Morgunblaðið - 14.11.1984, Page 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
MATSEÐILL \!
HÁDEGISVERÐIIR
14.11.
Grceramtissúpa
°9
Djúpstáktur karfi
með frönskum kartöfhun,
gúrkusalati og kokktéilsósu
kr. 190
eða
Soðnar Unajnaamxr í
karrýsósu, hríscjrjónum,
arianassneið og ftrósaíoti
kr. 210
Auk anruara rétta á vægu verði
OPNUNARTÍMI ALLA DAGA
KL. 11.30-14.00
KL. 18.00-23.00
Veitingahúsið Hagamel 67
Reykjavík, sími: 26070.
Hirgir \*UVir llaUdórssan, matreidsíumeistari.
WA'.V
WIKA
Þrýstimælar
Allar stæröir og gerðir
■LlLL
StlyiHlaygjyir
Vesturgötu 16, sími 13280
HÁÞRÝSTI-
VÖKVAKERFI
SérhæfÓ þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
REGGIANA
RIDUTTORI
Drifbúnaður
fyrirspil o.fl
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-WÓNUSTA
Verður verkfall-
ið endurtekið?
— eftir Friðfinn
Finnsson
Sennilega verður verkfallið, sem
nú er yfirstandandi, lengi í minn-
um haft hér á landi. Ekki síst fyrir
þá hörku, sem sýnd hefir verið á
öllum sviðum. Óbætanlegt er það
þjóðartjön, er af því hefir hlotist.
Alltaf hefir maður heyrt að ís-
lendingar væru skynsöm þjóð. Ber
það vott um skynsemi, að draga
vinnudeilur eins og nú gerist. Eg
bara spyr? Svarið verður að koma
frá þeim er betur vita.
Það er ekki nema eðlilegt að
vinnandi menn reyni að fá kjör sin
bætt, sé það hægt. Við þeim kröf-
um á að snúast eins vel og hægt er
frá hendi vinnuveitenda.
Væri ekki betra að vinna að
þessum málum á annan máta en
gerist? Til dæmis að vinna væri
ekki lögð niður á meðan á samn-
ingum stendur. Tími til samn-
ingagerðar væri t.d. 30 dagar. Eft-
ir þessa 30 daga hefði sáttasemj-
ari ríkisins vald til að ákveða 5
daga frest til samninga, þá mætti
boða verkfall, eða gerðardóm, eftir
samkomulag milli samningsaðila
og sáttasemjara.
Ég hefi þá trú að alltaf sé hægt
að semja. Ég man ekki eftir öðru
en að við lok verkfalla hafi verið
samið, að lokum. Þá hafa báðir
aðilar orðið fyrir stórtjóni af vðld-
um vinnustöðvunar. Til dæmis
flugverkföll, mjólkurverkföll og
skipaverkföll. Þjóðin hefir haft
mikið tjón af slíku.
íslendingar hafa sem betur fer
ekki önnur vopn en pennann til að
jafna ágreiningsmál sín. Erum við
öfundaðir af öðrum þjóðum fyrir
að vera vopnlaus þjóð. Gætum við
ekki verið öðrum þjóðum til fyrir-
myndar í því að beita samningum
á skynsamlegri hátt en nú er t.d.
með því að hætta að leggja niður
störf á meðan samningar standa
yfir? Ég fæ ekki betur séð, en að
sú breyting yrði til stórbóta fyrir
alla aðila. Þá fengju vinnuþegar
fullt kaup á meðan samningar
standa yfir, hvort það væri langt
eða stutt. Þá mætti hugsa sér að
það sem samið væri um tæki gildi,
þegar samningar hófust.
Oft hefi ég undrast að ríkisvald-
ið skuli ekki fyrir löngu hafa sett
lög um að stöðva ekki rekstur
mjólkurbúa. Heldur semja. Minn-
ugir þess, að bændur helltu niður
mjólk í stórum stíl öllum til tjóns.
Jafnframt mætti banna allar
hindranir og verkföll á flugflota
okkar meðan samningar eru í
gangi. Allir vita hvaða álitshnekki
stöðvun á flugi veldur að ekki sé
skrifað um það tjón, sem verður,
þegar áhafnir flugvéla stöðva flug.
I þriðja lagi eru það siglingar
millilandaskipa, sem ættu með
lagaboði að vera algjörlega un-
danskildar því að stoppa meðan
samningar standa yfir. Landbún-
aður, flug og skipaferðir eru
sannkallaðar lífæðar þjóðarinnar,
sem löggjafanum ber skylda til að
vernda.
Það er ömurleg sjón að sjá
blessuð skipin liggja hér úti á
sundunum og fá ekki að leita
lands. Sjómennirnir á þeim fá
ekki einu sinni að tala við ástvini
sína í síma. Hér má segja að hægt
er að svína víðar en i spilum.
