Morgunblaðið - 14.11.1984, Síða 66
66
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 1984
+ Eiginkona mln, móölr okkar, tengdamóöir og amma, QYOA GUOMUND8DÓTTIR, Furugeröi 1, Reykjavík, lést á Borgarspltalanum 13. nóvember. Aöalateinn Guömundtaon, Ragnar Aöalsteinsaon, Guörún Guömundsdóttir, Stefán Aöalsteinsson, Ólöt Haraldsdóttir, Bjarnþór Aöalsteinsson, Ingibjörg Bemhöft, Anna L. Aöalsteinsdóttir, Ólefur Sv. Guómundsson, bernabörn og barnabarnaböm.
t Bróölr mlnn, MARTEINN BJÖRN8SON, Kege, Danmörku, er látinn. Jaröarförln hefur farlö fram. Fyrir hönd vandamanna, Glsli Björnsson.
+ ADAM MAGNÚSSON, Bjarkarstlg 2, Akureyrl, lést I Fjóröungssjúkrahúslnu aö kvöldl 12. nóvember. Börn hins látna.
+ Elskuleg systir okkar, MARÍA ALBINA, lést I St. Jósefsspitala, Hafnarflröi, aöfaranótt 12. nóvember. Útförin fer fram frá Kristsklrkju Landakotl mánudaglnn 19. nóvember kl. 13.30. 8t. Jósefssystur.
+ Móöir okkar, GUÐNÝ FRIDBJARNARDÓTTIR frá Klausturhólum, Njörvasundi 7, Reykjavfk, er lést 6. þessa mánaöar veröur jarösungin frá Stóruborgarkirkju laugardaglnn I7. nóvember kl. 13.00. 8igrlöur Rósa Björgvinadóttir, Guörún Björgvinsdóttir, Magnús Björgvinsson, Björn ó. Björgvinsson.
+ Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir og amma, RÓ8A GUÐMUND8DÓTTIR, Þinghólsbraut 34, Kópavogi, veröur jarösungin frá Fossvogsklrkju fimmtudaginn 15. nóvember kl. 15.00. Þeim sem vilja mlnnast hennar er bent á Llknarsjóö Áslaugar Maak eöa aörar liknarstofnanir. Anna R. Jónatansdóttir, Vernharður Aöalsteinsson, Guömundur Jóna tansson, Marfa Guómundsdóttir, Helgi Jónatansson, Þorgeróur Einarsdóttir og barnabörn hinnar látnu.
+ Systlr okkar, VIGDÍS HERMANNSDÓTTIR, kennari, Hátúni 12, veröur Jarösungin frá Fossvogskirkju flmmtudaginn 15. nóvember kl. 10.30. Þeir sem heiöra vilja minningu hennar eru beönír aö láta Sjálfsbjörgu njóta þess. Ragnheióur Hermannsdóttir og systkini.
+ Eiginmaöur minn og faöir okkar, ÞORSTEINN ÓLAFS80N tennlssknir, Laufásvegi 42, sem lést 6. nóvember veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni i Reykjavik á morgun fimmtudaginn 15. þ.m. kl. I3.30. Ólöf Vilmundardóttir, Ólafur Þorsteinason, Kristln Þorsteinsdóttir.
Minning:
Björn Jónsson
Fæddur 25. igúst 1926
Diinn 5. nóvember 1984
í dag er til moldar borinn Björn
Jónsson, Garðaflöt 15 í Garðabæ.
Hann lést i Landspítalanum þann
5. nóvember síðastliðinn.
Björn var fæddur í Reykjavík
25. ágúst 1926. Foreldar hans voru
Jón Árnason fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sambands fsl. sam-
vinnufélaga og bankastjóri Lands-
banka Islands og Sigríður
Björnsdóttir frá Kornsá í Vatns-
dal.
Björn sat í Samvinnuskólanum
veturinn 1945—46. Að loknu
burtfararprófi þaðan hóf hann
störf hjá Sambandi ísl. samvinnu-
félaga og starfaði þar æ síðan.
Hann var um 12 ára skeið verslun-
arstjóri i Bókabúð Norðra, sem
Sambandið átti, en lengst af vann
hann í verðlagningardeild Sam-
bandsins, einkum og sérstaklega
við tollamál. Hann kynnti sér
mjög vel allt, sem laut að toll-
flokkun á vörum og tollamálum
almennt. Hann aflaði sér það góð-
rar þekkingar á þessum málum, að
kunnátta hans var viðurkennd og
virt af opinberum aðilum og öllum
öðrum, sem til þekktu.
Björn var mjög glöggur og rök-
fastur í öllum sínum málflutningi.
Hann lagði sig ævinlega fram um
að kynna sér vel hvert mál og
kryfja það til mergjar. Síðan kvað
hann upp sinn dóm, sem alltaf var
byggður á hans bestu sannfær-
ingu. Hann varð ætíð að vera viss
um, að hann væri að gera rétt.
