Morgunblaðið - 14.11.1984, Side 61

Morgunblaðið - 14.11.1984, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984 61 Kjaftasögur í verkfalli ! Islandsk krise REYKJAVIK: Pft grund af strejkeramte medier, radio. fjernsyn og aviser, er Island nu et moderne samfund uden ny- hedsformidling. Situationen bliver derfor for de fleste uoverskuelig, efter at Stats- og Kommunetjenestemændenes Forbund har indledt deres planlagte strejke natten til i dag. Landet vil efterhánden lammes totalt, og samfundet vil i hej grad isoleres, n&r hverken fly- eller skibsforbin- delserne med udlandet kan Island uden presse En strejke inden for dicverdenen pá IsLand 1 har isoleret store dele af o-befolkningen. Samtidig er der store problemer n»ed telefonforbindelser- ne, sá rygteme Kar frit lob. Bla. hævdcdes det helt hen i vejret i gár i Reykjavik, at et kupforj sog var imder ooseil Fréttir úr Politiken og Berlingske Tidende frá 4. okt um verkfall BSRB — eftir Gissur Pétursson Það þykir alltaf fréttnæmt á Is- landi að heyra hvað um okkur er sagt í erlendum fjölmiðlum. Þess- ar frásagnir einkennast gjarnan af vanþekkingu og misskilningi enda oft erfitt fyrir erlenda blaða- og fréttamenn, sem á íslandi eru í stuttri heimsókn, að átta sig á samhengi hlutanna í samfélaginu, sem er nú ekki á hverjum degi í sviðsljósi alheimsins. Þessar frásagnir hafa mikil áhrif og ráða að mestu ímynd út- lendinga um landið og þjóðina. Þann 31. október sl. sendi ég fréttapistil i Ríkisútvarpið, héðan frá Kaupmannahöfn, sem fjallaði um fréttaflutning danskra fjöl- miðla af þá nýafstöðnu verkfalli BSRB. Var það ekki að ástæðu- lausu þar sem nokkrar vægast sagt einkennilegar fréttir höfðu birst hér í fjölmiðlum — einkum frétt um að fyrir dyrum stæði valdarán í Reykjavík þann 3. október og fréttir af gangi mála síðasta dag verkfallsins, 30. októb- er. Sagan um valdaránið átti að lýsa því ástandi sem á Islandi rikti i fjölmiðlaleysinu. Að menn köst- uðu fyrir róða öllu skynsamlegu viti og væru tilbúnir til að trúa hverju sem væri. Höfundur þess- ara fréttaskrifa var Magnús Guð- mundsson, fréttaritari á íslandi fyrir dönsku fréttastofuna Ritzau. Ekki síst það gerði þetta mál áhugavert. Að það skildi vera ts- lendingur búsettur á íslandi en ekki útlendingur, sem lítið þekkti til, sem sendi fréttir og frásagnir til útlanda sem voru svona ein- kennilegar, að ekki sé meira sagt. Morgunblaðið tekur þennan fréttaflutning Magnúsar til um- fjöllunar í Reykjavíkurbréfi 4. október og kemst höfundur bréfs- ins að sömu niðurstöðu og ég og raunar margir aðrir. Að frétta- flutningurinn hafi verið í meira lagi æsikenndur og þjónað ná- kvæmlega engum tilgangi. Og höf- undur bréfsins vitnar til heimilda, sem ég hef ekki séð. M.a. dagblaðið Aktuelt og nokkur dönsk dreifbýl- isblöð. Magnús Guðmundsson skrifar síðan grein í Morgunblaðið þann 7. október, sem hann kallar „Valda- rán — Ærurán", þar sem hann reynir að bera hönd fyrir höfuð sér og réttlæta þessi æsikenndu fréttaskrif. Segir hann mig hafa farið með rangfærslur og bein ósannindi og þetta hafi ég gert til að upphefja sjálfan mig á hans kostnað. Auðvitað nenni ég ekki að svara þessum ásökunum, þær eru bara ámátlegt yfirklór rök- þrota manns. Það sem skiptir höf- uðmáli í þessu samhengi er hvern- ig fréttirnar birtust dönskum al- menningi. Hversu mikið upplýs- ingagildi þær höfðu. Hvort þær bættu eitthvað við þá þekkingu, sem gera mátti ráð fyrir að dansk- „Heimskulegar kjafta- sögur, hvort sem þær verða til í hugarheimi Magnúsar Guðmunds- sonar eða annars stað- ar, geta aldrei orðið fréttir.“ ur almenningur hefði á gangi vinnudeilnanna á íslandi, eða hvort þær væru til undirbúnings fyrir frekari upplýsingar um deil- urnar. Og ef ekki þetta, hvort þær áttu bara að vera létt skemmti- saga, sem stundum flýtur með i fréttum og frásögnum fjölmiðla. Og höfuðmálið er að þessar fréttir gerðu ekkert af þessu. Þær þjónuðu nákvæmlega engum til- gangi. Heimskulegar kjaftasögur, hvort sem þær verða til í hugar- heimi Magnúsar Guðmundssonar eða annars staðar geta aldrei orð- ið fréttir. Og það á Magnús Guð- mundsson að vita. Saga um valdarán í Reykjavík getur aldrei orðið til að lýsa einu eða neinu ástandi, svo frámuna- lega heimskuleg er hún. Hvað þá sagan um yfirtöku óánægðra kennara á útvarpshúsinu eða að Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra hafi verið i felum á óþekktum stað fyrir utan Reykja- vík þann 3. október. — Liklega þá vegna