Ms. „Herjólfur" er eins og allir
vita raunverulegur þjóðvegur
milli lands og Eyja. Setja þyrfti
lög um ferðir skipsins, svo þær
væru undantekningarlaust óháðar
öllum verkföllum, í eitt skipti
fyrir öll. Áhöfn skipsins héldi þó
sínum samningsrétti. Ms. „Herj-
ólfur“ á ekki að vera bitbein verk-
falla, svo þýðingarmikill er rekst-
ur skipsins. Eyjabúar leggja það
vel i þjóðarbúið, svo forsvarsmenn
Eyjanna ættu ekki að knékrjúpa
fyrir einhverjum jeppum í hverju
verkfalli, hvort þeir mega náðar-
samlegast sigla „Herjólfi" milli
lands og Eyja.
Almennt hefir því verið haldið
fram að stéttir bænda og sjó-
manna séu kjarni íslensku þjóðar-
innar. Löggjafanum er skylt að
búa að þessum stéttum eins vel og
vera má. Þar skortir þó stórum á.
Þessar stéttir eru ekki í neinu
verkfalli. Sjómennirnir fá ekki að
sigla skipum sínum i heimahöfn.
Svo sýnist, sem allt sé stjórnlaust.
Ríkisstjórnin er sem hún sé ekki
til. Hún á þó að vera húsbóndinn á
þjóðarheimilinu. Sýna það svo
ekki verði um villst. Nú eru ráð-
herrar auðmýktir og lítilsvirtir og
það jafnvel af undirmönnum sín-
um.
Það þótti á sínum tíma ótrúlegt
að BSRB sótti um verkfallsrétt.
Vakti það töluvert umtal. Ekki
þótti það þá minna umtalsvert að
nokkur ráðherra skyldi vera til
viðtals um slíka beiðni. Leyfið
fékkst og hefir BSRB haldið eina
prufusýningu og er með aðra yfir-
standandi, sem þjóðin sýpur seyð-
Friðfinnur Finnsson
„íslendingar hafa sem
betur fer ekki önnur
vopn en pennann til að
jafna ágreiningsmál sín.
Erum við öfundaðir af
öðrum þjóðum fyrir að
vera vopnlaus þjóð.
Gætum við ekki verið
öðrum þjóðum til fyrir-
myndar í því að beita
samningum á skynsam-
legri hátt en nú er ... “
ið af daglega. Vonandi á ríkis-
stjórnin næsta leik, sem verði svo
ákveðinn, að eftir verði tekið.
Ekki vil ég skilja svo við þetta
greinarkorn, að ég þakki ekki
DV-mönnum, fyrir sitt frábæra
starf, sem þeir lögðu af mörkum.
Fyrst með blaðinu og svo með út-
varpinu. Það var sannkallaður sól-
argeisli. Þá mátti segja að komið
væri myrkur um miðjan dag. —
Hafið heilar þakkir!
Við, sem sáum fyrst dagsins ljós
á fyrsta ári aldarinnar, megum
vera forsjóninni, — Guði, mikið
þakklátir fyrir að hafa fengið að
lifa í þessu blessaða landi. Asamt
öllum íbúum þess ungum og öldn-
Allt að 1.600 sólbekkir á landinu:
Eftirlit með sólbaðsstofum
lýtur aðeins að hreinlæti
„Þær ábendingar sem okkur hafa
borist eru þess eðlis að það er fyllsta
ástsða til að gefa þeim gaum og Land-
Ijeknisembettið hefur nú óskað eftir
samvinnu við Geislavarnir ríkisins
varðandi rannsóknir á hugsanlegum
tengslum húðkrabbameins og Ijósa-
lampanotkunar," sagði Sigurður
Magnússon, forstöðumaður Geisla-
vama Hollustuverndar rfkisins, m.a. á
blaðamannafundi sem boðað var til af
hálfu Geislavarna á mánudag.
{ máli Sigurðar á fundinum kom
fram, að þó að handbærar tölur um
fjölda sólbekkja á landinu skorti,
mætti ætla að sú tala væri á bilinu
1.200—1.600. Á höfuðborgarsvæðinu
eru nú þrjátíu og þrjár skráðar sól-
baðsstofur, sem bjóða upp á allt frá
fjórum upp í fjórtán sólbekki, tiu
stofur eru f Hafnarfirði og tólf á Ak-
ureyri og er þá aðeins um að ræða
staði sem sérhæfa sig í sólböðum, en
ekki t.d. snyrtistofur, sem bjóða
jafnframt upp á sólbekki eða ein-
staklinga, sem leigja notkun sól-
(Ljónm. Hbl. Árni Sœberg.)
Sigurður Magnússon, forstöðumað-
ur geislavarna Hollustuverndar
ríkisins.
bekkja út i heimahúsum eða hafa þá
til einkanota.