Enginn gat þokað honum frá þvi
marki.
Ég held, að ég halli ekki á nokk-
urn mann þótt ég segi, að þeir hafi
ekki verið margir hér á landi, sem
staðið hafi Birni Jónssyni framar í
sambandi við tollflokkun og toll-
meðferð á vörum. Við fráfall hans
hefur verið höggvið stórt skarð f
starfsemi verðlagningardeildar
Sambandsins. Það skarð verður
vandfyllt.
Björn var traustur starfsmaður,
einlægur og hreinskiptinn. Hann
var dagfarsprúður og öllum sam-
starfsmönnum var vel til hans.
Hann var greiðvikinn og vildi
allra vanda leysa. Hann var ætið
með, þegar samstarfsmenn komu
saman. Hann gladdist með öðrum
og tók þátt í gleði annarra á sinn
einlæga og hógværa hátt. Björn
var mjög félagslyndur. Hann tók
virkan þátt í starfi starfsmanna-
félags Sambandsins og átti um
tima sæti í stjórn þess. Hann kom
ávallt fram af hreinskilni og hafði
þá löngum eitthvað gott til mála
að leggja. Hann var mikill sam-
vinnumaður og bar ætfð hag Sam-
bandsins og samvinnufélaganna
fyrir brjósti. Samvinnumenn eiga
honum þvi margt að þakka.
Björn Jónsson var tvíkvæntur.
Fyrri kona hans var Ebba
Sveinsdóttir. Hún lést árið 1974.
Þau eignuðust þrjár dætur, Mörtu,
Sigríði og Ingunni. Seinni kona
Björns er Emelía G.V. Húnfjörð,
sem lifir mann sinn.
Samstarfsmenn Björns f verð-
lagningardeild Sambandsins
þakka honum traust og gott sam-
starf á liðnum árum og senda eft-
irlifandi eiginkonu og öðrum að-
standendum samúðarkveðjur.
Að lokum vil ég þakka Birni,
vini mínum og samstarfsmanni,
sérstaklega fyrir áralangt sam-
starf, sem alla tíð einkenndist af
gagnkvæmu trausti, einlægni og
vináttu.
Við hjónin vottum frú Emilfu,
aldinni móður, bróður, dætrum og
öðrum vandamönnum dýpstu
samúð.
Björn Guðmundsson
Hann Björn er dáinn. Þessi orð
voru sögð við mig í símann mánu-
daginn 5. nóvember og ég beðinn
að segja sambýliskonu minni,
Jónu Jósteinsdóttur stjúpdóttur
Björns, lát hans. Það var erfitt
verkefni, sem mér var nú falið, því
Jónu var sérstaklega annt um
Björn.
Lát hans kom mér ekki á óvart
eftir hans erfiðu sjúkdómslegu, en
söknuðurinn var ólýsanlegur, þó
ekki hafi ég þekkt hann nema i
þrjú ár, en þessi þrjú ár i hans
návist verða mér ógleymanleg
með öllu. Hjálpsemi hans, hlýja,
góðvild og lifsgleði, alltaf kátur og
reiðubúinn að taka erfiðleika og
áhyggjur annarra yfir á sfnar
herðar, þannig þekkti ég Björn, og
verst þykir mér, að ég skuli aldrei
geta endurgreitt honum þá fyrir-
höfn, sem hann lét sig hafa vegna
mín og Jónu. Ánægja hans var að
geta gert fólk ánægt og hamingju-
samt.
Eg votta ástvinum hans samúð
mína. Hvíli hann f friði.
Halldór Kjartansson
Björn Jónsson andaðist í Land-
spítalanum 5. nóvember siðastlið-
inn eftir skamma legu. Björn
hafði nokkrum mánuðum áður
kennt þess sjúkdóms, sem varð
honum að aldurtila, en náði sér þá
fljótlega aftur. Engan grunaði þvf
að Björn mundi ekki eiga eftir að
njóta samvista við vini og vanda-
menn um ókomin ár, en oft er
skammt stórra högga í milli.