ótta við opinbera starfs- menn. En allar þessar heimsku- legu kjaftasögur voru i frétta- skeyti frá Magnúsi Guðmunds- syni, sem sent var ti Ritzau f Kaupmannahöfn 3. október sl. Það, sem skýrir e.t.v. best hvernig þessar sögur komust til dansks almennings, eru þessar tvær eindálka fréttir sem birtust i Politiken og Berlingske Tidene 4. október. Lesendur geta sjálfir dæmt um hvort þarna sé að finna yfirgripsmikla lýsingu á þvi ástandi, sem ríkti þann 3. október í Reykjavík. En það var líka annað sem ég nefndi í umræddum fréttapistli mínum og Magnús gerir engar at- hugasemdir við i grein sinni, en það var fréttaflutningurinn síð- asta dag verkfallsins. Daginn eft- ir, þ.e. þann 31. október, birtust í nokkrum dagblöðum hér og i Svi- þjóð fréttir, sem stönguðust al- gerlega á. Annars vegar voru fréttir eins og t.d. í Politiken þar sem sagði að verkfalli BSRB á ís- landi væri lokið og svo hins vegar fréttir um að uppúr viðræðunum hefði slitnað um miðjan dag, deg- inum áður. Þessar fréttir birtust m.a. i Jyllands Posten og Dagens Nyheter í Svíþjóð. Frétt um að upp úr viðræðunum hefði slitnað eru annað hvort hreinn uppspuni fréttaritarans eða takmarkalaust dómgreindarleysi við mat á að- stæðum. Það slitnaði aldrei upp úr viðræðunum 30. október. Samn- ingafundi var aldrei slitið. Samt voru fréttir um það hér i fjölmiðl- um, komnar frá Magnúsi Guð- mundssyni fréttaritara Ritzau á íslandi. Magnús sendi frá sér mörg fréttaskeyti hingað út meðan á verkfallinu stóð, sem voru ágæt- lega skrifuð og lýstu ástandinu prýðilega. Ég var i aðstöðu til að geta lesið megnið af þeim en gall- inn var bara sá að ekki nema brot af skeytunum birtist i dönskum fjölmiðlum. En þessa tvo daga skaut Magnús langt yfir markið i viðleitni sinni við að lýsa upp- lausninni, sem á íslandi átti að ríkja. Þessa tvo daga virðist Magnús hafa verð undir áhrifum af of miklum lestri Ekstra-blaðs- ins danska. Magnús kallar grein sína i Morgunblaðinu 7. október „Valda- rán — Ærurán". Líklega telur hann að tilraun hafi verið gerð til að ræna hann ærunni með um- fjöllun minni og Morgunblaðsins um fréttaskrif hans. Þvi er visað til föðurhúsanna. Magnús Guð- mundsson rænir sjálfan sig ær- unni með því að láta birta eftir sig óábyrg æsifrettaskrif um islensk þjóðmál í erlendum fjölmiðlum. Kaupmannahöfn, 9. október 1984 Gissur Pétursson er fréttaritari Ríkisútvarpsins í Kaupmannaböfn. Fyrst og fremst skemmtigripur Hljóm- plotur Sigurður Sverrisson Peter Wolf LighLs out EMI America/Fálkinn Það vakti að vonum talsverða athygli þegar Peter Wolf sagði skilið við hina vinsælu hljóm- sveit J. Geils Band. Ekki sist vakti brottförin athygli fyrir þá sök, að J. Geils Band hafði ekki um langt skeið notið eins mikilla vinsælda og i kjölfar plötunnar Freeze frame, sem m.a. hafði að geyma samnefnt lag svo og Cent- erfold sem bæði urðu mjög vin- sæl. Þessi fyrsta sólóplata Peter Wolf sver sig talsvert í ætt við það sem J. Geils Band var að gera hér áður fyrr og skyldi eng- an undra. Fyrst og fremst er Lights out skemmtigripur og býsna góð sem slíkur. Lögin eru skemmtileg blanda af hraðri og rólegri tónlist — rétt eins og það var á gullaldarárum J. Geils Band. Sér til aðstoðar hefur Wolf fjöldann allan af góðu fólki þótt fæstir þeirra séu nein stórnöfn. Þó má heyra að Mick Jagger leggur Wolf lið í einu laganna og gitarleikarinn Adrian Belew leggur einnig hönd á plóginn. Hitann og þungann af aðstoðinni ber þó maður að nafni Michael Jonzun. Hann leikur á bassa, ásláttarhljóðfæri, hljómborð og syngur bakraddir og guð má vita hvað. Gerir sitt snoturlega sem og aðrir á plötunni. Á ferli sínum með J. Geils Band hefur Wolf öðlast reynslu sem hann kemur vel til skila á þessari plötu. Hér er ekki verið að fást við nein stórvirki — skemmtanagildið er það sem mest er lagt upp úr og tekst bara vel til. Þetta er plata sem á eftir að gera það gott í Bandaríkjun- um en á síður erindi til Evrópu — rétt eins og J. Geils Band hér áður. / Gull og demantaj útsölu *í \> • • \ í tilefni eigendaskipta á verslun Jóhannesar Norðfjörðs höfum við ákveðið að efna til rýmingarsölu á stórum hluta af vörum verslunarinnar. Herra og dömu gull og silfurhringir Herra og dömu úr, veggklukkur, skeiðklukkur Hálsmen gull og silfur armbönd ofl. ofl. Otrúlegt en satt — nú er hægt að gera verulega góð kaup á gæðavörum — lítið inn. Konun Hverfisgötu 49, sími 13313. Verið velkomin. T

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.