Morgunblaðið - 14.11.1984, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 14.11.1984, Qupperneq 55
55 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 stöðu bandalagsins. En það er eins og okkur Islendingum almennt sé ekki sjálfrátt. Hvernig „íslands óhamingju verður allt að vopni." Úrræði í efnahgsmálum Sú var tíð, að Hafnarfjörður var vesælastur allra bæjarfélaga og skuldaði margra ára útsvör. Hvað hefur breytt þeirri stöðu í þá vel- sæld, að í Hafnarfirði spretta upp ný fyrirtæki, glæsihús rísa og uppgangurinn blasir hvarvetna við? Snilld Kratanna í Gaflinum? Nei — Álverið í Straumsvík. Samt telur 5. hver maður í landinu, að þeir samningar hafi verið af hinu illa. Og þeir í Eyjafirði safna 3.000 undirskriftum gegn enn fullkomn- ara álveri í sinni sveit, meðan öllu atvinnulífi hnignar á Norðurlandi. En þeir geta engu svarað um það svo marktækt sé, hvaða aðrar leið- ir til lífskjarabóta séu þá til. Þeir gátu ekki einu sinni fjármagnað Davíð rúllusmið. Og ekki verður maður nokkru nær um það, hvað kvennalistinn ætlar að gera í at- vinnumálum Islendinga við það að hlusta á Sigríði Dúnu. Á meðan geisar landbúnaðar- styrjöldin, sem kostar okkur allan tekjuskatt landsmanna og meira til. Hversvegna kaupir ríkið ekki jarðir umyrðalaust á góðu verði af öllum bændum, sem vilja hætta búskap og nær þannig stjórn á hvar skuli búið og hversu mikið? Þetta er í rauninni svekkjandi. Við sjáum neyðina í kringum okkur. Við sjáum leiðir til þess að bæta úr henni. En við getum ekki nýtt afl okkar vegna gæfuleysis- ins, alveg eins og Grettir gamli. Við eigum kannski olíu undir Flat- ey. En hvorki þessi ríkisstjórn né sú síðasta eða sú þar á undan voru þess megnugar að gera neitt í að rannsaka málið. Og nú sólar Hjörleifur Guttormsson, auð- hringaskelfir, sig í háborg kapítal- ismans New York á okkar kostnað sem fulltrúi á SÞ. Já, það er margt á Bandarikjamenn og heimskapít- alismann lagt. Liklega lita Islendingar al- mennt ekki einu sinni á sig sem þjóð, sem beri innbyrðis ábyrgð, heldur sem samsafn þrýstihópa, sem staddir eru hér til bráða- birgða, eða þangað til að Haraldur hárfagri hefur verið hrakinn frá völdum i Noregi og þeir megi þá aftur snúa. Að minnsta kosti er hverjum þeim, sem hefur uppi orð um það að (slendingum beri skylda til að leggja sitt af mörkum til að verja land sitt og frelsi svar- að ýmist með þögn, „Siggu Viggu- húmor“ eða barnaskapshjali um almenn kristilegheit Islendinga. Þegar maður ræðir við bandam- enn okkar i Atlantshafsbanda- laginu bögglast það fyrir manni að útskýra fyrir þeim hversvegna bara þeir eigi að deyja fyrir okkar frelsi eins og okkur finnst það nú augljóst. En á 17. júní, þá er okkur ekki orða vant. Þá rómum við hetjuskap okkar fyrir að hafa hrifsað völdin úr höndum her- numdra Dana, til þess að stjórna okkur sjálfir. En svo öfundum við Færeyinga af því að keyra á mal- biki horna á milli og græða verð- bólgulaust á fiski meðan við erum gjaldþrota við sömu iðju. Það má velta fyrir sér hvorir unnu stærri sigur 1944, Danir að losna við okkur eða við við þá. Þjóðfélag þrýstihópanna Skoðanir margra á því, hvað sé hollt fyrir íslenskt þjóðfélag hafa breyst á síðustu vikum. Okkur finnst það ekkert sjálfsagt lengur, að BSRB eigi að stjórna útvarpi okkar og sjónvarpi, hvað þá áð starfsmenn ríkisins eigi að fá að ritskoða, túlka eða breyta fréttum eftir sínum geðþótta. Menn tóku eftir því, að á meðan frjálsa út- varpið starfaði, var ýmislegt ann- að að gerast í heiminum en frels- isstríð í EI Salvador, Nicaragua eða ofsóknir hvitra manna gegn blámönnum í S-Afríku, sem hlust- andi Ríkisútvarpsins hélt áður að væru aðalmálin. Menn hrukku við. Það var enn stríð í Afganistan. Það er almennur uppgangur i Bandaríkjunum og á Vesturlönd- um. Það er enn órói i Póllandi. Það er uppskerubrestur rétt einu sinni i Sovét, meðan metuppskera er i Bretlandi Thatchers. Það er grei- nilega ekki sama hver túlkar fréttirnar fyrir okkur, hvað sem „Pétursfjölskyldunni" finnst um það. Við, sem eigum börn, sem eiga að vera i skólum landsins núna, spyrjum okkur