Björn var sonur hjónanna Sig-
ríðar Björnsdóttur frá Kornsá í
Austur-Hún. og Jóns Árnasonar
fyrrum bankastjóra Landsbanka
íslands. Faðir Björns fluttist til
Reykjavíkur þegar hann tók þátt f
stofnun Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga og gerðist fyrsti
starfsmaður þess. Sigríður og Jón
reistu sér framtfðarheimili að
Laufásvegi 71 hér f borg. Mikil
reisn og myndarbragur var á
heimili þeirra hjóna og gestkvæmt
mjög, enda þau hjón góð heim að
sækja. Björn ólst upp f föðurgarði
ásamt systkinum sínum og stund-
aði nám í Reykjavík. í fyrstu í
Menntaskólanum en síðar f Sam-
vinnuskólanum. Hann lauk Sam-
vinnuskólaprófi og gerðist
skömmu síðar starfsmaður Sam-
bands ísl. samvinnufélaga. Vann
hann fyrstu tvö árin á skrifstofu
Sambandsins f Kaupmannahöfn,
en síðar á aðalskrifstofu Sam-
bandsins f Reykjavfk. Björn var
sérlega vandvirkur og aðgætinn
starfsmaður alla tfð og kom það
einkar vel f ljós þegar hann rak
Bókabúð Norðra um nokkurra ára
skeið, en sá rekstur gekk mjög vel
á meðan Björn veitti þvi fyrirtæki
forstöðu. í Kaupmannahöfn
kynntist Björn fyrri konu sinni,
Ebbu Sveinsdóttur Magnússonar
kaupmanns. Hann var Vestfirð-
ingur að ætt, en fluttist til Dan-
merkur og var búsettur þar alla
ævi. Þegar Björn og Ebba fluttust
til Reykjavíkur 1950 stofnuðu þau
í fyrstu heimili að Laufásvegi 71,
en síðar reisti Björn hús að
Garðaflöt 15 og bjuggu þau þar
upp frá þvi. Þau Björn og Ebba
eignuðust tvö börn, Sigríði og Ingu
og að auki tóku að sér og ætt-
leiddu Mörtu Guðrúnu, bróður-
dóttur Ebbu. Þessar þrjár mynd-
arstúlkur eru nú giftar í Reykja-
vík, en voru eins og að Ifkum lætur
augnayndi foreldra sinna. Ebba
reyndist Birni góð og traust eig-
inkona. Henni var mjög annt um
heimili sitt og var myndarbragur,
hlýleiki og gestrisni þar í fyrir-
rúmi. Gott var að heimsækja
Björn og Ebbu og hefi ég átt þar
marga ánægjustund. Ebba lést ár-
ið 1974 og var það vissulega mikið
áfall fyrir Björn, en honum tókst
að halda heimilinu saman með
hjálp dætra sinna, en þegar þær
fluttust að heiman varð tilveran
tómlegri. Árið 1977 kvæntist
Björn öðru sinni, eftirlifandi konu
sinni Emilíu Húnfjörð. Reyndist
hún Birni vel allt til loka. Björn
var félagslyndur maður og tók um
tíma virkan þátt f starfi Fram-
sóknarfélaganna f Reykjavfk, en
ég held að óhætt sé að segja að
fyrst og fremst átti Frímúrara-
reglan á íslandi hug hans. Björn
var mjög virkur og áhugasamur
félagsmaður og vann reglunni allt
sem hann mátti af iðni og árvekni.
Ég kynntist Birni þegar ég var
ungur að árum. Tókst strax með
okkur góð vinátta sem hélst með
okkur alla tfð. Björn var vinfastur,
traustur og hinn besti drengur.
Hafði ég ávallt ánægju og gleði af
þegar fundum okkar bar saman og
áttum við margar ánægjustundir.
Björn kunni vel að meta útiveru
og stangveiði. Eru ófáar laxveiði-
ferðirnar sem við förum saman
fyrr á árum og man ég vel hvað
Björn sýndi mikla lagni og þol-
inmæði við veiðiskapinn, enda
varð honum oftast vel til fanga.
Þá minnist ég öræfaferða sem við
Björn fórum með Guðmundi Jón-
assyni fjallabflstjóra. Þá voru
slfkar ferðir mun sjaldgæfari en
nú er orðið og vegakerfíð á há-
lendinu afar frumstætt. Gist var f
tjöldum víðsvegar um hálendið og
skoðaðir margir af fegurstu stöð-
um landsins. Man ég glöggt hversu
næmur Björn var á reisn landsins
og hve annt honum var um að
varðveittar yrðu helstu gróður-
lendur öræfanna, svo og að gætt
væri ítrustu varfærni og snyrti-
mennsku i allri umgengni við hina
viðkvæmu náttúru.
Björn er nú horfinn yfir móðuna
miklu en minning hans á meðal
okkar sem þekktum hann verður
alltaf kær.
Eiginkonu Björns, dætrum
hans, svo og móður hans og bróður
ásamt öðrum vandamönnum sendi
ég mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Hinrik Thorarensen
Eiginkona mln og móölr, +
KRI8TJANA P. HELGADÓTTIR
Isaknir,
Setbergsvegi 1, Hafnarfiröi,
veröur jarösungin frá nóvember kl. 15.00. Hafnarfjaröarkirkju fimmtudaginn 15.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsamlega bent á
liknarstofnanir. Finnbogi Guðmundsson, Helga Laufey Finnbogadóttir.
Lokað
Skrifstofur okkar verða lokaðar frá hádegi i dag, miö- vikudag, vegna útfarar SVEINS EINARSSONAR veiði-
stjóra. Búnaöarfélag Íslands.