina er það að
segja, að hún hefur gengið mjög
vel eftir því sem kynningarstarf-
inu hefur miðað betur áfram.
Eftir að félagið hefur verið í
lægð, tekur skiljanlega sinn tima
að vekja eldri félagana til lífs á
ný og afla nýrra. Það sem Stefn-
ir hefur gert til að ýta við þessu
fólki er það, að auglýsa sem best
það sem fram fer, bæði fundi og
námskeið. Þá höfum við einnig
farið út í kostnaðarsama útgáfu
í tvígang. Strax í nóvember
dreifðum við prentuðum pésa
þar sem við kynntum áform
okkar og dagskrá vetrarins
rækilega. I apríl prentuðum við
svo aftur fréttablað þar sem
starfi félagsins var lýst, það sem
gert hafði verið þá þegar og það
sem framundan var. Báðum
þessum kynningarritum dreifð-
um við til sem flestra ungra
Hafnfirðinga, sem við töldum
hafa áhuga á að taka þátt í
starfinu. Þessi kynningarstarf-
semi hefur borið tilætlaðan
árangur, mikill fjöldi hefur
gengið í félagið og ýmislegt gef-
ur okkur ástæðu til að ætla, að
enn eigi eftir að bætast i hópinn,
þegar við förum aftur af stað nú
í haust. Svo virðist sem áhugi
ungs fólks á stjórnmálum fari
vaxandi og aðdráttarafl stjórn-
málafélaganna vex að sama
skapi. Ungt fólk vill í auknum
mæli afla sér þekkingar á
stjórnmálum og er víða farið að
taka óhikað þátt í starfi flokks-
félaganna — og er það vel,“ sagði
Þórarinn að lokum. Sjónarhorn
tekur undir það og óskar Stefn-
isfélögum góðs gengis.
„Þróttmikið starf Stefn-
is hefur vakið athygli“