Morgunblaðið - 14.11.1984, Side 57

Morgunblaðið - 14.11.1984, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 57 „Arás á kenn- arastéttina"? Clementína og Silvio — Hin ástföngnu. lokum var framkvæmdahópur sem sá um auglýsingar, prentan- ir og fjármál. Síðan um miðjan september fórum við saman upp í Borgarfjörð þar sem við unnum undirbúningsvinnu, átum ítalsk- an mat og skemmtum okkur kon- unglega. Síðan hefur þetta tekið mestallan okkar tíma. Þegar hér var komið vorum við illilega trufluð af Alla í gerfi Florindo. Hann baðaði út öllum öngum og var greinilega i æstu skapi. — Hvar eru andskotans þjón- arnir! Þeir áttu að vera komnir inn á svið og taka burtu borðið. Inn með ykkur og reddið þessu! Það var eins og minkur hefði komist i minkabú. Allir þutu á fætur og vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Þjónarnir þutu snarlega inn á svið og björguðu þvi sem bjarg- að varð. Blöndungurinn fölnaði og kenndi sér um að hafa truflað þjónana á þessu mikilvæga augnabliki. En honum létti þeg- ar þeir komu aftur hálfflissandi. — Blessuð veriði, það fattaði enginn í salnum hvað var að. Við bara röltum inn og hirtum borð- ið. Úr því allt fór vel var ekkert annað en að halda áfram viðtal- inu. — Nú eru flestir leikararnir meö hálfgrímur. Hvernig stendur á því? — Jú, verkið er í anda Commédia dell’arte. Sú leikhefð á rætur sínar að rekja til ítaliu. Hún breiddist út um Evrópu upp úr 1500 og mótaði gamanleiki næstu 150 árin. Hver gríma táknar ákveðna persónu sem hélst gegnum þúsundir leikrita. Persónurnar voru alltaf þær sömu en leikritin síbreytileg. í hverju leikriti var ákveðin at- burðarás sem leikendur spunnu texta við jafnóðum. Þannig voru aldrei tvö leikrit eins. Höfundur þessa leikrits, Carlo Goldoni, fæddist árið 1707 á Ítalíu. Hann notfærði sér þessar gömlu týpur í sínum leikritum. Nú var farið að nálgast lok frumsýningarinnar og hlátra- sköll úr salnum bárust í síaukn- um mæli til okkar. Sýningin féll greinilega í mjög góðan jarðveg. Nú var aðeins að bíða loka sýn- ingarinnar. Eftir lokaatriðið hófst hefðbundin frumsýningar- athöfn. Allir komu fram og hneigðu sig, leikstjórinn fékk blóm, rektor gaf leikhópnum blóm og áhorfendur klöppuðu. Það var greinilegt að allir höfðu skemmt sér konunglega. Leikar- arnir þustu síðan út af sviðinu og dönsuðu stríðsdans með hinum úr leiklistarfélaginu. — Þetta var æði! Þið voruð frábær! — Vá! Ég hélt við mundum klúðra öllu þegar þjónarnir komu ekki strax. En þetta var frábært. Það var greinilegt að foreldrar og aðrir aðstandendur voru á sama máli. Allir höfðu skemmt sér konunglega og voru greini- lega búnir að fyrirgefa allt ves- enið í kringum uppsetninguna. En krakkarnir máttu ekki vera að því að hangsa, heldur stukku niður í Norðurkjallara til að ná af sér farðanum og komast í nú- tímalegri föt. Að sjálfsögðu ríkti þar meiriháttar sigurstemmn- ing. — Vitiði það krakkar. Hann Jóhann húsvörður kom til mín og sagði: „Mikið var þetta gott hjá ykk- ur. Ég hef ekki hlegið svona mik- ið í mörg ár. Málið er að þetta var alveg meinfyndin sýning." Það er ljóst að leiklistarfélagið hefur gert sitt til að rífa upp ieiklistarlíf í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nú er bara að vona að áhorfendur láti sig ekki vanta á sýningar þeirra. Þegar þetta birtist verða eftir þrjár sýningar. 1 kvöld miðvikudag kl. 20.30 og tvö næstu kvöld á sama tíma. En að lokum vill Blöndung- urinn óska leiklistarfélaginu í MH til hamingju með uppfærsl- una og þakka kærlega fyrir stór- skemmtilega kvöldstund. — eftir Karen Jónsdottur „Einkum var ráðist harkalega að Albert fyrir ummæli hans á al- þingi um launakjör kennara. Og maöur spyr: Hvaö mælir á móti því að kjör kennara séu rædd? Eru þau vond, eða eru þau góð? Það er stór spurning.“ Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með því úr fjarlægð hvernig launadeila BSRB og ríkis- ins hefur þróast, en þarna er um að ræða deilur um það, hvað þjóð- inni beri að greiða embættis- mönnum sínum í laun. Ég hefi þó átt örðugra með að fylgjast með þar sem ég er atvinnulaus um þessar mundir, en á fjölmennum vinnustöðum fréttir maður eitt og annað sem fólk hefur annaðhvort lesið eða heyrt. Þó hefi ég séð sum verkfallsblöðin og ég hefi hlustað á ríkisútvarpið, sem verið hefur óvenjuhlutlaust, enda starfa þar á kaupi menn, sem kauplausir menn eru í verkfalli fyrir, en hjá því verður ekki komist, nema leitað verði til nýrra manna, þegar út- varpsmenn eiga í verkföllum. En það sem kemur mér til þess að rita þessar línur eru hinar grófu árásir á Albert Guðmunds- son fjármálaráðherra, sem annað- ist