„Við höfum fengið fyrirspurnir frá
sólbaðsstofum, sem vilja fá að nota
sterkari perur en þær eru þegar með
og í sumum tilfellum hefur verið um
að ræða lampa, sem við getum ekki
samþykkt," sagði Sigurður og kvað
þörf fyrir aukna upplýsingaþjónustu
í þessum málum, svo og eftirlit.
Geislavarnir hollustuverndar
ríkisins hafa látið útbúa viðvörun-
arspjald, „upplýsingar um útfjólu-
bláa geislun", þar sem segir af hugs-
anlegri hættu samfara sóllampa-
notkun og er öllum sólbaðsstofum
skylt að hafa það uppi. Þar greinir
frá þekktum skaðlegum áhrifum út-
fjólublárrar geislunar á húð og augu,
ofnæmiseinkennum samfara notkun
vissra lyfja og ástundun sólbaða og
ennfremur sambandi því, sem vitað
er að er á milli útfjólublárrar geisl-
unar og húðkrabbameins. Þá er á
spjaldinu lögð rík áhersla á að að-
eins beri að nota viðurkennda vara-
hluti og sams konar perur og gert er
ráð fyrir að notaðar séu I viðkom-
andi sólbekki. Einnig er sólbaðsstof-
um. Hernaðarátök fara fram víða
um heimsbyggðina, því miður.
Okkur er hlíft og megum við vera
þakklát að hernaðarátök og blóðs-
úthellingar eru ekki i okkar
heimshluta. Oft hefi ég hugsað
um, hve mikið heimsbyggðin
mundi breytast til hins góða, ef
mannfólkið vildi hlýða þessu eina
boðorði Jesú Krists: „Það sem þér
viljið að mennirnir gjöri yður, það
skuluð þér og þeim gjöra."
Athygli ekki alllitla vakti það á
sl. sumri, þegar tveir velþekktir
þingmenn Alþýðuflokksins sögðu
frá því í fjölmiðlum, að nokkrir
milljarðar króna væru dregnir
undan sköttum. Orð slíkra manna
eru ekki að litlu markandi. Hvað
er hér að gerast? spurðu menn
hver annan. Eru lögin virkilega
svo illa samin, að slíkt sé hægt?
Eða eru mennirnir sem fram-
fylgja eiga lögunum svo illa að sér,
að þeir kunni ekki að beita lögun-
um á þann hátt sem ætlast er til?
Eiga lög ekki að vera til þess að
kenna fólki svo það geri rétt? Þar
með um leið að vernda borgarana
frá því að gjöra órétt. Það hljóta
að vera ólög, sem verða þess vald-
andi, að fólk sé með lög, sem eru
svo illa gerð, að menn freistist til
að brjóta lögin. Gera sig sjálfan
þannig að verri manni. { stað þess
að lögin hljóta að eiga að virka
þannig að hjálpa og gera fólk að
betri mönnum.
Áður fyrr heyrði maður að norr-
ænar þjóðir litu upp til Islendinga
sem heiðarlegs fólks. Væru þeir
góðir í viðskiptum. Vonandi er það
svo ennþá. Siðferðilegur styrkur
og heiðarleiki þarf að vera hornst-
einn allra þjóða, ef vel á að fara.
Heiðarleikinn er eitt það fegursta
sem prýðir mannlegt líf.
Fyrir mörgum árum tók ég mér
sumarfrí og dvaldi i gistihúsi úti á
landi. Var ég þar með kunningja
mínum frá Eyjum. Brottfarardag-
urinn kom. Þá var ég áheyrandi að
því sem snart mig. Kunningi minn
bað um reikning vegna uppi-
haldsins. Þjónn kom með reikning,
þar sem tilfærðar voru tölur og
dagar. Kunningi minn tók upp
vasabók sína. Þjónninn spurði
hvort eitthvað væri að: „Jú, það
vantar í reikninginn einn sólar-
hring. Ég hefi verið hér fimm
daga, ekki fjóra." Bornar voru
bækur saman og kom þá í ljós að
einn sólarhring vantaði í bók
gistihússins. Gesti var innilega
þakkaður heiðarleikinn og jafn-
framt sagt frá að þetta hefði ekki
komið fyrir áður, að gerð hefði
verið athugasemd á þennan veg.
Þarna gekk Vestmanneyingur-
inn út, heiðarlegur eins og mest
mátti vera. Sjálfum sér og heima-
byggð sinni til sóma.
Friðfínnur Finnsson er fri
Oddgeirsbólum í Vestmannaeyj-
um.
Spjaldið, sem geislavarnir hafa
dreift og sólbaðsstofum er skylt að
hafa uppi við.
um skylt að líma aðvörunarmiða á
hvern sólbekk þar sem þeir sjást vel.
Eins og fram hefur komið áður er
innflutningur sóllampa háður leyfi
frá Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu. Eftirlit með starfandi
sólbaðsstofum er hins vegar I verka-
hring heilbrigðisfulltrúa og lýtur að-
eins að því að almennu hreinlæti sé
framfylgt.