að þvi, hversu skilvirk venjuleg kennsla sé, ef hægt er að klára námsefnið á sama tíma i vor og á verkfalls- lausum vetrum. Og það i 40 min- útna tímum þegar við þurftum að sitja i 45 mínútur í gamla daga til þess að læra sama magn. Það er líklega af þvi, að kennurum hefur fjölgað um 93% meðan nemendum fjölgaði um 6%. Samt verða marg- ir foreldrar núna að kenna fög eins og reikning i grunnskóla að mestu leyti heima, vegna þess að „mengjaðir sænskmenntaðir, sér- fræðingar" hafa gert reikningsk- ennslu óaðgengilega ve'njulegu fólki. Og margt annað eftir því. Er ekki kominn timi til þess að leita að fleiri leiðum. — Er það svo vitlaust hjá Milton Fried- mann, að leggja til að fela ein- staklingnum að leysa ávisun sina til menntunar, þar sem hann telur henni best varið i stað þess að verða að senda börn sín í misjafna ríkisskóla okkar. Er ekki athug- andi, að ríkið bjóði út fleiri grein- ar, eins og til dæmis tollgæslu og tollafgreiðslu, afgreiðslu trygg- ingabóta, lögreglustörf, brenni- vínssölu og menntamál? Vegagerð ríkisins fær lagða vegi fyrir 45% af kostnaðaráætlunum sínum. Er það eitthvað öðruvísi? Þetta getur ekki gengið hjá einni þjóð, að einstakir þrýstihópar geti með deilum sínum látið baráttu sína bitna sifellt á þriðju aðilum, sem ekki geta haft áhrif á deiluna en verða að þola allar kárínur eins og benzin-, brennivíns- og tóbaksl- eysi, eða annað verra, bótalaust. Hvað skyldu þeir þola slíkt lengi í Sovét? Myndu Bretar ekki láta landhelgisgæsluna sína útvarpa, ef loka ætti BBC í verkfalli? En við? Við höfum bara ekkert afger- andi ríkisvald, þrýstihóparnir sjá um það í umboði okkar. Þurfum við ekki meiri og betri verkföll til þess að skilja hvað slfk fyrirbrigi eru? Að verkföll rýri árstekjur þeirra sem þau heyja um ein 2% á viku. Að enginn hef- ur til þessa sigrað i slikum deilum. Opinberir starfsmenn fengu um 16% hækkun eftir 4 vikna verk- fall. Þeir verða 6 mánuði að ná jafnstöðu fjárhagslega, ef verð- bólgan verður ekki löngu búin að draga þá uppi. Skyldi vera vit í þessu? Hefðum við ekki öll gott af þvi, að reyna að sjá hvernig við sem þjóð tökum okkur út, — svona horft af brúnni. 31. október 1984. Halktór Jónsson er rerkfræðingur og fnmkrtemdastjóri Stejpustöó- rarinnar. Morgunblaftið/Árni Sœberg Alexander Stefánsson, félagsmálariðherra, flytur ávarp. DAS í Garðabæ: 28 íbúðir fyrir aldr- aða teknar í notkun Dvalarheimili aldraðra sjó- manna í Garðabæ tók formlega f notkun 10 raðhús fyrir aldraða á laugardaginn. Samtals eru þetta 28 einstakl- ings- og tveggja herbergja íbúð- ir, sem allar eru i eigu íbúanna sjálfra. Búið er að selja allar íbúðirnar og var söluverð ein- staklingsíbúðanna um 1440 þús- und krónur, en tveggja herb. íbúðanna rúmar tvær milljónir. Sú kvöð fylgir ibúðunum að þar búi alltaf ellilífeyrisþegar eða ör- yrkjar, en þær geta gengið kaup- um og sölum á frjálsum markaði. Bilskúrar fylgja 10 íbúðum. í ölium ibúðunum er fullkomið ör- yggiskerfi, sem tengt er neyðar- vakt Hrafnistu i Hafnarfirði. En auk þess geta ibúar húsanna fengið alla þá þjónustu, sem Hrafnista býður upp á, m.a. mat- arsendingar, þvottaþjónustu o.fl. Raðhúsin tíu, sem tekin voru formlega í notkun á laugardag. Búist er við að fyrstu íbúarnir flytji inn f nsstu viku. Staður og tími: Námskeiðið verður haldið að Síðumúla 23 og hefst kl. 9.00, fimmtudaginn 22. nóvember. Seinni hluti námskeiðsins fer fram í myndbandastúdíói hjá ísmynd Námskeiðinu lýkur kl. 17.00. Aðalleiðbeinendur: Magnús Bjarnfreðsson og Björn Vignir Sigurpálsson. TILKYNNIÐ ÞÁTTTÖKU í SÍMA 82930 STJÓRNUNARFÉLAG ISLANDS fiS UMULA23 182930 Efni: HVAÐ ER VIDEO? Saga, þróun, tækni, tækjabúnaður og spólukerfi. NOTKUNARMÖGULEIKAR Á VIDEÓ í ATVINNULÍFINU Auglýsingar, upplýsingamiðlun, fræðslustarf, starfsmannaþjálfun, viðhorfsmyndun, kynningarstarf, heimildasöfn. GERÐ EFNIS Á MYNDSEGULBÖND Markmiðasetning, handrit, upptaka, eftirvinnsla. GERÐ AUGLÝSINGA KYNNINGAR OG FRÆÐSLUMYNDIR STARFSMANNAÞJÁLFUN UMRÆÐUR OG FYRIRSPURNIR p 5 MetsöluUad á hverjum degi!
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.