samninga fyrir þjóðina, eða við BSRB, sem hlýtur að vera örðugt núna, þar sem fjárlög þau sem unnið er eftir, gera ekki ráð fyrir aukaútgjöldum upp á mörg hundr- uð milljónir króna. Þó er ég sammála Albert, að ekki verði komist hjá þvf að rétta hlut hinna lægst launuðu, þótt ég felli mig ekki við tal hans um „litla manninn", þótt auðskilið sé við hverja er átt. Einkum var ráðist harkalega að Albert fyrir ummæli hans á al- þingi um launakjör kennara. Og maður spyr: Hvað mælir á móti því að kjör kennara séu rædd? Eru þau vond, eða eru þau góð? Það er stór spurning. Kennarar hafa sent frá sér mót- mæli vegna ummæla ráðherra og hafa sagt til um launakjör sin og greina þá frá mánaðarlaununum, því þeir hafa visst á mánuði. Það sem hinsvegar má ekki ræða er það, að kennarar vinna ekki mán- aðarlega, öðru nær. Þeirra vinna stendur aöeins yfir í um það bil 8 mánuði á ári, þegar best lætur, meðan aðrar stéttir vinna í 11 mánuði eða 12. Ef ég tók rétt eftir, sagði menntamálaráðherra, að kennar- ar ynnu 46 klukkustundir á viku i 36 vikur i vissum skólum, en 48 stundir á viku í 34 vikur, og er þá átt við skólaárið, sem f fásinninu er miðað við sauðburð og réttir, sem ekki eru þó kennurum að kenna, eða þakka, heldur sveita- þingmönnum, sem þurfa á barna- vinnu að halda á þessum tíma. Ef svo almanakið er skoðað, kemur margt meira í ljós. í skól- um er fjöldi frídaga, sem ekki eru í fiskhúsum. Má þar til að mynda nefna 1. desember, langt jólafrí, langt páskafrí, og ekki má gleyma öskudeginum, sumardeginum fyrsta og öðrum þjáningardögum launavinnumanna. Samtals gjörir þetta um fjórar aukavikur á ári fyrir kennara landsins, en þá lát- um við mánaðarfríin teljast með. Þegar þetta hefur verið tekið inn í launareikninginn, kemur f Ijós, að kennarar, sem eru á mán- aðarlaunum, vinna i raun og veru aðeins 6—7,5 mánuði á ári í stað þess að aðrir þjóðfélagshópar vinna a.m.k. 11 mánuði. Á þessu er auðvitað nokkur munur. Og ef þessu er deilt niður á vikur, eins og menntamálaráðherra segir vinnutímann vera, þá kemur í ljós að kennarar vinna (miðað við mánaðafjöldann) 28 stundir á viku, eða i hinu tilfellinu tæpar 28 klukkustundir, en vinnutfmanum er deilt niður í vikur. Og ekki má svo gleyma blessuðum frimínút- unum, en þar koma hin fleygu orð Sigurjóns á Álafossi i hugann, er hann seldi inn á danspallinn: „Næsta kortér verður hálftími.“ Það eru nefnilega frimínútur i skólum og hvernig kæmi það út i fiski, ef hver klukkustund yrði að þrem kortérum eins og í skólan- um. Þá hæfist vinna f frystihúsinu klukkan átta, svo kl. 8.45 frímínút- ur. Langar frímínútur klukkan 10, aðrar kortér i ellefu og svo þær þriðju kortér fyrir tólf. Raunveru- legur vinnutími fyrir hádegi yrði þar með að þremur tímum og 28 stunda vinnuvika i fiski (með fri- mínútum, öskudeginum og öðrum ffnum dögum) yrði að 21 klukku- stund á viku. Mörgu verður þó að sleppa, þar á meðal „undirbúningi" kennara. Konan á annarri hæðinni, sem vinnur í BÚR, verður lfka að „und- irbúa sig“. Hún þarf að elda mat, þvo þvott, þvo upp, ryksuga, eða vinna eldhússtörfin. Og þegar mér verður hugsað til hennar, eða 12.000 á mánuði, fyrir bónusinn, þá segi ég nú fyrir mig: Sú var heppin að verða ekki kennari. Að vísu slyppi hún þá ekki við full eftirlaun og yrði þess i stað af ellilaununum, sem eru af þeirri stærðargráðu nú um stundir, að ég teldi rétt að Hjálparstofnun kirkj- unnar greiddi þau út, eða Rauði krossinn, eða einhver sem neyð- arhjálp þarf að sinna og veit hvað raunverulegur skortur er. Um kennara er það hinsvegar að segja, að þeir eiga rétt á kaupi og þeir hafa ekki skipulagt grunnskólalögin, eða hin stuttu skólaár Islendinga, en það er óþarft fyrir þá að vera að ráðast að góðviljuðum mönnum eins og Albert Guðmundssyni, þótt hann haldi sig við staðreyndir i þinginu. HALLUR MAGNÚSSON/ FINNBOGI MARINÓSSON Stuðlað að búhátta- breytingu hjá bændum ÁKVEÐIÐ hefur verið aö aóstoða loödýrabændur við uppbyggingu búa sinna gegn því að þeir minnki fram- leiðslu sína á afurðum annarra bú- greina. Á síðasta fundi Framleiðsluráðs landbúnaðarins var lagt fram bréf frá landbúnaðarráðuneytinu, þar sem tilkynnt var að fallist hefði verið á tillögu frá Framleiðnisjóði landbúnaðarins um stuðning við búháttabreytingu hjá bændum. Þessi samþykkt felur í sér að loð- dýrabændur, sem reiðubúnir eru að afsala sér búmarki, geta fengið greiðslu er nemi kr. 1.000 pr. ær- gildisafurð i notuðu búmarki. Á þessu ári eru 1,5 milljónir kr. til ráðstöfunar í þessu skyni, en búist er við að meira fé verði til ráðstöf- unar á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.